Tíminn - 16.07.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.07.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 16. júlí 1992 Sameiginlegar friðargæslusveitir Rússa og Georgíumanna skakka leikinn: Taka höndum saman um friðargæslu í S-Ossetíu Sameiginlegar friðargæslusveitir Rússa og Georgíumanna virðast hafa náð að stilla til friðar með óeirðaseggjum í Suður-Ossetíu. Deilur hafa verið miklar á þessu svæði, eins og kunnugt er af frétt- um, og bardagar grimmilegir. í gær, miðvikudag, hafði friðargæslu- sveitunum þó tekist að lægja öldumar. Deilur hafa hins vegar blossað verið ein verstu þjóðernisátök í Sov- upp annars staðar í gömlu Sovét- ríkjunum, sem undirstrikar nauð- syn þess að friðargæsla sé efld. Þessi sameiginlega tilraun Rússa og Ge- orgíumanna er talin geta orðið fyrir- mynd að öðrum svipuðum aðgerð- um á vegum Samveldisríkjanna þar sem skyndiaðgerða er þörf. Fimm manns voru drepnir í átök- um stjórnarhers Moldavíu og liðs- sveita aðskilnaðarsinna á Dnéstr- svæðinu í gær. f Nagorno-Karab- akh-héraði náðu Armenar aftur á sitt vald þorpi sem Azerar höfðu lagt undir sig í síðasta mánuði. Þar hafa Rússar njósna þrátt fyrir þíðu og bætt samskipti austurs og vesturs: Njosnari handtekinn í Kaupmanna- höfn! f gær birtu stjómvöld í Danmörku yfirlýsingu þar sem segir að rúss- neskum stjóraarerindreka hafi verið vísað úr iandi. Ástæðan, sem upp er gefin fyrir brottvísuninni, er sú að maður- inn, sem ekki er nafngreindur, hafi stundað iðju sem ekki hæfði stöðu hans. Þetta segja menn að sé kurteislegt orðalag yfir njósnir. f yfiriýsingu frá danska utan- ríkisráðuneytinu segir að rúss- neski sendiherrann í Danmörku hafi veríð látinn vita um brott- reksturínn. Meira er ekki sagt í yf- irtýsingunni. Ef marka má grein, sem birtíst í dagblaðinu Berlingske Tidende í gær, þá lét danska öryggislögregl- an ráðuneytíð vita að Rússanum hefðu borist leynilegar upplýsing- ar frá tölvumanni, sem búsettur er í norðuríduta Kaupmannahafn- ar. Dagblaðið Beríingske Tidende segir að töhmmaðurinn, sem var í þjónustu hins opinbera og vann á manntalsskrífstofu í Gladsaxe, hafi verið handtekinn í síðustu viku, þegar hann átti hádegisverð- arfund með Rússanum. Blaðið segir að maðurinn hafi látíð Rússanum í té nafnalista með upplýsingum um Dani, sem búsettir eru erlendis. Talið var að leyniþjónusta Rússa gætí notað nafnalistana tíl þess aö koma sér upp samböndum eríendis. Tölvumaðurínn danskl situr nú í fangelsi og er borinn þeim sök- um að hafa Ijóstrað upp trúnaöar- málum. Berlingske Tidende segir að danska öryggislögreglan og yf- irvöld í Gladsaxe hafi staðfest handtöku töhmmannslns, en hafi hins vegar neitað að gefa nokkrar frekari upplýsingar um málið. Rússneska sendiráðið í Kaup- mannahöfn viii ekkcrt um málið scgja og neitar að nafngreina sijórnarerindrekanu, sem vísað var úr landi. —Reuter/Krás. étríkjunum gömlu um langt skeið. Hinum sameiginlegu hersveitum Rússa og Georgíumanna var dreift á 15 km langt svæði á milli Suður- Os- setíu og Georgíu. Þeim var ætlað að stilla sér upp á milli stríðandi fylk- inga. í gær áttu þessar sveitir von á liðsstyrk frá sveitum úr Norður-Os- setíu. Það þótti Iofa góðu að ekki var hleypt af einu einasta skoti meðan á þessum aðgerðum stóð, en embætt- ismaður í borginni Gori, sem er við landamæri Suður-Ossetíu, var í símasambandi við fréttamenn og greindi þeim frá atburðinum. Suður-Ossetía krefst sjálfstæðis frá Georgíu og vilja íbúarnir þar tengjast frændum sínum í Norður- Ossetíu, sem er aðili að Samveldis- ríkjunum. Á þriðjudag streymdu hundruð rússneskra fallhlífarhermanna og þjóðvarðliðar frá Ceorgíu til Suður- Ossetíu. Ætlun þeirra var að stöðva þjóðernisátökin, sem þarna hafa geisað með litlum hléum í tvö ár og kostað hundruð manna lífið. Þetta er fyrsta sameiginlega verk- efnið á sviði hernaðar, sem lýðveldi í Samveldisríkjunum taka sig saman um frá því að Sovétríkin liðu undir lok. Þessar sameiginlegu aðgerðir Rússa og Gerorgíu eru um margt mjög merkilegar, þótt þær séu ekki mjög umfangsmiklar. I þessum að- gerðum eru Rússar á lagalegum grunni að stunda hernað í ríki sem er utan Samveldisríkjanna, þ.e.a.s. Georgíu. Valery Manolov hershöfðingi, Lífiö er ekki dans á rósum hjá blessuöu fólkinu í lýðveldum Sovét- ríkjanna gömlu. Þessari gömlu konu hefur þó tekist aö krækja sér í fleskbita. einn æðsti maður hermála í Sam- veldisríkjunum, sagði í samtali við Itar-Tass-fréttastofuna að utanríkis- og varnarmálaráðherrar lýðvelda, sem tilheyra Samveldinu, myndu hittast á fimmtudag og ræða stofn- un sameiginlegra friðargæslusveita. Þessum sveitum væri ætlað að bregðast við átökum eins og þeim, sem nú geisa í Nagorno-Karabakh og Moldavíu. „Við leggjum til að settar verði á laggirnar friðargæslusveitir, sem sæki styrk sinn til herja Sambands sjálfstæðra ríkja," sagði hann. Varnarmálaráðherra Georgíu, Tengiz Kitovani, gaf í skyn í gær að stofnun friðargæslusveita væri ekki eingöngu spurning um pólitískan vilja, heldur einnig spurning um peninga. „Það ætti að fækka í gæslusveit- unum, sem eru í Suður- Ossetíu, úr 500 manns í 200 manns frá hverju lýðveldi," sagði hann. Hann bætti því við að sérhver hermaður fengi 8000 rúblur eða kringum 3700 krónur íslenskar í Iaun. „Fjárhagur okkar er mjög erfiður og þessi út- gjöld eru okkur þung byrði,“ sagði Kitovani við Nega-fréttastofuna í gær. —Reuter/Krás. Breskir þingmenn nefna hlutina réttum nöfnum og eru ófeimnir við að: Samþykkja 40% hækkun á styrkj- um sér til handa Breskir stjórnmálamenn virtu aö vettugi óskir ríkisstjórnarinnar um hófiega hækkun styrkja þeim til handa. Þeir greiddu atkvæði f breska þinginu í fyrradag og sam- þykktu nærri 40% hækkun styrkj- anna. Eftir langan og stormasaman fund í neðri deild þingsins var til- laga stjórnarinnar um hóflega hækkun felld, en þess í stað sam- þykkt tillaga, sem felur í sér hækk- un sem nemur allt að 1.155.000 ísl. krónum (11.000 pund). Styrkir til breskra þingmanna nú, fyrir utan bein laun þeirra, eru 3.043.530 ísl. krónur (28.986 pund). Þessum aurum er ætlað að mæta kostnaði þeirra við skrifstofu- hald hvers konar og kaup á tækjum og tólum. John Major forsætisráðherra og ríkisstjórn hans höfðu farið þess á leit við þingmenn að þeir settu öðr- um Iandsmönnum gott fordæmi í kaupkröfum. Major taldi að hófleg hækkun til þingmannanna væri 9.8% Atkvæðagreiðslan í þinginu fór hins vegar þannig að Major og stjórn hans biðu lægri hlut með 127 atkvæða mun. Ríkisstjórn Johns Major er talin hafa 21 at- kvæðis mun á breska þinginu, en sá meirihluti gufaði upp þegar at- kvæði voru greidd um „kostnaðar- auka“ bresku þingmannanna. Margir þingmenn úr röðum íhalds- manna gerðu annað hvort að greiða hinni gríðarlegu „kauphækkun" at- kvæði sitt eða sitja hjá. Stjórnmálamennirnir rökstuddu þessa hækkun með því að kostnað- ur þeirra við skrifstofuhald og ferðalög hefði hækkað gríðarlega. Þessi hækkun kæmi kauni þeirra hins vegar ekkert við. Obreyttur þingmaður á breska þinginu fær í laun 3.150.000 kr. á ári (30.000 pund). Stjórnvöld í Bretlandi höfðu ný- lega mótmælt kauphækkunum til forstjóra og yfirmanna í einkageir- anum og vísuðu þá til þrenginga í efnahagslífi og verðbólgu, sem er 3.9% í landinu. Fyrr í þessum mánuði neitaði stjórnin opinberum starfsmönnum um umtalsverða kauphækkun, sem þeir fóru fram á. Breska stjórnin ákvað þá að kaup skyldi ekki hækka umfram 4%. —Reuter/Krás. SARAJEVO — Múslimar, sem reyna allt sem í þeirra valdi stendur til þess að verja borgina Gorazde í austurhéruð- um Bosníu-Herzegóvínu, sendu út neyðarkall í gegnum útvarp og báðu um hjálp til þess að verjast Serbum, sem sækja hart að borginni. I orð- sendingunni, sem send var út á stuttbylgju, sagði að ef hjálp bærist ekki innan skamms, yrði Gorazde jöfnuð við jörðu. LUNDÚNIR — Radovan Kar- adzic, leiðtogi Serbneskra sveita, sagði í gær, þegar frið- arviðræöur hófust að nýju, að hann hefði samþykkt tillögur um frátekna landræmu til hjálp- arstarfs á átakasvæðunum í Bosníu-Herzegóvínu. Hann sagði fréttamönnum einnig að Serbar væru til viðræðu um skilyrðislaust vopnahlé. RÓM — Skurölæknar tóku góðkynja æxli á stærð við ap- pelsínu úr iörum Jóhannesar Páls páfa I gær. Þeir sögðu jafnframt að hinum 72 ára gamla páfa liði vel, þótt best væri fyrir hann að dvelja næstu 10 daga á sjúkrahúsinu sértil hvildar og endumæringar. JÓHANNESARBORG— Afríska þjóðarráðið og vinstri sinnaðir bandamenn þess búa sig nú undir ijöldaaðgerðir til þess að hrekja ríkisstjóm hvítra frá völdum. Þeir tóku stórt upp í sig í gær og sögðust vilja að- gerðir, en ekki innantóm loforð. MOSKVA — Frjálslyndir fjöl- miðlafurstar og ritstjórar í Rúss- landi sökuðu forustumenn rúss- neska þingsins um að vilja koma á strangari ritskoðun en ríkti á dögum kommúnismans. Slíkt myndi undirbúa jarðveginn fyrir annað valdarán harðlínu- manna. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, sagði löndum sln- um að þeir gætu óhræddir farið I sumarfrí nú í ágúst, án þess að tilraun yrði gerð til valda- ráns. Hann sagðist þó sjálfur ætla að dvelja í Moskvu í sínu fríi. JERÚSALEM — Palestínu- menn kröfðust þess í gær að hinn nýi forsætisráöherra (sra- els, Yitzhak Rabin, kallaöi hið bráðasta alla ísraelska her- menn frá hinum umsetna há- skóla a-Najah í Nablus. Skólinn er á herteknu svæðunum á vesturbakkanum. Palestínu- menn sögðu að með því gætu Israelsmenn sýnt vilja sinn í verki. Umsátrið um skólann hófst þegar ísraelski herinn hélt því fram að á svæði háskólans væru vopnaðir Palestínumenn. ALGEIRSBORG — Sakborn- ingar þeir, sem nú eru fyrir her- dómstóli í Alsír og eru meðlimir í hinum útiæga Islam-flokki (is- lamic Salvation Front), sögðu við réttarhöldin í gær að réttur- inn yrði einn að bera ábyrgð á afleiðingum gerða sinna. Dómsniðurstöðu var að vænta síðla í gær, en mennimir eru sakaðir um landráð. SANAA — Herflugvél á veg- um stjómarinnar í Jemen brot- lenti í eyðimörkinni skammt ut- an við Aden, þegar hún lenti í sandbyl aðfaranótt þriðjudags. Hin opinbera fréttastofa lands- ins, Saba, sagði að allir þeir, sem um borð voru, hefðu farist eða 57 manns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.