Tíminn - 04.11.1992, Síða 12
& 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
KERRUVAGNAR OG KERRUR
Bamaiþróttagallar á frábæru verði.
Umboðssala á notuðum bamavömm.
Sendum i póstkröfu um land allt!
BARNABÆR, Ármúla 34
Slmar: 685626 og 689711.
VERIÐ VELKOMIN!
Bílasala Kópavogs
Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogi
SÍMI 642100
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
Tíniinn
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓV. 1992
Forsætisráðherra segir að aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum verði tilkynntar fyrir 15. nóvember:
Matthías og Egill vilja gengisfellingu
Matthías Bjamason og Egill Jónsson, alþingismenn Sjálfstæðisflokksins,
telja báðir að rétt sé að breyta gengi íslensku krónunnar. Þeir segjast báðir
treysta því að forsætisráðherra tilkynni um aðgerðir í efnahags- og atvinnu-
málum 15. nóvember, eins og hann hefur lýst yflr að hann muni gera. Eg-
ill segir að það sé óbærileg hugsun ef ekkert verði gert, og Matthías segist
vera mjög óþolinmóður, enda sé hann búinn að bíða mjög lengi eftir að-
gerðum af hálfu ríkisstjómarinnar.
í Morgunblaðinu um helgina lýsti
Davíð Oddsson forsætisráðherra því
yfir, að aðgerðir í atvinnu- og efna-
hagsmálum myndu líta dagsins ljós
fyrir 15. nóvember. Náist ekki sam-
komulag í atvinnumálanefndinni,
leggi ríkisstjómin fram eigin tillögur.
Mikil óvissa er um hvort atvinnumála-
nefndin nær samkomulagi um tillög-
ur. Veruleg andstaða er við það hjá
sveitarfélögunum að afnema aðstöðu-
gjaldið og vaxandi efasemdir eru inn-
an raða launþegahreyfinganna um
þær hugmyndir, sem settar hafa verið
fram. Þar skiptir máli að þing ASÍ
hefst á Akureyri í lok mánaðarins og
óvíst er hvort þingið eða nýr forseti
ASÍ mun styðja hugmyndirnar. Það
eru því margir sem telja að Árni Bene-
diktsson hjá Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna hafi lög að mæla,
þegar hann segir: „Með hverjum deg-
inum sem líður nálgumst við gengis-
fellingu."
í fyrra var meðalgengi dollars 59,2
krónur. Gengi hans fór niður í 52
krónur í haust, en er núna 57,8 krón-
ur. Meðalgengi pundsins í fyrra var
104,1 króna, en er núna 89,4 krónur,
sem þýðir 15% lækkun.
„Til þess að rétta hlut útflutnings-
greina okkar, og þar á ég ekki einung-
is við sjávarútveginn, þá þarf að gera
allt sem hægt er til að lækka kostnað
innanlands. En við þolum ekki að
staðið sé á óbreyttu gengi og gera það
að einhverju trúaratriði. Við verðum
að taka mið af þeirri staðreynd að doll-
arinn hefur fallið verulega, þó að hann
hafi aðeins rétt við núna, og pundið
hefur fallið um 15% á örfáum vikum.
Hver þolir að missa 15% af tekjum
sínum án þess að það komi hvergi
fram?“ sagði Matthías Bjamason.
„Ég hef talið allt síðasta ár að það
ætti að verða breyting á genginu. Okk-
ur hættir svo við því að ríghalda í hluti
þar til allt er komið í óefni. Nú hefur
gengið verið að hækka. Ég hefði talið
sjálfsagðan hlut að hreyfa gengi krón-
unnar til samræmis við það sem það
var t.d. fyrir einu ári. Ég tel að það sé
betra að hreyfa gengið fyrr en seinna
til réttrar áttar, þó þannig að það hefði
sem allra minnst áhrif á verðlag,"
sagði Egill Jónsson.
Egill tók fram að ef samstaða næst
um það í atvinnumálanefndinni að
fara aðrar leiðir, þá fagni hann því.
Best sé auðvitað að vera laus við geng-
isfellingu og allt sem henni fylgi. „Eg
hef satt að segja ekki leitt hugann að
því hvað myndi taka við ef ekkert
kæmi út úr þessu. Það er hálf óbæri-
leg hugsun ef þama næst ekki árang-
ur,“ sagði Egill.
Matthías var spurður hvort hann telji
að það sé skilningur hjá forsætisráð-
herra á vanda sjávarútvegsins.
„Ef það væri skilningur á vanda sjáv-
arútvegsins hjá stjórnvöldum, þá
væm komnar einhverjar úrbætur. Eg
held að það sé ákaflega takmarkaður
skilningur og mér fannst það sama
eiga við fyrrverandi ríkisstjórn," sagði
Matthías. „Mér er farið að leiðast
þetta tal, sem beinist að frammá-
mönnum í sjávarútvegi, um að það
eigi ekki að verðlauna skussana. Eru
menn skussar sem geta ekki rekið fyr-
irtæki með hagnaði þegar afli dregst
saman, þegar stjómvöld ákveða ítrek-
að að minnka aflaheimildir, þegar
fiskvinnsla færist út á sjó, þegar pund-
ið fellur? Ég er ekki að segja að ekki
fmnist skussi í þessari atvinnugrein
eins og víða annars staðar. Svona tal er
hins vegar orðið óþolandi," sagði
Matthías og bætti við að það sé ómak-
lega vegið að stjómendum sjávarút-
vegsfyrirtækja þegar gefið er í skyn að
20% fyrirtækjanna sé stjómað af skus-
sum.
Almennt em menn sammála um að
hægt sé að fara þrjár leiðir í atvinnu-
og efnahagsmálum: lækka kostnað
innanlands, fella gengið eða fara svo-
kallaða gjaldþrotaleið. Matthías sagði
að á þingflokksfundum í Sjálfstæðis-
flokknum hafi mjög lítið verið rætt
um þessar leiðir eða yfirleitt hvað beri
að gera til að bæta rekstrarstöðu at-
vinnulífsins í landinu. Hann tók fram
að hann hefði að vísu ekki mætt á alla
þingflokksfundi, en hann hefði ekki
frétt af því að slík umræða hefði farið
fram á fundum sem hann mætti ekki
á.
-EÓ
íslensk bátasmíði:
Sómi 860 er
það nýjasta
Bátasmiðja Guðmundar í Hafnarfirði kynnti nýlega nýja gerð af Sómabát-
um, Sóma 860. Þessi bátur er hannaður og byggður á langri reynslu sem
fengist hefur af fyrirrennaranum, Sóma 800, sem notaður hefur verið af
fjölda fólks bæði hér við land og erlendis í tæpan áratug.
Nýi báturinn, Sómi 860, er 8,6 m
langur og mælist 5,9 brúttótonn.
Hann hefur stærri botn og er burða-
meiri en fyrirrennarinn. Þá hefur
hann mun meira dekkpláss, meira
lestarrými og meiri burðargetu en
Sómi 800.
Öll nauðsynleg siglinga- og fiskleit-
artæki eru um borð. Þau eru af
gerðinni Raytheon frá Sónar hf. í
Keflavík.
300 hestafla Volvo dísilvél með
föstum öxli og skrúfu er staðalbún-
aður og hámarkshraði er 25-27
hnútar, en eðlilegur siglingarhraði
er 20-24 hnútar.
Hinn nýi Sómi 860 frá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfjarðarhöfn.
Timamynd Ámi Bjama
... E R L E N D A R FRÉTTIR...
WASHINGTON
Fyrstu forsetakosningar
eftir kalda stríö
Bandarikjamenn gengu i gaer til fyrstu
forsetakosninga eftir lok kalda striösins.
Svo virtist sem þjóöin ætlaöi aö láta í
Ijós ótvíræöa ósk um breytingar meö
þvi aö kjósa Bill Clinton, fyrstan Banda-
rikjaforseta sem fæddur er eftir siöari
heimsstyrjöld.
BELGRAD
Vantraust á Panic?
Milan Panic, forsætisráöherra Júgó-
slavlu, átti I gær I baráttu viö þjóöernis-
sinnaða stuöningsmenn Slobodans Mi-
losevic Júgóslaviuforseta, sem vilja
fella hann úr embætti meö vantrausti
þingsins. Andstæöingar Panics unnu
fyrri atkvæöagreiösluna um máliö i
neöri deild þingsins i fyrradag og i gær
barst leikurinn i efri deildina.
GENF
Serbar ræöa viö alþjóðlega
sendiboða
Háttsettur serbneskur embættismaöur í
Bosniu átti I gær fund með alþjóölegum
sáttasemjurum til aö ræöa áætlanir um
friö I fynum júgóslavneska lýöveldinu,
þrátt fýrir aö fregnir hafi borist um aö
bosniskir Serbar ætluöu aö draga sig út
úr viöræöunum.
MOSKVA
Hættuástand í Kákasus og Georgíu
Rússar þurftu i gær aö fást viö hættu-
ástand á tvennum vigstöðvum: i Kák-
asus þar sem órói er innan landamær-
anna, og átök virtust i uppsiglingu viö
grannrikiö Georgiu. Uppreisnarforingi i
Kákasus sakaöi Boris Jeltsin Rúss-
landsforseta um aö gripa til hættulegra
nýlenduaðferöa til aö bæla niöur of-
beldisfullar hræringar.
LISSABON
Bardögum hætt í Lúanda
Stöku skot rufu kyrröina sem er aftur
komin á I Lúanda, höfuöborg Angóla,
eftir fjögurra daga blóöuga bardaga
milli stjómarliöa og fyrrum uppreisnar-
manna UNITA, aö þvi er portúgalskir
embættismenn sögöu I gær. Álitiö er aö
meira en 1.000 manns hafi látiö lifiö í
bardögunum.
BRUSSEL
Viöræður EB og Finnlands?
Svo virðist sem embættismenn EB séu
reiöubúnir aö hefja i dag viöræöur um
inngöngu Finna í Evrópubandalagiö,
fyrst auöugra ríkja sem sækja um aöild.
DUBLIN
Engar skyndikosningar strax
Framfarasinnaöir demókratar, minni
stjómarflokkurinn i veikri samsteypu-
stjóm Irlands, slógu i gær á frest
ákvöröun um að draga sig út úr stjóm-
arsamstarfinu i tvo sólarhringa, og
hliföu þar meö Irum við skyndikosning-
um, a.m.k. i bili.
KAlRÓ
Fleiri áróóursmenn en kjósendur
I gær voru fleiri áróöursmenn, veifandi
áróöursspjöldum, en kjósendur á kjör-
stööum i sveitarstjómarkosningum í
Egyptalandi. Múslimskir öfgasinnar
hafa hrint af staö mestu ógnun við rikis-
stjómina i fimm ár i kosningunum.
AKKRA
Forsetakosningar í Ghana
Kjósendur i Vestur-Afrikurikinu Ghana
flykktust á kjörstaöi i gær i fyrstu frjálsu
forsetakosningunum, sem fram hafa
farið i landinu í 13 ár.
LONDON
Fé Maxwells finnst ekki
Leit um allan heim aö þeim milljöröum
sterlingspunda, sem Robert sálugi
Maxwell kom i súginn, hefur sent rann-
sóknarmenn i pappirsskoöanir um viöa
veröld, en ekki leitt fram i dagsljósiö
nema litiö brot af peningunum sem
saknaö er. Niöurstaöa rannsóknar-
mannanna er aö Maxwell hafi stoliö gíf-
urlegum upphæöum i gagnslausri til-
raun til aö rétta viö skjögrandi fjölmiöla-
veldi sitt.
DENNI DÆMALAUSI
„Þetta erekki drasl, mamma. Þetta eru safngripir."