Tíminn - 12.09.1992, Síða 6

Tíminn - 12.09.1992, Síða 6
6 Tíminn Laugardagur 12. september 1992 Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla íslands, um niðurskurð og samdrátt: PAÐ ER EKKI beint tilefni til , bjartsýni hjá rektor Háskóla ís- lands þessa dagana. Kennsla er skert um 20% og þyrfti 129 milljón- ir til að hún yrði svipuð og í fyrra. Sveinbjörn Björnsson háskólarektor segir að gæði háskólanáms séu í hættu og vill öflugra verknám í tengslum við atvinnulífið. Texti: Helgi Þórhallsson. Tímamynd: Ámi Bjama Ólík skilyrði Er nám við Háskóla íslands lélegt að gœð- um í Ijósi þess að hér er kostnaður 300.000 kr. á hvem nemenda samanborið við 500.000- 800.000 kr. á hinum Norðurlönd- unum? „Það fyrsta sem þarf að skoða er almennur munur á launum. Við vitum að erlendis eru greidd hærri laun og háskólakennarar hér á landi því lægra launaðir en starfsbræður þeirra erlendis, allavega hvað dagvinnulaun snertir. Annað sem ræður miklu í þessum samanburði er að það er Ijölmennara aðstoð- arlið í skólum á Norðurlöndum en tíðkast hér. Skrifstofulið er sterkara, tæknilið er sterkara og þar með eru kennarar þar betur nýttir en hér á landi til verka sem varða kennslu og rannsóknir. Hér fer mikill tími manna í ýmis stjórnunarverk og jafnvel verk sem aðstoðarmenn myndu vinna í öðrum löndum. í þriðja lagi er lagt miklu minna í aðstöðu eins og t.d. bókasöfn hér á landi en á Norðurlöndum. Við höfum ekki náð að byggja upp nógu sterka bókasafnsþjónustu við nemendur. Þá má bæta við að rannsóknir eru ekki eins umsvifamiklar og minna er hér um framhaldsnám en víöa tíðkast. Þetta allt saman skýrir þennan mun. Grunnnámið sem við veitum hér virðist vera nokkuð haldgott veganesti þegar farið er út. Við náum því með sterkri kennslu og bóknámi en ekki eins miklu sjálfsnámi og æskilegt væri, „segir Sveinbjörn. „Hins vegar má spyrja hvernig nemendur standi sig þegar þeir fara út í atvinnulífiö. Ég álít að nemendur hafi sterkan fræðilegan grunn en þyrftu dálítinn aðlögunartíma áður en þeir venjast þeim verkefnum sem þarf að vinna. Skólinn gefur þeim því ekki mikla starfsþjálfun og kannski minni en æskilegt væri,“ bætir Sveinbjörn við. Hann hefur mik- inn áhuga á að efla tengsl við atvinnulífið og segir: „Það er einmitt af þessum ástæðum sem við höfum mikinn áhuga á að flytja fram- haldsnám að hluta heim. Þá getum við fengið nemendum íslensk verkefni og þeir tengjast þá betur íslensku atvinnu- og þjóðlífi. Þeir eru þá að fást við í námi sínu verkefni sem hafa einhver gildi hér heima fyrir og jafn- framt læra þeir inn á íslenskan atvinnumark- að. Sá sem lærir erlendis flytur oft með sér merka þekkingu. Oftast dregst hann samt inn í tískugreinar þess lands sem eru kannski mikilvægastar fyrir það en koma að litlu gagni hér,“ segir Sveinbjörn. Kennsla lögð niður Hvemig getur Háskóli íslands brugðist við þar sem búast má við frekari niðurskurði til menntamála á næstunni? „Við höfum í ár meira brugðist við honum með bráðabirgðaráðstöfunum og gert á fá- tæklegri hátt margt sem við höfum verið að gera. Við erum bundnir af því að þjóna öllum nemendum sem hingað sækja. Einnig erum við bundnir af því að halda áfram með þær námsbrautir sem nemendur eru í. Okkar vilji er að geta þjónað sem flestum nemendum en telji menn sig ekki hafa efni á að kosta opinn háskóla eins og hér hefur verið þá getum við ekki haldið áfram að sinna öllu með sífellt minni fjármunum heldur verðum við að fækka verkefnum. Það gæti þýtt að við legð- um niður kennslu á einhverjum námsleiöum sem við erum komnir með. Eins gæti náðst meiri hagræðing ef við fengjum rétt til að stýra á einhvern hátt fjölda nemenda sem eru í greinum en það er ákaflega viðkvæmt mál,“ segir Sveinbjörn. Hann bendir á að nú þegar sé fjöldi nemenda takmarkaður sem heldur áfram eftir jól í fögum eins og læknisfræði, tannlækningum og sjúkraþjálfun. Þá segir hann að nú sé komin heimild til að takmarka nám í hjúkrunarfræðum vegna takmarkaðrar aðstöðu til starfsþjálfunar á sjúkrahúsum. í öðrum greinum segir hann að ströng próf hafi verið látin ráða til að takmarka og nefnir fög eins og lögfræði og viðskiptafræði í því sambandi. „Við gætum þurft að fara að tak- marka fjöldann af fjárhagsaðstæðum," segir Sveinbjörn. Háskólinn í hættu? ErHáskóli íslands í hættu? „Gæði starfsins eru það sem er í hættu þeg- ar fjármunir Háskólans eru skornir niður. Það er okkar skylda að haga málum þannig að við varðveitum gæðin en það getur orðið á kostnað framboðs á námsleiðum og jafnframt yrði að takmarka fjölda nemenda. Við lendum í erfiðleikum með að halda gæðum uppi ef fjöldinn sem kemur í eitthvert nám vex mik- ið og við getum ekki á sama tíma aukið við kennaraliðið. Þá leiðir það til þess að náms- hóparnir verða mjög stórir og það kemur nið- ur á nemendum. Þannig gæti námið spillst vegna offjölgunar, því ef viö tökum inn of marga nemendur kennum við engum vel,“ segir Sveinbjörn. „Það setur samt ekki Háskólann í hættu þó að hann þurfi að loka einhverri námsleið. Sumt nám hafa menn þurft að sækja til ann- arra landa," bætir Sveinbjörn við. Jafnframt þessu finnst honum að það þurfi að huga að fleiri hliðum málsins. „Það skiptir miklu máli að nýta okkar gjaldeyri vel til atvinnusköpun- ar í landinu. Hver námsmaður sem fer út til að læra tekur með sér gjaldeyri til þess sem annars hefði gengið til atvinnu hér á Iandi," segir Sveinbjörn og vill líkja þessu við prent- un bóka og innkaupaferðir íslendinga á haustin. Hann segist samt ekki vera að tala gegn því að fólk mennti sig erlendis. „Það hefur verið eitt aðalsmerki á skólagengnu fólki hér að það hefur fengið menntun sína mjög víða í heiminum og flytur með sér þekkingu. Vand- inn er að finna þarna rétt meðallag á hlutun- um,“ segir Sveinbjöm. Hann vill gjarnan að framhaldsnám verði í samvinnu við erlenda skóla. „Það eru núna að koma styrkjakerfi, sérstaklega á Norðurlöndum og Evrópu, þar sem nemendur geta farið og verið hluta af sínu námi við annan skóla. Þeir fá svo þetta nám viðurkennt þegar þeir koma heirn," seg- ir Sveinbjörn. Offramboð á menntamönnum? / mörgum greinum er jafhvel offramboð á háskólamenntuðu fólki eins og viðskipta- fræðingum og verkfræðingum. Er það svo alvarlegt þótt háskólamönnum fækki eitt- hvað? „Við höfum verið með mjög fábreytta at- vinnuvegi. Þeir hafa hingað til ekki þurft svo mikið á háskólamenntuðum mönnum að halda. Þó er það svo að einmitt viðskiptafræð- ingar og verkfræðingar em orðnir fjölmennir hér og þeir finnast nú orðið mjög víða. Það em orðnir háskólamenn sem stjórna flestum fyrirtækjum landsins svo að háskólamenntun nýtist orðið víða í þjóðfélaginu en kannski ekki eins víða og í mörgum öðmm löndum sem við berum okkur saman við,“ segir Sveinbjörn. „Við emm líka að tala um að þessir hefð- bundnu atvinnuvegir séu kannski komnir að endimörkum þess að þeir geti framfleytt landsmönnum. Þess vegna þurfum við að finna eitthvert nýtt atvinnulíf og skapa ný at- vinnutækifæri. Reynsla annarra þjóða er að þar skiptir menntunin miklu máli. Þar sem atvinnuleysi hefur ríkt undanfarin ár em það ekki háskólamenn sem em atvinnulausir heldur þeir sem hafa minnstu menntunina. Sérstaklega er þetta áberandi þar sem þróun tækniviðhorfa er ör þá reynist það erfitt þeim sem hafa lítið nám að baki að laga sig að nýju tæknilegu viðhorfunum. Tímabundið merki hér um atvinnuleysi er ekki alvarlegt nema það fari svo að kreppan verði langvarandi hér samtímis uppgangi hjá öðmm þjóðum. Þá er hætta á að við fömm að missa fólk,“ segir Sveinbjörn. í þessu sambandi nefnir hann Noreg og segir að þar sé hlutfallslega svipað- ur fjöldi fólks sem sæki í háskólanám og hér á landi. „í flestum Evrópulöndunum er verið að hvetja fólk til meira náms. Ef við eigum há- skólafólk umfram eftirspurn þá sér maður strax hvaða hættu það býður heim," segir Sveinbjöm. „Vandinn er að finna einhver ný atvinnutækifæri fyrir þetta fólk," bætir hann við.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.