Tíminn - 26.05.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 26. maí 1992
BELGRAD
Hersveitir múhameðstrúarmanna
hindruðu í gær júgóslavneska
stjómarherinn í þvi að rýma her-
búðir sínar i Sarajevo, höfuðborg
Bosníu. Ástæða þess var sögð sú
að stjómarherinn hefði svikið sam-
komulag um aö afhenda vopn sin
yfirvöldum í Bosníu. I Lissabon
ræddu fulltrúar stríðandi aðila í Bo-
sníu-Hersegóvínu landamæri hugs-
anlegra sjálfsstjómarsvæöa mús-
lima, Serba og Króata.
BANGKOK
Þing Thailands hefur í snarhasti
tekið til umfjöllunar viöauka eöa
grein við stjómarskrána, sem gerir
hermönnum eins og Suchinda
Kraprayoon erfiðara fyrir með að
komast til valda. Suchinda
Kraprayoon er nú farinn í útlegö.
MANILA
Miriam Santiago, forsetaframbjóð-
andi á Filippseyjum, hefur hætt
þriggja daga hungurverkfalli, að
bón forystumanna kaþólsku kirkj-
unnar. Hún hóf hungurverkfall í því
skyni að mótmæla kosningasvik-
um, sem hún staðhæfir að hafi átt
sér stað.
JIBSHEET, Líbanon
Israelskar herflugvélar og þyriur
gerðu sprengjuárás á bækistöðvar
Hizbollahsamtakanna í S-Líbanon,
en samtök bessi eru hliðholl klerka-
stjórninni i Iran. Samkvæmt fregn-
um frá leyniþjónustu Israelsmanna
hafa Sýriendingar aukið hernaðar-
viðbúnað sinn í austurhluta lands-
ins. Sömu fregnir herma að Sýr-
lendingar hafi sent hundruð her-
manna til Llbanons um helgina og
hafi þeir komið sér fyrir i Bekaa-
dalnum austanverðum.
NÝJA DELHÍ
Indversk stjórnvöld hafa skipað
tveimur sendimönnum Pakistans
aö hypja sig úr landi innan 48
stunda, þar sem þeir séu ógnun við
öryggi landsins. Brottreksturinn
kemur í kjölfar vitnisburðar ind-
versks sendimanns í Pakistan, sem
segist hafa þar verið handtekinn og
pyntaöur af pakistönskum leyni-
þjónustumönnum.
RÓM
Oscar Luigi Scalfaro, forseti neðri
deildar ítalska þingsins, ertalinn
liklegurtil að verða næsti forseti
Italiu. I Palermó fór fram jarðarför
rannsóknardómarans Giovannis
Falcone, sem myrtur var í
sprengjutilræði á dögunum. Mafí-
unni var sérlega uppsigað við Fal-
cone og talið er víst að hún eigi sök
á dauða hans. Jarðarför Falcones
snerist upp í almenn mótmæli gegn
rómverskum stjómmálamönnum og
lá við að hún endaði í algerri upp-
lausn.
BARCELONA
Öryggisverðir og lögregla í Barcel-
ona voru í viðbragðsstöðu eftir að
sprengja, sem falin var í ruslapoka,
sprakk og slasaöi 15 manns í gær.
Önnur sprengja fannst einnig fyrir
utan skrifstofubyggingu I miðborg-
inni, en það tókst aö aftengja hana
(tima áður en hún spryngi.
ACCRA
Minnst 63 manns hafa verið drepnir
i kynþáttaóeiröum f norðurhluta
Ghana um helgina. Heilu þorpin
voru brennd til grunna (óeirðunum
og fjöldi ibúa þeirra er nú á flótta
frá svæðinu, aö því er yfirvöld
segja.
ADDIS ABABA
Eþíópia gæti gert hungurvofuna
burtræka úr landinu og brauðfætt
þegna sína, ef heimurinn vildi
hjálpa til við að rétta af efnahag
landsins, sem er í rúst eftir lang-
vinnt borgarastriö. Þetta er skoðun
Meles Zenawi, forseta landsins,
sem hann lét í Ijós i gær.
Umsjón:
Guðlaugur
Tryggvi
Karlsson
Fimm bestu fjórgangsknaparnir. Frá
vinstri: Berglind Árnadóttir, Trausti
Þór Guðmundsson, Krístín Birna
Óskarsdóttir, Sigurður Sigurðarson
og Þórunn Þórarinsdóttir. Þorsteinn
Aðaisteinsson stendur hjá.
n&9Inn
Lengi talin fegursta sjón á ísa-
landi, fögur snót á glæstum gæð-
ingi. Berglind Árnadóttir á Snjalli,
sigurvegari I fjórgangi, tölti og ís-
lenskri tvíkeppni.
Knattspyrnuvertíðin hér á landi hófst fyrir alvöru um helgina:
Framarar lágu
gegn Þórsurum
Deildakeppnin í knattspyrnu hófst um helgina og bar þar hæst
keppni í Samskipadeildinni, en í henni voru leiknir fimm leikir.
Þaö verður ekki annað sagt en að liðin sem spáð var falli í 2.
deild, Þór og KA frá Akureyri, hafi komið verulega á óvart í fyrstu
umferðinni með því að vinna góða sigra á andstæðingum sínum.
KA lagði íslandsmeistarana og Þór vann sigur á Fram.
Á Iaugardag tóku Þórsarar á móti
Fram á Þórsvellinum á Akureyri.
Þrátt fyrir að tölfræðin, þ.e.a.s. mið-
að við árangur Fram gegn Þór á Ak-
ureyri, sé ekki þeim í hag þá voru
þeir tvímælalaust sigurstranglegri í
þessum leik. Þórsarar voru mun
sterkari aðilinn í leiknum og fengu
mun fleiri tækifæri. Sigurmark
Þórsara í leiknum kom á 49. mín-
útu leiksins og kom það eftir langt
innkast inn í vítateiginn þar sem
Hlynur Birgisson náði að fleyta
boltanum aftur fyrir sig þar sem
Bjami Sveinbjömsson kom og setti
boltann í netið með höfuðspymu.
Þórsarar létu ekki við það sitja, en
tókst ekki að bæta við fleiri mörk-
um.
Vestmannaeyingar lágu gegn
Valsmönnum á heimavelli sínum á
laugardagskvöld, en fresta varð
leiknum um tæpar sex klukku-
stundir þar sem flugvél með dóm-
aratríó komst ekki til eyja vegna
veðurs og urðu þeir því að fara með
Herjólfi. Heimamenn hófu leikinn
af krafti og skomðu strax á 7. mín-
útu leiksins og var þar Bojan Bevc
að verki. Um fjörutíu mínútum síð-
ar, eða á Iokasekúndum (yrri hálf-
leiks, jafnaði Baldur Bragason leik-
inn fyrir Valsmenn og Anthony Karl
Gregory gerði síðan sigurmark
Valsmanna skömmu fyrir leikslok.
KR-ingar og Skagamenn gerðu
sannkallað stórmeistarajafntefli á
laugardag, þegar Skagamenn heim-
sóttu þá fyrrnefndu í Frostaskjólið.
Leiknum lykt-
aði með 2-2
jafntefli, en
staðan í hálfleik
var 1-1. Rúnar
Kristinsson kom KR-ingum yfir á
8.mínútu leiksins eftir góðan und-
irbúning Ragnars Margeirssonar,
en Skagamenn náðu að jafna metin
með skoti úr aukaspymu. Þar var
að verki Haraldur Ingólfsson, sem
gjörnýtti hroðaleg mistök Ólafs
Gottskálkssonar í marki KR. Þegar
um 15. mínútur voru liðnar af síð-
ari hálfleik náði Steinar Ingimund-
arson að koma KR-ingum yfir á nýj-
an leik, eftir að Kristján Finnboga-
son, markvörður ÍA og fyrrum KR-
ingur, hafði hálfvarið skot frá Heimi
Guðjónssyni. Eftir mark Steinars
komu Skagamenn meira inn í leik-
inn, en það var ekki fyrr en um tíu
mínutur voru til leiksloka sem þeir
náðu að jafna leikinn og var það
Bjarki Gunnlaugsson sem það
gerði. KR-ingar voru þegar á heild-
ina litið nær því að sigra í leiknum
og fengu þeir fleiri góð færi.
Á sunnudagskvöld sóttu KA-
menn Islandsmeistara Víkings
heim og sóttu þeir þrjú stig í greip-
ar Víkinga. Það var Ormarr Örlygs-
son, fyrrum þjálfari KA, sem
tryggði KA sigurinn með tveimur
mörkum á síðustu tíu mínútum
leiksins. Víkingar voru atkvæða-
meiri úti á vellinum, en náðu þó
ekki að skapa sér nægilega góð
færi, ef undan er skilið færi Guð-
mundar Steinssonar eftir slæm
varnarmistök KA. KA menn lögðu
grunninn að
þessum góða
sigri með feikn-
arlegri baráttu,
en það kom á
óvart að Gunnar Gíslason stillti
upp dálítið breyttu liði, sem var
mikið til byggt á samblandi af mjög
ungum og óreyndum leikmönnum
og gömlum refúm, eins og Gunnari
Gíslasyni og Ormarri Örlygssyni.
FH-ingar báru sigurorð af Blik-
um í hundleiðinlegum leik í Hafn-
arfirði á sunnudagskvöld. Það var
ekki margt í þeim leik sem gladdi
augað ef frá er talið stórglæsilegt
mark Andra Marteinssonar á 5.
mínútu leiksins. FH-ingar réðu
gangi leiksins i fyrri hálfleik, og
léku þá undan sterkum vindi. Þeir
náðu þó ekki að nýta sér það frekar.
í síðari hálfleik voru það Blikar sem
höfðu tögl og hagldir í leiknum og á
63. mínútu bar sóknin ávöxt. Stein-
dór Elísson gerði þá mark eftir dar-
raðardans í vöm FH. Það var síðan
um 3 mínútum fyrir leikslok sem
FH-ingar gerðu sigurmarkið og var
það Grétar Einarsson sem það
gerði, eftir voðaleg vamarmistök
hjá Blikum.
Næsta umferð í Samskipadeild-
inni verður leikin á miðvikudag og
fimmtudag og mætast þá eftirfar-
andi lið: Valur-ÍA, ÍBV-Víkingur,
KA-FH, UBK-Þór A. og Fram-KR.
Samskipadeildin
Þór-Fram.....................1-0 (0-0)
KR-ÍA........................2-2 (1-1)
ÍBV-Valur....................1-2 (1-1)
FH-UBK.......................2-1 (1-0)
Víkingur-KA..................0-2 (0-0)
2. deild
Leiftur-ÍR...................0-0
Stjaman-Þróttur R............2-3
Víðir-Selfoss ...............1-1
Fylkir-BÍ....................3-2
Keflavík-Grindavík 2-2
3. deild
Grótta-Magni ................2-0
KS-Þróttur N.................1-5
Haukar-Tindastóll............1-2
Skallagrímur-Völsungur.......0-3
Ægir-Dalvík..................0-3
4. deild
Ernir-Reynir S.............. 1-8
Árvakur-Hvatberar........... 1-1
Njarðvík-Hafnir............. 6-0
Afturelding-Víkingur Ó ..... 2-3
Leiknir-Ármann.............. 0-0
Léttir-HK................... 0-6
Fjölnir-Víkverji............ 3-0
Valur RF.-Huginn............12-0
Huginn S.-Austri ........... 0-1
Sindri-Neisti............... 5-1
KSH-Höttur ................. 0-6
IÞRÓITIR