Tíminn - 16.07.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 16. júli 1992
Neytendasamtökin kæra Betri kaup og Ódýra markaðinn:
Eigendurnir gjaldþrota
og verslunarleyfislausir
Neytendasamtökin lögðu í gær fram kæru til Rannsóknarlögreglu
ríkisins á hendur forráðamönnum verslunarinnar Betri kaup (Ódýri
markaðurinn). Verslunin hefur tekið við notuðum húsgögnum, að-
allega til endursölu.
Neytendasamtökin eru með til
umfjöllunar mál fyrir 18 einstak-
linga vegna viðskipta við þetta fyrir-
tæki. Eiga þeir samtals um 1,4
millj. kr. hjá fyrirtækinu vegna
muna, sem Betri kaup tók í um-
boðssölu.
Jón Magnússon hrl. hefur lagt
fram kæru til Rannsóknarlögregl-
unnar fyrir hönd Neytendasamtak-
anna. Þar kemur fram að kærðu eru
öll gjaidþrota og ekkert þeirra hefur
verslunarleyfi. Einnig að fyrirtækin
Betri kaup hf. og Ódýri markaður-
inn hafi ekki leyfi til að selja notaða
fjármuni. Fyrirtækið Ódýri markað-
urinn er hvergi til á skrá, en við það
fyrirtæki starfa kærðu og engir aðr-
ir. Fyrirtækin hafa verið rekin um
alllangt skeið, Betri kaup í Ármúla
15 og Ódýri markaðurinn í Síðu-
múla 23, og bæði stundað sömu
starfsemi.
Bú Betri kaupa hefur nú verið
tekið til gjaldþrotaskipta, en þrátt
fyrir það og að öll leyfi skorti til
reksturs starfar það enn.
Neytendasamtökin fara fram á við
Rannsóknarlögreglu ríkisins að hún
rannsaki meintar sakir kærðu hið
allra fyrsta, og telur einnig æskilegt
að fá upplýst hvers vegna lögreglu-
stjóraembættið í Reykjavík Iætur
viðgangast að starfsemi sem þessi sé
rekin án tilskilinna leyfa mánuðum
saman. Þá eru þeir einstaklingar,
sem sett hafa muni í umboðssölu
hjá þessum fyrirtækjum og telja þá
enn óselda, beðnir um að hafa sam-
band við Neytendasamtökin. Jafn-
framt vara þau við frekari viðskipt-
um við þessa verslun, starfi hún
áfram.
-BS
Stemgrímsfjörður:
Fyllist af fiski
Mjög góöur afli var hjá trillukörl-
um frá Hóimavtk inni í Stein-
grímsfirði síöustu helgina í júní.
Uitið „Flóinn“ greinir frá þessu,
en það er málsvari byggðar við
Húnaflóa.
Fiskur hefur ekki gengið inn í
Stemgrímsfjörð { hálfa öld og því
telst þetta til stórtíðinda. Fróðir
menn segja að fiskur hafi ekki
gengið jafnlangt inn í fjörðinn frá
því í stríðinu, a.m.k. ekki jafn-
mikfll fískur og nú. Þorskurinn,
sem veiddist, var firemur smár, en
það var mikið af honum. T.d. fékk
Þuríöur ST 180 um eítt og hálft
tonn á fjórum tfmum og fákkst
aflinn á þrjú handfærL Trillusjó-
menn gripu því tækifærið ogvoru
á sjó alla hclgina. Ákafi manna
var mikili við veiðamar og hafði
einn konu sína með sér á sjóinn.
Hann neyddist til að skila henni í
land á sunnudagskvöld, þar sem
hún átti að mæta tfl vinnu morg-
uninn eftir. Hann lét þó ekki
deigan síga, heldur hélt tafariaust
aftur á miðin og nú með móður
sína með sér. Þannig sögur segir
Flóinn af sínum mönnum.
Meðalverð fyrir landaðan þorsk
á Hólmavík er nú um 70 kr. fyrir
kflóið, þannig að metafli Þuríðar
hefur gefið um 100 þús. kr. Dá-
gott tímakaup það. -BS
Finnur Ingólfsson alþingismaður telur annmarka á útfærslu hlutfalls-
greiðslna í lyfjum í reglugerð ráðherra:
Þak á hverja ávísun, en
ekki á hvern sjúkling
Stjórnarandstæðingar viröast
taka bæði vel og illa í breytingar
heiibrigðisráðherra á reglugerð
um lyfjamál, sem kynnt var í vik-
unnl.
Finnur Ingólfsson, alþingismað-
ur Framsóknarflokksins og fyrrum
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra, sagði í samtali við Tímann
að hlutfallsgreiðslur í lyfjakostnaði
væru af því góða og í samræmi við
þær hugmyndir, sem framsóknar-
menn hafi áður viðrað m.a. í frum-
varpi til breytingar á lyfjalögum.
Hann sagði að með þessum hlut-
fallsgreiðslum væru töluverðar lík-
ur á að kostnaðarvitund bæði
lækna og sjúklinga ykist til muna
og slík meðvitund ein og sér gæti
skilað talsverðu í þessum mála-
flokki.
Finnur sagði hins vegar að erfitt
væri að sætta sig við ýmsa þætti í
þeirri útfærslu, sem fram kæmi í
Finnur Ingólfsson.
þessari reglugerð. í fyrsta lagi sagði
hann að ekki hafi verið tekin inn í
þetta hlutfallsgreiðslukerfi þeir
flokkar lyfja sem borguð eru alfarið
af sjúklingum sjálfum, s.s. fúka- og
sýklalyf og magalyf. Eðlilegt hefði
verið að þessir flokkar féllu undir
hið samræmda kerfi. f öðru lagi
segir Finnur að það hafi a.m.k. ver-
ið sinn skilningur og raunar ann-
arra að þegar lögum um almanna-
tryggingar var breytt um áramótin
og heimild gefin til að koma á hlut-
fallsgreiðslum í lyfsölunni, þá hafi
menn talað um að setja þak á
reiðslur hvers einstaks sjúklings.
reglugerðinni sé þakið hins vegar
miðað við greiðslur fyrir hverja
lyfjaávísun. Þarna sé mikill munur
á, því hver ávísun geti ekki verið til
lengri tíma en 90 daga. Á ársgrund-
velli séu menn því að tala um mun
hærri upphæðir hjá fólki sem mik-
ið þarf að nota af lyfjum, sagði
Finnur Ingólfsson.
-BG
Astand fjalívega
Conditíon of mountain tracks
Veglr é skyggðum svaeöum eru lokaMf allrl
.-X umlerö þar tll annaö veröur auglýst
Tracks m ttw shaded areas are ctosjyli*
tor ail traffíc unUí further notice *
kVWI t llv* J V. >
Geflö út 16. |úll 1ð&2 f
pmu kontpm nðMU «ém oetta
ttriA* érínu 1»2. ** uét
aMótf>a»t um avaMM, aam h*r «wu
toóuð, náuki tarft* upptyMnjjj;
Map no. 9
Published July Wth 1992
TWs fwp lo the lASt ons tfí stfies
putmshecllnirxyMrlsSi.
Thaiis who tamnci to tra.ti
m nrntu m* an shxud
on Ihn msp, please aontsa
IhnPnMcfíasdsMmmman.
Vegagerð rikisins
Public Roads Adminístration 9«wm ««* t'te)
Náttúruverndarráð
Nature Conservation Cottf)cíl
fundi
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt þá tillögu
fyrir borgarráð að Reykjavíkur-
borg stofni hlutafélag, sem yfir-
tald rekstur og eignlr Pípugerð-
arinnar. Mið verður teldð af því
að fjárhagslegur ávinningur
borgarinnar verði sem mestur,
hagsmunir starfsfólks verði
sem best byggðir og eðlileg
samkeppnisstaða verði á mark-
aðnum.
Pípugerð Reykjavíkur hefur
verið starfrækt frá 1946 og
framleiðir rör og brunna í hol-
ræsi borgarinnar, sem og hellur
og steina. Gatnamálastjóri
kaupir um 50% framleiðslunn-
ar, aðrar borgarstofnanir 5%,
og 45% eru seld á almennum
markaði.
Þar eð Pípugerðin er í sam-
keppni við fjölda fyrirtækja,
finnst fulltrúum Sjálfstæðls-
flokksins hún ekki silja við
sama borð og hin varðandi við-
skipti við Reykjavíkurborg.
Afgreiðslu tiflögunnar var
frestað.
Samþykkt hefur verlð að
borgarsjóður festi kaup á fast-
eigninnl Aðalstræti 3 og Hafn-
arstræti 2. Kaupverð hvorrar
lóðar ásamt fasteign er
18.500.000 kr. Þessi hús verða
svo rifin, svo hægt verði að
hefjast handa við framkvæmdir
við Ingólfstorg.
Lóðimar eru í eigu Petrínu
Jónsdóttur og hefur Reykjavík-
urborg lýst því yfír að verði
reistlr söluskálar á Ingólfstorgi
eða leyfð torgstarfsemi þar, þá
skuli sonur Petrínu, Hlöðver
Sigurðsson sem nú rekur sölu-
skála á lóðinni Aðalstræti 3,
hafa forgang að leigu eða upp-
setningu söluskála samkvæmt
þeim skilmálum sem borgaryf-
hvöld kunna að sefja.
Tilboð f byggingu leikfimi-
húss við Selásskóla hafa verið
yfirfarin og leggur Byggingar-
deild ríkisins tll að tilboði S.S.
Hús hf. verði teldð. Það er
84,39% af kostnaðaráætlun og
reyndist lægst Tfllagan var
samþykkt.
Svo bar til tíðinda að eigend-
ur Hcklu vtð Laugaveg sendu
borgarráði bréf þess efnis að
margumtöluðu opi í mlðeyju
gegnt fyrirtækinu yrði lokað.
Gerði borgarstjóri það að til-
lÖgu slnni að eftlr því yrði farið
og málið því næst athugað bet-
ur. En málinu var frestað og
kemur því inn á næsta borgar-
ráðsfund. —GKG.
Nýtt upplýsingarit:
Opnun
fjallvega
Náttúruvemdarráð og Vegagerð rík-
isins hafa í sameiningu gefið út
upplýsingarit um opnun fjallvega.
Því hefur verið dreift á helstu ferða-
mannastaði Iandsins, bensínstöðvar
og söluskála, þar sem fólk getur
nálgast það.
í ritinu koma fram ýmsar upplýs-
ingar um fjallvegi landsins, opnun-
artíma og helstu leiðir. Ritið er gefið
út bæði á íslensku og ensku og nýt-
ist því jafnt innlendum sem erlend-
um ferðamönnum.
Tilgangurinn með útgáfu ritsins
er að hluta náttúruvernd, þar sem
oft hefur brunnið við að ferðamenn
leggi á fjallvegi sem ekki eru færir,
og því valdið náttúruspjöllum með
akstri utan vega. -BS