Tíminn - 16.07.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.07.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 16. júlí 1992 Tíminn 9 Borðhald undir beru lofti. Gamla íbúðarhúsið á Heydalsá íbaksýn. Ættarmót að Sæ- vangi á Ströndum Niðjar Heydalsárhjónanna, Guð- brandar Bjömssonar og Ragnheiðar Guðmundsdóttur, héldu sitt fyrsta ættarmót að Sævangi dagana 10. til 12. júlí s.l. Guðbrandur var fæddur á Smá- hömmm í Kirkjubólshreppi 14. maí 1889, sonur hjónanna Bjöms Hall- dórssonar frá Níp á Skarðsströnd og Matthildar Benediktsdóttur Jónsson- ar á Kirkjubóli. Guðbrandur var búfræðingur frá Hvanneyri og bóndi á Heydalsá frá 1917 til dánardægurs 1946. Stundaði hann sjóróðra jafnframt búskapnum og gegndi ýmsum félagsmála- og trúnaðarstörfum fyrir sveit sína. Guðbrandur var kvæntur Ragnheiði Guðmundsdóttur Péturssonar í Ófeigsfirði, sem var fædd 24. ágúst 1894. Móðir hennar var Sigrún Ás- geirsdóttir Sigurðssonar á Heydalsá, sem var seinni kona Guðmundar Pét- urssonar. Þau Guðbrandur og Ragn- heiður eignuðust 11 böm og komust 10 þeirra til fullorðinsára. Af þeim hópi eru nú sex systkinanna á lífi. Bamaböm Heydalsárhjónanna urðu 32, en alls em afkomendur þeirra nú 105. Mótsgestir voru samtals 114 og bjuggu flestir í tjöldum. Torfi Guð- brandsson setti mótið með ræðu og bauð gesti velkomna. Margir þeirra áttu um langan veg að sækja, en lengst allra þó Vigdís Guðbrandsdótt- ir og fjölskylda hennar, sem kom alla leið frá Reyðará í Lóni. Á laugardagsmorguninn var ekið að Kollafjarðamesi og blóm gróðursett á leiði Heydalsárhjónanna og Sigur- geirs sonar þeirra, sem bjó á Heydalsá frá 15 ára aldri til dauðadags 1989, er hann skorti mánuð á að verða fimm- tíu og þriggja ára. Sama dag var farin gönguferð fram á Heydal undir fararstjóm Braga Guð- brandssonar, bónda á Heydalsá. Þegar skoðunarferðinni var lokið buðu kon- urnar á Heydalsá og Smáhömrum upp á rausnarlegar veitingar, sem neytt var í skjóli fyrir norðanvindin- um sunnan undir vegg. Konurnar, sem að veitingunum stóðu, vom þær Solveig Jónsdóttir kona Braga Guð- brandssonar, Halldóra Guðjónsdóttir ekkja Sigurgeirs, og Matthildur Guð- brandsdóttir kona Bjöms Karlssonar á Smáhömmm. Síðdegis var efnt til kvöldvöku, sem hófst með sameiginlegu borðhaldi. En að því búnu hófst fjölbreytt dag- skrá, þar sem leitast var við að láta sem flesta ættliði leggja eitthvað af mörkum. M.a. rakti Sverrir Guð- brandsson, aldursforseti ættarinnar, minningar frá sínum æskudögum. Síðan rak hvert skemmtiatriðið ann- að og að lokum var dansað. Hljóm- sveitina skipuðu Heydalsárbræðumir, þeir Jón Bjami og Ragnar Bragasynir, ásamt Ragnari Torfasyni. Á sunnudag undi unga fólkið sér við knattspymu og frjálsar íþróttir. Þá var komið hið fegursta veður og kunnu menn vel að meta sólskinið eftir napra norðangolu fyrri mótsdagana. Matthildur Sverrisdóttir og Ragnar Torfason bám hitann og þungann af undirbúningi mótsins og stjóm þess. Bar öllum saman um að mótið hefði heppnast skínandi vel og svo sannar- lega verið fyrirhafnarinnar virði. Torfi Guðbrandsson Heydalsárhjónin Ragnheiður Guðmundsdóttir og Guðbrandur Björnsson 25 ár á toppnum Tískuhönnuðurinn Emanuel Ungaro er nú orðinn 59 ára gamall og hefur verið meðal fremstu tískuhönn- uða heims í aldarfjórðung. Hann hefur þótt djarfur í hönnun sinni, bæði hvað litaval og snið snertir. í ár var sýning hans þó í hóg- værari kantinum. Sjálfur segist hann aldrei hafa hugmynd um hvað hann ætli að gera, þegar hann setjist að teikniborð- inu, „en það er töfrum þmngið augnablik, því allt er mögulegt, útkoman getur orðið alveg frábær eða hreinasta hörmung." Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum em dragtir áberandi hjá Ungaro, bæði með buxum og síðum og stuttum pilsum. Jakkarnir em einnig bæði síðir og stuttir, víðir og þröngir, einlitir og mynstraðir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.