Tíminn - 28.05.1992, Qupperneq 2
2 Tíminn
Fimmtudagur28. maí 1992
Atvinnumöguleikar námsmanna:
Fólk er hrætt um
að fá ekki vinnu
Rúmlega 3100 námsmenn, fæddir á árunum 1970-’76, eru á skrá
hjá Ráðningaskrifstofu Reykjavíkurborgar og eins og staðan er í dag
er einungis búist við að um helmingi þeirra verði úthlutuð vinna í
sumar, að sögn Þórdísar Ámadóttur, fulltrúa skrifstofunnar.
Umsækjendur sóttu um störf í
byrjun apríl og staðfestu umsóknim-
ar þegar prófum iauk. Nú ber þeim
að tilkynna sig í hverri viku: „Þau
em hrædd um að fá ekki vinnu og
koma alltaf hingað reglulega," segir
Þórdís.
Hún segir jafnframt umsækjendur
vera um helmingi fleiri nú en í fyrra.
Fáeinir hafa þegar fengið að heija
störf en þeir sem fæddir em 76 hefja
störf 1. júní: „Hinir sem eldri em
slást hver við annan um þær stöður
sem em í boði. Úthlutun þeirra er
ekki farin í gang ennþá,“ segir Þór-
dís.
Veittar vom heimildir fyrir fleiri
ráðningum hjá Hita-, Rafmagns- og
Vatnsveitunni til að komast til móts
við atvinnuástandið og hjálpaði það
þó nokkmm sem höfðu sótt um störf
hjá skrifstofunni.
Vinnuskóli Reykjavíkur hefur
1837 manns á skrá, sem fæddir em
1977- 78 á skrá hjá sér. Það em 200
fleiri en fyrir ári og er enn verið að
sækja um.
Þar verður öllum útveguð vinna til
dæmis við hreinsun skólalóða,
íþróttavalla, garða ellilífeyrisþega og
einnig fást þeir við trjágræðslu í
Heiðmörk og á Nesjavöllum.
Atvinnumiðlun stúdenta hefur
u.þ.b. 1270 námsmenn á sínum veg-
um en það em 4-500 fleiri en á sama
tíma í fyrra.
Leitast er við að finna fólki störf
sem tengjast námi þess en í ár er fólk
ekki vandfýsið. Að sögn Skúla Helga-
sonar, framkvæmdastjóra Stúdenta-
ráðs, hefur reynst auðveldast að út-
vega nemum í viðskipta- og verk-
fræði störf, en nemar í lögfræði,
heimspeki og félagsfræði eiga hvað
erfiðast uppdráttar.
„Tilefni til bjartsýni er nú ekki
mikið. Það em stórir geirar sem okk-
ur em svo til alveg lokaðir núna, eins
og heilbrigðisgeirinn þar sem við
höfum venjulega átt gott innhlaup,"
segir Skúli. „Þetta er auðvitað sér-
staklega alvarlegt núna vegna niðu-
skurðarins hjá Lánasjóðnum."
Hlutfallið milli kynja umsækjenda
virðist vera jafnt hjá þeim atvinnu-
miðlunum sem rætt var við. —GKG.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Borgarness:
9ummm w ■
milljonir
til atvinnu-
leysisbóta
Aðalfundur Verkalýðsfélags Borg: til 82 einstaklinga. Verkalýðsfélag
amess var haldinn 26. maí sl. í Borgamess og Ungmennasam-
skýrslu stjómar um starfið á árinu band Borgarfjarðar gefa út héraös-
1991 kemur fram að auk afskipta fréttablaðið Borgfirðing, en blaðið
af Iqara- og atvinnumálum var hefur komið út síðan 1987. Á síð-
iögð sérstök áhersla á fræðslumáL asta ári kom út 21 töhiblað og
Á vegum félagsins vom haldin gengur útgáfan vel.
sjö námskeið sem 176 manns Félagsmenn Verkalýðsfélagsins
sóttu. Á þessu ári em liðin 20 ár era nú 713 og innan þess starfa
frá því að fyrsta námskeiðið var deildir byggingamanna og málm-
haldið á vegum Verkalýösféiags iðnaðarmanna. Stjóm þess sldpa
Borgamess. Síðan hefúr félagið nú Jón Agnar Eggertsson formað-
gengist fyrir um 60 námskeiðum ur, Sigrún D. Elíasdóttir ritari,
meðalls HOOþátttakendum.MFA Agnar Ólafsson gjaldkeri, Baldur
hcfur skipulagt flest námskeiðin. Jónsson varaformðaur,Svava Hall-
Greiddar atvinnuleysisbætur hjá dórsdóttir, Áslaug Pálsdóttir og
Verkalýðsfélagi Borgamess og Sigríður H. Skúladóttir með-
Verslunarmannafélagi Borgamess stjómendur.
vom á árinu 1991 kr. 9.034.295,- —J
Vestnorrænt kvennaþing á Egilsstöðum:
Nú skal varanlegri
samvinnu komið á
Vestnorrænt kvennaþing verður haldið á Egilsstöðum dagana 20.-
23. ágúst sem um 300 konur frá Færeyjum, Grænlandi og íslandi
munu sitja.
Aðdragandi þess er að Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu
frá vestnorræna þingmannaráðinu þess efnis að gera árið 1992 að
sérstöku vestnorrænu ári. Síðan var ákveðið að þremur stórmálum
yrði skipt milli þjóðanna; Grænlendingar hlutu umhverfismálin,
Færeyingar æskulýðsmálin og íslendingar jafnréttismálin.
Búnaðarfélag bænda í Andakíl í Borgarfirði á rúlluvél sem bindur á fimmta þúsund rúllur á sumri:
Reka saman rúlluvél
„Höfuöviðfangsefni þingsins verð-
ur vinnumarkaðurinn og auk þess
hefur hver þingdagur sína yfirskrift,“
segir Ragnheiður Harðardóttir, for-
maður undirbúningsnefndar. „Fyrsta
daginn veröur fjallað um vinnumark-
að og menntun og annan daginn um
hafið og umhverfismál. Það er nú það
sem þessar þrjár þjóðir eiga sameig-
inlegt, að þær byggja afkomu sína á
hafinu. Síðasta daginn verður fjallað
um konur og möguleika þeirra til
áhrifa."
Einnig verður komið inn á friðar-
mál, vígbúnaðarkapphlaupið og áhrif
hugsanlegrar inngöngu í EB á stöðu
kvenna.
Ragnheiður segir að á Norræna
kvennaþinginu í Osló 1988 hafi
grænlensku og færeysku konunum
ekki fundist þær eiga samleið með
skandinavísku konunum og þær ís-
lensku gátu tekið undir það: „Okkur
fannst löngu vera orðið tímabært að
ræða við þessa nánustu granna okkar.
Því oft er það þannig að við vitum
miklu meira um konur í t.d. Noregi
og Svíþjóð en færeyskar og græn-
lenskar. Eftir þingið fannst okkur
vera kominn tími til að hittast, bera
saman bækur okkar og koma á sam-
vinnu. Til þess er þingið."
Það verða ekki eintómir fyrirlestrar
og fundahöld, því boðið verður upp á
kvölddagskrár með menningaruppá-
komum landanna þriggja. Meðal ann-
ars veröur færeyskur hringdans og
grænlenskur trommudans. Svo ætlar
bæjarstjóm Egilsstaða að bjóða þing-
heimi upp á grillveislu.
„Við ætlum að koma á varanlegu
samstarfi við konur í Grænlandi og
Færeyjum sem við höfum ekki haft
hingað til,“ segir Ragnheiður. -GKG
Búnaðarfélag Andakflshrepps í
Borgarfirði hefur undanfarin þrjú ár
bundið hey í rúllubagga fyrir bænd-
ur í hreppnum. Með þessu hefur
náðst verulegur spamaður við véla-
kaup og heyverkun. Að sögn Sigurð-
ar Sigfússonar, formanns búnaðar-
félagsins og bónda í Stafholtsey,
hefur þessi samvinna bændanna
gefist mjög vel. Á síöasta sumri rúll-
aði rúllubindivélin á fímmta þúsund
rúllur. Algengt er að rúllubindivélar í
eigu bænda rúlli innan við 200 rúll-
ur á sumri.
Búnaðarfélag Andakflshrepps hef-
ur um nokkurra ára skeið rekið véla-
útgerð. Félagið á í dag rúllubindivél,
rúllupökkunarvél, traktor, jarðtæt-
ara, plóg og fleiri vélar. Sigurður
sagði að þessi tæki væru mikið not-
uð. Hann sagði að í Andakfl væm fá-
ar rúlluvélar í eigu bænda. Menn
kysu frekar að nota þjónustu búnað-
arfélagsins.
„Okkur finnst, sumum hverjum
a.m.k., of dýrt að kaupa þessi dýru
tæki til að binda 100-200 rúllur á ári.
Það er nauðsynlegt að menn reyni að
sameinast um hlutina, ekki síst núna
þegar þrengt er að bændum og þeir
hvattir til að draga saman fram-
leiðslu. Mér finnst vélaútgerðin hjá
bændum yfirleitt vera of dýr,“ sagði
Sigurður.
Rúlluvél og pökkunarvél kosta
milli 1 og 2 milljóna. Auk þess þarf
öflugan traktor til að knýja rúlluvél-
ina áfram.
Sigurður sagði að þessi samvinna
bændanna í Andakíl hefði gengið
mjög vel. Hann sagði að bændur
pöntuðu vélina í upphafi sláttar og
síðan væri pöntunum raðað niður.
Hann sagði að oftast nær væri hægt
að uppfylla óskir manna um bind-
ingu á réttum tíma. Sigurður sagði
að rúlluvélar væru mjög afkastamikil
tæki og því auðvelt að vera í félagi
um rekstur þeirra. Eitthvað er um að
tveir eða þrír bændur eigi vélarnar
saman, en Sigurður sagði að sér væri
ekki kunnugt um að önnur búnaðar-
félög ættu og gerðu út rúlluvélar.
Bændur og bændasynir af bæjum í
Andakílshrepp hafa unnið með rúllu-
vélina. Sigurður sagði að þegar hey-
skapur stæði sem hæst væri unnið
með vélina meira og minna allan sól-
arhringinn. Hann sagði að menn
skiptust á við vinnuna, en þó hefði
komið fyrir að duglegir strákar hefðu
unnið með hana á annan sólarhring
samfleytt.
Félagið pakkar rúllunum einnig
inn, en til þess þarf sérstaka pökkun-
arvél sem búnaðarfélagið á og rekur
samhliða rúlluvélinni. Búnaðarfélag-
ið hefur einnig útvegað plastið utan
um rúllumar. Sigurður sagði að
kostnaðurinn við að rúlla væri miklu
minni en ef hver og einn bóndi væri
með sína vél.
Sigurður sagði að búnaðarfélagið
hefði keypt nýja rúlluvél árlega.
Söluaðilinn hefði tekið gömlu vélina
upp í. Hann sagði að búnaðarfélagið
hefði komist að mjög hagstæðum
samningum um kaupin. Hann sagði
nauðsynlegt að vera ávallt með tæki í
fullkomnu lagi þegar um svona
mikla notkun væri að ræða. Menn
yrðu að geta treyst því að staðið væri
við loforð um bindingu. Sigurður
sagði að í sumar myndi búnaðarfé-
lagið heyja í Andakfl með nýrri rúllu-
bindivél, nýrri pökkunarvél og árs
gömlum traktor.
- EÓ
Fjármálaráðuneytið telur BHMR hafa gengið of langt en Páll
Halldórsson vill koma í veg fyrir misskilning:
BHMR ekki á móti
Birgi sem slíkum
Vegna fréttar Tímans í gær af mótmælum BHMR gegn því að
Birgir Guðjónsson hefur verið settur formaður samninganefnd-
ar ríkisins telur Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, ástæðu til að koma á framfærí þeirri athugasemd að
með þar hafi BHMR farið yfir stríkið.
Algerlega óviðeigandi sé að sam- ríkisvaldinu ekki við hvaða menn
tökin séu að gefa út einhverjar yf-
iriýsingar um það að einhver til-
tekinn maður stjórni þessu starfi í
umboði ráðherra. Það komi í raun
BHMR ekki við hvaða menn ráð-
herra velur til starfa og það komi
BHMR velji til starfa fyrir sig.
Páll Halldórsson, formaður
BHMR, hafði samband við Tímann
og sagði að frétt blaðsins í gær hafi
mátt skilja þannig að BHMR hefði
verið að mótmæla því að persónan
Birgir Guðjónsson hafi verið gerð-
ur að formanni samninganefndar
ríkisins.
Því færi hins vegar fjarri því
mótmælin beindust að því að í
starfið hafi verið fenginn maður til
bráðabirgða og hann hefði því
mjög takmarkað umboð til að
ganga frá samningum. BHMR
hefði hins vegar ekkert við Birgi
sjálfan að athuga og vildi Páll leið-
rétta það ef sá misskilningur hafi
komist á kreik.