Tíminn - 12.09.1992, Síða 14

Tíminn - 12.09.1992, Síða 14
14 Tíminn Laugardagur 12. september 1992 I l MINNING Jón A. Jóhannsson fyrrv. skattstjóri á Isafirði Fæddur 16. ágúst 1906 Dáinn 7. september 1992 Fyrir kosningamar 1963 ók ég föður mínum og öðmm frambjóðendum Framsóknarflokksins á milli funda í Vestfjarðakjördæmi, meðai annars til ísaijarðar. Þar kynntist ég Jóni Á. Jó- hannssyni í fyrsta sinn. Mér varð strax ljóst að Jón Á. Jóhannsson bar höfuð og herðar yfir flesta aðra menn, bæði lík- amlega og andlega. Þetta vor vom úrkomur afar miklar og mjög mikið um skriður og grjóthmn í Óshlíð. Jón taldi því óráðlegt að aka Ós- hliðina og lagði til að farið yrði með báti. Það þykir Bolvíkingum hins vegar ekki þolanlegt Þeir vilja helst aldrei viðurkenna aö Óshlfðin sé hættuleg. Því vildi enginn frambjóðandi verða til þess að aka ekki Óshlíðina ef aðrir gerðu það. Jón Á. Jóhannsson tók þá af skarið. Hann fékk bát og nánast skipaði frambjóðendum allra flokka að sigla til Bolungarvíkur á framboðsfundinn. Síðar kynntist ég að sjáifsögöu Jóni Á. Jóhannssyni mjög vel. Á meðan honum entist heilsa, var hann einn heisti for- ystumaður framsóknarmanna á ísa- firði. En hann var meira en það. Hann beið aldrei eftir öðmm að vinna verkin, ef honum þótti þau dragast, heldur vann þau sjálfur. Jón var um árabil út- gefandi og ritstjóri blaös framsóknar- manna í Vestfjarðakjördæmi, ísfirðings. Hann skrifaði margar greinar, undirbjó þær allar undir prentun, safnaði auglýs- ingum og stóð yfir blaðinu á meðan það var prentað. Hann sá um útsendingu þess og innheimtu á blaðgjöldum. Jón tók sáralitlar greiðslur íyrir störf sín við biaðið, varla fyrir kostnaði, enda skilaði hann ætíð töluverðum hagnaði. ísfirð- ingur var í höndum Jóns eitt vandað- asta kjördæmisblað sem ég hef kynnst. Jón Á. Jóhannsson var sannur félags- hyggjumaður. Hann ólst upp við það og trúði því alla sína ævi að íslendingar ættu að standa sameinaðir um stóm og mikilvægu verkin, þannig myndi lítilli þjóð famast best. JónÁ. Jóhannsson gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum, bæði fyrir sitt byggð- arlag og fyrir Framsóknarflokkinn. Hann sat í bæjarstjóm í 14 ár. Jón var lengi formaður Framsóknarfélags ís- firðinga og formaður Sambands fram- sóknaríélaga í Vestfjarðakjördæmi í 13 ár. Framsóknarflokkurinn þakkar Jóni hans miklu störf. Jón Á. Jóhannsson var mér mikil stoð í störfum mínum sem þingmaður Vest- firðinga. Af honum lærði ég mikið. Kann ég Jóni miklar þakkir fyrir. Jón Á. Jóhannsson missti sína ágætu eiginkonu, Oktavíu Margréti Gísladótt- ur, fyrir nokkrum árum. Dætrum hans og öðrum afkomendum sendi ég ein- iægar samúðarkveðjur. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins í dag er til moldar borinn Jón Á. Jó- hannsson, fyrrverandi skattstjóri á ísa- firði, en hann andaðist þann 7. septem- ber s.l. á áttugasta og sjöunda aldursári. Jón var fæddur á Auðkúlu í Amarfirði í Vestur-ísafjarðarsýslu þann 16. ágúst 1906. Foreldrar hans voru hjónin Jó- hann Jónsson, skipstjóri og bóndi á Lónseyri og síðar Auðkúlu, og Bjarney Jónína Friðriksdóttir. Jóhann dó tiltölu- lega ungur frá níu bömum, svo það kom í hlut Jóns, sem elsta sonarins, að hjálpa til að sjá heimilinu farborða, sem hann og gerði af miklum dugnaði og samviskusemi eins og allt annað, sem hann átti eftir að taka að sér á lífsleið- inni. Af þessum ástæðum varð skólaganga Jóns ekki löng, aðeins veturinn 1928 til 1929 í framhaldsskóla síra Böðvars Bjamasonar að Hrafnseyri. En Jón var bókhneigður og las mikið og aflaði sér þannig góðrar undirstöðumenntunar, sem dugði honum vel í gegnum lífið. Hann skilaði öllum þeim mörgu og vandasömu störfum, sem honum vom falin í gegnum tíðina, af miklum ágæt- um. Þar naut hann sinnar góðu greind- ar og aíburða samviskusemi. Jón Á. Jóhannsson átti heima að Auð- kúlu til ársins 1935 og stundaði þar sjó- mennsku og landbúnaðarstörf og kynntist þannig af eigin raun tveim höf- uðatvinnuvegum þióðarinnar. En það ár fluttist hann til ísafjarðar og gerðist lögregluþjónn til ársins 1953 og var yf- irlögregluþjónn frá 1940. Frá 1939 til 1953 gegndi hann einnig störfum heil- brigðisfulltrúa staðarins. Árin 1953 til 1956 gegndi Jón starfi umboðsmanns Skipaútgerðar ríkisins á ísafirði þar til hann tók við starfi skattstjóra á Isafirði þann 1. júlí 1956 og gegndi því til 1. október 1962, þegar hann tók viö starfi skattstjóra í Vestfjarðaumdæmi, sem hann gegndi til ársloka 1972. Jón Á. Jóhannsson var mikill félags- málamaður og eyddi þannig miklu af sínum frítfma. Hann var einn helsti hvatamaður að stofnun Félags opin- berra starfsmanna á ísafirði og formaö- ur þess og fulltrúi á þingum BSRB frá stofnun 1945 og til 1954. Jón fylgdi ávallt Framsóknarflokknum að málum og studdi mjög að framgangi hans bæði á ísafirði og síðan í Vest- fjarðakjördæmi. Hann var einn af helstu hvatamönnum að stofnun blaðs- ins ísfirðings, sem var málgagn Fram- sóknarflokksins á ísafirði og síðan í Vestfjarðakjördæmi. Á árunum 1954 til 1960 var Jón formaður Framsóknarfé- lags ísfirðinga og Sambands Framsókn- arfélaga í Vestfjarðakjördæmi frá 1960 til 1967. Jón átti sæti sem varabæjar- fulltrúi í bæjarstjóm ísafjarðar fýrir Framsóknarflokkinn á árunum 1962 til 1971 og ritstjóri blaðsins ísfirðingur frá 1955 til 1980. Þann 31. ágúst 1940 kvæntist Jón Okt- avíu Margréti Gísladóttur hjúkmnar- konu frá Minna-Ármóti í Ámessýslu. Þau eignuðust þrjár myndarlegar dæt- ur. Heimili þeirra Oktavíu og Jóns var ávallt rómað fýrir myndarskap og gest- risni. Þar var alltaf gott að koma og spjalla við húsráðenduma um alla heima og geima. Húsfreyjan lagði þá ekkert síður til málanna en aðrir og það var oft á tíðum ekkert verra að þiggja hennar ráð en húsbóndans, sem þó var einn þessara manna sem ávallt mátti treysta að segöu undirhyggjulaust skoðun sína á hverju máli. Nú þegar ég kveð Jón Á. Jóhannsson, vin minn, hinstu kveðju, þá minnist ég einnig hans ágætu konu, sem er látin fyrir nokkrum árum. Minningin um þau mun lifa með öllum þeim, sem áttu því láni að fagna að kynnast þeim. Dætrunum og öllum aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur okk- ar hjónanna. Guttormur Sigurbjömsson Haustið kom snemma á Vestfjörðum í ár. í þann mun er haustaði, andaðist Jón Ásbjörn Jóhannsson, fyrrverandi skatt- stjóri á ísafirði, eftir langa og gifturíka ævi. Jón kom víða við á langri starfsævi og markaöi spor í sögu ísafjarðar og reyndar kjördæmisins alls. Lengst af gegndi Jón opinberum störfum og starfsvettvangur hans var á ísafirði. Jón var fyrir allnokkru hættur störfum og sestur í helgan stein. Meö honum er liorfinn enn einn fulltrúi þeirrar kyn- slóðar, sem ekki átti kost langskóla- göngu, en stóö sína vakt engu að síður meö miklum sóma. Fólkið, sem fæddist skömmu eftir síðustu aldamót og hefur lifað lungann úr öldinni, varð vitni að stórkostlegri breytingum en nokkurn tíma hafa orðið fyrr í íslandssögunni. Reyndar er vafasamt að aðrar eins verði á jafn skömmum tíma. Þessi rcynsla mótaði þá kynslóð, sem óöum er að hverfa. Jón var góður fulltrúi hennar. Það verður Ijóst í hvert skipti, sem hún missir liðsmann, að alltof lítið hefur verið gert af því að færa í letur reynslu þessa fólks, svo margvísleg og misjöfn sem hún var. Okkur yngra fólki er hollt að líta til þessa fólks eftir fyrirmynd, ekki síst þegar erfiðleikar steðja að þjóðfélaginu eins og nú er raunin. Jón Ásbjöm Jóhannsson var fæddur aö Auökúlu í Arnarfirði í Vestur- ísafjarð- arsýslu 16. ágúst 1906, elstur níu systk- ina. Foreldrar hans voru Jóhann Jóns- son, f. 14. júlí 1877, dáinn 8. júlí 1921, og kona hans Bjarney Friðriksdóttir, f. 8. júní 1876, dáin 16. febrúar 1952. Systkini Jóns voru Jensína Sigurveig, f. 5.8.1907, Bjamey Margrét, f. 21.9.1909, d. 9.10.1962, Bjarni Jóhann, f. 10.10.1910, d. 28.6.1970, Guðmunda Kristjana Þorbjörg, f. 28.9.1912, d. 31.7.1931, Friðrik Jón Ásgeir, f. 28.11.1913, Guðný, f. 15.6.1916, Jónfna Guðmunda, f. 27.11.1917, og Sigurleif- ur Friðrik Guðmundur, f. 26.5.1920, d. 2.4.1986. Jóhann faðir Jóns hafði lokið meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík og var stýrimaður á ýmsum þilfarsskipum frá Patreksfirði og Bfldudal. Hann var mikill aflamaður og álitinn ágætur sjómaður. Auk þess stundaði hann búskap á Auðkúlu frá 1912 til dánardægurs og reri á haust- vertíðum við Amarfjörð á eigin báti. Jón ólst því upp við störf til sjós og lands. Faðir hans lést þegar Jón var á 15. ári og yngsta systkinið aðeins rúmlega árs- gamalt. Má nærri geta hversu erfitt það hlýtur að hafa verið móður þeirra að standa uppi ein með þennan stóra bamahóp. Skyndilega varð Jón lyrir- vinna heimilisins ásamt móður sinni. Engu að síður nam hann í framhalds- skóla séra Böðvars Bjamasonar að Hrafnseyri 1928 og 1929. Hann stund- aði sveitastörf á Auðkúlu og jafnframt sjómennsku til ársins 1935. Það ár flutt- ist hann til ísafjarðar og gerðist þar lög- regluþjónn 17. mars sama ár og varð yf- irlögregluþjónn frá 1940 og gegndi því starfi til 1953. Þá gerðist hann af- greiðslumaður Skipaútgerðar ríkisins til ársins 1956. Enn var komið að kaflaskiptum. Hinn 1. júlí 1956 varð Jón skattstjóri á ísa- firði, en þá náði umdæmið einungis til kaupstaðarins. Árið 1962 urðu miklar breytingar á skattkerfi íslendinga. Hinn 1. október það ár tók sú nýskipan gildi, að íslandi var skipt í níu skattumdæmi, sem fylgdu kjördæmum, með því frá- viki að Vestmannaeyjar uröu sérstakt umdæmi. Þar með varð Jón einn þeirra manna, sem hrintu þessari merku breytingu úr vör. Enn heldur þessi um- dæmaskipan sér og hefur gefist vel. Þessu starfi gegndi Jón til ársloka 1972. Er Jón lét af starfi skattstjóra hafði hann sinnt því í sextán og hálft ár. Liðin eru tæplega tuttugu ár og nú situr þriðji skattstjóri frá Jóni talið. Auk sinna mikilvægu aðalstarfa voru Jóni falin mörg trúnaöarstörf. Hann var heilbrigðisfulltrúi á fsafirði 1939-1953 og slökkviliðsstjóri. Jón var einn hvata- manna að stofnun Félags opinberra starfsmanna á ísafirði, var formaður frá stofnun 1945 til 1954 og oft fulltrúi á þingum BSRB. Einnig sinnti hann ýms- um störfum samhliða árin 1935-1953, svo sem umboðsmennsku fyrir Bókaút- gáfu Menningarsjóðs, verslunarstörfum og fleira. í stjómmálum skipaði Jón sér í raðir framsóknarmanna og var mikill fram- sóknarmaöur til hinstu stundar. Hann var einn hvatamanna að stofnun blaðs þeirra á Vestfjörðum, ísfirðings, 1949 og varð síðar ritstjóri þess í aldarfjórð- ung, frá 1955 til 1980. Einnig var hann formaður Framsóknarfélags ísfirðinga 1954 til 1960 og formaður Sambands Framsóknarfélaga í Vestfjarðakjördæmi frá stofnun 1960 til 1967. Þá var hann varabæjarfulltrúi og varabæjarráðs- maður og loks bæjarfulltrúi og 1. vara- forseti bæjarstjórnar 1954 til 1971, er hann varð forseti bæjarstjómar til haustkosninga sama ár, eftir samein- ingu Hnífsdals og ísafjarðar. í haust- kosningunum til bæjarstjómar hins sameinaða sveitarfélags skipaði hann heiðurssæti á framboðslista Framsókn- arflokksins. Einnig starfaði hann í Oddfellowregl- unni frá 1952. í einkalífi var Jón hamingjumaður. Hann kvæntist hinn 31. ágúst 1940 Oktavíu Margréti Gísladóttur hjúkmn- arkonu, f. 10. október 1904. Foreldrar hennar vom Gísli Þórðarson bóndi að Minna-Ármóti í Hraungerðishreppi, Ár- nessýslu, og kona hans Oddný Sigurlín Oddsdóttir. Þau eignuðust þrjár dætur. Elst er Katrín Bjamey, f. 23. aprfl 1941, gift Grétari Þórðarsyni á ísafirði og eiga þau tvo syni. Jóhanna, f. 20. aprfl 1944, gift Guðjóni Jónssyni og eiga þau þrjú börn. Yngst er Margrét, f. 4. júlí 1945, gift Ed- ward Hoblyn á ísafirði og eiga þau tvö böm. Barnabarnabörnin em orðin tvö. Oktavía lést hinn 31. júlí 1987 og sakn- aði Jón hennar mjög. Undirritaður kynntist Jóni nokkm eft- ir að starfsævi hans var á enda, þá flutt- ur til ísafjarðar og orðinn arftaki hans í skattstjóraembætti, að vísu annar mað- ur frá honum. Þau hjón vom þá flutt á Hlíf, íbúðir aldraðra á ísafirði, sem teknar vom í notkun 1982. Þeir fluttu það sama ár á Hlíf með eiginkonum sín- um Jón og Skúli Þórð'arson, afi þess er hér ritar. Oft átti undirritaður leið í Hlíf og bar þá fundum okkar Jóns gjaman saman, enda ekki óalgengt að hitta íbúa Hlífar að spjalli frammi á göngum. Smám saman tókst með okkur ágætur kunningsskapur, þó nærri hálf öld skildi okkur að í aldri og hyldýpi reynslu Jóns. Oft bar skattamál á góma, því þrátt fyrir miklar kerfisbreytingar er kjaminn ávallt hinn sami, að afla ríkis- sjóði og sveitarsjóðum tekna eftir gild- andi forskrift á hverjum tíma, að ógleymdum þjónustuþætti starfsins. Við upptöku staðgreiðslu fyrir tæpum fimm árum hafði Jón reyndar á orði að hann ætlaði ekki að setja sig sérstaklega inn í þær breytingar. En umræðuefnin skorti ekki, því oft bar stjómmál á góma, þótt ekki fýlgdum við sama stjómmálaflokki; vildi Jón meina að undirritaður væri arftaki hans á fleiri sviðum en einu með setu í bæjarstjóm. Fyrst og fremst bar Jón mikla um- hyggju fyrir velferð ísafjarðar, heila og óskipta ekki síður en þeir sem voru enn á vettvangi. En þessu til viðbótar voru þeir miklir mátar, Jón og Skúli, og sátu oft lengi saman frammi á gangi eftir að báðir voru komnir á fyrstu hæð Hlífar, orðnir ekklar. Var oft hin mesta skemmtun að hlýða á samræður þeirra. Þótt ekki væru þeir alltaf sammála, skiptu sam- vistimar mestu. Eftir að Jón lagðist á Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði fýrir skömmu, fækkaði ferðum Skúla fram á gang. Allt er í heiminum hverfult og árið 1992 er merkilegt fyrir margra hluta sakir, ef skoðað er í samhengi við ævi Jóns Á. Jóhannssonar. Skipaútgerð rík- isins var lögð aí og eftir rúman hálfan mánuð verður núverandi skattkerfi 30 ára. Hvort tveggja naut starfskrafta hans. Að leiðarlokum er sannur mannvinur kvaddur og sú hugsun verður áleitin, að mannleg samskipti verði ekki ofmetin og sjaldnast nægilega ræktuð. Ekki síð- ur hvarflar hugurinn að því að þegar gifturíkri starfsævi er lokið, virðist sem ekki sé áhugi fýrir því að nýta þá miklu reynslu, sem eftirlaunaþegar hafa aflað sér. Stundum er eins og þeir gleymist að loknum starfsdegi. Undirritaður þakkar fýrir góð kynni og veit að Skúli Þórðarson saknar vinar í stað. Við hjón- in færum dætrum Jóns og öðrum að- standendum samúðarkveðjur og biðj- um guð að blessa minningu hans. Ólafur Helgi Kjartansson í dag er gerð vestur á ísafirði útför Jóns Á. Jóhannssonar. Þar er kvaddur mætur maður, sem lok- ið hafði merku starfi. Hann var fæddur á Lónseyri í Arnar- firði 16. ágúst 1906, elstur 9 systkina. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Jónsson og Bjamey Friðriksdóttir. Kirkjubókin frá Hrafnseyri segir frá þeim lögum samkvæmt. Þegar frum- burður þeirra fæðist, er Jóhann hús- maður á Lónseyri. Það þýðir að hann var sinn eigin húsbóndi, en hafði engar landnytjar. Þegar þriðja bamið fæðist 1909, er Jóhann skipstjóri á Lónseyri. En fimmta bamið fæðist 1912 og þá er Jóhann orðinn bóndi á Auðkúlu. Þá var fleirbýli á Auðkúlu, en þau Jóhann munu hafa haft jarðnæði líkt og betri bændur í Auðkúluhreppi. En skipstjóm mun Jóhann hafa haift á skútum eitt- hvað lengur. Efnahagur bjargálna manna í Auðkúluhreppi á 19. öld byggðist meira á sjávarafla en landbún- aði. Timburhúsin, sem byggð voru á Hrafhabjörgum, Stapadal, Álftamýri og víðar, voru vitni um það. Jóhann á Auðkúlu dó þegar yngri bömin voru enn í bemsku. Bjamey hélt áfram búskap með hjálp bama sinna næstu árin. En árið 1935 yfirgaf fjöl- skyldan Auðkúlu. Jón fór þá til lsafjarð- ar þar sem hann gerðist lögregluþjónn. Hann varð yfirlögregluþjónn 1940 og gegndi því starfi til 1953. Átti hann þá mikið samstarf við bæjarfógetana, Torfa Hjartarson og Jóhann Gunnar Ólafsson, sem hann mat mikils, enda vom þeir reglusamir embættismenn auk annarra mannkosta. Árið 1953 gerðist Jón Jóhannsson af- greiðslumaður Ríkisskipa á ísafirði. Því starfi gegndi hann í 3 ár, en 1956 gerð- ist hann skattstjóri á ísafirði. Með breyttri skipan skattamála 1962 varð hann skattstjóri Vestfjarðaumdæmis og gegndi því embætti til 1972. Skólaganga Jóns Jóhannssonar eftir bamapróf var sú, að hann var einn vet- ur í námi hjá sr. Böðvari Bjamasyni á Hrafnseyri, en hann hélt lengi skóla á heimili sínu og var mikill kennari. Jón Á. Jóhannsson var frændmargur í Amarfirði. Bjamey móðir hans var dótt- ir Friðriks, sem var sonur sr. Jóns Ás- geirssonar á Álftamýri og Hrafnseyri, en hann var sonur séra Ásgeirs í Holti, móðurbróður Jóns forseta. Um sr. Jón Ásgeirsson segir Páll Eggert Ólason í ís- lenskum æviskrám: „Hann var talinn vel gefinn og vel að sér, kennimaður hinn andríkasti, valmenni hið mesta svo að allir unnu honum hugástum, af- burðamaður að afli og allra manna fim- astur." Gils Guðmundsson segir í Skútuöld- inni um Ásgeir á Álftamýri: „Var og ætt hans slík, að ekki þurfti langt að leita of- urmenna, þvf að hann var sonur Jóns prests Ásgeirssonar, einhverrar mestu höfuðkempu Vesturlands á seinni öld- um. Því er til þessa vitnað hér, að niðjar þeirra Holtspresta og frændur Jóns for- seta hafa margir með ýmsu móti svarið sig í ættina. Þeir frændur settu mjög svip á Amarfjörð um aldamótin og má þar nefna syni Ásgeirs, Gísla á Álftamýri og Matthías á Bauluhúsum, en Jóna systir þeirra var kona Jónasar í Reykjar- firði, og móðir dr. Matthíasar og systk- ina hans og væri langt að telja atgjörvis- menn með því fólki. Jón Á. Jóhannsson hafði hvers manns virðingu. Hann var því vel metinn hvar- vetna og ákjósanlegur liðsmaður. Hann naut slíks trúnaðar í samstarfi opin- berra starfsmanna á ísafirði. Hann var formaður Framsóknarfélags ísfirðinga 1954-60. Og þegar kjördæmabreytingin var gerð 1959 og stofnað Kjördæmiss- amband framsóknarmanna, þótti sjálf- sagt að Jón yrði formaður þess fýrstu árin. Hann baðst undan formennskunni eftir að hafa gegnt henni í 7 ár, en áfram hélt hann í flokksstarfinu eins og áður. Jón Á. Jóhannsson giftist 1940. Kona hans var Oktavía Margrét Gísladóttir hjúkrunarkona frá Minna- Ármóti í Ár- nessýslu. Hún var atgjörviskona. Mér finnst að hennar megi minnast með þessum Ijóðlínum Stephans G.: Jví drottningar hjarta er viðkvcemt og varmt, þó varimar fljóti ekki í gælum. “ Oktavía andaðist 1987. Þau Jón eiga þrjár dætur: Katrínu og Margrétu á ísa- firði og Jóhönnu í Reykjavík. í full 40 ár var heimili þeirra Jóns og Oktavíu höfuðvígi Framsóknarflokksins á ísafirði. Þar var ómetanlegt athvarf í félagsmálunum. Um það er ég vitnis- bær og svo er vissulega um fleiri. Hér vil ég enn vitna í orö Björgvins Sighvats- sonar um hver styrkur það væri í bæjar- málum að eiga í flokki sínum mann eins og Jón Á. Jóhannsson, „sem öllum verður að þykja vænt um“. „Ellin hallar öllum leik." Henni verð- um við öll að mæta, enda þótt misjafnt sé á hvem hátt við missum atgjörvi eða hvemig á okkur sannast að „allt er að láni“, eins og gamla fólkið sagði. En seint er að meta og erfitt að þakka það, sem góðir samstarfsmenn hafa eftirlát- ið. Svo er um samfýlgd þeirra Jóns og Oktavíu. Eftir standa ljúfar og hjartkær- ar minningar, ómetanlegar. Það var gæfa að mega kynnast þeim. H.Kr.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.