Tíminn - 26.05.1992, Side 4

Tíminn - 26.05.1992, Side 4
4 Tíminn Þriðjudagur 26. maf 1992 Tímiim MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guðmundsson Stefán Asgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Sfml: 686300. Auglýslngasfmi: 680001. Kvöldslmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Neyðarráðstöfun gegn eigin aðgerðum Ein af niðurstöðum kjarasamninganna var sú að sjávarútvegurinn þarf að búa við fast gengi á samningstímanum, eða næstu 10 mánuði. Það markmið er gott út af fyrir sig og nauðsynleg for- senda stöðugleika í þjóðfélaginu. Hitt er svo annað mál að til þess að sjávarútveg- urinn lifi af, má hann ekki búa við kostnaðar- hækkanir. Framvinda þessara mála veldur áhyggjum, vegna þess að í ýmsum greinum sjávarútvegsins, einkum fiskvinnslunni, er bullandi taprekstur. All- ar aðgerðir stjórnvalda síðasta ár í málefnum sjáv- arútvegsins miðuðu í þá átt að leggja meiri byrðar á hann. Má sem dæmi nefna að samkvæmt tölum ffá LÍÚ hafa ýmis gjöld útgerðarinnar til opinberra aðila hækkað um 459,5 milljónir króna á milli ár- anna 1991 og 1992. Eina bjargráðið, sem stjómvöld hafa séð, er að endurgreiða innistæðu í verðjöfriunarsjóði sjávar- útvegsins. Innistæðumar í sjóðnum em þrír millj- arðar króna, sem verða endurgreiddar eftir ákveðnum reglum til áramóta, og meðal annars notaðar til að skuldajafna. Það er dálítið broslegt í öllu tali núverandi stjórnarherra um viðskilnað fyrrverandi ríkis- stjómar og tómu sjóðina, að eina bjargráðið í sjáv- arútvegsmálum skuli vera að greiða út innistæður úr sjóði, sem til varð á valdatíma fyrrverandi ríkis- stjómar og var ætlaður til sveiflujöfnunar í sjávar- útvegi. Með þessari útgreiðslu getur sjóðurinn ekki gegnt því hlutverki sínu á næsta ári, fari svo að verð lækki. Það er því greinilegt að útgreiðslan er neyðarráðstöfun til þess að mæta álögum, sem núverandi ríkisstjóm hefur lagt á atvinnugrein- ina. Þar var verið að fram á elleftu stund. Lög um skattskyldu innlánsstofnana, sem samþykkt vom á síðustu dögum Alþingis, fela í sér 300 milljón króna álögur á sjávarútveginn, að mati forráða- manna Fiskveiðisjóðs íslands, sem metur vaxta- hækkanir sjóðsins vegna laganna til þessa verðs. Aðgerðir stjórnvalda gagnvart sjávarútvegi em því með endemum. Gripið er til neyðarráðstafana til þess að mæta ástandi, sem stjómvöld hafa sjálf skapað með auknum álögum. Eftir stendur at- vinnugreinin berskjölduð fyrir því ef sveiflur verða í verðlagi, eins og alltaf má búast við. Við þetta bætist að skipulagsmál sjávarútvegs- ins em í hinni frægu tvíhöfða nefnd, þar sem for- mennimir hafa talað sitt í hvora áttina. Margt bendir nú hins vegar til þess að formaður sá sem Alþýðuflokkurinn lagði til, Þröstur Ólafsson, sé nú á harðahlaupum frá stefnu flokksins í málinu. Á ráðstefnu Sambands ungra framsóknarmanna um sjávarútvegsmál síðastliðinn laugardag lýsti hann því yfir að kvótakerfinu og framsalsrétti kvóta yrði að halda. Hins vegar em orð Þrastar ekki nóg, meðan stjómarflokkarnir kasta þessu mikilvæga máli á milli sín. Gjaldþrot eru orðin þreytt um- ræðuefni og umQöllun um fall- ít fiskeldisfyrirtækja er orðin svo leiðinleg að það er nánast ókurteisi að bjóða nokkurri manneskju uppá að hlýða á svoddan raus, hvað þá að ætlast til að einhver eyði tíma sínum í að lesa alla þá hrakfallabálka sem efnið býður upp á. Þrotamenn eiga ósköp bágt, enda missa sumir þeirra aleigu sína og sinna, og einstaka gerir enn betur og kemur vinum og kunningjum út á kaldan klaka. Kváðu þau sameiginlegu skip- brot ekki alltaf vera sæl, eins og rangsnúinn málsháttur kveður áum. En mörgum gjaldþrotum fylgir hulinn vemdarkraftur, og stórskuldugir þrotamenn taka við eignum sínum aftur. Þær vættir, sem svona blessun fylg- ir, véla svo um að skuldimar hverfa, en eignir og undanskot em á sínum stöðum. Oftar en ekki em galdrarúnimar H/F ristar á spjöldin, sem svo magn- aður seiður fylgir. Að missa og eignast Nýjar fréttir af gömlu gjald- þroti vom þuldar í útvarp í gær. Þær vom á þá lund að fyrrver- andi eigendur víðáttumikillar fiskiræktar fyrir norðan, sunn- an og vestan væm á góðri leið Hulinn vemdar- kraftur með að kaupa fyrmm fyrirtæki sín eftir gjaldþrotaskipti. Að venju fylgdu engar útskýr- ingar á þeim undmm, sem ver- ið var að segja frá. Helst lítur út fyrir að lánar- drottnar taki eignir fyrirtækis- ins upp í vangreiddar skuldir, taki á sig kostnað og vexti og greiði upp allar kröfur, sínar eigin sem annarra. Ríkið og aðrir opinberir aðilar fella að sjálfsögðu niður allar skattaskuldir og borga starfsfólki ógreidd laun og lögbundin framlög í lífeyrissjóði. Þegar búið er að hreinsa allar skuldir og leysa fjárhagsleg vandamál, stíga fyrrum eigend- ur ffam á sviðið fullir sjálfs- trausts og framkvæmdavilja og segja: „Nú get ég.“ Þá sjá lánardrottnar og skiptaráðendur að þeir, sem áð- ur vom skuldum vafðir þrota- menn, em að sönnu athafna- menn með mikla og dýrmæta reynslu, sem skulda engum neitt, því þeir hafa öðlast frels- ara, sem kastar öllum þeirra skuldum á bak við sig. Gullið freistar í öllum löndum og á öllum tímum hefur gullgröftur talist til áhættugreina. Að vera gull- grafari er að freista gæfúnnar og getur þá bmgðið til beggja vona hvemig til tekst. Gullgröftur er því mikið æv- intýri, sem freistar dugnaðar- manna sem þora að leggja und- ir. Á íslandi hafa gullgrafarar tvisvar lagt í að leita að hinum skíra málmi. í fyrra sinnið í Vatnsmýrinni upp úr aldamót- um og var stofnað hlutafélag um bor. Eini málmurinn, sem þá fannst, var látúnið úr hvell- hettunum sem notaðar vom til að sprengja sig niður á gullæð- amar. Félagið var leyst upp og ævintýrið var á enda. í síðara sinnið kviknaði sú fluga í kolli fjáraflamanna að skip hlaðið gulli hafi grafist í Skeiðarársand og hafi aldrei nokkur maður haft döngun í sér til að fara um borð að ná í fjársjóðina, þau ár sem það tók sandinn að verpast um skipið. Því er upplagt mál að finna dall- inn í sandinum og hirða dýr- mætan farm. En hér em engir ævintýra- menn á ferð. Aldrei stóð til að taka áhættu eða tefla í tvísýnu, ef skipið ekki fyndist, eða þá að svo undarlega hafi farið að aðr- ir hafi verið á undan og náð í farminn þau ár sem gullskipið var enn ofanjarðar. Áhættulaus gullgröftur Og ævintýrin gerast enn, því gullleitarmönnum tókst að plata Alþingi fslendinga upp úr skónum. Vom samþykkt lög um að ríkissjóður gengist í 50 milljón króna ábyrgð, færi svo að hollenska gullflutningaskip- ið fyndist ekki í Skeiðarársandi, eða að gullið væri á brott úr flakinu. Eitt sinn fannst skipsflak og var það grafið upp af mikilli kunnáttu og ærnum kostnaði. Reyndist það vera, þegar til kom, ryðkökkur sem eitt sinn var togari, og strandaði hann á svipuðum tíma og gullgröftur- inn stóð hvað hæst í Vatnsmýr- inni við Öskjuhlíð. Lyktir leitarinnar að gullskip- inu vom þær að landssjóðurinn borgaði kostnaðinn samkvæmt lögum frá Alþingi, og fer eng- um sögum af því að gullleitar- menn hafi verið svo vel tryggð- ir frá því sögur hófust. Ævintýri án áhættu Áhættan af leit að gullskipi í víðáttum sunnlenskra sanda er ekki meiri en af fiskeldi, þegar réttir menn em á réttum stöð- um. Það vill nefnilega svo til að það em sömu menn, sem leituðu að gullskipi og fengu sjóð allra lands- manna til að borga brúsann, sem nú ætla að kaupa gjald- þrota fiskeldisfyrirtæki fyrir norðan, sunnan og vestan og reka það áfram af alkunnum skömngsskap og bjartsýni. Þetta em líka sömu menn- imir og stofnuðu og starfræktu fiskeldisfyrirtækið fyrir norð- an, sunnan og vestan og endaði sá rekstur með frægu gjald- þroti. Sjálfsagt em engir meinbugir á því að afhenda athafnamönn- unum fyrirtækið aftur og kalla það sölu. Spumingin er bara þessi: Hver varð gjaldþrota og hvers vegna? Þá vaknar sú spuming í hug- um þeirra, sem ekkert kunna á H/F-rúnimar: Hver tapar, ef einhver er? Það em auðvitað skuldunautamir, almannasjóð- ir og lánastofnanir. Það er hallinn á ríkissjóði og og sá gífurlegi munur á inn- láns- og útlánsvöxtum, sem sumir kalla vaxtaokur, sem gera ævintýri á borð við þau, sem hér er minnst á, möguleg. Því fylgir engin áhætta að grafa eftir gulli eða reka víð- áttumikil fyrirtæki, sem fara á hausinn. Það em almannasjóð- imir sem áhættan fylgir. OÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.