Tíminn - 26.05.1992, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.05.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. maí 1992 Tíminn 3 Ferðamálafélag Skagafjarðar og Siglufjarðar fundar: Fallegir staðir og góð umgengni Fcröamálafélag Skagafjarðar og Siglufjarðar hélt opinn fund á Siglufirði 8. maí sl., en félagið er aðili að Ferðamálasamtökum Norð- urlands vestra. Tilgangur félagsins er m.a. að leita nýrra leiða til að laða ferða- menn til héraðsins og efla vitund almennings fyrir varðveislu fag- urra staða og snyrtilegri umgengni um landið. Einnig vill félagið stuðla að merkingu skoðunar- verðra staða og gönguleiða. Á fundinum var ákveðið að gefa út bækling fyrir sumarið þar sem að- staða sú, sem þegar er til staðar í Skagafirði og á Siglufirði, verður kynnt. Ferðamál voru einnig fundarefni Atvinnumálanefndar Siglufjarðar á fundi hennar 12. maí. Þar var ákveðið að vísa til bæjarstjórnar að kannað verði hvort hagkvæmt sé að skipuleggja orlofshúsabyggð á Saurbæjarási með það í huga að bjóða félagasamtökum og öðrum tilbúnar Ióðir undir orlofshús. Nefndin leggur til að starfsmaður verði ráðinn til að sinna ferða- mönnum, a.m.k. yfir sumarið. Auk þess kom fram eindregin ósk um að Siglufjarðarvegur verði byggður upp eins fljótt og unnt er, lagður varanlegu slitlagi og mokaður fimm sinnum í viku yfir veturinn. Ferðamenn geta því átt von á góðu í sveitinni, þegar fram líða stundir. —GKG. Þriðjungur greiðslukortahafa nýtti sér heimild til að dreifa greiðslu: Um 40% ungra korthafa hafa lent í vanskil- um á s.l. ári Merkilegur munur er á því effir aldri fólks hve tnisjafnlega vel því gengur að kaupa ekki meira út á greiðslukortið en það á aura fyrir á gjalddaga. Könnun, sem Neytenda- samtökin gerðu núna í aprfl, leiddi m.a. í ljós að 40% korthafa á aldr- unum 25-35 ára höfðu ient í van- skilum á síðustu tólf mánuðum, þ.e. ekki getað greitt reikninginn fyrir gjalddaga. Bæði meðal yngra fólks og eldra, upp að fimmtugu, hafði tæpur fjórðungurinn af van- skilum að segja. Og af korthöfum eldri en 50 ára höfðu aðeins 6% lent í vanskilum. Meðaltalið er rúm- lega fjórðungur og þar af hafði þriðji hver (9%) oftar en einu sinni lent í greiðsluerfíðleikum á árinu. Neytendablaðið segir frá þessari könnun. Þar kemur líka í ljós að nær þriðjungur (31%) allra korthafa hafa nýtt sér tilboð kortafyrirtækjanna um að skipta greiðslum á þrjá mán- uði tvisvar til þrisvar sinnum á ári. Gert er ráð fyrir að enn fleiri hefðu lent í vanskilum með reikninginn, ef þessarar þjónustu nyti ekki við. Af 1.200 manna úrtaki reyndust 817 fúsir að svara spumingum um greiðslukortanotkun. Af þeim sagð- ist meirihlutinn, 60%, ekki nota kort, en þó var algengt að einhver annar á heimili þeirra gerði það. Langalgengast var að eitt kort væri á heimili (65%). 5% kaupa nær allt út á kort Korthafar voru spurðir hvað þeir áætluðu að stór hluti af viðskiptum heimilisins, öðmm en greiðslum af lánum og húsnæði, væri greiddur með greiðslukorti. Hátt í helmingur taldi það undir 20% og um þriðjung- ur nefndi 20-50%. Hins vegar töldu um 5% korthafa sig nota þau við meira en 80% heimilisviðskiptanna (líklega flest nema bensínkaup, sem nú er líka hægt að gera út á kort). TVúlega er sá hópur meðal þeirra 8% korthafa, sem kváðust gera öll sín matarinnkaup út á kort. Til við- bótar sagðist þriðjungurinn oft nota kortin við matarinnkaupin, annar þriðjungur sjaldan, en fjórðungur korthafa segist aldrei kaupa mat út á kort. Sammála um hver á að borga „Hver finnst þér að eigi að greiða kostnað vegna greiðslukorta?" Þessi spuming var lögð fyrir alla þátttak- endur í könnuninni og vekur athygli að nánast enginn skoðanamunur kom í ljós á milli korthafa og þeirra sem ekki nota kort. Korthafar eiga að borga kostnaðinn að mati 81% korthafa og 86% kortlausra, en að- eins 14% og 19% vilja að hann legg- ist á vöruverðið. Helmingurinn vill fá debetkort Könnunin leiddi líka í Ijós tölu- verðan áhuga á debetkortum — þ.e. kortum sem em andstæða greiðslu- korta að því leyti að úttekt á slíkt kort dregst jaftióðum frá inneign á bankareikningi viðkomandi. Debet- kortum er því ætlað að koma í stað ávísana. Um helmingur svarenda sagðist nota þessa þjónustu ef hún stæði til boða. Það á einnig við um þann hóp, sem ekki notar kredit- kort Þriðjungur þeirra, sem nú nota greiðslukort, vildi fá debetkort í staðinn, en hinir mundu nota bæði greiðsluformin. Að sögn Neytendablaðsins er búist við að debetkort verði komin á markaðinn ekki síðar en á fyrri hluta næsta árs, kannski fyrr. - HEI Frá fundi Ferðamálafélags Skagafjarðar og Siglufjaröar: Sóley Erlendsdóttir, Ragnar Ólafsson for- maður atvinnumálanefndar, Einar Steinsson formaður Ferðamálafélagsins, og Elín Sigurðardóttir oddviti Lýtingsstaðahrepps í Skagafirði. (fsö Sölutjöld 17. júní 1992 í Reykjavík Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíðardaginn 17. júní 1991 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða að Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15. Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa að afla viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum. Umsóknum sé skilað í síðasta lagi föstudaginn 5. júní kl. 12.00. Vakin er athygli á því, að öll lausasala frá tjöldum og á hátíðarsvæðinu er stranglega bönnuð. % 3 góðar ástæður til að velja Jötun h/f og Alfa-Laval sem samstarfsaðila! Verslun Jötuns Sérverslun fyrir landbúnað er meö allan nauðsynlegan búnað fýrir dagleg- an rekstur. Allt það nýjasta frá Alfa-Laval finnur þú (versluninni auk annars vöruúrvals. Starfsfólk Jötuns fer oft á endurmenntunarnámskeið til að geta leiðbeint þér sem best. „Alfa-Shop“-verslunin“ Kemur til þín! Viðgerðarmaður frá Alfa-Laval býður fullkomna þjónustu á Alfa-Laval og Manus tækjum, svo og ýmsum vörum sem þú þarfnast til rekstrarins. „Verslun á hjólum" sparar þér kaupstaðarferð. Jafnframt færðu leiðbeiningar sérffæðings við vöruval. „Alfa-Laval og þjónustan“ ER í sérflokki í landinu hvað varöar vel uppbyggt þjónustunet týrir þig sem vinnur við landbúnað. Traust menntun og góð þjálfun leggja grunninn aö góöri vinnu viögerða- og þjónustumanna ffá Jötni. Flestir íslenskir bændur nýta sér þekkingu og þjónustu ffá Jötni. VIÐ BYGGJUM A GÆÐUM OG ÞJÓNUSTU! oc ALFA- LAVAL AGRI SCAWPINAVIA MTOMÍM HHiÍsodfý HÖFÐABAKKA 9 .112 REYKJAVÍK . SÍMI 91-634000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.