Tíminn - 31.07.1992, Page 9
Föstudagur 31. júlf 1992
Tíminn 9
M
Sumarferð Framsóknar-
félaganna í Reykjavík
laugardaginn 8. ágúst 1992
Farið verður um:
Gullfoss — Geysi — Hveravelli — Blönduvirkjun
Kl. 08:00 Lagt af stað frá BSl og ekiö að Geysi I Haukadal, þar sem fólki gefst
kostur á að skreppa í sjoppu.
Kl. 10:30 Lagt af stað frá Geysi. Ekið norður Kjöl að Hveravöllum.
Þar munu ferðalangar borða nesti sitt.
Kl. 15:00 Lagt af stað frá Hveravöllum og ekið norður að Blönduvirkjun, þar
sem virkjunin verður skoðuö I fylgd leiðsögumanns. - Áður en komiö er
að Blönduvirkjun verður stansað og Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarftokksins, flytur stutt ávarp.
Kl. 18:00 Lagt af stað frá Blönduvirkjun og er ekið að Staðarskála.
Kl. 21:00 Lagt af stað frá Staðarskála og ekið til Reykjavfkur.
Áætlað er aö koma til Reykjavikur kl. 23:45.
Fargjald kr. 2.800,-.
Tekið verður á móti sætapöntunum i slma 624480 eöa á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, 4.-7. ágúst.
V-Húnvetningar - Sumarferð
Framsóknarfélag V-Húnvetninga fer f sumarferð laugardaginn 1. ágúst n.k. - f þetta
skipti verður sildarstemningin á Sigiufiröi upplifuð.
Einstakt tækifæri til að upplifa stemningu sildaráranna i góðum hópi.
Nánari upplýsingar hjá Elfnu i simum 95-12596 og 12570 og hjá Kristjáni ( sima 95-
10016.
Framsóknarfélag V-Húnvetnlnga.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mal er skrifstofa okkar f Hafriarstræti 20, III. hæö, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin. Framsóknarfíokkurlnn.
SUF-þing á Egilsstöðum
28.-30. ágúst
DAGSKRÁ
Föstudagur 28. ágúst:
Kl. 16.00 Setning. Siv Friðleifsdóttir, formaður SUF.
Kl. 16.30 Kosning embættismanna, skipað I nefndir
Kl. 16.45 Ávörpgesta.
Kl. 17.15 Lögð fram drög að ályktunum.
Almennar umræður.
Kl. 19.00 Kvöldverður.
Kl. 20.00 Fyririestrar um sjávarútvegsmál.
Fyrirspumir og umræður.
Kl. 21.30 Nefndastörf.
Kl. 22.30 Óvæntar uppákomur á Munaðarhóli og/eða I Hliðskjálf.
Laugardagur 29. ágúst:
Kl. 08.30 Árbítur.
Kl. 09.00 Nefndastörf.
Kl. 11.00 Umræður.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 Umræður og afgreiðsla ályktana.
Kl. 14.30 Hlé.
Ki. 16.00 Afgreiðsla stjómmálaályktunar.
Kl. 17.00 Kosningar.
Önnur mál.
Kl. 18.00 Þingslit.
Kl. 19.30 Grillveisla að hætti Héraðsbúa.
Kl. 23.00 Sveitaball (með þverpólitlsku yfirbragöi).
Sunnudagur 30. ágúst:
Kl. 09.00 Árbítur.
Brottför.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Dregið var I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 10. júli 1992. Vinningsnúmer eru
sem hér segir:
1. vinningur nr. 29595
2. vinningur nr. 26487
3. vinningur nr. 1668
4. vinningur nr. 36086
5. vinningur nr. 9702
6. vlnningur nr. 23897
7. vinningur nr. 24772
8. vinningur nr. 39900
9. vinnlngurnr. 715
10. vinnlngur nr. 17477
11. vinnlngur nr. 4527
12. vinnlngur nr. 36239
13. vinningur nr. 3146
14. vinningur nr. 30173
15. vinningur nr. 1992
Ógreiddir miöar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá útdrætti. Frekari upplýs-
ingar eru veittar I sima 91-624480.
Með kveðju og þakklæti fyrir veittan stuðning.
Framsóknarfíokkurinn.
Því hefur veriö haldiö fram aö Sigourney Weaver sé svo karlaleg aö hún geti vart talist til kvenna!
Sigourney Weaver um Ripley ofursta, sem hún leikur í Alien-myndunum:
Mun kvenlegri en
skrækjandi gljápíur
Leikkonan Sigourney Weaver
var í Madrid nýlega og þar fór
hún í sparigallann og heimsótti
næturklúbb. Hún var hvítklædd
frá hvirfli til ilja og mjög ólík
Ripley ofursta, sem hún leikur í
myndunum um geimófreskjuna
ógurlegu.
I nýjustu myndinni — Alien 3
— þurfti Weaver að krúnuraka
sig í sex mánuði og ganga með
augnlinsur til þess að augun
virtust blóðhlaupin. En henni
fannst það ekki mikil fórn.
Aðspurð um persónuna Ripley,
segir Weaver: „í mínum augum
er hún ekki hetja. Hún er kona,
sem lendir í málum sem hún
tekst á við af krafti og hugrekki
— og þannig tel ég að konur
bregðist yfirleitt við.
Mér finnst konur hugrakkar og
sterkar, svo það veitti mér mikla
ánægju að leika konu sem hag-
aði sér í meira samræmi við þær
konur sem ég þekki í raunveru-
leikanum en litlu píurnar, sem
við sjáum svo oft hlaupa um
skrækjandi á hvíta tjaldinu."
Sjálf átti hún aldrei á hættu að
festast í slíkum hlutverkum. Sú
staðreynd að hún er 180 sen-
tímetrar á hæð átti þar hlut að
máli. Og hún harmar það ekki.
„Til eru leikarar," segir hún, „og
svo eru til „glamour" leikarar.
Sem betur fer tilheyri ég ekki
síðartalda hópnum, ég held að
það tæki of mikinn tíma frá
starfi mínu.“
Hún skipaði sér sjálf sess sem
óvenjuleg kvikmyndastjarna og
hefur raunar alltaf verið sér á
parti og ákveðin. Hún var aðeins
þrettán ára gömul þegar hún lét
breyta nafni sínu úr Susan (allt
of fúlt) yfir í Sigourney, en það
nafn fann hún í bókinni um
Gatsby hinn mikla.
Umræður hafa vaknað um
kvenleika Weavers og konur
hafa í fúlustu alvöru haldið því
fram að þar sem hún líti út eins
og karlmaður og hagi sér eins
og karlmaður, geti þær ekki
lengur talið hana til kvenna.
„Þetta kemur mér á óvart hvað
Ripley snertir, því hún er mjög
kvenleg, óháð útliti hennar.
Kvenleiki hennar kemur fram í
því hvernig hún tengist öðru
Leikkonan skemmti sér hiö besta á næturklúbbi f Madrid.
fólki,“ segir Sigourney Weaver.
Weaver og eiginmaður hennar,
leikstjórinn Jim Thompson, eiga
tveggja ára gamla dóttur. Þó svo
að Weaver segist ekki geta mælt
með því fyrir alla að eignast
börn jafn seint og hún gerði —
„hvað ef manni finnst það frá-
bært og vill eignast fimm
stykki?" — segir hún að það
henti sér mjög vel. Hún hefur í
hyggju að taka sér ársfrí bráð-
lega og sinna dóttur sinni. Hún
býr í New York ásamt fjölskyldu
sinni þar sem hún reynir að
forðast Hollywood-lífsstflinn eft-
ir megni. „Fólk verður fyrir von-
brigðum þegar það þekkir mig á
götu. Það vill að kvikmynda-
stjörnur líti ávallt út eins og
kvikmyndastjörnur. En ég tel að
sá tími sé liðinn undir lok.“