Tíminn - 04.11.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur4. nóvember 1992
Aganefnd HSÍ dæmdi í gær Þorbjörn Jensson í tímabundið leikbann vegna atviks eftir leik
Vals og FH í handknattleik. Þorbjörn Jensson sem missir af tveimur leikjum í 1. deildinni:
„Ég hef alltaf verið
hataður af dómurum“
MOLAR
• _________________ ^
... Á uppskeruhátíö Fram sem
haldin var á mánudag var Pétur Arn-
þórsson kosinn besti leikmaður
meistaraflokks Fram á siðastliðinu
keppnistlmabili. Miklar sögusagnir
hafa verið (gangi þess efnis að Pét-
ur sé á leiðinni til nýliðanna f 1. deild-
inni f knattspymu, Fylkis, en þessi
kosning Péturs hlýtur aö rýra þá
möguleika.
... Svo haldiö só áfram að tala um
Fram, þá heyrðist það á dögunum
að Hlynur Birgisson, varnarmaður-
inn úr Þór Akureyri sem var einn af
þeirra lykilmönnum f sumar, væri á
leiðinni til Fram. Það heföi reyndar
staðið til fyrir sfðasta keppnistfmabil,
en ekki orðið af. Annað árið f röð
nætti Hlynur viö og herma heimildir
Tfmans að mikil pressa hafi verið á
Hlyn um að yfirgefa ekki Akureyrar-
liöiö.
... ÞaA vakti athygli f leik KR og
Keflavfkur aö Guðjón Skúlason geröi
ein átta stig á um 15 sek. og þar af
voru tvær þriggja stiga körfur.
Heimsmetið ku eiga Isaha Thomas,
bandarfski snillingurinn sem lék meö
Detroit Pistons. f einum leik Pistons
var liðiö 13 stigum undir og það leit
ekki vel út, þvf aöeins 1,24 mfn var til
leiksloka. En þá tók Thomas til sinna
ráða og geröi 16 stig á 1,24 mln og
gerði út um leikinn.
... Thomas Doll, þýski miðvallar-
leikmaðurinn sem leikur með Lazio á
(talfu, á yfir höfði sér refsingu fyrir að
hafa farið hörðum oröum um dómara
I leik liðsins gegn Udinese á sunnu-
dag. Doll segir aö dómarinn hafi
dæmt allt á móti Lazio og segist ekki
hafa áhyggjur af því hvort hann verði
sektaður eða fái bann. „Ef ég gagn-
rýni dómara, þá er það vegna þess
að ég hef til þess þúsund ástæður."
Aganefnd handknattleikssambands
íslands hefur dæmt Þorbjörn Jens-
son þjálfara 1. deildar liðs Vals í
handknattleik, í tímabundið leik-
bann frá 5-19.nóvember, að báðum
dögum meðtöldum. Þorfojöm verð-
ur því að fylgjast með liði sínu úr
áhorfendastæðum í leikjum liðsins
gegn Fram í Laugardalshöll, sem
fer fram 9. nóvember, og gegn Vík-
ingum að Hlíöarenda þann 18.nóv-
ember. Tíminn bar þessa niður-
stöðu undir Þorbjöm Jensson í
gærkvöldi, en hann hafði þá ekki
fengið að heyra af niðurstöðunni og
var hann allt annað en ánægður
með niðurstöðuna.
„Ég óskaði eftir því í dag (í gær) að
ég fengi að útskýra mitt mál á fundi
aganefndar, eins og dómararnir fá að
útskýra sitt mál, en því var neitað.
Ég hélt að við byggjum í lýðræðis-
ríki, en þetta virðistvera einræði. Ég
get ekki ímyndað mér annað en að
þessi vinnubrögð brjóti í bága við
ÍÞRÓTTIR
UMSJÓN: PJETUR SIGURÐSSON
V_____________________z
Iandslög,“ sagði Þorbjörn Jensson í
samtali við Tímann. Aðspurður
hvort hann mætti ekki bara vel við
una að dómurinn væri ekki þyngri,
sagði hann svo ekki vera og sagðist
jafnframt vera mjög óánægður með
dóminn og vera ranglæti beittur.
En er Þorbjörn Jensson, eftir það
sem á undan er gengið, ekki hrædd-
ur við að vera lentur upp á kant við
dómara? „Ég hef alltaf verið hataður
af dómurum og ég held að það hafi
ekkert breyst við þetta. Þeir virðast
alltaf stöðugt vera að reyna að ná sér
niðri á mér og fyrst þeir vilja stríð þá
get ég alveg farið í stríð. Ég er alveg
tilbúinn hvenær sem er.
Ég held áfram á minni braut við að
gera handboltanum gagn, en þeir
geta haldið áfram að brjóta hann
niður,“ sagði Þorbjörn Jensson
handknattleiksþjálfari. Hann sagðist
ekki enn vita hvort einhverjir eftir-
málar yrðu að þessu máli af hálfu
Valsmanna því þeir yrðu fyrst að fá
að sjá dóminn og það sem lægi hon-
um til grundvallar.
Niðurstöðuna um tímabundið
bann komst aganefnd HSÍ að á fundi
sínum í gær, en dómurinn er byggð-
ur á skriflegri og munnlegri skýrslu
dómara leiksins, þeirra Jóns Her-
mannssonar og Guðmundar Sigur-
björnssonar, þar sem kemur fram
meðal annars að Þorbjörn hafí ýtt í
Jón dómara.
Jafnréttismót TBR í badminton:
Elsa Nielsen komst í úrslit A-flokks
Mike Brown TBR sigraði í meistaraflokki og íslands-
meistarinn, Elsa Nielsen komst í úrslitaleikinn í A-
flokki á Jafnréttismóti TBR í badminton sem haldið var
síðastliðna helgi. Það er athyglisvert að á mótinu, sem
ber þetta nafn, skuli engin kona hafa tekið þátt í meist-
araflokki. Mótið er sérstakt að því leyti að konur og karl-
ar keppa í sömu flokkum, en þó ráða konurnar í hvaða
styrkleikaflokki þær leika.
Eins og áður sagði sigraði Mike Brown í meistaraflokki
en hann lagði Árna Hallgrímsson að velli í úrslitum 15-5
og 15-12.1 tvíliðaleik í meistaraflokki sigruðu þeir Mike
Brown og Þorsteinn Hængsson þá Brodda Kristjánsson
ogÁrna Þór Hallgrímsson, 15-17,17-16 og 17-16.
I A-flokki voru bæði karlar og konur. Elsa Nielsen tapaði
í úrslitaleik fyrir Reyni Guðmundssyni HSK, 13-15, 15-
11 og 4-15. í tvíliðaleik A-flokks sigruðu þau SigfúsÆg-
ir Árnason og Bima Petersen TBR þá Reyni Guðmunds-
son HSK og Oskar Bragason KR. f D- flokki sigraði Har-
aldur Guðmundsson TBR Sigurð Þórisson TBR, 15-3 og
15- 3. í tvfliðaleik unnu þeir Orri Árnason og Haraldur
Guðmundsson TBR, þá Sævar STYöm og Björn Jónsson
TBR, 15-3 og 15-3. Um næstkomandi helgi verður hald-
ið Afmælismóti Badmintonsambands fslands og verður
það haldið í TBR- húsunum.
Eftir atvik eftir leik Vals og FH hefur farið fram mikil umræða um dómaramál í íslenskum handknattleik.
Tíminn ræddi við þrjá aðila sem þar koma við sögu:
Dómaramál í brennidepli!
í framhaldi af atviki því sem upp eftir leik Vals og FH, þar sem Þorbimi
Jenssyni er gert að sök að hafa ráðist að öðrum dómara leiksins, Jóni
Hermannsyni, með svívirðingum og auk þess hafi Þorbjöm hrint Jóni,
hefur farið fram mikil umræða um dómaramál í íslenskum handknatt-
leik. Þar hafa Valsmenn gengið fram fyrir skjöldu og gagnrýnt skipulag
dómaramála.
Tíminn ræddi við Lúðvík Sveins-
son, formann handknattleiksdeild-
ar Vals, Guðjón L.Sigurðsson,
handknattleiksdómara og formann
Handknattleiks- dómararsambands
íslands, HDSÍ, og Kjartan Steinb-
ach, formann dómaranefndar HSÍ,
en Valsmenn hafa einmitt gagnrýnt
hana fyrir niðurröðun á það sem
þeir kalla „toppleiki".
„Geta ekki dæmt toppleiki“
„Það eru bara 3-4 dómarapör sem
geta dæmt toppleiki á íslandi í dag.
Þetta dómarapar sem dæmdi um-
ræddan leik Vals og FH getur alls
ekki dæmt toppleik og á ekki heima
í svona mikilvægum leikjum. Það
var enginn annar leikur á dagskrá
þennan dag og það hefði verið eðli-
legra að setja t.d. Rögnvald Erlings-
son og Stefán Arnaldsson á þennan
leik, en þeir eru besta dómaraparið
á landinu í dag,“ sagði Lúðvík
Sveinsson, formaður handknatt-
leiksdeildar Vals, í samtali við Tím-
ann. Hann benti á að það ætti aö
vera freistandi fyrir marga að fara
út í dómgæslu, nú þegar búið væri
að hækka til muna þau laun sem
greidd væru fyrir 1. deildar leiki í
handknattleiknum.
„Dómarar ekkert úthald“
Samþykkt hefði verið mikil hækk-
un á launum dómara á milla ára og
nú fá dómarar greiddar 3.500 kr. á
mann fyrir leikinn, en til saman-
buröar mætti nefna að fyrir 1.
deildar leik í knattspyrnu fengi
dómarinn 2.500 kr. „Maður hefði
haldið að eftirspurnin eftir vinnu
sem þessari ætti að vera mikil. Þá
hefði maður haldið aö það ættu að
vera geröar stífari kröfur hjá HDSÍ,
sérstaklega nú þegar vel væri greitt
fyrir störfin. Það er enginn undir-
búningur hjá þessum mönnum.
Liðin eru að undirbúa sig fyrir
mótið og mæta í toppformi, en
dómararnir hafa vart úthald í heil-
an leik. Þess utan eru dómarar
orðnir ofsalega dýrir og við krefj-
umst toppdómgæslu fyrir bragðið,"
sagði Lúðvík.
Hann gagnrýndi ennfremur að
það væri enginn sá aðili innan HSÍ
sem tæki á slakri dómgæslu ein-
stakra dómara í leikjum og ávítir
sína menn. Það væru starfandi eft-
irlitsmenn, en þeirra skýrslum
væri ekki fylgt eftir af nægri hörku.
Lúðvík samþykkti að það væri
brýnt aö fá fleiri til starfa í dóm-
gæslu og að dómaranefnd hefði úr
fleiri nöfnum að moða til að dæma
toppleiki, en hins vegar væri ekki
að hægt að framleiða landsdómara
nú. Þaö þyrfti að fá fólk til að taka
héraðsdómararéttindi og öðlast þá
reynslu til aö verða toppdómarar.
Þrír styrkleikaflokkar í 1. deild
Guðjón L. Sigurðsson, formaður
HDSÍ, segir að 12 dómarapör hafi
verið valin fyrir mótið til að dæma í
1. deildinni í handknattleik og væri
þeim raðað í þrjá styrkleikaflokka.
Þetta þýöir að fjögur pörin í fyrsta
styrkleikaflokki, Rögnvald Erlings-
son og Stefán Arnaldsson, Guðjón
Sigurðsson og Hákon Sigurjóns-
son, ÓIi P. Olsen og Gunnar Kjart-
ansson, Gunnar Viðarsson og Sig-
urgeir Sveinsson, dæma flesta leik-
ina í 1. deild, næstu fjögur í öðrum
styrkleikaflokki, sem þeir Jón Her-
mannsson og Guðmundur Sigur-
jónsson eru í, fá ívið færri leiki og
þau fjögur síðustu, fá 1-2 leiki á
hvert tímabil sem raðað er niður í
einu, sem er u.þ.b. á tveimur mán-
uðum. Þessu raðar dómaranefnd
HSI. „Dómarapörin fjögur í fyrsta
styrkleikaflokknum koma af ýms-
um ástæðum ekki til greina í þenn-
an leik og því fór dómaranefndin
niður í næsta styrkleikaflokk, sem
menn geta síöan metið hvort hafi
verið rétt eða ekki,“ sagði Guðjón.
Atvikiö ófyrirgefanlegt
Guðjón segist að sumu leyti geta
skilið þá gagnrýni Valsmanna að
eitt af dómarapörum í fyrsta styrk-
leikaflokki hafi ekki dæmt þennan
leik. Það séu gerðar kröfur til
þeirra sem dómara og þeir verði að
gera þær kröfur til dómaranefndar
að hún valdi sínu hlutverki, en að
öðru leyti vilji hann sem formaður
HDSÍ, sem eru hagsmunasamtök
dómara, ekki vera að skipta sér að
þessu. „Okkur þykir þetta bara leið-
inlegt og atvik það sem gerðist eftir
leikinn er náttúrlega ófyrirgefan-
legt,“ sagði Guðjón L. Sigurðsson,
formaöur HDSÍ og handknattleiks-
dómari, í samtali við Tímann.
Varðandi þá gagnrýni Valsmanna,
að ekki sé hægt að refsa dómurum
fyrir slæma frammistöðu, segir
Guðjón að svo mætti vissulega
segja. Það væri ekki nema að dóm-
aranefnd HSÍ raði þeim næst á ekki
eins mikilvæga leiki og þeir fái ekki
eins spennandi verkefni. Einnig er
fyrir hendi sá möguleiki að setja
dómarana niður um styrkleika-
flokk, en þá kemur upp sú spurning
hvort einn leikur eigi að skera úr
um það. Varðandi það sem kom
fram í viðtali við Þorbjörn Jensson
á Bylgjunni á mánudag, þess efnis
að ekki væri hægt að kæra dómara,
sé það ekki rétt hjá honum. Að vísu
væri ekki hægt að kæra ákvarðanir
hans í leiknum og hans mat á til-
teknum brotum, en framkomu
dómara fyrir leik, í hálfleik og eftir
leik, er hægt að kæra, samkvæmt
reglugerð HSÍ um dómara. „Það er
því ekki rétt að við séum ósnertan-
legir, en það sem við gerum inni á
vellinum er endanlegt,“ sagði Guð-
jón.
Gagnrýni á niðurröðun út í hött
Kjartan Steinbach, formaður
dómaranefndar HSÍ, segir að atvik-
iö sem átti sér stað um helgina
heyri ekki beint undir nefndina,
hún hafi enga lögsögu í málinu.
Kjartan segir gagnrýni Lúðvíks
Sveinssonar um niðurröðun á leik
Vals og FH vera út í hött. „Lúðvík
veit nákvæmlega hvernig staðan
var.
FH-ingar fengu leiknum breytt
yfir á laugardag og dómararnir sem
upphaflega voru settir á leikinn,
þeir Óli P.Olsen og Gunnar Kjart-
ansson, voru erlendis. Þeir Gunnar
Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson
gátu ekki dæmt þar sem Gunnar
var við vinnu, Hákon Sigurjónsson
og Guðjón L. Sigurðsson dæma
fyrir Val og þeir Rögnvald og Stefán
höfðu dæmt FH-leikinn á undan og
eiga að dæma næsta leik FH-inga,
en við reynum að raða dómurum
þannig niður að þeir dæmi ekki oft
í röð hjá sömu félögunum," sagði
Kjartan Steinbach í samtali við
Tímann. Þegar svo var komið var
farið í næsta styrkleikaflokk og
fundið dómarapar sem gat dæmt
leikinn og niðurstaðan varð Jón og
Guðmundur. „Þessi 12 dómarapör
sem eru í hópnum er öllum treyst
til að dæma í 1. deild, sama hvaða
leikir það eru, svo framarlega að
ekki eigi í hlut þeirra eigin lið,“
sagði Kjartan.
Ummæli Jóns í lagi
Jón Hermannsson dómari lét hafa
það eftir sér í Morgunblaðinu í gær
að hann viðurkenndi að hann hefði
dæmt illa. Kjartan sagði að hann
hefði í sjálfu sér enga skoðun á því
hvort það væri eðlilegt að dómarar
gerðu slíkt. „Ef menn telja sig þurfa
að segja frá því hvort þeir hafi
dæmt vel eða illa, þá er það þeirra
mál.
Ef honum finnst hann hafa dæmt
illa og viðurkennir það opinber-
lega, þá finnst mér það allt í lagi.
Það er Ijóst að hvert einasta dóm-
arapar lendir í því á ferlinum að
dæma illa og það er ekki til sá leik-
ur sem hefur verið dæmdur 100%
rétt.
Hann hefur ekki farið fram í
heiminum ennþá,“ sagði Kjartan
Steinbach. Kjartan sagði að lokum
að þaö sé ekkert til sem heitir refs-
ing fyrir að standa sig illa.
Dómurum sé skipt í styrkleika-
flokka og þeir flytjist á milli flokka,
bæði upp og niður, eftir frammi-
stöðu, sem metin sé af eftirlits-
mönnum o| meðlimum dómara-
nefndar HSI.