Tíminn - 23.12.1992, Side 1
Miðvikudagur
23. desember 1992
222. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Árið sem er að líða, það erfiðasta í 58 ára sögu Starfsmannafélagsins Sóknar. 10% félagsmanna fengu úthlutað sér-
stökum jólastyrk til framfærslu:
Fólk kemur grátandi
„Við verðum töluvert varar við fátækt og það eru margir sem búa
Iangt undir fátækramörkum og hingað kemur fólk og grætur. Það
eru jafnvel dæmi þess að íbúðir hafi farið undir hamarinn vegna
þess að viðkomandi gat ekki staðið í skilum með afborganir sökum
atvinnuleysis eða vegna skertra tekna í kjölfar niðurskurðar og hag-
ræðingar á sínum vinnustað", segir Guðrún Óladóttir hjá Starfs-
mannafélaginu Sókn.
Nýverið úthlutaði stéttarfélagið 250
félagsmönnum sérstökum jólastyrk til
framfærslu og komu í hlut sérhvers
um 4500 krónur. Alls eru um þrjú
þúsund félagar í Sókn og þar af eru
2500 virkir en meðalaldur Sóknar-
kvenna er um fimmtugt. Guðrún seg-
ir að árið sem er að líða hafi verið það
erfiðasta í 58 ára sögu félagsins en
Sóknarkonur vinna aðallega innan
heilbrigðiskerfisins, á bamaheimilum
og við heimaþjónustu. Hagræðing og
niðurskurður á vegum hins opinbera
hefur komið afar illa við félagsmenn
innan Sóknar, en alls eru hátt í 90
manns atvinnulausir hjá félaginu og
viðbúið að sú tala verði komin í eitt
hundrað í næsta mánuði. Grunntaxti
Sóknarkvenna er eitthvað um 55 þús-
und krónur á mánuði en til hliðsjónar
má nefna að fullar atvinnuleysisbætur
eru um 45 þúsund krónur.
Guðrún Óladóttir segir að það sé ekki
aðeins að fólk missi atvinnuna heldur
sé einnig verið að skera niður vinnu
hinna, þannig að margir vinni nú að-
eins 75%, 60% og allt niður í 50%
vinnu sem áður unnu fulla vinnu.
Þetta skerðir að sjálfsögðu ráðstöfun-
artekjur Sóknarkvenna sem áður gátu
gátu mætt auknum útgjöldum með
yfirvinnu en það er liðin tíð.
Guðrún segir að félagið reyni eftir
föngum að aðstoða þær sem eigi í erf-
iðleikum með að standa skil á afborg-
unum af lánum vegna íbúðakaupa, en
hinsvegar sé því ekki að leyna að kerf-
ið sé orðið mun strangara í innheimtu
en áður var.
Hún segir að fólki finnist það niður-
lægjandi að þurfa að biðja um aðstoð
handa sér og sínum og því leiti það
fyrst á skrifstofu síns stéttarfélags, áð-
ur en lengra er haldið. Þótt það sé
miklum erfiðleikum bundið að fram-
fleyta sér á atvinnuleysisbótum er
ástandið mun verra hjá þeim sem
detta út af atvinnuleysiskrá og eru því
án bóta næstu sex vikur.
Eina úrræði þessa fólks er að leita til
Félagsmálastofnunar en þar hefur bið-
tími eftir viðtali verið allt að þrjár vik-
ur. Að vísu mun vera ákveðið að fjölga
eitthvað í starfsliði stofnunarinnar
þannig að biðtími eftir viðtali mun
eitthvað styttast.
-grh
Um 700 fjölskyldur þegar leitað eftir og fengið að-
stoð hjá Mæðrastyrksnefnd:
Beiönum fjölgað
um 30% milli ára
,Já, mér finnst það vera áberandi meiri neyð núna heldur en við urðum var-
ar við í fyrra. Fjárhagurinn er slæmur hjá fólki. Það koma svo margir núna
sem misst hafa vinnu og það eru svo miklu fleiri beiðnir núna heldur en
voru í fyrra. Um hádegi í dag voru þegar komnar hingað um 700 beiðnir,
sem er um 30% fleira en í fyrra", sagði Unnur Jónasdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar.
Tíminn spurði hana hvemig starf-
semin hefði gengið undanfama
daga. Mæðrastyrksnefnd hefur getað
veitt öllum þessum fjölskyldum ein-
hverja fjárhagsaðstoð. Þar við bæt-
ast svo mörg hundmð manns sem
einungis hafi fengið föt.
Ljóst virðist að vel á þriðja þúsund
manns a.m.k. standi að baki þeim
beiðnum sem Mæðrastyrksnefnd
hefur fengið fyrir þessi jól. Meðal
umsækjenda segir Unnur t.d. konur
með allt upp í fjögur og fimm böm.
Bæði sé um að ræða einstæðar
mæður og t.d. konur sem eiga menn
sem misst hafa vinnuna. Einnig full-
orðnar konur með börn sín og
barnabörn á heimilinu.
Spurð um hvernig það hafi gengið
að afla þess sem til þurfi að liðsinna
þeim sem leita til nefndarinnar
sagði Unnur: „Þetta hefur verið
heldur dræmt framan af. En þetta
glæddist heldur í gær og núna síð-
ustu daga — margir hafa komið
með mat, peninga og allt mögulegt,
m.a. mörg jólatré. Einnig hefur
komið geysimikið af góðum fötum.
Ég vil biðja Tímann að koma kærum
þökkum til allra sem veitt hafa okk-
ur aðstoð", sagði Unnur.
- HEI
I „Viltu vel kæsta skötu?“, purði Magnús Sigurðsson fisksali þau Ingi-
- björgu Ólafsdóttur og Hrafn Þórðarson í gær. Þau vildu aðeins vestfirska skötu og vel kæsta. Bú-
ast má við að skötuilminn leggi fyrir vit margra í dag þar sem sú hefð, að borða skötu á Þorláks-
' ; messu, virðist frekar fara vaxandi en hitt. Timamynd Ami Bjama.
mm^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
NeyðarÞjónusfa
um nætur o& hetóar
HAUKUR&
rafverktakar "TT1 |
Uið bióðum neyðarÞiónusfu fyrir raf-
maansviðeerðir í heimahúsum oa í fyrirtækj-
um á höfuðboraarsvæðinu.
Sú Þiónusta sem í boði er tekur til allra
bilana stórra oa smárra.
I stærri bilunum er Þó miðað við að um
bráðabiraðaviðaerð verði að ræða, en endan-
lea viðaerð fari fram á daavinnutíma.