Tíminn - 30.09.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 30.09.1992, Qupperneq 1
Miðvikudagur 30. september 1992 182.tbl.76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110,- Svartur dagur hjá iðnverkafólki á Akureyri: Þrjátíu manns sagt upp hjá Foldu Sjóm Foldu hf. á Akureyri hefur ákveöið að segja upp þrjátíu manns frá og með næstu mánaðamótum. Uppsagnarfrestur starfsmannanna er allt frá hálfum mánuði og upp í sex mánuði. Uppsagnimar em ekki einskorðaðar við fata- og vefdeild heldur verður einnig fækkað fólki á lager og á skrifstofu. Að sögn Baldvins Valdimarssonar, framkvæmdastjóra Foldu hf., er ástæðan fyrir uppsögnunum fyrst og fremst sú að sala á framleiðslu fyrirtæksins á evrópskum mörkuð- um hefur ekki gengið sem skyldi miðað við fyrri áætlanir. Hann segir að þetta sé vissulega áfall fyrir fyrir- tækið í ljósi markmiða þess að reyna að veita sem flestum atvinnu. En hins vegar hafi þetta orðið niður- staðan eftir að búið var að ígmnda alla aðra möguleika í stöðunni. Ármann Helgason, varaformaður Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur- eyri, segir að fólk þar á bæ sé mjög slegið yfir þessum tíðindum. Hann segir að ef allar þessar uppsagnir komi til framkvæmda sé það mjög alvarlegt mál fyrir félagið, því nú þegar séu um 63 á atvinnuleysisskrá hjá Iðju. Virkir félagsmenn í Iðju er eitthvað um 560 manns en þegar mest var vom félagsmenn um 1100 árið 1986. Eins og kunnugt er þá var Folda hf. stofnað á rústum Álafoss. Stærstu hluthafar fyrirtæksins em Akureyr- arbær, Byggðasjóður, Bændasam- tökin, KEA, ÚA, Lífeyrissjóður Iðju og starfsmenn Foldu hf. -grfi (Sjá einnig bls. 2) Mikill reykur í Langholtsskóla Mikinn reyk lagði um Langholts- skóla í Reykjavík í gærmorgun sem stafaði frá flúorrafljósi sem brennt hafði plastskerm. Greiðlega gekk að rýma húsið og að sögn varstjóra hjá Slökkviliði Reykjavíkur var enginn í hættu. Svo svartur var reykurinna að senda þurfti reykkafara inn í hús- ið. lálið er að skemmdir séu vem- legar því líklega hefur viðkvæmur búnaður eins og tölvur og annað slíkt eyðilagst. Þá má gera ráð fyr- ir því að það þurfi að mála skóla- álmuna upp á nýtt. Stjórnvöld ákváðu að taka ekki íslensku tilboði um viðgerðir á strandferðaskipinu Heklu: Samið við Pólverja um viðgerð á Heklu Samgönguráðherra hefur ákveðið að taka tilboði frá pólskri skipasmíðastöð um viðgerðir á strandferðaskipinu Heklu. íslensk skipasmíðastöð gerði einnig tilboð í viðgerðina, sem var samkvæmt heimildum Tímans um helm- ingi hærra en pólska tilboðið. Öm Friðriksson, formaður Félags jámiðnaðarmanna, gagnrýnir þessa ákvörðun stjómvalda harðlega og segir að með henni séu þau að auka enn atvinnuleysi meðal jámiðnaðar- manna, en það er ærið fyrir. Hekla var í eigu Ríkisskipa. Samskip tók skipið á leigu þegar Ríkisskip vom lögð niður. Samskip ákváðu hins veg- ar að nýta sér ekki rétt til að kaupa skipið. Stjómvöld ætla sér að gera lagfæringar á Heklu og selja skipið síðan. Komið hafa í ljós talsvert miklar skemmdir á botni Heklu. Plötur í botni skipsins em orðnar mjög þunn- ar og þarf að skipta um þær. Ennfrem- ur þarf að skipta um skrúfu í skipinu. Tilboð bárnst í viðgerðir á skipinu frá Póllandi og íslandi. Samkvæmt heim- ildum Tímans hljóðaði pólska tilboðið upp á 6 milljónir króna, en það ís- lenska upp á 12 milljónir. Öm Friðriksson sagði að það væri viðurkennd staðreynd að pólskar skipasmíðastöðvar nytu ríkisstyrkja. íslenskir jámiðnaðarmenn hefðu krafist þess að íslensk stjómvöld beittu jöfnunargjöldum til að jafna samkeppnisstöðu íslenskra skipa- smíðastöðva. Á það hafi ekki verið fall- ist. Öm sagði að jafnvel þó að íslenska tilboðið hafi verið eitthvað hærra þá sé ekki víst að það hafi verið hagur stjómvalda að hafna því. Með því að taka íslenska tilboðinu hefðu skatt- tekjur ríkisins hækkað, bæði af tekju- skatti og virðisaukaskatti. Ennfremur hefðu íslensk stjómvöld þurít að borga minna í atvinnuleysisbætur. „Þetta gerist á sama tíma og atvinnu- leysi er meðal málmiðnaðarmanna. Fjöldi málmiðnaðarmanna er á upp- sagnarfresti. Það var verið að segja upp starfsmönnum hjá skipasmíða- stöðinni í Njarðvík,“ sagði Öm. Hann sagði þetta skammsýna ákvörðun. íslensk stjómvöld geti ekki leyft sér að horfa aðgerðalaus á meðan þessi iðngrein er lögð í rúst. Ekki bæti úr skák þegar þau séu farin að stuðla að því að svo fari með ákvörðun um verkkaup sem snýr beint að þeim. Jafnréttisráð gerir athugasemd við að kynjunum er mismunað á hjálpartækjalista Tryggingastofnunar: Körlum sinnt - konum ekki Óvenjulegt ágreiningsmál hefur veriö í gangi að undanfómu milli austfirskrar móður og Jafnréttisráðs annars vegar og Tryggingastofnunar og Tryggingarráðs hins vegar, þar sem deilt var um hvort hjálpartækjalisti Tryggingastofnunar feli í sér óbeina kynferðislega mismunun. Jafnréttisráði barst fyrir nokkru erindi frá austfirskri móður þar sem hún taldi það mismunun gagnvart sér og öðmm konum í heimahéraði sínu á Austurlandi að engin mjaltavél var til staðar í heilsugæslustöðinni og að ekki fékkst styrkur til kaupa á slíkri vél hjá Tryggingastofnun á þeirri for- sendu að mjaltavélar væru ekki á hjálpartækjalista. Það var hins vegar skoðun konunnar og Jafn- réttisráðs að auk þess að lúta að réttindum konunnar snerist málið ekki síður um heill ungabamsins, sem er með klofinn góm og getur þess vegna ekki sogið brjóst. Á fundi Jafnréttisráðs á dögun- um, þar sem erindi þetta var kynnt, var það upplýst af einum ráðsmanni að á umræddum hjálp- artækjalista Tryggingastofnunar mátti finna tæki sem eingöngu voru ætluð karlmönnum á sama tíma og mjaltavélar, sem eingöngu konur geta notað, vom þar ekki. Það tæki sem ætlað er karlmönn- um eingöngu og er á listanum er svokölluð reðurrisdæla. Þetta er eins konar pumpa sem dælir lofti í þar til gerð hylki sem komið hefur verið fyrir í getnaðarlimi karl- manns, sem annars væri getulaus vegna þess að honum rís ekki hold. Á grundvelli þessara upplýs- inga ritaði Birna Hreiðarsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs, Tryggingaráði bréf þar sem bent var á að jafnréttisráð liti svo á að óbein mismunun á grundvelli kynferðis kæmi fram í vali á hjálp- artækjum á lista TR og það lagt til að mjaltarvélar væru settar inn á þennan lista. „Það var litið á þetta val á hjálpartækjalistann sem óbeina mismunun í Jafnréttis- ráði,“ sagði Birna Hreiðarsdóttir í samtali við Tímann í gær. Hún sagði að Tryggingaráð hafi svarað erindi Jafnréttisráðs þannig að Tryggingastofnun hafi verið tilbú- in til að borga 60% af kostnaðar- verði mjaltavélarinnar gegn því að vélinni yrði skilað aftur þegar búið væri að nota hana. „En umbjóð- andi okkar var að sjálfsögðu ekki alls kostar ánægð með þessa nið- urstöðu því svona vél kostar 45 þúsund krónur og hún hefði því þurft að borga 20 þúsund kr. fyrir nokkrurra mánaða notkun á sama tíma og aðrar konur á landinu fá þetta á sínum heilsugæslustöðv- um endurgjaldslaust," sagði Birna. Það kom síðan fram í gær og var kynnt á fundi Jafnréttis- ráðs, að nú er Tryggingaráð að vinna í því að fá heilsugæslustöð konunnar til að kaupa af henni mjaltavélina þegar hún er búin að nota hana. - BG Ekið á konu í Kópavogi Fullorðin kona varð fyrir bifreið í Kópavogi í gær og er talið að hún hafi hlotið verulega höfuðáverka. Ekki er Ijóst um tildrög slyssins sem átti sér stað á Nýbýlavegi í Kópavogi. Konan mun hafa verið á leið yfir götu er aðvífandi bíl bar að með fyrrgreindum afleiðingum. -HÞ VI fékk lóöina Á borgarráðsfundi í gær var ákveð- ið að úthluta Verslunarskóla íslands lóðinni að Ofanleiti 2. Þetta hefur verið eftirsótt lóð og m.a. hafa aðilar sem hyggja á rekstur „MacDonalds" hamborgarastaðar haft augastað á henni. Forsvars- menn Verslunarskólans munu lík- lega nýta lóðina undir einhvers kon- ar háskólastarfsemi. -HÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.