Tíminn - 30.09.1992, Síða 9
Tíminn 9
Miðvikudagur 30. september 1992
DAGBÓK
Inga Þórey Jóhannsdóttir sýnir
í Gallerí einn einn
Inga Þórey Jóhannsdóttir hefur opnað
málverkasýningu f Gallerí einn einn við
Skólavörðustíg.
Inga Þórey útskrifaðist úr nýlistadeild
MHI 1988, hélt síðan til framhaldsnáms
við Hochschule fiir Angewandte Kunst í
Vínarborg 1988-1989. Þetta er fjórða
einkasýning Ingu. Málverkin á sýning-
unni eru öll unnin í Glasgow á sfðasta
vetri.
Sýningin stendur til 8. október og er
opin frá kl. 14 til 18 alla daga.
Viö feröumst um heiminn
SERVAS-samtökin eru alþjóðleg sam-
tök fólks, sem vill stuðla að auknum
skilningi milli einstaklinga og þjóða,
styrkja tengsl og vinna gegn hleypidóm-
um og vanþekkingu. SERVAS er borið
uppi af fjölda einstaklinga, sem með opn-
um huga leitast við að hjálpa og miðla
upplýsingum til erlendra gesta er að
garði bera.
SERVAS-meðlimir bjóða aðstoð og fyr-
irgreiðslu, þar á meðal gistingu á eigin
heimilum, ef aðstaða er til þess. Þessi
fyrirgreiðsla er að jafnaði gagnkvæm.
SERVAS-meðlimur liðsinnir með því að
mæta fólkinu, ræða við það og veita því
upplýsingar og þannig auðvelda því að
kynnast menningu þjóðarinnar og um-
hverfmu, sem við hrærumst í. Viðkom-
andi öðlast um leið kynni af menningu
og viðhorfum gestsins. Kynnin og
ánægjan verða gagnkvæm.
SERVAS-meðlimir eru skráðir hjá sam-
tökunum í viðkomandi landi. Það býður
upp á mikla möguleika fyrir ferðafólk til
að kynnast öðrum, vítt um heimsbyggð-
ina, en SERVAS starfar í flestum löndum
heims. SERVAS hefir ráðgefandi stöðu
og viðurkenningu sem alþjóðlegur fé-
lagsskapur hjá Félagsmálaráði Samein-
uðu þjóðanna (UN Economic and Social
Counsel).
Á íslandi eru nú starfandi fjórir meðlim-
ir, tveir á Reykjavíkursvæðinu og tveir
norðanlands. Við viljum vekja athygli á
þessu starfi. Starfið laðar að, veitir
ánægju, skapar kynni, leiðir til vináttu-
tengsla og það virkar gagnkvæmt. Þeir
sem láta í té aðstoð geta notið aðstoðar
fyrri gistivina og annarra meðlima sam-
takanna, vítt um veröldina. Frekari upp-
lýsingar um samtökin veitir Jóhann Jak-
obsson, pósth. 1164, 121 Reykjavík. S.
91-22848/652170.
(Fréttatilkynning)
Félag eldri borgara
Dansnámskeið byrjar næstkomandi
laugardag kl. 14 í Risinu. Kennari: Sig-
valdi.
Kvikmyndin „Fjallahóteliö"
sýndíMÍR
„Fjallahótelið" nefnist kvikmynd, sem
sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
nk. sunnudag 4. október kl. 16. Þessi
mynd var gerð á áttunda áratugnum í
Tallinn, Eistlandi, undir leikstjóm Gríg-
oríj Kromanovs. í myndinni er sagt frá
því, er rannsóknarlögreglumaðurinn
Glebsky fær boð um að halda til fjalla-
hótels eins, sem ber það skrítna nafn
„Dauði fjallgöngumaðurinn". Lögreglu-
maðurinn verður einskis grunsamlegs
var á hótelinu, en finnst þó sitthvað sér-
kennilegt við staðinn. Og þegar snjóflóð
teppir veginn að hótelinu og veldur því
að lögreglumaðurinn kemst ekki burtu,
fara einkennilegir og dularfullir atburðir
að gerast Skýringar með myndinni á
ensku.
Aðgangur að kvikmyndasýningum er
ókeypis og öllum heimiil.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmasambandsins að Digranesvegi 12, Kópavogi er opin mánudaga
og miðvikudaga kf. 17.00-19.00, sími 43222.
K.F.R.
Keflavík —
Suðurnesjamenn
Vetrarstarfið er hafið. Opið hús alla mánudaga kl. 20.30. Mætum öll. Alltaf heitt á
könnunni.
Framsóknarfélögin I Keflavlk.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðuriandi að Eyrarvegi
15, Selfossi, er opin á fimmtudögum kl. 16-18. Slmi 22547. Fax 22852.
KSFS.
Raufarhöfn
Aðalfundur Framsóknarfélags Raufar-
hafnar verður haldinn I Félagsheimilinu
fimmtudaginn 1. október kl. 20.30.
Þingmennimir Guömundur Bjamason
og Jóhannes Geir Sigurgeirsson koma
á fundinn.
Stjómln.
Reykjavík
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna I Reykjavik hefur opnað skrifstofu að Flafnar-
stræti 20, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 13:00-17:00.
Stjóm fulltrúaráósins.
Guðmundur Jóhannes Gelr
Utanríkismálanefnd SUF
Fundur verður haldinn I utanrikismálanefnd SUF mánudaginn 5. október kl. 17 á
skrifstofu Framsóknarflokksins. Öllum áhugamönnum um utanrikismál innan SUF
er frjálst að sitja fundinn með málfrelsi og tillögurétti.
Móöir Söru Ferguson kveöst munu standa meö dóttur sinni hvaö sem á dynur.
Lífið hefur verið Susan Barrantes, móður Söru Ferguson, andstætt að undanförnu.
En hún ber höfuðið hátt og segir:
Alltaf að horfa fram á við
Susan Barrantes hefur fengið að
reyna það að undanförnu að lífið
getur farið ómjúkum höndum um
fólk. í ágúst 1991 missti hún eig-
inmann sinn eftir langa og erfiða
sjúkdómslegu og hún segir að sá
missir hafi skilið eftir tóm í lífi
hennar, sem seint verði fyllt.
Nokkrum mánuðum síðar missti
hún móður sína og mág sinn
skömmu eftir það.
Og eftir öll þessi áföll bættist það
við að Sara dóttir hennar skildi
við mann sinn, Andrew hertoga af
Jórvík, og olli alþjóðlegu hneyksli
þegar upp komst um að hún hafði
ekki hagað sér sem skyldi í félags-
skap bandarísks auðkýfings.
Aðspurð segir Susan þetta vera
leiðindamál, sem hún hefði helst
viljað að hefði aldrei gerst. Hún
segist þó vera eins og aðrar mæð-
ur, það sé sama upp á hverju
börnin taki, móðurástin dofni
ekki og hún kveðst standa með
dóttur sinni í gegnum þykkt og
þunnt, velgengni og erfiðleika.
Susan segist heimsækja Söru og
dótturdætur sínar reglulega. Hún
segir að dótturdæturnar séu vel
upp alin og góð börn og beri þess
merki að eiga góða móður. Susan
segir að hvað sem annars megi
segja um Söru, þá sé hún góð
móðir og muni ávallt reynast
dætrum sínum vel.
Annars segist hún vera á þeirri
skoðun að það sé sama hvað ör-
lögin kjósi að bjóða fólki upp á,
eina leiðin til að halda áfram að
lifa sé að halda sínu striki, horfa
fram á við en ekki að velta sér upp
úr þeim erfiðleikum sem að baki
séu.
Susan Barrantes er glæsileg kona og tekur því, sem aö höndum ber, af ró.
í spegli
Tímans
Formaður