Tíminn - 24.07.1992, Page 2

Tíminn - 24.07.1992, Page 2
2 Tíminn Föstudagur 24. júlí 1992 Sjávarútvegsráðherra stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun um veiðar næsta fiskveiðiárs — ákvörðun sem honum ber lögum samkvæmt að taka. Samráðherrar og -flokksmenn létta ekki undir: Böðlast gegn Þorsteini innan ríkisstiómarinnar Þær hugmyndir sem Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram í ríkisstjóminni miða við að farið verði því sem næst eftir tillögum Hafrannsóknastofnunar hvað varðar veiðar á þorski á næsta fískveiðiári. Heimilað verði að veiða aðeins 190 þúsund tonn af þorski á fískveiðiárinu. Til þess hins vegar að draga úr þeim gríðarlega samdrætti sem veru- lega minni þorskafli hefði í för með sér, leggur ráðherra til að veiðar á sterkum fiskistofnum utan kvóta verði stórauknar og muni þar mestu um úthafskarfa. Þá verði sókn aukin verulega, eða um 30%, í kola frá því sem nú er og aukin áhersla lögð á veiðar á karfa, ufsa og ýsu. Jafnframt verði 12 þúsund tonna veiðiheimild- um Hagræðingasjóðs úthlutað til þeirra byggðarlaga sem verst yrðu úti vegna minni þorskveiði. Kunnar eru niðurstöður vísinda- manna um ástand þorskstofnsins og í ljósi þeirra mun það vera almennt álitið að óráðlegt sé að veiða meiri þorsk en Hafrannsóknastofnun leggur til. Því almenna áliti deila þó ekki allir og í Alþýðublaðinu í gær kemur fram að innan ríkisstjómarinnar sé nú hver höndin uppi á móti annarri en meiri- hluti ráðherranna sameinist þó um eitt — að vera á móti hugmyndum sjávarútvegsráðherra um veiðar og til- högun þeirra á næsta fiskveiðiári. í Alþýðublaðsfréttinni segir að ráð- herramir, ekki hvað síst forsætisráð- herra og fjármálaráðherra, séu Þor- steini Pálssyni afar reiðir vegna þess að hann sýni lítinn samstarfsvilja í „þeim erfiðu málum sem tengjast þorskbrestinum". Þá er greint frá því að Friðrik Sophusson Ijármálaráð- herra þvemeiti hugmyndum sjávarút- vegsráðherra um að úthluta veiði- heimildum Hagræðingasjóðs. Þessum hugmyndum hefur forsætisráðherra lýst sem svo að þær líkist helst grillu- sögum Munchausens baróns sem m.a. dró sjálfan sig upp úr forardíki á hár- inu og hestinn með. Það er því ljóst að það standa mörg og hvöss spjót á sjáv- arútvegsráðherra einmitt nú þegar hann stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun — ákvörðun sem hann á lögum samkvæmt að taka og bera ábyrgð á, en ekki aðrir. Tíminn ræddi í gær við Steingrím Hermannsson, formann Framsóknar- flokksins, um horfumar í ljósi ástands þorskstoftisins. í dag er rætt við íúll- trúa Kvennalista og Alþýðubandalags og í blaðinu á morgun verður ítarleg grein um þetta efni eftir Halldór As- grímsson íyrrv. sjávarútvegsráðherra og viðtal við Jakob Magnússon, að- stoðarforstjóra Hafrannsóknastofhun- ar. —sá Davíð Oddsson forsætisráðherra setur á laggirnar: Nefnd um flutning ríkisstofnana til Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur tilnefnt fulltrúa frá öllum þingflokk- unum í nefnd, sem huga á að flutningi ríkisstofnana út á land. Athygli hef- ur vakið að forsætisráðherra óskaði ekki eftir tilnefningu þingflokkanna í nefndina, heldur tilnefndi þá sjálfur. Frá stjómarandstöðuflokkunum em tilnefndar þrjár konur. Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kvennalista: Ýtrasti niðurskurður er öruggasta leiðin Formaður nefndarinnar er Þor- valdur Garðar Kristjánsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks, frá Ai- þýðuflokki er Tómas Ingi Olrich, Val- gerður Sverrisdóttir frá Framsóknar- flokki, Kristín Ástge i rsdótti r frá Kvennalista og Margrét Frímanns- Sigurjóna Jakobsdóttir er látin Sigurjóna fæddist að Básum í Grímsey 16. september 1891 en lést 18.júlí síðastliðinn og var því 100 ára að aldri er hún féll frá. Sigurjóna giftist Þorsteini M. Jónssyni, skólastjóra, bóka- útgefanda og alþingismanni, og átti með honum heimili á Borg- arfirði eystra, Akureyri og í Reykjavík þangað til hann lést árið 1976. í Reykjavík bjó Sig- urjóna til æviloka. Auk þess að stýra stóru heimili starfaði hún mjög að meningarmálum, eink- um á vegum Leikfélags Akur- eyrar og var kjörinn heiðursfé- lagi þess. Tók hún þátt í störf- um Kantötukórs Akureyrar og var um tíma formaður hans. Ævisaga Sigurjónu kom út ár- ið 1983, skráð af Gylfa Gröndal. Ber bókin nafnið Björtu hlið- arnar. dóttir frá Alþýðubandalagi. Margrét Frímannsdóttir segir að einn fundur hafi verið haldinn í nefndinni til kynningar og enn hafi ekki komið til umræðu um hvaða rfk- isstofnanir verði að ræða. Alþýðu- blaðið hefur nefnt Byggðastofnun sem stofnun sem flytja ætti. Margrét segir að þaö liggi alls ekki fyrir og tel- ur sig óbundna af einhverjum ákvörð- unum sem ríkisstjómin hefur tekið. Málið verði skoðað almennt. Hvað varðar tilnefningu forsætisráðherra í nefndina segir Steingrímur J. Sigfús- son, varaformaður Alþýöubandalags, að honum hefði þótt eðlilegra að óskað hefði verið eftir tilnefningu við þingflokkana. Hins vegar séu þekkt fordæmi fyrir hendi og þetta hafi tíðkast í tíð flestra ríkisstjórna. Það hafi þó aðallega átt við þegar um stærri nefndir væri að ræða t.d. nefndir með mörgum fulltrúum hagsmunaaðila og fagaðila, að þá hafi stundum verið tíndir inn menn úr ýmsum stjórnmálaflokkum. -BS Anna Ólafsdóttir Björnsson, þing- kona Kvennalista og fulltrúi í sjáv- arútvegsnefnd Alþingis, telur að síðustu tillögur Þorsteins Páls- sonar í kvótamálum séu það skársta sem heyrst hafí frá ríkás- stjóminni. Hún bendir einnig á að stemma þurfi stigu við gámaútflutningi og auka vinnslu fisks í landi. „í sambandi við 12 þús. tonna kvóta Hagræðingarsjóðs finnst mér alveg sjálfsagt að taka hann til ráð- stöðunar í aukinn kvóta, það er í samræmi við hugmyndir Kvenna- listans þó hann hafi orðið til á ann- an hátt en við hugsuðum okkur,“ segir Anna Ólafsdóttir Björnsson. „í sambandi við að taka meira úr öðrum stofnum, sem er önnur megintillaga Þorsteins Pálssonar, þá virðist vera að óhætt sé að gera það. Við verðum hins vegar að passa upp á að ganga ekki of langt í þeim efnum, því aðrir stofnar hafa ekki verið ofveiddir til neinna vandræða fram til þessa. Rétt væri að heyra í sérfræðingum Hafrann- sóknastofnunar um þessi mál, áður Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kvennalista. en endanleg ákvörðun verður tek- in, hvort þar leyndist einhver gildra. Að öðru jöfnu sýnist mér að hægt sé að sætta sig við þessar hugmyndir. í þriðja lagi að fara upp í 190 þús. tonn í þorskveiðum, þar erum við að taka nokkra áhættu, þar sem sumir vísindamenn telja að við eigum hættu á hruni, að þá værum við að spenna bogann til hins ýtrasta. Það er þó alla vega nærri lagi, en þær háu tölur sem heyrst hafa hjá öðrum. Þetta er kjarninn úr hug- myndum Þorsteins og það skársta sem heyrst hefur úr þessari átt.“ Hvað varðar hugmyndir Davíðs Oddssonar um að dreifa kvóta til verst settu byggðanna segir Anna að sér finnist að það hljóti einhvers staðar að þurfa að jafna. Þá verði að búa þannig um hnútana að það hafi ekki í för með sér að fleiri byggða- lög verði illa sett. Því dæmi þurfi að liggja mjög vandlega yfir, en hún bendir á að aðrar leiðir finnist. Frekar ætti að stemma stigu við gámaútflutningi á fiski. Hins vegar sé óhjákvæmilegt að skoða vand- lega stöðu hvers einasta byggðar- lags og grípa til jöfnunar og ann- arrar viðbótar þar sem það er hægt. Þetta og meiri og betri vinnsla, sem frumkvæði hafi komið til frá fólki í fiskvinnslu, séu svör sem hægt er að líta á. Öruggt sé að einhvers staðar þurfi að grípa til meiri stuðnings og stjórnvöld verða að axla það, ef þau fara í ýtrasta niður- skurð, sem er öruggasta leiðin. -BS Steingrímur J. Sigfússon, varaformaður Alþýðubandalags: Varfærin ákvöröun nú og mál skoðuð Þingmenn Alþýðubandalagsins hafa í gær og fyrradag hist til að ræða fram- komnar tillögur sjávarútvegsráðherra um fískveiði næsta ár að ósk sjávar- útvegsnefndarmanna flokksins, þeirra Steingríms J. Sigfússonar og Jó- hanns Ársælssonar. Steingrímur segir að eindregin afstaða hafí komið fram á fundinum. „Við teljum í fyrsta lagi óhjá- kvæmilegt að taka þessar upplýsing- ar um ástand þorskstofnsins mjög alvarlega og það eigi að bregðast við þeim með ábyrgum hætti. Það er að segja, að ekki verði leyfð meiri veiði en svo að stofninn byggist upp, enda verði samhliða gripið til aðgerða til að auðvelda sjávarútveginum og byggðalögunum að mæta því.“ Þá var í öðru lagi lagt til að rann- sóknir yrðu stórauknar til að fá sem gleggsta mynd af ástandinu, bæði til skemmri og lengri tíma. Þá yrði tek- ið mið af ástandinu í sjónum, áhrif- um veiðarfæra o.s.frv. í þriðja lagi vilja Alþýðubandalags- menn ítreka, að taka verði tafarlaust á hinum almenna rekstrarvanda sjávarútvegsins, sem búið hefur við óviðunandi afkomu allt frá síðari hluta síðastliðins árs. Þar er sérstak- lega talað um að fallið verði frá þess- um nýju álögum og gjöldum, sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar er að leggja á sjávarútveginn upp á sam- tals milljarð króna. Þar er stærst fyr- irhuguð sala veiðileyfa Hagræðinga- sjóðs upp á hálfan milljarð og síðan vaxtalækkunin sem lofað hafi verið, en ekki komið. Þá þurfi að taka á lánstíma, lánskjörum og afborgun- Steingrímur J. Sigfússon, Al- þýðubandalagi. um af skuldum sjávarútvegsins. Þá eru Alþýðubandalagsmenn með það í huga að veiðiheimildum Hag- ræðingasjóðs verði beitt með ein- hverjum hætti til að mæta vanda þeirra byggðarlaga sem verst verða úti. Steingrímur segir það athyglisvert að menn hafi lítið rætt ástandið eins og það er áður en takast þarf á við skellinn vegna aflasamdráttar, það er að sjávarútvegurinn býr við tap- rekstur upp á 4-6 milljarða á ári. Steingrímur bendir á að lögin séu þannig að þótt menn tækju var- færna ákvörðun núna, þá hefðu þeir tíma til að breyta henni og bæta ein- hverjum veiðiheimildum við, ef svo bæri undir, allt fram í aprfl á næsta ári. Þannig að sjávarútvegsráðherra gæti tekið ákvörðun um lágmarks- úthlutun núna og notað næstu mánuði til að skoða málin betur. -BS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.