Tíminn - 30.07.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 30. júlí 1992
Fyrstu lotu í kosningabaráttu Clintons til forsetaembættis lokið:
Clinton nuddar salti í sárin -
sakar Bush um skattahækkanir
I gær hélt demókratinn og forseta-
frambjóðandinn Bill Clinton til
New Orleans Superdome þar sem
Bush hélt sína fraegu ræðu 1988 á
þingi repúblikana og sagði við
bandarísku þjóðina: „Lesið af vör-
um mér!“
Clinton, sem er ríkisstjóri í Ark-
ansas, hefur reynt að byggja upp
spennu og eftirvæntingu í þessari
fyrstu lotu kosningaferðar sinnar.
Fundahöldin í New Orleans eru há-
punkturinn og inarka endi fyrstu
lotu.
Clinton vitnar mikið til áður-
nefndra orða Bush sem urðu fleyg.
Þau lét hann falla þegar hann
keppti að forsetaembættinu fyrir
fjórum árum og lofaði þá að engir
nýir skattar yrðu lagðir á lands-
menn ef hann (Bush) næði kjöri
sem forseti.
Clinton segir að Bush hafi unnið
kosningarnar á sínum tíma út á
þessa setningu „Lesið af vörum
mér - það verða engir nýir skattar
lagðir á“ en nú sé komið að skulda-
dögunum hjá Bush. Eins og kunn-
ugt er neyddist Bush til þess að
Atvinnurekendur í Þýskalandi eru óánægðir með skólakerfið þar í landi:
Vilja kennslu í mannlegum
samskiptum og mannasiðum!
Talsmenn helstu og mestu fyrir-
tækja í Þýskalandi segjast vera
óánægðir með þá menntun sem
skólar landsins veiti nemendum.
Þegar nemendur útskrifist og
komi til starfa hjá fyrirtækjunum
séu þeir oft illa læsir, skrifi vont
mál og séu lélegir í reikningi.
Dagblaðið „Die Welt“ fjallaði um
þetta mál í gær og bar fyrir sig
kvartanir frá ýmsum stórfyrirtækj-
um í Þýskalandi. Hið tvöfalda
starfsmenntakerfi í Þýskalandi, þar
sem starfsþjálfun á vettvangi og
kennslu í skólastofu er blandað
saman, hafði vakið aðdáun annarra
þjóða. í slíkt verknám hafa oft sótt
nemendur sem ekki treysta sér í
langskólanám af einhverjum or-
sökum.
Dagblaðið „Die Welt“ dregur þá
ályktun eftir að hafa gert könnun
meðal 50 stærstu fyrirtækja Þýska-
lands „að óánægja í þýskum iðnaði
með menntun og þjálfun starfs-
fólks fari mjög vaxandi".
Starfsfólk fyrirtækja á nú sífellt
erfiðara með einbeitingu, það get-
ur ekki unnið saman í hópum og
því hafi farið aftur í mannasiðum
og allri félagslegri leikni, segja
iðjuhöldar og vinnuveitendur.
Þegar atvinnurekendur eru
spurðir hvernig þeir vilji hafa skól-
ana svara flestir á einn veg. Þeir
segja að smærri bekkjardeildir séu
til bóta, leggja beri áherslu á hefð-
bundnar kennsluaðferðir og auka
beri kennslu í mannlegum sam-
skiptum. Loks segja atvinnurek-
endur að þörf sé á að tengja námið
væntanlegu starfi nemandans enn
meir en orðið er, m.ö.o. að gera
nám hagnýtara. —Reuter/Krás.
hækka skatta talsvert í Bandaríkj-
unum.
í ræðu sem Clinton hélt á kosn-
ingafundi við héraðssjúkrahúsið í
Chicago lofaði hann því að skera
niður skrifstofubáknið í heilbrigð-
iskerfinu og láta sparnaðinn renna
til rannsóknastarfa ef hann yrði
kjörinn forseti. Nefndi hann sér-
staklega rannsóknir á brjósta-
krabbameini í því sambandi.
Clinton bætti því við að nú væri
Bush örvæntingarfullur og vildi að
umræðan í kosningabaráttunni
snerist um utanríkismál en ekki
innanríkismál eða skatta.
Talsmenn Hvíta hússins hafa nú
um hríð lagt áherslu á það hve
mikla reynslu Bush hafi í utanrík-
is- og alþjóðamálum. Þeir segja að
Clinton sé reynslulaus og óábyrg-
ur.
Clinton og félagar hans svara
fullum hálsi og segja að Bush og
repúblikanar séu í sandkassa hvað
utanríkismál varði, þeir leiki sér
með utanríkismál í stað þess að
koma lagi á innanríkismál svo sem
með því að útvega landsmönnum
störf. Atvinnuleysi í Bandaríkjun-
um var í júní síðastliðnum 7,8%
sem er það hæsta í átta ár.
Eftir kosningafundina í New
Orleans í gær hélt Clinton á heima-
slóðir og ákvað að draga nokkuð úr
kosningabaráttu sinni í nokkra
daga. Hann ætlar að safna kröftum
fyrir næstu lotu sem verður í
næstu viku. Þá keyra þeir félagarn-
ir, Clinton og Gore, í rútu um fylki
Bandaríkjanna. Þeir hafa ekki látið
uppi hvert næst verður haldið.
I fyrstu lotu rútuferðarinnar óku
þeir tæpa 2000 km og hvarvetna
drógu þeir að sér mikinn mann-
fjölda. -Reuter/Krás.
Kínverjar í stórviðskiptum við Samveldisríkin:
Viðskiptasamningur upp á
19 milljarða á einu bretti
Kínverskt fyrirtæki, sem er í eigu
einkaaðila, átti nýlega viðskipti við
rússneska aöila sem teljast nokkuð
stór í sniðum. Kínverjamir gerðu
sér lítið fyrir og skiptu á ýmsum
iðnvaraingi og fjórum Tupolev TU-
154M farþegaþotum sem Rússarair
smíða.
Verðmæti þessa vamings, sem
Kínverjarnir gáfu fyrir flugvélarnar,
er metinn á 321 milljón dala eða ná-
lægt 19 milljörðum ísl. króna. Kín-
verski iðnvarningurinn fyllti 500
vagna í vöruflutningalest. Kínverska
fréttastofan New China News Ag-
ency greindi frá þessu í gær.
Fréttastofan sagði að kínverska
fyrirtækið sem hér um ræðir væri
Norðmenn veiða hvali þrátt fyrir aðgerðir Grænfriðunga og:
Halda sínu striki hvað
sem tautar og raular
Greenpeace umhverfisvemdar-
samtðldn sögðu í gær að þeim
hefðl teklst að þvinga norskan
hvalvciðibát tll þess að hætta
hrefnuveiðum.
Sldp þeirra Grænfriðunga, MV*
Solo, hefur nú um hrið íylgt eftír
norska hvalveiðibátnum Nybraena
sem er eitt sex norskra hvalveiði-
skipa sem nú eru stðdd í Barents-
hafl.
Haft var eftír prófessor Lars
Walloec, yflrmanni norskra hvala-
rannsókna, að hvalveiðibátamir
hefðu fyrirskipun um að reyna
ekld að skjóta hval ef skip Græn-
friðunga væri nærri. Allar tiiraun-
ir til hvalveiða gætu stofnað
mannslífum í hættu ef Grænfrið-
ungar væru að þvælast fyrir.
Walloee sagði að Rússar hefðu
heimilað Norðmönnum að skjóta
15 hrefnur á þessum slóðum, þ.e.
í Barentshafl, og yrðu þær einfald-
iega veiddar af elnhverjum hinna
hvalveiðibátanna flmm. Hann
bættí því við að Nybraena hefði
þegar tekist að veiða sex hrefnur í
sjónum umhverfls Bjamareyjar og
skipið myndi bráðlega halda aftur
inn í rússneska lögsögu.
Þessir hvalir sem Norðmenn
hafa veríð að veiða undanfarið eru
veiddir í vísindalegum tilgangi en
strax á næsta ári ætla þeir að hefja
veiðar í atvinnuskyni ems og
kunnugt er af fréttum.
—Reuter/Krás.
Nande Economic Group en þetta
fyrirtæki hefði tekið höndum saman
við ýmis ríkisrekin fyrirtæki og
verksmiðjur í því skyni að koma á
viðskiptum við Samveldisríkin og
ríki í Austur-Evrópu.
í þessu nýja kínverska viðskipta-
bandalagi eru auk ofangreinds fyrir-
tækis og New Times Corp., sem er
útflutningsfyrirtæki í eigu kín-
verska ríkisins, 100 ríkisrekin fyrir-
tæki og verksmiðjur víðs vegar í
Kína.
„Gömlu Sovétríkin eru gífurlega
stór markaður og það er mjög ábata-
samt að eiga viðskipti við gömlu
sovésku lýðveldin," sagði Mou Qiz-
hong sem er stofnandi og forseti
Nande fyrirtækisins. „Það er bein-
línis heimskulegt að fara ekki inn á
þennan markað nú þegar hann er
galopinn hverjum sem er,“ bætti
hann við.
Kínverska fyrirtækið Nande mun
senn opna skrifstofu í Moskvu og er
henni ætlað að markaðssetja kín-
verskar vörur í Samveldisríkjunum.
Þar ræðir um hinn aðskiljanlegasta
varning allt frá rafeindabúnaði og
heimilistækjum til matvæla og
vefnaðarvöru. Allar eru þessar vörur
frá hinni nýju fyrirtækjasamsteypu í
Kína.
—Reuter/Krás.
Genf - /Eðstu yfirmenn flótta-
mannahjálpar S.Þ. funduðu (gær
um ástandið í Júgóslavíu. Þeir
höfðuðu til mannúðar og báöu allar
ríkisstjómir heims að opna lönd sín
fyrir stríðshrjáðum flóttamönnum. I
Bonn hétu þýsk stjómvöld því að
taka við nokkrum þúsundum í við-
bót ef ofangreindir fundarmenn
næðu ekki samkomulagi um sam-
eiginlega flóttamannahjálp Evrópu-
þjóða.
Lundúnir - Nú eru þrír dagar liðn-
ir síðan friðarviðræður hinna þriggja
deiluaöila í Bosníu hófust. Ekki er í
sjónmáli neinn sýnilegur árangur af
viðræðunum. Serbar, sem eru einn
þriggja aðila f þessum átökum,
héldu uppi miklum árásum á
Sarajevo í nótt og svo viröist sem
þeir hafi beint skotum sínum að
gamla borgarhlutanum en einnig út-
hverfinu Dobrinja þar sem flestir
íbúanna eru múslimar.
Baghdad - Eftiriitsmenn S.Þ. sem
leita vopna í Irak luku leit sinni í
landbúnaöarráðuneytinu í Baghdad
í gær. Leit þeirra var árangurslaus
eins og við var að búast. Þeir segja
mögulegt að Irökum hafi tekist að
skjóta undan upplýsingum um
vopnabúnað sinn sem þama var
verið að leita að.
Moskva - Boris Yeltzin, forseti
Rússlands, sagöi í gær að hann
myndi óska eftir stjómarskrárbreyt-
ingu á næsta ári þar sem honum
yrði veittur réttur til þess að stjóma
með tilskipunum. Einnig sagðist
hann vilja geta skipað tímabundið
embættismenn með mikil völd.
Antananarivo, Madagascar -
Vopnaðir menn gerðu tilraun til
stjórnarbyltingar á Madagascar í
gær og stóðu aðgerðir þeirra í þrjá
tíma. Byltingartilraun þeirra var
með nokkuð undarlegum hætti því
hún var tilkynnt f fjölmiðlum áður en
hún hófst. Byltingarmenn gáfust
síðan upp fyrir stjómarhemum þeg-
ar Ijóst var að undirtektir almenn-
ings voru ekki miklar við byltingar-
hugmyndum þeirra.
Abidjan, Fílabeinsströndinni -
Þingiö á Fílabeinsströndinni sam-
þykkti almenn lög um sakaruppgjöf
pólitískra fanga þar sem hundruð
manna yrðu látnir lausir. Á sama
tíma kveða lögin á um að ekki megi
hrófla við lögreglu eða her þótt við-
komandi hafi gerst sekir um hrotta-
skap.
Moskva - Friðargæslusveitir fóru í
gær til Moldóvu sem var tymjm lýð-
veldi í Sovétríkjunum gömlu. Þar
ætla þessar sveitir að kveða niður
þjóöemisdeilur og skilja að strið-
andi aðila. Þeir eru annars vegar
Moldóvar og hins vegar Slavar í
Dnestr héraði sem vilja sjálfstæði
frá Moldóvu. Þessar aðgerðir koma
í kjölfar annarra sambærilegra sem
efnt var til f Suður Ossetíu. Þær að-
gerðir voru samvinnu- og tilrauna-
verkefni Rússa og Georgíumanna
en Suður Ossetia er einmitt i lýö-
veldinu Georgíu.
Róm - Hin mánaðar gamla rikis-
stjórn Italíu stóð af sér vantraust-
stillögu á italska þinginu í gær.
Stjórnin þarf nú bæði að berjast við
bágan efnahag landsins jafnt sem
mafíuna og morðingja hennar. Nið-
urstaða atkvæðagreiðslunnar á
þinginu er talin sigur fyrir forsætis-
ráðherrann, Giuliano Amato, og til-
raunir hans til þess að rétta Ítalíu
af.
Moskva - Fransk-rússnesk áhöfn
í rússnesku geimskipi náði í gær til
rússnesku geimstöðvarinnar Mir og
tókst að tengjast stöðinni. Tilgangur
ferðarinnar er að bjarga þessari sex
ára gömlu geimstöð frá ótímabæru
andláti. Itar-Tass fréttastofan
greindi frá því í gær að geimfarið,
sem er Soyuz-TM og lagði af stað í
ferð þessa á mánudag, hafi einung-
is verið þrjár mínútur á eftir áætlun
þegar það tengdist Mir-stööinni.