Tíminn - 04.11.1992, Qupperneq 3
Miðvikudagur4. nóvember 1992
Tíminn 3
íslensku skipin hafa veitt um 130 þúsund tonn af loðnu. 36 loðnuskip á miðunum og þar af 20 á loðnu og 16 á síld:
Aukinn kvóti tendrar
á biartsýnistýrunni
Frá byrjun loðnuvertíðar hafa íslensku skipin veitt um 130 þúsund tonn af
loðnu og í síðustu viku lönduðu skipin 16-17 þúsund tonnum og var sú
vika með þeim betri til þessa. Sú ákvörðun að bæta 320 þúsund tonnum við
heildarloönukvótann hefur aukið á bjartsýni manna um góða vertíð og eru
þegar hafnar afskipanir á loðnuafurðum. Til þessa hefur mest verið landað
af loðnu á Siglufirði, eða tæp 37 þúsund tonn.
Samkvæmt upplýsingum frá Til-
kynningaskyldunni voru 36 loðnu-
skip á miðunum í gær og þar af 20
á loðnuveiðum djúpt austur af
Langanesi en 16 loðnuskip á síld-
veiðum á Papagrunni og á Lóns-
dýpi. Alls hafa 54 skip loðnukvóta
en óvíst er að þau muni öll dýfa nót
í sjó. Enginn loðnuveiði var síðasta
sólarhring en það sem af er hafa
loðnuskip á sfldarveiðum fengið
um 40 þúsund tonn af sfld. Alls
hafa skipin veitt um 130 þúsund
tonn af loðnu það sem af er vertíð-
inni og því eiga þau eftir um 500
þúsund tonn af kvótanum. Þá hafa
Norðmenn þegar veitt um 67 þús-
und tonn og Færeyingar um 41
þúsund tonn af grænlenska kvótan-
um. Þessi veiði á haustvertíðinni er
mun betri en í fyrra en þá bárust á
land alls 56 þúsund tonn. Tálið er
að aflaverðmæti 640 þúsund tonna
loðnukvóta sé tæpir þrír miljarðar
króna og er þá reiknað með að verk-
smiðjurnar greiði um íjögur þús-
und krónur fyrir tonnið. Teitur
Stefánsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra fiskimjölsframleið-
enda, segir að niðurstöður haust-
mælinga Hafrannsóknastofnunar
auki á bjartsýni manna um vertíð-
ina og á stofnstærð loðnunnar, þótt
verðið fyrir loðnumjölið mætti að
ósekju vera hærra. Um þessar
mundir er verið að reyna að selja
tonnið af mjölinu á um 320-325
pund, en gengisfall pundsins hefúr
haft sín áhrif á fiskimjölsiðnaðinn
sem og aðrar útflutningsgreinar.
Aftur á móti fást 420 dollarar fyrir
tonnið af loðnulýsi sem þykir all-
þokkalegt. Afskipanir eru þegar
hafnar á loðnuafúrðum og er selt
mjöl til Bretlands og Norður-Evr-
ópu og þá hafa Bandaríkjamenn
Jarðhræringar undir Mýrdalsjökli:
Almannavarnir áfram
á veröi gegn Kötlu
Viðbúnaðarstig Almannavama stendur enn vegna jarðhrærínga undir Mýr-
dalsjökli. Búist er við að niðurstöður stafrænna mælinga Iiggi fýrir í vik-
unni. „Viðbúnaðarstig verður framhaldið þar til niðurstööur mælinga liggja
fyrir,“ segir Hafþór Jónsson, aðalfulltrúi hjá Almannavömum ríkisins.
Hann segir að bráðabirgðaniðurstöður hafi ekki breytt neinu um þetta.
Hann bendir á að viðbúnaðarstig sé vægast af þremur sem Almannavamir
nota. Hin tvö em hættu- og neyðarstig.
Hafþór segir að líkja megi viðbún-
aðarstigi við að eftirlit sé haft með
eldvirkni undir jöklinum. Hann tel-
ur að afgerandi breytingar þyrfti til
að færa aðgerðir yfir á hættustig. Þá
þyrftu jarðskjálftar að mælast um
1,5 á richterkvarða og vera allt að
þremur á hverri klukkustund. Nú
mælast að meðaltali einn til tveir
skjálftar á sólarhring um 1,5 til 2,0 á
richterkvarða að styrkleika. Þó segir
Hafþór að einn og einn skjálfti hafi
mælst sem greinist allt að 4 á richt-
er.
Hann segir að jarðskjálftahrinur á
þessum stað séu árviss viðburður
þar sem talið sé að jarðskorpan sé að
lyftast eftir að ís hafi bráðnað af jökl-
inum yfir sumartímann. Hann álít-
ur þó að þessi hrina hafi staðið
óvenju lengi, eða frá því í vor, og
þess vegna sé ásæða til að fylgjast
grannt með.
Þess má geta að skjálftavirknin er
mest að vestanverðu í Mýrdalsjökli
en talið er að gossvæði Kötlu sé í
suðausturjöklinum.
Hjá Norrænu eldfjallastöðinni
fengust þær upplýsingar að enn
væri verið að vinna úr upplýsingum
stafrænna mæla og niðurstöður
myndu liggja fyrir í vikunni. -HÞ
Ef uppsagnir íslenskra aðalverktaka koma til framkvæmda verða
starfsmenn þeirra 270:
Munu Aðalverktakar
styðja uppbyggingu
á Suðurnesjum?
Formaður stjómar Sameinaðra verktaka tók jákvætt í tillögu forsætis-
ráðherra á fundi sem þeir áttu á mánudaginn um að félagið styðji að ís-
lenskir aðalverktakar taki þátt í að efla atvinnulíf á Suðumesjum. Stjóm
Aðalverktaka hefur ekki fjallað um málið, en reiknað er með að stjómin
komi saman þegar ljóst er hvort eigendur fyrirtækisins vilja að það leggi
fjármagn í atvinnuuppbyggingu á Suðumesjum.
Eigendur íslenskra aðalverk-
taka eru íslenska ríkið, Samein-
aðir verktakar og Regin hf. Fyrir
liggur að vilji er fyrir því hjá
stjórnvöldum að Aðalverktakar
styðji með einhverjum hætti at-
vinnuuppbyggingu á Suðurnesj-
um, annaðhvort með aðild að
einstökum framkvæmdum, eins
og vegagerð eða húsbyggingum,
eða með því að þeir leggi beint
eða óbeint fram hlutafé í at-
vinnufyrirtæki á svæðinu. Til að
þetta geti komist í framkvæmd
þurfa aðrir eigendur Aðalverk-
taka að styðja þessar hugmyndir.
Þegar hefur verið rætt við full-
trúa Sameinaðra verktaka og
hafa þeir sýnt jákvæð viðbrögð,
en engin ákvörðun hefur verið
tekin. Hins vegar hefur ekki ver-
ið rætt við eigendur Regins,
Samband íslenskra samvinnufé-
laga. Hlutabréf Regins eru nú
hjá Landsbankanum, en ekki
hefur verið gengið frá yfirtöku
bankans á bréfunum. Þau eru því
enn í eigu SÍS. f lok síðasta mán-
aðar tilkynntu fslenskir aðal-
verktakar um uppsagnir 112
starfsmanna. Reiknað er með að
þegar og ef þær koma til fram-
kvæmda verði starfsmenn Aðal-
verktaka um 270. Undanfarin ár
hafa starfsmenn Aðalverktaka
oftast nær verið um 400 yfir
vetrarmánuðina. -EÓ
einnig keypt dálítið magn. Hins
vegar eru það Norðmenn og Hol-
lendingar sem eru stærstu kaup-
endur að loðnulýsinu sem þeir síð-
an fullvinna.
Það sem af er hefur mest af loðnu
verið landað á Siglufirði eða 26.700
tonn, til Raufarhafnar hafa borist
24 þúsund tonn, 14 þúsund tonn til
Neskaupstaðar, 11.500 tonn til
Akraness og um 11 þúsund tonn til
Eskifjarðar og svipað magn til Þórs-
hafnar á Langanesi.
-grh
Lítil plastsnuð, sem höfð eru í bandi um hálsinn, eru mikið í tísku
um þessar mundir. Ástæða hefur þó þótt til að vara nokkuð við því
að hafa snuðin um hálsinn þegar börnin eru að leik á ieikvöllum,
enda geta böndin krækst á leiktæki og fest þannig að stórhætta
stafar af. Þá er algengt aö börnin hafi snuðin uppi í sér og er það
líka nokkuð varasamt auk þess að vera ósiður. Dæmi eru um að lít-
il stúlka hafi í ógáti gleypt snuð á bandi sem hún hafði upp í sér og
þurfti að draga snuðið upp úr henni. Á mörgum, ef ekki flestum
leikskólum Reykjavíkurborgar hefur nú verið bannað aö vera með
þessi snuð úti við. Á meðfylgjandi mynd má sjá stúlku með slík
snuð.
Stjórn Sambandsins kemur saman til
fundar í dag til að ræða stöðu samninga við
Landsbankann:
Sambandii segir upp
átta starfsmönnum
Um síðustu mánaðamót var átta starfsmönnum Sambands íslenskra
samvinnufélaga sagt upp störfum. Starfsmenn Sambandsins eru 17 í
dag. Fyrirsjáanlegt er ad Sambandift mun á næstu mánuftum hætta
allri atvinnustarfsemi, en ekki liggur endanlega fyrir hvenær þaft verft-
ur. Samningar standa nú yfir vift Landsbankann og aftra lánardrottna
um uppgjör skulda og yfirtöku eigna. Á fundi stjómar Sambandsins í
dag verftur stjóminni gerft grein fyrir hveraig þessir samníngar ganga.
Aft sögn Sigurftar Markússonar, fylgír húsinu áfram. Þeir fiórir,
sfjóraarformanns Sambandsins, sem eftir eru, eru meft samninga
var átta starfsmönnum sagt upp sem tengjast áramótum.
störfum um síftustu mánaðamót. Sigurður sagfti aft á stjómar-
Hann sagði að uppsagniraar fundi Sambandsins í dag verfti
muni taka gildi aft þremur, fiór- stjórn fyrirtækisins upplýst um
um, fimm og sex mánuftum liftn- stöftu samninga við Landsbank-
um eftir aldri og starfsaldri ann um yfirtöku eigna Sam-
starfsmanna. Af þessum níu sem bandsins. Hann sagði aft eftir
ekki hefur verift sagt upp munu fundinn verfti gefin út fréttatil-
þrír færast til í störíum án upp- kynning um uppsagnir hjá Sam-
sagna, einn er meft tímabundinn bandinu og starfsmannahald fyr-
samning sem rennur út um mitt irtækisins.
næsta ár og einn er húsvörftur og -EÓ