Tíminn - 24.07.1992, Qupperneq 1
Föstudagur
24. júlí 1992
135. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
1 v:
.
g . "■.., .4-ii'rnSsjííí4»
Annar eistnesku sjómannanna gengur frá björgunarþyrlunni viö Borgarspítalann í gær.
Hjálparbeiðni barst frá eistneskum togara:
Tímamynd Slgurstelnn
Flogið meó t*o sjómenn í land
Tveir veikir sjómenn af eistneskum
togara voru fluttir með þyrlum vam-
arliðsins til lands í gær.
Togarinn var staddur 233 mflur suð-
vestur af landinu þegar hjálparkallið
barst. Þar eð þyrla Landhelgisgæsl-
unnar getur ekld flogið svona langt
var leitað til Vamarliðsins sem sendi
tvær þyrlur af stað. Þyrlumar fóm í
loftið kl. 12:55 ásamt Hercules C-130
eldsneytisbirgðaflugvél sem sá þyrl-
unum fyrir eldsneyti á leiðinni, enda
flugtími hvora leið ríflega einn og
hálfur tími.
Samkvæmt upplýsingum talsmanns
Vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli var
læknir um borð í annarri þyrlunni tii
þess að annast sjómennina á leiðinni
að Borgarspítalanum. Annar maður-
inn þjáðist af innantökum sem talið
var að rekja mætti til briskirtilsins, en
hinn af bráðri botnlangabólgu.
Sjúklingamir vom síðan halaðir upp
hvor í sína þyrlu og lenti sú fyrri við
Borgarspítalann kl. 16.50 og sú síðari
kl. 17.10. —GKG.
Vaxtalækkanir ertendis spör-
uðu ríkissjóði 700 milljónirá
fyrri helmingí ársins, en nóg er
nú samt:
Vaxtagreiðslur
ríkisins um
lOOkr.ámann
#
a
Að vextir erlendra lána hafa að
undanfömu verið Isgri heldur en
gert var ráð fyrir við gerð fjáriaga
sparaði rikissjóði nær 700 milljóna
kr. útgjöld á fyrri helmingi ársins.
Enda fljótt að muna nm hvcrt pró-
sentubrot hjá þeim sem skulda
mlkið. En þrátt fyrir þessa miklu
vaxtalækkun urðu vaxtagreiöslur
rikissjóðs um 4,6 milijarðar króna
á fyrri helmíngi þessa árs. Það þýð-
ir að rfldssjóður þarf að meðaltali
að borga rúmlega 25 milljónlr {
vexti á hvctjum einasta dcgi, þ,e.
líka laugardaga og sunnudaga.
Þessar rúmlega 25.181.000
krónur sem rflrið þarf að greiða í
vexti dag hvem samsvara rétt tæp-
lega 100 kr. á dag á hveit einasta
mannsbam í landinu (frá ungbðm-
um til öldunga), eða tæplega 400
kr. á dag á hveija fjögurra manna
fjiilskyldu, sem svo gjarnan er tek-
in til viðmiðunar.
Við gerð fjáriaga var reiknað með
vaxtagreiðslum upp á tæplega 5.3
milljarða á fyrra árshelmingL An
þessarar heppilegu vaxtalækkunar
heföi rfldð því þurft að borga um
29 miiljónir í vexti dag hvem, Þaö
svanur rúmlcga 110 kr, á dag á
hvem íslcnding, eða 440 kr. á dag
á hveija fjögurra manna fjölskyldu.
—HEl
Fiugleiöir og flugvirkjar:
Boðuðu verkfalli aflýst
flug með eðlilegum hætti
Samninganefndir Flugleiða og
FÍugvirkjafélags íslands undirrit-
uðu í fyrrinótt nýjan kjarasamning
sem gildir til áramóta.
í frétt frá Flugleiðum segir að nýi
kjarasamningurinn færi flugvirkj-
um sömu launahækkanir og al-
mennt hefur verið samið um á
launamarkaði á þessu ári. Boðoðu
verkfalli flugvirkja á mánudag og
þriðjudag í næstu viku hefur verið
aflýst og allt flug Flugleiða vcrður
því með eðlilegum hættí, en um
7400 farþegar eiga bókað far með
félaginu þessa daga.
Samkomulagið náðist eftir langan
og strangan fund hjá rfldssátta-
scmjara, sem hófst upp úr hádegi á
miðvikudegi og stóð langt fram á
nótt. -BS
Grandi ákveður að senda meira af óunnum karfa á erlendan markað
og frysta meira úti á sjó:
Grandi sameinar nú
tvö frystihús í eitt
Sameining frystihúsanna Crandagarðs og Norðurgarðs í eitt frystihús í
Norðurgarði er meðal þeirra sparnaðaraðgerða sem stjóm Granda hf. gerði
grein fyrir á nýafstöðnum aðalfundi. Eftir vinnsluhlé hjá Granda milli 31.
júlí og 24. ágúst verður því aðeins unnið í Norðurgaröi, en starfsemi lýkur
í Grandagarði. Þetta er ein þeirra aðgerða sem ákveðin var til þess að mæta
þeim samsamdrætti í kvóta og þar af leiðandi tekjumissi sem fyritækið hef-
í öðru lagi var ákveðið að senda
meira af óunnum karfa á erlendan
markað, enda sé betra að sigla með
karfann en að tapa á vinnsiunni í
landi. Og í þriðja lagi var ákveðið að
kaupa stórt frystiskip, Örfirisey. Auk
vinnslu á 1.000 tonnum af bolfíski
og meiri karfa- og grálúðufrystingu
er skipið ætlað til veiða og vinnslu
fiskistofna sem sækja má utan
kvóta. í nýjasta fréttabréfi Granda
hf. kemur fram að nú sé unnið hörð-
um höndum að því að endurskoða
alla starfsemi vinnslunnar og ónýtta
möguleika útgerðarinnar. Sam-
dráttur í þorskkvóta þýði samtals
um 400 milljóna kr. tekjumissi fyrir
Granda í fyrra og í ár. Mánuði eftir
aðalfund standi menn síðan frammi
fyrir nýjasta niðurskurðinum. Sá
niðurskurður sem nú sé til umræðu
þýði 1.700 lestir af þorski fyrir
Grandatogarana, til viðbótar sam-
drættinum í fyrra sem reynst hafi
2.200 tonn brúttó. - HEI
Skammt stórra högga á milli í handboltamálum þjóðarinnar:
Heimsmeistaramótið í handbolta *95 verður á íslandi
Heimsmeistaramótið í handbolta verður haldið á íslandi árið 1995 en
það var samþykkt á þingi Alþjóða handknattleikssambandsins í gær. Jón
Asgeirsson, formaður Handknattleikssambands íslands, sat þingið fyrir
íslands hönd, sem haldið var í Barcelona.
Mótsstaður verður Laugardals- Ólympíuleikana kl. 7:00 í morgun.
höllin og þarf að gera nokkrar
breytingar á henni svo hún sam-
ræmist lögum um keppnina. Hún
á t.d að geta rúmað 4200 manns.
íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik hélt til Barcelona á
Jón Ásgeirsson verður ekki með í
för þar eð meiri þörf er á honum
heima við fjáröflun.
Árið 1984 fékk Iiðið fjárstyrk frá
Alþjóða Ólympíunefndinni þegar
leikarnir voru haldnir í Los Ange-
les og austantjaldsþjóðirnar
ákváðu að taka ekki þátt í þeim.
„Fyrirvarinn var þó meiri en nú,
því við höfum ekki getað farið út í
neina fjáröflun. Svo er þetta kostn-
aðarsamara en það þyrfti að vera,
því farið er með flugi, sem er miklu
dýrara en ef við hefðum pantað það
á réttum tíma,“ segir Guðjón L.
Sigurðsson, varaformaður Hand-
knattleikssambandsins.
„Við munum því í samráði við ís-
lensku Ólympíunefndina reyna að
fá greiddan kostnað vegna þessa."
Handknattsleiksliðið skipa þeir
Birgir Sigurðsson, Gunnar Andrés-
son, Gústaf Bjamason, Valdimar
Grímsson, Gunnar Gunnarsson,
Héðinn Gilsson, Konráð Olavson,
Patrekur Jóhannesson, Jakob Sig-
urðsson, Einar Sigurðsson, Júlíus
Jónasson og Geir Sveinsson fyrirliði.
Markmenn verða Sigmar Óskars-
son, Guðmundur Hrafnkelsson og
Bergsveinn Bergsveinsson.
Aðalfararstjóri er Ólafur Schram,
fararstjóri er Guðjón L. Sigurðs-
son, þjálfari er Þorbergur Aðal-
steinsson og Einar Þorvarðarson
er aðstoðarþjálfari. Liðsstjóri er
Davíð Sigurðsson og Brynjólfur
Jónsson er læknir.
—GKG.