Tíminn - 04.11.1992, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.11.1992, Blaðsíða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 4. nóvember 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Óiafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Síml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Alþýðublaðið, Godot og Þorsteinn Pálsson í viðtali við Morgunblaðið um helgina setti Davíð Oddsson forsætisráðherra sjálfum sér, ríkisstjórninni og atvinnumála- nefnd ríkisstjórnarinnar ákveðin tímamörk varðandi efna- hagsráðstafanir. Skilafrestur á efnahagsaðgerðum rennur út þann 15. nóvember, eftir tæplega tvær vikur, samkvæmt yfir- lýsingu Davíðs. Vissulega ber að fagna því að ákveðin dagsetn- ing er komin fram þó dagsetningin ein og sér hafi ekki megn- að að slá á þá ókyrrð sem aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hef- ur magnað upp í þjóðfélaginu á undanfömum dögum. Hvar- vetna í þjóðfélaginu heyrast nú raddir um að taka verði af skarið. Þó svo að forsætisráðherra láti í veðri vaka að rfkis- stjórnin sé tilbúin með efnahagsaðgerðir komi aðilar vinnu- markaðarins sér ekki saman, þá er trúin á slíkan pakka ekki almenn. Áhrif þessa herbragðs forsætisráherra eru því álíka öflug og af dagsetningu skilafrests. Næstum engin. Sannleikurinn er sá að stjórnarliðið er klofið í herðar niður í afstöðu sinni til þess hvernig ber að bregaðst við þeirri stöðu í efnahagsmálum sem nú er komin upp. Stór hluti sjálfstæð- ismanna innan og utan þings talar nú opinskátt um nauðsyn gengisfellingar í einhverri mynd og fer ekkert í grafgötur með vantrú sína á þeim hugmyndum sem ríkisstjórnin, eða forysta ríkisstjórnarinnar hefur verið að viðra. Augljós ágreiningur er líka uppi innan ríkisstjórnarinnar sjálfrar um það hvaða leið eigi að fara. Meginfylkingar stjórnarliða deila sem sagt um hvort stefna eigi verst stöddu sjávarplássunum í gjaldþrot eða hvort reyna eigi að breyta rekstrarskilyrðum greinarinnar þannig að hún eigi að meðaltali möguleika á arðvænlegum rekstri. Þetta getuleysi stjórnarinnar til að taka forystu og vera sam- stiga í því að takast á við stóru málin hefur nú leitt til þess að flótti er brostinn á heilu herdeildirnar í stuðningsliði stjórn- arsamstarfsins. Þær herdeildir sem mestu skipta í þessu sam- bandi eru aðilar í sjávarútvegi og samkeppnisiðnaði, sem op- inberlega hafa viðrað alvarlegar athugasemdir við stjórnar- stefnuna. Þá vekur það athygli að í leiðara Alþýðublaðsins í gær, sem aldrei þessu vant var ómerktur, kveður við nokkuð nýjan tón. Alþýðublaðið er skyndilega orðið óþolinmótt líka og vísar í fyrirsögn til pistils Elíasar Snælands Jónssonar í DV um helgina þar sem Elías líkti biðinni eftir efnahagsaðgerð- um ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar við biðina eftir Godot í samnefndu leikriti. í leikritinu kom Godot aldrei og í pistli El- íasar var því einmitt velt upp hvort aðgerðirnar myndu yfir- leitt koma. í Alþýðublaðinu er það hins vegar ekki ríkissjórn- in í heild og því síður ráðherrar krata, sem taldir eru bera ábyrgð á biðinni og seinaganginum. Þvert á móti er það fyrst og fremst Þorsteinn Pálsson sem er sagður bera ábyrgð á að- gerðaleysinu og leiðarahöfundur skammar meira að segja Davíð Oddsson fyrir að hafa verið fullorðhvatur þegar hann var að tala um að ekki mætti bjarga öllum sjávarútvegsfyrir- tækjum. Meginstefna Alþýðublaðsins hins vegar telur að Þorsteinn Pálsson sé sá Godot sem beðið sé eftir, hann sé sjávarútvegs- ráðherra og hann eigi að koma með lausnir á vanda sjávarút- vegsins. Augljóslega er Alþýðublaðið með þessum málflutn- ingi að gera tilraun til að fría Alþýðuflokkinn ábyrgð á því ástandi sem er að skapast og láta eins og það hafi verið í verkahring Þorsteins Pálssonar eins að ráða fram úr vandan- um. Greinilegt er á öllu að ríkisstjórnin er komin í þrot og sífellt fleiri yfirgefa hið sökkvandi skip. Til þessa bendir vaxandi órói í þjóðfélaginu, klofningur í stjórnarliðinu og nú síðast tilraun Alþýðublaðsins til að afneita ábyrgð Alþýðuflokksins á því hvernig komið er. Það hefur víst farið framhjá fáum að yfir Sandsmenn hefur genfiið efnahagsltreppa með tilheyrandi erfiðSeikum fyrir jafint fyrirtaeki sem hinn almenna launamann. AtvinnuSeysið er komið á alvarlegt stig og fátt sem gerist hjá sljóm- vöJdum til að efla mönnum S<jark og þor. Fimm þúsund manns eru atvinnuSausirað mati Samtaka at- vinnuiausra, samkvaemt frétt í Tímanum í gær. Það er því orðið talsvert átak á þúsundum heimiSa bara að horfast í augu við grá- mygiu hversdagsins, svo ekki sé talað um stærri vericefni. Sálar- tetrið finnur því fyrir vandamáS- unum ekSd síður en iíkamintt, og það eru ótrúlega margir sem eru rislágir þessa dagana, ekSd bara þeir atvinnulausu: deyfóin og von- leysið hefur smitað út frá sér og teygir sig um þjóðfélagið alit. Þó að Garri vilji síst gera litið úr þeim sáSarháska, sem steðjar að stórum hópum þjóöarinnar þessa dagana, er ekki hægt annað en spyija hvort það auld eSdd enn i andlega ringulreið manna að þurfa að talsast á við allan þann íjölda úrræða, sem landsmönnum stendur til boða til að hressa upp á andagift sína nú um stundir. menn Auk gífuriegs úrvaJs hvers kyns menningaratburða á sviði mynd- Sistar, Seiklistar og söngSistar, má nefna námskeiðahald ýmiss konar og er þá aðeins fátt eitt nefnt. Þá hefur Kirkjuþing nýlega fjallað mikiö um hvernig bregðast eigi við vaxandi atvinnuieysi og kom- ist að þeirri niöurstöðu að hiut- verk Sdrkjunnar sé fyrst og fremst að hlúa að sálariífi Sandsmanna á þessum erfiðu tímum. Pétur postuli fékk á sínum tíma Syrirmæli um að hann ætti menn að veiða og hefúr kirirjan stuðst við þessi fyrirmæli í gegnum ald- irnar í sínu starfi líka. Hins vegar má segja að á seinni árum hafí afii á sóknareiningu farið nokkuð minnkandi þjá kiikjunni og máiin Iíta satt best að segja ekki nógu vel út í dag, Samkeppnin í sálna- veiðunum hefur aukist mildð og I^V;Í;U er nú svo komið að ákveðið geng- isfall hefur orðJð í eilífðarmálun- um, a.m.k. utan tórkjunnar, og veraldleglr hlutir skipta orðið miklu máli íþessu samhengi. Þannig hafa hinir ýmsu sálna- veiðarar utan kirkjunnar lagað sig að breyttum efnahagslegum veru- leika og boðið andlega hressingu á niðursettu verði. Sem dæmi um þetta má nefna auglýsingu í Morg- unblaðlnu um helgina þar sem eitthvert fyrirtæki, sem kallar sig því táknræna nafni „Betra líf‘, er að kynna sértilboð þar sem boðið er upp á 30% afslátt af bókum eft- ir Sanaya Koman, sem líklega er cinhver kona sem þekkir ieiðina til betra tífs. Jafnframt er boðið upp á „30% afslátt af hugleiðslu- snældum frá henni á meðan birgóir endast", eins og segir orð- rétt f þessari auglýsingu. Siðan segin „Og hlutirnir verða enn meira spennandi! Hver sá sem notfærir sér þetta tilboð á kost á að fá 15 mínútna FRÍAN MIÖ- ILSTÍMA hjá bandaríska miðlin- um Patrice Noli sem hefur verið náinn samstarfsmaður Sanaya Roman í átta ár.“ Sóknarþungi í sáina- veiðum Allt þetta munu menn fá gefins ef þeir kaupa svona bók og spólu, og spumingin er aðeins hvort ein- hver getur boðið betur. Fimmtán mínútna samband við eilífa líflð fyrir handan er hreint ekki svo lít- ill kaupbætir í ekki umfangsmelri verslun. Þegar það er til viðbótar haft í huga að Qifidinn allur af öðrum tilboðum erí gangi, er ekki að undra þó þjóðkirkjan ræði í al- vöru hvemig unnt sé að auka sóknarþungann í sálnaveiöunum. En hvort sem það verður þjóð- kiriqan eða einhver önnur svoköll- uð sáluhjálp, nýaldarhreyflngin eða annað, sem hreppir flestar ráðvilltar sálir, verðum við að vona að óprúttln sölumennska ráði ekkí ein ferðinni og rugli þá í ríminu, sem með opnum huga leita að dýpstu rökum tilverunnar. Ef þjóðkirkjan er undanskitin — en hún hefur enn ekki tileinkað sér að ráði viðskiptaviðhorf til sóknarbamanna — er því miður ástæða til að hafa áhyggjur af því hvert þróunin stefnir í þessum efnum. Garri Það er að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um kosningamar í Banda- ríkjunum. Um þær hefur verið fjall- að í fjölmiðlunum allt árið og ættu flestir að vera búnir að fá nóg af þeim trakteringum öllum. Þessi pistill er skrifaður á kjördag og mun ekki birtast fyrir sjónum les- enda fyrr en eftir að úrslit liggja fyr- ir. Þá munu þrjár útvarpsstöðvar í það minnsta og tvær sjónvarpsstöðv- ar vera búnar að flytja mikil tíðindi af kjörsókn hér og hvar, og fá heldur léttvægar kosningafréttir frá frétta- riturum sínum, sem staddir eru í nokkrum borgum vestan hafs, og er satt best að segja heldur erfitt að sjá hvernig þeir eiga að hafa nokkru meiri yfirsýn um gang kosninganna en til að mynda hann Óli kommi í Hombjargsvita, ef hann hefur opið fyrir Kanaútvarpið hjá sér. Á sjálfa kosninganóttina áttu ís- lendingar kost á kosningafréttum og fréttaskýringum á öllum útvarpsrás- unum og úr tveim sjónvarpsstöðv- um. Var mikið haft viö að sýna jöfn- um höndum úr sjónvarpssölum ís- lands og úr NBC og ABC. Kannanir Gegndarlausar fréttir af veraldar- gengi bandarísku forsetaframbjóð- endanna voru satt besta að segja farnar að gerast heldur hvimleiðar. Síðustu mánuðina hafa þær ekki snúist um annað en hvemig fram- bjóðendum tókst að stinga hver upp í annan og svo úrslit úr skoðana- könnunum og aftur úrslit úr skoð- anakönnunum og enn og aftur hvernig prósentutölur breyttust milli skoðanakannanna og síðan hvað frambjóðendurnir höfðu að segja um ættjarðarást hvers annars. I fréttaflutningi bólaði hvergi á að frambjóðendur hefðu ólík stefnumál Kosningaat í innanríkis- sem utanríkismálum. Einn boðaði óbreytta stefnu, annar að tími væri til kominn að breyta um stefnu án frekari útskýringa, og hinn þriðji lofaði að hreinsa til í stjóm- sýslunni án þess að hafa hugmynd um hvað hann ætlaði til bragðs að taka að hreingemingu lokinni. En öllum fréttum bar saman um að kosningaslagurinn væri afskaplega spennandi. Litlar fréttir Það er því von að mikið hafi legið við að kynna þennan sérkennilega slag á íslandi og að ekki hafi dugað minna en bein útsending frá taln- ingu í tveim sjónvarpsstöðvum og þrem útvarpsstöðvum og hver um sig með sína eldhressu fréttahauka í Ameríku og valið lið að taka við fréttum og útskýra. Þar sem einhliða og tilbreytingalitl- ar skoðanakannanir hafa verið svo spennandi fréttaefni, hefur vart komist til skila að í gær var einnig kosið til fulltrúadeildarinnar og , þriðjungur öldunga- deildarþingmanna, auk ||i slatta af ríkisstjórum, svo eitthvað sé nefnt. En mörgum Bandaríkjamanninum finnst miklu meira máli skipta hvemig úrslit verða í þingkosning- um og ýmsum öðrum kosningum, en hver velst til setu í Hvíta húsinu og fer að ráðskast með embættis- menn eftir sínu höfði. En nú er talningu lokið og sjálfsagt margir búnir að fylgjast spenntir með og örþreyttir eftir að hafa þurft að skipta stöðugt á milli sjónvarpa og útvarpsrása til að missa ekki af neinu. Fjölmiðlunin hefur nefnilega gert kosningar sem þessar og sér- staklega talningu atkvæða að harð- svíruðum íþróttaleik, þar sem sagt er fyrir leikinn að allt geti gerst og úrslit því óráðin. Svo er leiknum lýst af miklu óðagoti og þegar úrslit eru kunn, setjum við fjölmiðlamenn og margir fleiri upp spekingssvip og segjum að það hafi alla tíð legið ljóst fyrir að svona færi. Að minnsta kosti var ég alltaf búinn að spá að.yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Hver annar? Þetta eru því litlar fréttir allt saman. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.