Tíminn - 19.08.1992, Síða 2

Tíminn - 19.08.1992, Síða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 19. ágúst 1992 Framsóknarmenn hafa lagt fram frumvarp um að aflaheimildum Hagræðingarsjóðs verið ráðstafað til jöfnunar: Telja þetta einu raun- hæfu leiðina í stöðunni Skerðing á aflaheimildum Vestfirðinga mundi t.d. minnka úr nær 4.900 þorskígildistonn- um niður í rúmlega 2.100 þíg.L ef Alþingi samþykkir nýtt frum- va.p átta þingmanna Framsókn- arflokksins um að sjávarútvegs- ráðherra verði heimilað að út- hluta aflaheimildum Hagræð- •ngarsjóðs sjávarútvegsins til jöfnunar, í samráði við sjávarút- vegsnefnd Alþingis og hags- munaaðila í sjávarútvegi. Frum- varpið gerir ráð fyrir að heimild- um sjóðsins verði úthlutað án endurgjalds að öllu leyti til þeirra skipa sem verða fyrir verulegum samdrætti í aflatekj- um milli veiðitímabila. Aflaheimildum skal ráðstafa þannig að skerðing heildaraflaheimilda verði sem jöfnust hjá þeim skipum sem sæta ákvæðum um leyfilegan heildarafla. „Sjávarútvegsráðherra hefur lagt til að sjóðurinn verði notaður með svipuðum hætti og hér er lagt til, enda eina leiðin í þeirri stöðu sem nú er uppi. Því vænta flutnings- menn frumvarpsins að mál þetta fái skjóta meðferð á Alþingi og þannig verði komið til móts við þarfir sjáv- arútvegsins," segir m.a. í greinar- gerð. Tilganginn segja flutningsmenn þann að jafna að nokkru leyti það mikla áfall sem þorskveiðiflotinn verði fyrir vegna skertra aflaheim- ilda á fiskveiðiárinu 1992- 1993. Bent er á að á fyrsta starfsári Hag- ræðingarsjóðs hafi aflaheimildum hans verið varið til að mæta skert- um aflaheimildum loðnuveiðiskip- anna. Á síðasta ári hafi þær gengið til flotans í heild. Nú blasi við meiri skerðing en nokkru sinni fyrr og þá ákveði ríkisstjórnin að selja þessar heimildir hæstbjóðanda og afnema Tafla 2 Breyting aflahdmílda tnilll fiskvelöiára eftir kjðrdeemum Kjördfetni MiSEQunur á úthJutun mliil 1991/19« og 1992/1993 þíg. lestír hlutfail DkmíI 1 12,000 þíg. dneífl hlutfallslega þCg; lesfir hlut/alj Dætal 2 12.000 14'- í jöfuun þíg, lestír hluifai! Su&urUnd 13 0,02* 1.649 2,79% 377 0,64% Reykjíníi -2.195 -3,12* -359 -0,51% -857 -1,22% Reyfy'avfl: 194 0,53% 1.268 3,49% 374 1,03% Veiturland -3.011 -6,94% -1.802 -4,15% -1.339 -3,09% Veeifiróir' -4.S65 -8,36% -3.252 -5,59% -2.146 •3,69% Norðurltnd vettra -1.770 -6,37% -983 -3,53% -826 •2,97% Noröuriand eystra -5.537 -7,20% -3.351 -4,36% -2.S69 -3,34% Aurturltnd -3.780 -6,44% -2,194 -3,74% -1.993 -3,39% Samteli -20.952 -4,86% -9.024 -2,10% -8.980 -2,09% Fyrsti dálkur töflunnar sýnir breytingu milli fiskveiðiára á aflamarki skipa með heimahöfn í hverju kjördæmi miðað viö þá ákvörðun sem tekin hefur verið um heildarafla og óbreyttan loðnuafla. Annar dálkur (dæmi 1) sýnir sömu upplýsingar, að því viðbættu að aflaheimild- um Hagræöingarsjóðs væri dreift í samræmi við hlutdeild hvers skips. Aftasti dálkurinn (dæmi 2) er þeim 12.000 þorskígildistonnum, sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunar, aftur á móti „úthlutað" til þeirra skipa sem verða fyrir hlutfallslega mestri skerðingu. Niðurstaðan verður sú að ekkert skip skerðist þá meira en 5,2% og mesta skerðing á kjördæmi fer niður í 3,7% í staðinn fyrir 8,4% miðað við óbreytta úthlutun. Nærri heimingur 12.000 þíg.t. sjóðsins mundu skiptast milli skipa á Vestfjörðum og Norðurlandi- eystra. Leiðrétting Vegna misskilnings var í frétt blaösins í gær sagt að grunur léld á um að um ölvun hafi ver- Íð að ræða þegar árekstur varð á gatnamótum Suðurlandsbraut- ar og Grensásvegar á sunnu- dagskvöld. Það er rangt og eng- inn grunur er uppi um ölvuna- rakstur. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. möguleika til jöfnunar. Það skref sem hér sé stigið sé óviðunandi fyr- ir þá aðila sem mest byggja á þorsk- veiðum. í þessu felist slíkt óréttlæti að ekki verði við unað. Flutningsmenn segja ljóst að rekstrarskilyrði sjávarútvegsins verði ekki lagfærð með þessari að- gerð einni saman. Þar þurfi fleira að koma til. Þessi jöfnun sé þó for- senda þess að eðlilegt jafnræði ríki í greininni, þótt vissulega hafi komið til álita að nýta jafnframt aðrar afla- heimildir til jöfnunar. Með úthlut- un á aflakvótum fyrir fiskveiðiárið 1992-1993 hafi ríkisstjórnin útilok- að að hægt sé að grípa til slíkra úr- ræða. Sem dæmi um hvað hægt hefði verið að gera benda flutnings- menn á að rækjuafli var aukinn sér- staklega á árinu 1991 til úthlutunar vegna loðnubrests. Jafnframt sé nauðsynlegt að bæta rekstrarskilyrði sjávarútvegs að öðru Ieyti, m.a. með því að létta af honum margvíslegum kostnaði. Rafmagnsverð sé of hátt, aðstöðu- gjald sé óréttmætt og vextir allt of háir. Ríkisstjórnin hafi auk þess beitt sér fyrir margvíslegum álög- um á sjávarútveginn. Aðilar í grein- inni meti hækkanir á opinberum álögum allt að 1 milljarði á árinu 1992. „íslenskt samfélag þolir ekki þann mikla samdrátt, bölsýni og gjaldþrot sem núverandi ríkisstjórn hefur hrundið af stað. Með samþykkt þessa frumvarps er stigið mikilvægt skref í þeirri viðleitni að styðja við bakið á íslenskum sjávarútvegi sem býr nú við þrengri stöðu en oftast áður.“ Flutningsmenn frumvarpsins eru þeirrar skoðunar að best sé að breyta lögunum um Hagræðingar- sjóð í upprunalegt horf, en jafn- framt verði opnuð varanleg heimild til að beita sjóðnum í tilfellum sem þeim sem menn standi nú frammi fyrir og hafi staðið frammi fyrir vegna loðnubrests 1990. Þar sem eðlilegt sé að bíða með þær breyt- ingar þar til við endurskoðun laga um stjórnun fiskveiða segjast flutn- ingsmenn flytja breytingartillögu sem ákvæði til bráðabirgða í þeirri von að um það geti skapast meiri samstaða. Halldór Ásgrímsson er fýrsti flutningsmaður frumvarpsins en aðrir eru Stefán Guðmundsson, Guðni Ágústsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Finnur Ingólfsson, Steingrímur Hermannsson, Ingi- björg Pálmadóttir og Ólafur Þ. Þórðarson, þannig að flutnings- menn koma úr öllum kjördæmum landsins. Meðfylgjandi upplýsingar um breytingar á aflaheimildum eru fengnar frá sjávarútvegsráðuneyt- inu vegna beiðni á fundi sjávarút- vegsnefndar. Reiknuð voru áætluð áhrif af dreifingu aflaheimilda Hagræðingarsjóðs til einstakra skipa til samræmis við aflahlut- deild hvers skips og hins vegar áhrif þess að nýta aflaheimildir sjóðsins til þess að hækka aflamark þeirra skipa sem verða fyrir mestri skerðingu. - HEI Hér gefur á að líta hluta þeirra 23 námsmanna sem njóta Fulbrightstyrkja á næsta skóiaári við móttöku sem þeim var haldin af Menningarstofnun íslands og Bandaríkj- anna. Alls nema styrkirnir nær níu milljónum króna en mikilvægi þeirra fer nú vaxandi eftir að úthlutunarregl- um LÍN var breytt. —GKG. Þingflokkur Siálfstæðisflokksins kemur saman í dag til að taka ákvörðun um skipan í nefndir: Hafnar Sjálfstæðis- flokkurinn Eykoni? Þingflokkur Sjálfstæðisflokks- Ins mun koma saman til fundar snemma í dag til að taka ákvörð- un um skipan fulitrúa flokksins í nefndir. Reiknað er með að Davíð Oddsson forsætisráð- herra geri tillögu um það á fundinum að Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkis- málanefndar, verði ekki koslnn í nefndina. Sjálfstæðisflokkurinn óskaði eftír því að kosningum f nefnd- ir, sem vera áttu í gær, yrði frestað um einn dag. Ástæðan er að verið er að leita eftir sam- komuiagi við stjórnarandstöð- una um kosningu í forsætis- nefndina og eins hitt að Sjálf- stæðisfiokkurinn hefur ekki tekið ákvörðun um hvaða menn verði fulltrúar flokksins f utan- ríkismálanefnd. Beöið hefur verið eftir Davíð Oddssyni, en hann kom heim f gær af fundi með forsætisráð- herrum Norðurlandanna. Áður en Davíð fór út ræddi hann tví- vegis við Eyjólf Konráð um for- mennsku í utanríklsmálanefnd. Hvorugur hefur viljað segja hvað þeim fór á milli á fundun- um, en Eyjólfur Konráð sagöi eftir seinni fundinn að hann Eyjóifur Konráð Jónsson. gæfl kost á sér til áframhaldandi formennsku í utanríkismála- nefnd. í gær var litið svo á að Davíð yrði að taka ákvöröun um það hvort Eyjólfi Konráði yrði áfram stillt upp sem fulltrúa flokksins f utanríkismálanefnd. Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætiar að koma í veg fyrír að Eyjólfur Konráð verði kosínn formaður utanrfkismálanefndar verður flokkurinn að koma í veg fyrir að hann verði yfirleitt kosinn í nefndina. Síðastliðið haust fékk Eyjólfur Konráð atkvæði ailra fulltrúa stjórnarandstööunnar í kosningu um formennsku f nefndinni. Raunar var það Steingrímur Hermannsson sem stakk upp á Eyjólfi í formanns- sætið þar sem engin uppá- stunga kom frá stjórnarliðum. Reikna má með að stjórnarand- stæðingar styðji Eyjólf Konráð áfram til forystu í nefndinni þegar formaður verður kosinn. Atkvæði þeirra og Eyjólfs Kon- ráðs sjálfs myndu því nægja til að hann yrði áfram formaður. Eyjólfur Konráð sagðt í sam- tali við Tímann að hann vonaði að ekki verði kosið f þingflokkn- um um skipan í nefndir. Venjan sé að samkomulag sé f flokkn- um um nefndarskipan. Hann sagðist telja óheppilegt að skipta um formann í utanríkis- málanefnd nú og myndi þykja það mjög miður ef sú yrði raun- tn. -EÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.