Tíminn - 07.07.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 7. júlí 1992
Bæjarstjórn Garðabæjar:
Vill breyttar reglur um út
hlutun félagslegra íbúða
Bæjarsfjórn Garðabæjar hefur
skorað á stjórn Húsnæðisstofnunar
ríkisins að breyta reglum sínum
um lán úr Byggingarsjóði verka-
manna á þann veg, að þeim verði
beint til byggingar félagslegra íbúða
í þágu þeirra, sem helst þurfa þeirra
með vegna lágra tekna og takmark-
aðra eigna. Samþykkt þessa efnis
var gerð á fundi bæjarstjómar 2.
júlí s.l. þar sem fjallað var um regl-
ur vegna úthlutunar á félagslegu
íbúðarhúsnæði.
Bæjarstjórn Garðabæjar leggur
áherslu á, að íbúðum í kerfmu verði
ráðstafað í samræmi við félagslegar
Frá vinstri Hjálmar Sverrisson, markaðsstjóri „Utí hött — inní
mynd“, sr. Óm Bárður Jónsson og Konráð Gylfason kvik-
myndagerðarmaður.
Þjóðkirkjan gerir samstarfssamning um:
Stuttmyndir um
kirkjuhátíðir
Þjóðkirkjan hefur gert sam-
starfssamning við kvikmyndafé-
lagið „Út í hött — inní mynd“
um gerð fræösluefnis um ís-
lensku þjóðkirkjuna.
Biskup íslands hefur falið verk-
efnisstjóra safnaðaruppbygging-
ar, sr. Erni Bárði Jónssyni, að
vinna að verkefninu.
Fyrsti hlutinn verður mynda-
röðin „Saga hátíðanna" þar sem
hver stórhátíð kirkjuársins er
tekin fyrir í lifandi og fræðandi
stuttmynd.
Framleiðandi myndanna er
kvikmyndafélagið „Útí hött —
inní mynd“, en Konráð Gylfason
sér um dagskrárgerð. Dr. Einar
Sigurbjörnsson veitir sérfræði-
lega ráðgjöf.
—GKG.
aðstæður umsækjenda, fremur en
að miða við tímaröð umsókna. í ljósi
takmarkaðra fjárveitinga til Bygg-
ingarsjóðs verkamanna telur bæjar-
stjórnin það óforsvaranlegt að beina
niðurgreiddum fjármunum félags-
lega íbúðakerfisins til þeirra, sem
kjósa að úthluta niðurgreiddu hús-
næði án þess að taka fullt tillit til fé-
lagslegra aðstæðna úthlutunarþega.
Vísað er til 46. greinar laga nr.
40/1991 þar sem segir að sveitar-
stjórnir skuli eftir því sem kostur er
og þörf er á tryggja framboð á félags-
legum íbúðum til þeirra, sem ekki
eru færir um að sjá sér fyrir hús-
næði sökum félagslegra aðstæðna.
Til að unnt sé að tryggja þessum
hópi húsnæði sé sveitarstjórnum
nauðsynleg lánafyrirgreiðsla Hús-
næðisstofnunar ríkisins. Lánveit-
ingar stofnunarinnar til bæjarsjóðs
Garðabæjar duga hins vegar ein-
ungis til að mæta þörfum lítils hluta
þeirra verst settu. Stofnunin hefur
borið við takmörkuðum fjármun-
um.
Hins vegar hefur stofnunin út-
hlutað tilteknum samvinnufélögum
lánum til byggingar félagslegra
íbúða, en þau félög eru öllum opin
og ræðst forgangsröð umsókna um
íbúöir af tímaröð inngöngu í félög-
in, en ekki af félagslegri þörf. Bæjar-
stjórn Garðabæjar bendir á að árlega
úthluti Byggingasjóður verka-
manna tugum lána til slíkra íbúða,
meðan hann synjar sveitarfélögum
um lán, sem þau þurfa til að sinna
þeim verst settu.
-BS
Náttúruverndarráð og
Ferðafélag íslands:
Fiolga
land'
vörðum
Náttúruvemdarráð og Ferðafé-
lag fslands hafa ákveðið að fjölga
iandvörðum í fríðiandi að fjalla-
baki um einn frá 1. júlí og fram
yfir verslunarmannahelgi, og
skipta með sér kostnaðinum. A
þann hátt verður hægt að sinna
landvörslu í friðlandinu á sama
hátt og gert var á síðasta árí.
Náttúruvemdarráð hefur einn-
ig ákveöið að senda landvörð til
starfa f friölandi f Hvannalindum
á tímabilinu 1. júlí til 15. ágúst.
Eigendur Sigurðarskála f Kvcrk-
fjöllum, Ferðafélag Fljótsdals-
héraös og Ferðafélag Húsavfkur,
hafa boðist til að taka þátt í
kostnaðinum ásamt Náttúru-
vemdarráði. -PS
Lögreglan í Borgarnesi sökuð um að sinna ekki Húsafelli:
NOKKRIR MENN
MED ÓSPEKTIR
Lögreglan í Borgamesi sinnti ekki
útkalli starfsfólks tjaldstæðisins f
Húsafelli, þegar 5-6 manna hópur
úr Reykjavík á aldrínum 20-25 ára
angraði gesti þar með drykkjulátum
og óspektum aðfaranótt sunnu-
dags. U.þ.b. 3000 manns voru
staddir á tjaldstæðinu.
Mennirnir óku drukknir um
svæðið og tók gæsla staðarins það til
bragðs að taka bfilyklana af þeim, en
3-5 gæslumenn eru á svæðinu um
nætur.
„Það hefur gengið svo í mörg ár
að við fáum ekki aðstoð lögreglunn-
ar í Borgarnesi, því þeim finnst svo
langt að koma hingað," segir Ingi-
björg Kristleifsdóttir, starfsmaður á
tjaldstæðinu. „Það hefur komið fyrir
að menn aka hérna um drukknir, en
hún sinnir því ekki.“
Ekki segist Ingibjörg eiga von á
öðrum eins látum um verslunar-
mannahelgina, þar eð þá sækir aðal-
lega fjölskyldufólk Húsafell heim.
Reynt er að vísa þeim, sem ekki
kunna að haga sér vel, frá svæðinu.
Ingibjörg telur Borgarneslögregl-
una hafa of stórt svæði til umráða,
og segir hana þar að auki ekki hafa
neina næturvakt.
Rúnar Guðjónsson sýslumaður
segir þá, sem annast tjaldstæði eiga
sjálfa að annast alla gæslu á staðn-
um.
„Við höfum auðvitað mjög stórt
svæði, og svo fjölmennt að sumar-
lagi að við getum ekki sinnt öllu,“
segir Rúnar. „Við reynum að sinna
því sem er lífsnauðsynlegt eftir
bestu getu.“
Að tjaldstæðinu á Þingvöllum bar
tvo hópa að garði, sem hafði verið
vísað frá tjaldstæðinu í Þórsmörk.
Var gripið til þess ráðs að kalla lög-
regluna í Reykjavík aðfaranótt laug-
ardags til aðstoðar lögreglunni á
Selfossi, sem sér annars sér um
gæslu þar. Sú nótt var því nokkuð
erilsöm.
Sr. Hanna María Pétursdóttir
þjóðgarðsvörður segir aðfaranótt
sunnudagsins aftur á móti hafa ver-
ið rólega, þar eð þá tókst að vísa
hópum, sem hefðu getað verið með
ólæti, frá tjaldstæðinu.
„Við erum svo heppin að vera með
stranga löggæslu. Lögreglan á Sel-
fossi er hér allar helgar og það hefur
aldrei áður þurft að kalla út auka-
hjálp," segir Hanna María.
—GKG.
Rauðakrosskonur gefa þjálfunareldhús:
Sérhannað fyrir
þarfir fatlaðra
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
RKÍ hefur fært iðjuþjálfun Borgar-
spítalans þjálfunareldhús að gjöf.
Eldhúsið, sem er af sænskri gerð,
er sérhannað og útbúið með þarfir
fatlaðra í huga. Hægt er að breyta
vinnuhæð borða og skápa með raf-
búnaði til hagræðis við eldhússtörf-
in, hvort sem unnið er sitjandi eða
standandi.
Einnig er eldhúsið búið tilheyr-
andi hjálpartækjum, svo komið
verði til móts við sem flestar hreyfi-
hamlanir.
Þjálfunareldhúsið gerir iðjuþjálf-
um spítalans mögulegt að hjálpa
þeim, sem orðið hafa fyrir færnitapi
í heimilisstörfum með þjálfun og
hjálpartækjum.
Með gjöfinni hafa Rauðakross-
konur fært iðjuþjálfun spítalans
kærkomna viðbót við litla færni-
þjálfunareiningu, tæki sem ætti að
Ámi Sigfússon ásamt Rauöakrosskonum í þjálfunareldhúsinu.
Ráðstefna norður-
evrópskra bú-
fræðslumanna
Dagana 9.-19. júlí verður haldin
hér á landi ráðstefna norður- evr-
ópskra búfræðslumanna, en hún
er liður í samstarfl þeirra frá átta
Evrópulöndum. Auk þess er boð-
ið til ráðstefnunnar áheymarfull-
trúum frá átta öðrum Evrópu-
löndum.
Þetta er í tólfta sinn, sem ráð-
stefnan er haldin, og hafa íslend-
ingar veríð formlegir þátttakend-
ur í ráðstefnunni fjögur síðustu
skipti, en áður voru þeir áheym-
arfulltrúar. Ráöstefnan er sam-
vinnuverkefni Bændaskólanna á
Hólum og á Hvanneyri og Garð-
vrkjuskólans á Reykjum, og verð-
ur hún haldin á þremur stöðum:
Hótel örk, þar sem ráðstefnan
verður sett, Hótel Áningu á Sauð-
árkróki og á Bændaskólanum á
Hvanneyri. Fulltrúar íslands,
Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar,
Finnlands, Hollands, Bretlands
og írlands sitja ráðstefnuna, en
áheyraarfulltrúar koma frá
Þýskalandi, Póllandi, Tékkóslóv-
nkíu, Ungveijalandi, Grikklandi,
Sviss, Spáni og Lúxemborg, og
verða þátttakendur um 120 tals-
ins. Eins og áður sagði verður
ráðstefnan sett á Hótel örk þann
9. júlí, og verður haldið uppi fjöl-
breyttri dagskrá allan ráðstefliu-
tímann.
-PS
geta tryggt betri þjálfun og undir-
búning að heimferð, jafnvel þótt
nokkurt færnitap hafi orðið eftir
sjúkdóma eða slys. —GKG.