Tíminn - 19.08.1992, Side 12

Tíminn - 19.08.1992, Side 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Áskriftarsími Tímans er 686300 AUÐVITAÐ Suöurlandsbraut 12 ðönivisi bilasala •HJÓL* •VARA- HLWTTR. ■VND HJÁ OKKUR - BÍLL HJA ÞÉR SÍMI 679225 SÆ HOGG- TU deyfar Verslið hjá fagmönnum I QJvarahlutir LH Hamarshöföa 1 - s. 67-6T44J] 1111111111 MIÐVIKUDAGUR19. ÁGÚST 1992 Styðja búvöru- samninginn Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri segir hátt verð á bílaleigubílum vandamál: HEIMSINS DÝRUSTU BÍLALEIGUBÍLAR? Bílaleigubílar á íslandi eru með þeim dýrustu í heim- inum. Þannig kostar t.d. 7.120 kr dagur á íslandi en 3.870 kr í Danmörku eða tæplega helmingi meira. Þetta er athyglisvert því rætt hefur verið um að ferðamenn hafi sniðgengið landið m.a. vegna þess að verðlag er hér hátt. Aðalfundur Landssambands kúa- bænda á Hvanneyri sem lauk í gær lýsti yfir stuðningi við nýgerðan bú- vörusamning um mjólkurfram- leiðsluna og skoraði á aðalfund Stéttarsambands bænda að sam- þykkja samninginn. Á fundinum voru skiptar skoðanir um ágæti nýja búvörusamningsins. Á fundinum var mikið rætt um sölu á nautgripakjöti og almennt um vaxandi samkeppni á kjötmark- aðinum. Mótmælt var hugmyndum um að hætta endurgreiðslum á hluta af virðisaukaskatti af naut- gripakjöti. Skorað var á stjóm LK að vinna ötullega að markaðsmálum nautgripakjöts og nefnt var í því sambandi atriði eins og breytingar á kjötmati, auglýsingar, kannanir á væntanlegu framboði á sláturgrip- um og aðgerðir til að hafa áhrif á framboð sláturgripa. Fundurinn heimilaði að tekið verði verðjöfnun- argjald, allt að 5% af verði naut- gripakjöts til framleiðenda, til að mæta kostnaði sem þessu fyígir. Fundurinn heimilaði jafnframt að tekið verði allt að 1% verðjöfnunar- gjald af verði mjólkur til framleið- enda til að mæta útgjöldum vegna markaðsfærslu mjólkurafurða, en frá og með 1. september er sala þeirra alfarið á ábyrgð framleiðenda og afurðastöðva. Á fundinum var ennfremur sam- þykkt að skora á mjólkuriðnaðinn að sinna auknum kröfum neytenda eftir minna meðhöndlaðri mjólk (lífrænt framleiddri, ógerilsneyddri, ófitusprengdri) og jafnframt að leita leiða til að draga úr umfangi um- búða og umbúðakostnaðar. -EÓ Þetta kemur m.a. fram í sænskum bæklingi „Holiday dri- ve“ á vegum alþjóðlegu bflaleig- unnar „Budget. Þar er gefið upp verð bflaleigubfla frá flestum löndum heims. Miðað er við ótakmarkaðan akstur og eru gefnir upp þrír verðflokkar þ.e. hvað hver dagur kostar miðað við að bfll sé leigður í 3 til 6 daga, 7 til 13 daga og meira en 14 daga. Hér er sýndur samanburður milli nokkurra landa: Verð á dag verð á dag í 3-6 daga í 7-13 daga ísland: 7.120 6.180 (Lada station) Danmörk: 3.870 3.331 (Peugot 205) Noregur: 5.760 4.890 (F.Fiesta) Holland: 3.250 2.830 (Opel Corsa) Spánn: 2.720 2.350 (Seat Marbella) SAfríka: 3.100 2.820 (Toyota Corolla) Florida: 1.720 (verð á dag í viku) (Ford Esc. auto) í öllum verðflokkum hefur ísland vinninginn og er sums staðar um helmings munur miðað við önnur lönd. Stórt vandamál „Þetta er svo miklu hærra en annars staðar að maður skilur þetta ekki,“ segir Birgir Þorgils- son ferðamálastjóri. Það hefur jafnvel komið upp sú hugmynd hjá mönnum að taka bíla á leigu erlendis að vori og skila þeim aftur að hausti,“ seg- ir Birgir. „Verðlag á bílaleigubílum er eitt af stærri vandamálum í ferðaþjónustu," segir Birgir. Hann álítur verðlag á bílaleigu- bílum leika stórt hlutverk í allri ferðaþjónustu og nefnir í því sambandi ferðaþjónustu bænda. Hann telur virðisauka- skatt sem sé lagður á bæði fastagjald og kílómetragjald ekki vera til bóta. „Maður spyr sjálfan sig hvort þetta sé í anda laga um virðisaukaskatt," segir Birgir. Þetta ásamt verði á vínföngum, öli og skyndibitamat segir hann að fólk setji fyrir sig. „Útlend- ingum jafnt sem íslendingum finnst að verið sé að snuða sig. Það er það versta sem getur gerst þegar fólk fær það á til- finninguna," sagði Birgir að lokum. Stuttur rekstrartími Tálsmaður bflaleigunnar „Bud- get“ hér á landi segir að ástæða þessa verðmunar sé stuttur rekstrartími, þ.e. tveir mánuðir á ári. Hann segir að ferðamönnum hafi fjölgað frá í fyrra og bflaleig- an leigi út helmingi fleiri bfla nú í ár en í fyrra. Hann segir útlend- inga vera um 98% viðskiptavin- anna. „Það er orðið hryllilegt að gera út bflaleigur hér á landi. Það stytt- ist alltaf sá tími sem mest er að gera. Það var mjög dauft yfir maí og júní, lagaðist í júlí en er bara furðugott núna," segir Vilhelm Ágústsson hjá Bflaleigu Akureyr- ar. Hann segir að meðan virðis- aukaskattur sé um fjórðungur verðsins verði þetta dýrt. „Það er erfitt að lækka verð eitthvað mik- ið á vörum þegar rekstrartíminn styttist sífellt og ríkið gerir ekkert á móti. Það innheimtir virðis- aukaskatt af öllum búnaði bfla. Ég er sannfærður um að margir í þessari þjónustugrein muni Ieggja upp laupana," sagði Vil- helm að lokum. -HÞ Sigmundur Guðbjarnason prófessor hefur hannað orkumæli úr síldarslori: Fara listamenn að nota litað karfahreistur? Þessa dagana er að koma á markað litað fiskhreistur sem er ætlað til listmunagerðar og svokölluð orku- sjá sem sýnir þá orku sem streymir frá líkamanum. Hvort tveggja er af- rakstur vinnu og rannsókna sem unnið hefur verið að í Háskóla ís- lands í sumar undir yfirumsjón Sig- mundar Guðbjamasonar, prófess- ors (g fyrrverandi háskólarektors. Á hverjum degi falla til tugir tonna af fiskhreistri hérlendis. Hingað til hefur því öllu verið hent eða unnið í gúanó. Sigmundur Guðbjamason og samstarfsmaður hans, Ægir G. Sigmundsson, hafa unnið að því í sumar að búa til verðmæti úr þessu hráefni. Til þess fengu þeir 600 þús- und króna styrk frá Byggðastofnun. Háskólinn fjármagnaði það sem á vantaði. Hreistrið, sem er karfahreistur, er fengið frá Granda, en þar falla til á degi hve;rjum um 500 kfló af karfa- hreistri. Eftir að það hefur verið hreinsað og þurrkað er það Iitað og þurrkað að nýju. Afurðin er fallegt íistskraut sem Ægir og Sigmundur vonast eftir að listamenn og laghent fólk hafi áhuga á að vinna skraut eða listmuni úr. Þegar hafa verið unnin nokkur tugir kflóa af hreistri og verður því nú komið á markað. Sig- mundur sagði að það færi sfðan eftir viðtökunum hvort framhald yrði á framleiðslunni. Hann sagðist vona að eitthvert fyrirtæki sjái sér hag í því að þróa þessa vinnslu áfram. Orkusjá er önnur vara sem Sig- mundur hefur unnið að í samvinnu við Óskar Ágústsson. Orkusjáin er glas sem er haganlega fyrirkomið í tréstokk. í glasinu er gljái sem er unninn úr sfldarhreistri. Þegar glas- inu er þrýst að hendi eða öðrum lík- amsparti streymir gljáinn frá líkam- anum. Sfldargljáinn sýnir þannig þá orku sem streymir frá líkamanum. Sigmundur sagðist enga skýringu hafa á því af hverju gljáinn hagi sér svona, né hvaða tilgangi hann gegni fyrir sfldina. Hér er hins vegar kom- inn einfaldur og skemmtilegur orkumælir sem margir hafa örugg- lega gaman af, ekki síst nýaldarsinn- ar sem áhugasamir eru um dulda orku mannslíkamans. Sigmundur sagði að orkusjáin og fiskhreistrið væri tilraun til að búa til verðmæti úr verðlausu efni sem nóg væri til af hérlendis. Hann sagði að því miður værum við ekki nægi- lega opnir fyrir nýjum leiðum til að skapa verðmæti. Fyrirtæki í fiskiðn- aði hefðu t.d. ekki treyst sér til að styðja þessa hugmynd. Þau væru upptekin af því að halda gangandi þeirri vinnslu sem þau eru í. Sig- mundur sagðist vona að ef orkusjáin og litaða hreistrið seljist vel vakni áhugi fyrirtækja á að framleiða þessa og aðrar vörur. Hann sagðist eiga fleiri hugmyndir um einfaldar framleiðsluvörur. -EÓ Hér má sjá sýnishom af myndum sem geröar hafa veriö úr fisk- hreistri. Ægir G. Sigmundsson sýnir karfahreistrið ásamt þeim Sigmundi Guðbjamasyni og Óskari Ágústssyni. Timamynd Ami Bjama

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.