Tíminn - 19.08.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 19.08.1992, Qupperneq 1
Miðvikudagur 19. ágúst 1992 152. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Smávægilegar breytingar verða gerðar á þingskaparlögunum: Samkomulag um 7 í forsætisnefnd í gær náðist samkomulag milli þingflokkanna um að gera breyting- ar á þingskaparlögum. Gengið verður endanlega frá samkomulag- inu fyrir hádegi í dag. Gert er ráð fyrir að fjölgað verði í forsætis- nefnd þingsins úr fimm í sjö. Jafnframt verða gerðar smávægilegar breytingar á ræðutímum í styttri þingumræðum. Engin breyting verður þó gerð á ræðutíma í fýrstu umræðu um stjómarfrumvörp. Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, sagði í samtali við Tímann í gær að hann teldi þetta ágæta lendingu sem þama hafi náðst. Hann sagði að það myndi stuðla að bættri stjóm þings- ins að stjómarandstaðan fengi nú aðgang að forsætisnefndinni þannig að skoðanaskipti gætu gengið greið- ar fyrir sig. „Ég er því ágætlega ánægður með þessa niðurstöðu," sagði Páll og bætti því við að þing- flokksformenn stjómarflokkanna hafi sýnt af sér mikinn samstarfs- vilja og raunar allt annað viðhorf en við upphaf þings í fyrra. Ekki náðist samkomulag um kjör í forsætis- nefndina í fyrrahaust og var hún al- farið skipuð þingmönnum úr stjómarflokkunum. Með því að fjölga í forsætisnefndinni munu all- ir þingflokkar eiga þar fulltrúa, en Sjálfstæðisflokkurinn verður með þrjá fulltrúa í nefndinni. Krafa sjálf- stæðismanna um að hafa fleiri full- trúa í nefndinni, í samræmi við þingstyrk sinn, olli því að stjórnar- andstaðan tók ekki sæti í henni í fyrrahaust. Sjálfstæðisflokkurinn lagði áherslu á að í tengslum við breytinguna á forsætisnefndinni verði gerðar breytingar á þingskaparlögunum sem miði að því að þrengja ræðu- tíma meira en þegar hefur verið gert. Stjómarandstaðan féllst á að gera smávægilegar breytingar á um- ræðutíma í styttri umræðum, en hafnaði tillögu sjálfstæðismanna um að umræðutími við fyrstu um- Kókaín fannst eftir eltingarleik í fórum manns í fyrrinótt: ræðu um stjórnarfrumvörp verði takmarkaður. Tími til umræðna um þingsköp verður minnkaður úr fimm mínútum í þrjár. Þá verður ræðutíma í umræðum utan dag- skrár og umræður í fyrirspurnatíma aðeins breytt. Þá felst í því sam- komulagi sem gert var í gær sú ný- breytni að ráðherrum eru sett tíma- mörk, 10 vikur, varðandi það hversu lengi þeir geta dregið að skila inn skýrslum sem þeir eru krafðir um á þingi. Engar slíkar takmarkanir hafa verið um þetta atriði. í dag verður kosið í þingnefhdir. Forseti þingsins verður einnig kos- inn, en frestað verður að kjósa vara- forseta sem mynda forsætisnefndina þangað til búið er að afgreiða frum- varp um breytingu á þingskaparlög- um. Vonast er eftir að frumvarpið verði að lögum á morgun og þá verði varaforsetamir kosnir. -EÓ/BG Þrátt fyrir að þinghald sé varla hafið hefur þegar safnast fyrir stór bunki af þingskjöium á borð þingmanna. Um er að ræða gögn um EES-málið. Flest af þeim hafa þingmenn séð áður, en koma nú til þeirra í endanlegri gerð. Berjasprettan í ár: Léleg á Vestur- landi en góð á Austf jörðum Misjafnlega horfir með beija- sprettu um þessar mundir. Þannig er eyðilegt um að litast á Vesturlandi og Vestfjörðum en útlitið mjög gott á Aust- fjörðum. Búast má við sæmi- legri beijasprettu á Norður- Iandi. Álit bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum er samhljóma, þ.e. „berjaspretta er lélegri en verið hefur lengi.“ Jafnvel gengu sumir svo langt að segja að hún væri engin. Þannig er hljóðið í fólki á Búðum á Snæfellsnesi að þar sjáist varla ber og er köldu árferði í sumar og vor kennt um. Svipað er hægt að segja um Sunnlendinga en á svæðinu í kringum Kirkjubæjarklaustur sjá menn fram á frekar lélegt berjaár. Austfírðingar geta hins vegar verið kátir þessa dagana. „Það er mikið af berjum en þó ber mest á aðalbláberjum, sem fólk er byrjað að tína,“ segir Jó- hanna, bóndi á Sólbakka í Mjóa- firði. Hún telur þó að krækiber þurfi að þroskast betur og þurfi meira sólskin. Viðhorf Norðlendinga er þokkalegt. Þannig segja bænd- ur á Árskógsströnd að vænlega horfi með berjatínslu en berin séu ekki orðin nógu þroskuð enn þá. Þar er álitið að ekki verði hægt að hefja tínslu fyrr ■en um næstu mánaðamót. Helst er kuldahretinu í lok júní kennt um svo og kulda í vor sem leið. Við Mývatn fengust þær upp- lýsingar að þar væri berja- spretta léleg. „Berjaspretta er seinna á ferðir.ni en hún var í fyrra og ekki horfur á að hún verði mikil og þá einna helst krækiber," sagði Ingi Tryggva- son á Narfastöðum. -HÞ Ungur lögreglumaður er ennþá í lífshættu Flak lögreglubílsins sem kviknaði í eftir áreksturinn. Tlmamynd Aml Bjama 25 ára gamall maður situr nú bak við lás og slá eftir að lögregl- an fann rúmlega eitt kfló af kókaíni í bfl hans að loknum miklum eltingarleik í fyrrinótt. Fíkniefnalögreglan hafði fylgt manninum eftir í bfl og gáfu þeir honum loks merki um að nema staðar við sundlaugarnar í Laugar- dal. Því hlýddi maðurinn ekki, held- ur ók á miklum hraða norður Vest- urlandsveg. Þá voru fleiri lögreglu- bflar kallaðir til aðstoðar og var ein- um þeirra lagt á veginum við Skálatún í Mosfellsbæ. Honum var þó vikið úr vegi þegar bfll mannsins birtist á ofsahraða. Hann ók aftan á lögreglubflinn, sem var ekið á 50-70 km hraða í sömu átt og flóttabfln- um, og kom upp eldur í lögreglu- bflnum. Þrítugur lögreglumaður, sem sat í farþegasæti, hlaut alvar- legt höfuðhögg við áreksturinn og liggur þungt haldinn á gjörgæslu Borgarspítalans. Til allrar hamingju tókst félögum hans að bjarga hon- um úr bflnum áður en eldurinn gaus upp. Slysavaldurinn meiddist örlítið við áreksturinn. Þegar taka átti þann, sem eltur hafði verið, höndum stakk hann einn lögreglumannanna með skær- um í brjóstið. Vasabók í brjóstvasan- um kom þó í veg fyrir að sár hlytist Heyfengur góður en lítil sala á heyi: Ekkert hey til Noregs Jónas jónsson búnaðarmálastjóri segir að Norðmenn séu hættir við að kaupa hey af íslendingum og Svíar séu enn að hugsa sig um. Hann telur heyfeng vera góðan um aUt land. „Rigningamar komu snemma í Nor- egi og þar gátu menn því bjargað sér. í Svíþjóð er enn verið að athuga þetta og hugsanlegt er að eitthvað hey verði selt þangað," segir Jónas. Hann bend- ir á að Austfirðingar hafi þó selt hey til Færeyja eins og undanfarin ár en þar sé um lítið magn að ræða. Jónas álítur að heyskapur hafi geng- ið vel alls staðar á landinu og að árið sé því gott. „Það sem mestu munaði um er að nú er hvergi kal í túnum eða skemmdir á ræktun og tíðin hefur verið þokkaleg,“ segir Jónas. Hann telur að kuldahretið Norðan- lands í júnflok hafi ekki haft áhrif á heyfeng þar sem spretta hafi verið komin vel á veg og menn sums staðar byrjaðir að slá. Jónas segir að menn séu ekki allir búnir að heyja þar sem margir slái tvisar sinnum og þá sérstaklega Norð- anlands. af. Þá fannst rúmlega eitt kíló af kóka- íni í bfl mannsins, sem hefur ekki komið við sögu fíkniefnadeildarinn- ar áður. Tveir menn, annar um þrí- tugt og hinn um fertugt, hafa verið handteknir í tengslum við þetta mál. Sá yngri hefur áður gerst brotlegur við fíkniefnalöggjöfina og verður líklega óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir honum og einnig manninum sem handtekinn var í nótt. Yfirheyrslur stóðu yfir mönnunum þremur í gær. —GKG.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.