Tíminn - 19.08.1992, Page 6

Tíminn - 19.08.1992, Page 6
6 Tíminn Miðvikudagur 19. ágúst 1992 Borgir íbúar á ha. íbúar á ha - elsti borgarhluti Bensínl. á íbúa á ári Akstursvegal. almenningsv. á íb. á ári (km) Hlutfall alm.v. og lesta af öllum ferðum Götur m. á íbúa Bílastæði p. 1000 störf í miðbæ Reykjavik 25 1) 47 2) 715 3) 466 -8-10% 3,5 -300 4) Borgir í N-Ameríku 14 45 2.300 • 522 4.4% 6,6 380 Borgir í Evrópu 54 91 530 1.790 24.8% 2,1 211 Borgir í Ástralíu 14 24 1.380 856 7,5% 8,7 327 Borgir í Asíu 160 464 220 3.060 64,1% 1,0 67 Taflan sýnir ýmsar upplýsingar um þéttleika byggðar, umferð og gatnakerfi í Reykjavík og í samanburði við meðaltal fjölda helstu borga i Evrópu, N-Ameríku, Ástralíu og Asíu. Vekur m.a. athygli að akstur SVR er minni á hvem borgarbúa í Reykjavík en samsvarandi þjón- usta í amerískum borgum. Reykvíkingar eyða tvöfalt til þrefalt meira bensíni en fólk í Vín, Berlín og Amsterdam: Reykjavík líkari borgum í Bandaríkj- unum en Evrópu Sarajevo — Nær 1000 almennir borgarar, aðallega serbneskar konur, börn og gamalmenni, voru flutt frá Sarajevo í fylgd vopn- aðra varða frá SÞ og var ferð- inni heitið til Belgrad. Á mánu- daginn var ráðist á sex hæða hótel, þar sem flóttamenn höfðust við, og létust fimm manns. Houston — Bush Bandarikjaforseti hefur sagt að Bandaríkin muni ekki leggja ein til atlögu til að neyða Iraka til að halda samninga Sameinuðu þjóð- anna, en lýsti yfir trausti á því að þau ríki, sem sameinuðust í Persaflóastríðinu, muni standa saman ef aðgerða verður þörf. París — Utanríkisráðherra Frakka, Ro- land Dumas, segir að sam- herjamir frá Flóabardaga hafi í hyggju að hindra flugher ír- aka í því að ráðast á shíta- múslima í suðurhluta íraks. Hvað snertir þéttleika byggðar og helstu þætti samgöngukerfisins virðist Reykjavík líkjast fremur borgum í Ameríku en evrópskum borgum. Fjöldi íbúa á hektara í eidri borgarhverfum Reykjavíkur (innan Hringbrautar og Snorrabrautar) er svipaður og í amerískum borgum en aftur á móti helm- ingi lægrí en í evrópskum. í borgum Evrópu eru ferðir almenningsvagna og lesta um fjórðungur allra ferða, borið saman við 8-10% í Reykjavík og 4- 5% í Ameríku. 1 borgum Evrópu aka almenningsvagnar um 1.800 km á íbúa á árí að meðaltali, borið saman við 470 km í Reykjavík og 520 km í borgum Ameríku. Þessi fróðlegi samanburður kem- ur fram í grein sem Bjarni Reynar- son, aðstoðarforstöðumaður Borg- arskipulags Reykjavíkur, skrifar í tímaritið Arkitektúr og skipulag. Heimildir um erlendar borgir hefur hann frá Peter Newman, áströlskum umhverfisfræðingi og sérfræðingi í bfiaumferð og orkunotkun, sem hélt fyrirlestur á Borgarskipulagi um þetta efni. Evrópskar borgir tvö- falt þéttbýlli Þéttleiki byggðar virðist að vísu nokkuð á reiki, enda átt við borgar- svæði sem skilgreind eru á mismun- andi hátt í hinum ýmsu löndum að sögn greinarhöfundar. Sé miðað við allt höfuðborgarsvæðið (utan Kjal- arness og Kjósar) eru íbúar á hekt- ara aðeins 3, en aftur á móti 16 ef lína er dregin umhverfis þéttbýlið á svæðinu, sem er svipað og í amer- ískum borgum. í meðfylgjandi töflu reiknar Bjarni með 25 íbúum á ha í Reykjavík borið saman við 54 íbúa/ha í evrópskum borgum og 160 íbúa/ha í borgum Asíu. Þegar hins vegar aðeins er reiknað með eldri borgarhlutum er Reykjavík með álíka fjölda á hektara og borgir Am- eríku en helmingi færri en evrópsk- ar borgir. í borgum Asíu býr fólk tíu sinnum þéttar. Þegar gatnakerfi borga er skipt nið- Alþjóðleg þingmannaráðstefna um málefni Norðurheimskauts- svæðanna verður haldin í Reykja- vík haustið 1993 fyrir tilstilli for- sætisráðherranefnd Norðurland- anna. Ætlunin er að fjalla þar um nýt- ingu auðlinda og fleiri sameigin- ur í metra á íbúa kemur að jafnaði 1 metri í hlut borgara í Asíu, rúmir 2 metrar í borgum Evrópu, hálfur 4. metri á hvern Reykvíking, og hálfur 7. metri á borgarbúa í Amerfku. Almenningssamgöng- ur minni í Reykjavík en amerískum borg- um Hlutföllin snúast síðan við þegar kemur að hlutföllum almennings- vagna og lestaumferð borganna. At- hygli vekur að akstursvegalengd SVR á hvern íbúa í Reykjavík er nær 60 km styttri en eknir km/íbúa al- menningsfarartækja í amerískum borgum, sem eru þó frægar fyrir flest fremur en sæmilegar almenn- ingssamgöngur. I Reykjavík aka almenningsfarar- tæki aðeins tæpa 470 km á íbúa bor- ið saman við 1.790 km á íbúa í borg- um Evrópu. Munurinn er því fjór- faldur. Enda eru slík farartæki fjórð- ungur umferðarinnar í borgum Evrópu en aðeins 8-10% hér á landi. Reykvíkingar mestu bensínbrennarar Evrópu Þegar kemur að bensíneyðslunni bjargar það hins vegar Reykvíking- um hvað þeir eru fáir og borgin leg hagsmunamál þessara svæða, m.a. umhverfis- og samgöngumál. Þingmönnum Norðurlandanna, Kanada, Bandaríkjanna og Rúss- lands verður boðið að sitja þingið auk vísindamanna og sérfræðinga. Ráðamenn á Norðurlöndunum hafa undanfarið öðlast skilning á þeirra þar með fremur lítil. í banda- rískum borgum (þar sem margir þurfa að aka 1-2 klukkutíma í vinn- una á morgnana) er bensíneyðslan mikilvægi þess að taka upp svæð- isbundð samstarf á norðurhveli og beindi Norðurlandaráð á þingi sínu í Helsinki í mars sl. þeim til- mælum til ríkisstjórna Norður- landa að þær taki upp samstarf um málefni Norðurheimsskautssvæð- anna. —GKG. 2.300 lítrar á íbúa að meðaltali (um 3.000 lítrar á íbúa í Houston). Reykvíkingar (íslendingar) komast af með 715 lítra — en það er þó meira en í nokkurri þeirra evrópsku borga sem samanburðurinn nær til. Meðaltalið í Evrópu er 530 lítrar af bensíni á mann. Hamborg og Frank- furt eru þar efst á blaði, París og Brússel í kringum meðaltalið, Lond- on þar vel fyrir neðan og íbúar Amsterdam nota innan við 400 lítra af bensíni á hvern borgarbúa, eða nærri því helmingi minna en Reyk- víkingar. Þá má geta þess að þótt Japanir smíði mikið af bfium til út- flutnings, m.a. stærsta partinn af öllum bfium á íslandi, þá bendir helmingi minni bensíneiðala á mann í Tókýó til miklu minni bíla- eignar þar í landi en hér. - HEI London— Breska stjómin hefur fengið stuðning allra flokka til að grípa til hernaðaraðgerða gegn írökum. Jerúsalem — James Baker, fýrrum ráðherra Bandaríkjanna, hefur stungið upp á því við (sraela og Sýr- lendinga að bandarískar her- sveitir hafi aðsetur á Gólan- hæðum í tengslum við friðar- samning sem er í undirbún- ingi, en samkvæmt honum munu Sýrlendingar fá yfirráð yfir hæðunum á ný. Mogadishu — Fariö er að flytja matarbirgðir úr skipum með herþyrlum áleiðis til sveltandi fólks í Sómalíu. Herflugvél flutti 34 hermenn til Mombasa á mánudaginn til þess að aðtoða við að koma 145.000 tonnum af mat til fólksins í Sómalíu. Ghadir, Líbanon — Þýsk blaðakona var drepin í Líbanon í gær þegar sprengja, sem fest hafði verið undir bíl hennar, sprakk. Blaðakonan, hin 29 ára gamla Marian Hulsen, var gift lí- bönskum næturklúbbaeig- anda en starfaði sem frétta- maður fyrir Der Spiegel og þýskar sjónvarpsstöðvar í Líbanon. Moskva — Yfir 2.000 erlendir fangar frá 31 landi voru í haldi í fanga- búðum í Síberíu undir ógnar- stjórn Stalíns, að sögn rúss- neska öryggisráðuneytisins. Að sögn Itar-Tass var þar m.a. um að ræða tvo Breta, yfir 200 Austurríkismenn, 501 Búlgara, 29 Ungverja, 116 Þjóðverja og 155 Mongóla. Sukhumi, Georgíu — Stjórnvöld í Georgíu hafa sent hermenn og skriðdreka inn í höfuðborg Abkasíu til þess að brjóta niður mótspymu að- skilnaðarsinna þar. Alþjóðleg þingmannaráðstefna í Reykjavík 1993: Nýting auðlinda rædd

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.