Tíminn - 12.09.1992, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 12. september 1992
Menntamálaráðherra segir að 210 milljónir hjá LÍN muni í haust fara í að lána fyrir skólagjöld-
um og vaxtakostnaði og segir nýnema hafa misnotað lánasjóðskerfið:
15-20% nema á námslánum
án þess að vera við nám
„Tilgangurinn var sá aö fækka þeim sem þáöu lán hjá Lánasjóöi íslenskra
námsmanna en voru ekki viö nám. Ég bendi á það, sem ég sagði í ræðu
minni og hafði eftir Jóni Torfa Jónassyni dósent, aö 15-20% innritaðra
stúdenta skrái sig á hverju ári en sæki ekki skólann. Það er þetta fólk sem
þáði lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og við töldum ekki rétt að svo
gerði. Lánasjóðurinn reiknar hins vegar með í sínum áætlunum núna að
fækkun umsækjenda verði um 4-6% en ekki 15- 20%.“ Þetta sagði Ólafur
G. Einarsson menntamálaráðherra á Alþingi í gær í lokaræðu sinni í um-
ræðum utan dagskrár um málefni Háskóla íslands, en Ingibjörg Sólrún
Císladóttir kvaddi sér hljóðs um það mál.
Ofangreindar upplýsingar komu
fram hjá ráðherranum sem andsvar
við ræðu Valgerðar Sverrisdóttur
sem sagði að tilgangur ríkisstjórn-
arinnar með setningu laganna um
Lánasjóðinn á síðasta vori hafi bein-
línis verið að fækka námsmönnum.
Hún sagði að það ætti því ekki að
koma á óvart þó námsmönnum
fækkaði. Hins vegar sagði hún það
koma á óvart ef ráðherra ætlaði ekki
einu sinni að standa við loforð sín
frá umræðunum á Alþingi í fyrravor
um að lána fyrir vöxtum og skóla-
gjöldum.
Menntamálaráðherra sagði hins
vegar í umræðunum að við þau lof-
orð yrði staðið og vísaði hann í því
sambandi til fundargerða stjórnar
LÍN þar sem m.a. kemur fram að
lánað verður vegna skólagjalda
manna nú þegar og á svipuöum tíma
og tíðkast hefur. „Það þýðir um 210
milljónir króna sem verða greiddar
út úr LÍN á þessu hausti. Á sama
hátt hefur verið ákveðið að bæta við
sérstöku vaxtaálagi á námslán vegna
þess að þau greiðast nú að meðaltali
2-4 mánuðum seinna frá LíN til
námsmanna en áður. Þetta álag
verður greitt til allra sem fá lán hjá
lánasjóðnum, Iíka þeirra sem ekki
fara til bankanna til að fá bráða-
birgðalán," sagði Ólafur G. Einars-
son.
Tilefni þess að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir óskaði eftir þessum um-
ræðum utan dagskrár er sú staða
sem komin er upp í Háskólanum og
benti hún á það í upphafsræðu sinni
að konum fækkaði um 30% meðal
nýnema á meðal karlkyns nýnemun
fækkaði aðeins um 17%. Þessi hlut-
fallslega mikla fækkun kvenna sagði
hún beina afleiðingu aðgerða ríkis-
stjórnarinnar sem bitnuðu sérstak-
lega á konum.
Ingibjörg Sólrún taldi að
ef ríkisstjórnin hækkaði ekki fjár-
framlög til Háskólns væru aðeins
þrír möguleikar fýrir hendi. f fýrsta
lagi að fella niður nám í tilteknum
deildum og greinum. í öðru legai að
takmarka aðgang nýnema að H.í.
sem þó væri ekki heimilt að óbreytt-
um Iögum. í þriðja lagi væri að
hækka innritunargjöldin við Há-
skólann. Hún sagði að ekkert af
þessum úrræðum væri þess eðlis að
Háskólinn gæti tekið af skarið með
það. Hér væri um pólitískar ákvarð-
anir að ræða sem taka þyrfti á Al-
þingi. Hún bætti því við að ef þessar
ákvarðanir yrðu teknar á þeim
grundvelli sem markaður hafi verið
með breytingu á Lánasjóðnum þá
væri ljóst að Háskólinn væri gerður
að skóla hinna útvöldu. Hann yrði
einhvers konar „elítu“-skóli fyrir
ungt fólk sem væri vel sett fjárhags-
lega, menntunarlega og félagslega.
Hún sagðist ekki tilbúin til að breyta
þjóðskólanum H.í. í „elítu“-skóla.
Athyglisvert var í þessum umræð-
um að jafnmargar konur kvöddu sér
hljóðs og karlar þrátt fýrir að þær
séu mun færri en karlarnir. Auk
Ingibjargar Sólrúnar töluðu þær
Valgerður Sverrisdóttir, Kristín Ást-
geirdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir og
Sigríður Þórðardóttir. Úr hópi karla
á þingi töluðu auk ráðherra þeir Ól-
afur Ragnar Grímsson, Steingrímm-
ur Sigfússon, Árni Johnsen og Tóm-
as Ingi Olrich.
Bankar í atvinnurekstri:
Getur hent sig
á krepputímum
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbanka fslands, segir að æski-
legast sé að bankar séu ekki beinir
rekstraraðilar í atvinnufýrirtækj-
um, þótt það geti hent sig á
krepputímum. Hins vegar telur
hann núverandi skipulag eðlilegast
að bankar séu eingöngu lánastofn-
anir.
í umræðum um atvinnumálin á
Alþingi fýrr í vikunni var þeirri hug-
mynd varpað fram hvort ekki væri
nauðsynlegt að breyta lögunum um
banka á þann veg að þeim verði
heimilt að eiga beina eignaraðild að
atvinnufyrirtækjum í ljósi þess
ástands sem nú er í atvinnumálum
landsmanna. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra lét þá svo ummælt að
þetta mál væri eins og önnur til
skoðunar í ríkisstjóminni. Þá telur
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands íslands, að
allir aðilar, hvort sem það er ríkið,
bankar, atvinnulífið eða aðrir, verði
að leggjast á eitt til að snúa vöm í
sókn til að efla atvinnuástandiðAð
sögn Stefáns Pálssonar hafa þessar
hugmyndir ekki verið ræddar innan
Búnaðarbankans né heldur hefur
hann trú á því að það verði gert á
sameiginlegum vettvangi bank-
anna. „Ekki nema það komi þá sem
álitamál frá Alþingi sem við þurf-
um að taka afstöðu til,“ sagði Stef-
án Pálsson, bankastjóri Búnaðar-
banka íslands. -grh
Hallinn á ríkissjóði verður 12 milljarðar:
Ríkisendurskoðun
biðst afsökunar
Ríkisendurskoöun hefur sent frá sér greinargerð í tilefni umræðna um
skýrslu stofnunarinnar um afkomu ríkissjóðs á þessu ári. í greinargerðinni
biðst Ríkisendurskoöun velvirðingar á því að hafa láðst að geta þess með
sama hætti og gert var í fyrra hvaða áhrif lántökur ríkissjóðs hefðu á hall-
ann.
í greinargerðinni segir Ríkisend-
urskoðun að stofnunin telji að gera
eigi grein fýrir öllum skuldbinding-
um ríkissjóðs í ríkisbókhaldi um
leið og þær eru ákveðnar. Taldar eru
upp ábendingar stofnunarinnar
vegna skuldbindinga sem ríkissjóð-
ur tók á sig í fýrra vegna búvöru-
samnings og Byggðastofriunar.
Ríkisendurskoðun telur að í lögum
um ríkisbókhald sé kveðið skýrt á
um að gera beri grein fýrir öllum
lántökum ríkissjóðs í fjárlögum eða
fjáraukalögum. Engu breyti hvort
greiðsluhreyfing eigi sér stað og
ekki eigi að gera neinn greinarmun
á því hvort um sé að ræða hreina
Iánasamninga, samninga um yfir-
töku skulda annarra aðila eða ein-
hliða skuldayfirlýsingar fjárlaga.
Orðrétt segir í greinargerðinni:
„Rétt er að benda á að í þeim tilvik-
um, sem deilt hefur verið um hvort
lánasamninga beri að telja með í
uppgjöri vegna framkvæmdar fjár-
laga, hefur ríkissjóður undirritað
sérstök skjöl til staðfestingar þess-
um skuldbindingum."
í samræmi við þetta telur Ríkisend-
urskoðun að horfur séu á að hallinn
á ríkissjóði á þessu ári verði 11,5 til
12 milljarðar. -EÓ
Hamborg í
Faxaskála
Það er heldur betur heitt í einu homi
Faxaskála við Reykjavíkurhöfn um
þessar mundir en þar er verið að skapa
sömu aðstæður og voru í Hamborg í
Þýskalandi síðsumars, þegar upp komu
i skemmdir í gámum sem innihéldu
i skreiðarhausa. Það er Rannsóknastofn-
| un fiskiðanðarins sem hefur umsjón
með þessari vísindalegu tilraun en hún
;; er unnin í samvinnu við Eimskip og ís-
I lensku skreiðarsöluna. Á myndinni eru I
1 þau Gunnar Guðmundsson, deildar- I
) tæknifræðingur á tæknideild RF, og ?
j Karin Steinecke, líffræðingur og veð- |
I urfræðingur. Tínumyml Ámi Bjinu 1
80% þjóðarinnar segjast ekkert vita um EES-samninginn þrátt fyrir að utanríkisráðuneytið hafi varið miklu fé til að fræða almenning um málið:
Er ekki rétt að fá nýjan kennara?
Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður sagði á Alþingi í fyrradag að Jóni Bald-
vin Hannibalssyni utanríkisráðherra hefði mistekist að uppfræða almenn-
ing um innihald samningsins um Evrópskt efnahagssvæði þrátt fýrir að
hafa fengið til þess ærið fjármagn. Ólafur lagði til að Alþingi tæki sjálft að
sér að kynna samninginn. Almenningur treysti Alþingi mun betur til þessa
verks en utanríkisráöuneytinu.
í skoðanakönnun sem utanríkis-
ráðuneytið lét gera fýrir sig um
þekkingu almennings á EES- samn-
ingnum kemur fram að 80% svar-
enda vita ekkert um málið eða hafa á
því mjög litla þekkingu. Einungis
1,2% svarenda höfðu kynnt sér mál-
efnið mjög vel.
Ólafúr Þ. Þórðarson sagði það
ágætt framtak hjá utanríkisráðu-
neytinu að kanna hvernig því hafi
tekist til við kynninguna. Niðurstað-
an hljóti hins vegar að valda utan-
ríkisráðherra miklum vonbrigðum.
„Hæstvirtur utanríkisráðherra og
ég eigum það sameiginlegt aö hafa
báðir fengist við kennslu þó nokk-
urn hluta ævinnar," sagði Ólafur.
„Ég er þeirrar skoðunar að ef tveir
nemendur af þrjátíu falla í bekk þá
bendi allt til þess að þeir prívat og
persónulega, einhverra hluta vegna,
hafi ekki getað tileinkað sér kennsl-
una eða hafi ekki haft áhuga á að
kynna sér námsefnið. Gerist það aft-
ur á móti að tveir af þrjátíu nái próf-
inu en hinir allir falli þá er ég þeirr-
ar skoðunar að það sem gerst hafi sé
að kennarinn hafí ekki komið náms-
efninu eðlilega á framfæri við bekk-
inn. Það má vel vera að utanríkis-
ráðherra sé annarrar skoðunar, en
ég hygg að flestir myndu í því tilfelli
ekki afskrifa bekkinn sem nothæfan
til þess að nema fræðin heldur fara í
það að athuga hvort eitthvað væri að
kennslunni."
Ólafur sagði það brýnt að fleiri en
utanríkisráöuneytið fái fjármagn til
að kynna efni EES-samningsins.
Eðlilegt væri að því verði dreift m.a.
til þeirra hópa sem eru andvígir
samningnum og til Alþingis, en
fram komi í skoðanakönnuninni að
það sé sú stofnun sem almenningur
treystir best til að kynna málið.
Utanríkisráðherra svaraði ásökun
um að hann væri lélegur kennari og
sagði: „Ólafur Þ. Þórðarson vitnaði
til kennslureynslu og taldi að ef ekki
tekst vel til við að koma námsefni til
skila þá sé það sök kennara. Ég get
fallist á það. En þegar niðurstöður
þessarar könnunar eru skoðaðar þá
kemur á daginn að kennarar hafa
verið margir. Þaö hafa nefnilega
margir tekið að sér að fara með upp-
lýsingar fyrir íslensku þjóðina í
þessu máli, þar á meðal Ólafur Þ.
Þórðarson sem farið hefur með
fleipur í hverju málinu á fætur öðru.
Þar á meðal um stjórnarskrármál
sem opinberar að hann hefur ekki
kynnt sér málið og skilur það jafnvel
ekki.“
Jón Baldvin sakaði Ólaf og fleiri um
að reka hræðsluáróður. Hann vitn-
aði til þess að í skoðanakönnuninni
hefði komið fram að fólk óttaðist
um stjórn fiskveiða við íslands, um
fullveldi íslands og um fjárfestingar
útlendinga í íslensku atvinnulífi, ef
við gengjum í EES. Jón Baldvin
sagði þetta ástæðulausan ótta.
Ólafur Þ. benti á að aðeins 1,2%
svarenda hefðu sagst hafa kynnt sér
málið mjög vel. Flestir í þessum
hópi væru fýlgismenn samningsins.
Ólafur sagði þetta benda til að ef sér
hefði tekist að kenna eitthvað um
EES þá hafi það ekki fallið í góðan
jarðveg. „Ég fæ nú ekki séð að það
gangi hjá ráðherra að halda því fram
að það fjármagn sem hann fékk til
að sjá um kennsluna hafi verið not-
að af mér til að koma röngum upp-
lýsingum á framfæri. Hann er einn
handhafi þess fjármagns sem fór í
þessa kennslu. Það er sá sem fjár-
magnið fékk sem verður að standa
skil á því verkefni sem hann tók að
sér. Hefði ráðherrann verið maður
til að leggja það til að þessu fjár-
magni yrði dreift þá hefði hann get-
að kvartað yfir því að hinir hefðu
ekki staðið sig,“ sagði Ólafur. -EÓ