Tíminn - 23.12.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 23. desember 1992
Óvissa ríkir um hvenær afgreiðslu EES-samningsins verður lokið:
Umræður um EES verð-
ur framhaldið 4. janúar
Stjóm og stjómarandstaða náðu í fyrrinótt samkomulagi um að fresta fram
yfir áramót afgreiðslu EES- samningsins, sjávarútvegssamningsins við EB
og lánsfjárlög. Þing mun koma saman að nýju 4. janúar og taka þessi mál
til umræðu. Óvissa ríkir hins vegar um hvenær afgreiðslu þeirra lýkur, en
stjómvöld leggja áherslu á að það verði fyrir 10. janúar. Þingmenn fóm í
jólaleyfi í gær eftir að hafa samþykkt fjárlög, framvarp um skattamál og
fleiri mál.
Utanríkisráðherra var ekki ánægður
með það samkomulag sem gert var.
Hann hafði lagt mikla áherslu á að
ljúka afgreiðslu EES-málsins fyrir ára-
mót. Ljóst hefur verið í nokkra daga
að ekki ynnist tími til að Ijúka af-
greiðslu þessa stóra máls og annarra
mikilvægra mála á sviði ríkisfjármála
á þeim tíma. Stjómarliðar buðu því að
fresta endanlegri afgreiðslu fram yfir
áramót. Upphaflega var rætt um að
þingfundir yrðu haldnir milli jóla og
nýárs, en fallið var frá því. Ekkert ligg-
ur hins vegar fyrir hvenær umræðum
lýkur um EES- samninginn. Annarri
umræðu um samninginn er ólokið og
þriðja umræða er eftir. Sjávarútvegs-
samningurinn á eftir að fara í gegn
um eina umræðu og lánsfjárlög gegn
um tvær umræður.
Þingfundum var frestað síðdegis í
gær. Áður en þingmenn fóru í jólafrí
samþykktu þeir fjárlög, breytingu á al-
mannatryggingum, breytingu á
skattamálum, breytingu á kjaradómi
og breytingu á lögum um framleiðslu
og sölu búvara. Fjárlög voru samþykkt
með 6,2 milljarða halla. -EÓ
r Jólaveðrið:
Eljagang-
urog
hvassviðri
Búist er við suðvestanátt á
landinu í dag, hvassviðri með
storméljum á suðvesturhom-
inu. Nokkuð bjart verður um
landið norðanvert.
Á morgun aðfangadag er spáð
hægari vestanátt og áfram-
haldandi éljum Vestanlands en
hvasst verður annars staðar á
landinu en úrkomulaust. Bú-
ast má við að léttskýjað verði á
Austur- og Norðausturlandi.
Á jóladag er búist við hægri
vestlægri átt Vestanlands fram
eftir degi með éljum en létt-
skýjuðu annarstaðar. Síðdegis
er búist við rigningu sunnan
og vestanlands í kjölfarið á
vaxandi sunnanátt.
Formaður Samtaka fiskvinnslustöðva telur að kom-
andi kjaraviðræður verði erfiðar. Skattahækkanir rík-
isstjórnar fara illa í almenning:
Það ólgar í fólki
og það er reitt
Amar Sigmundsson formaður Samtaka fískvinnslustöðva segir að það sé
ólga í fólki og það sé reitt úr í skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Hann spá-
ir því að komandi kjaraviðræður aðila vinnumarkaðarins, verði mjög erfíðar
en áréttar að fískvinnslan hafí enga möguleika til að taka á sig kostnaðar-
í kvöld má búast viö að flest af um 35.000 jólatrjám landsmanna verði komin inn í stofur. Þá er eins
gott að vita hvernig á að bera sig að svo tréð haldi Ijóma sínum yfir hátíöirnar. Best er að saga 2 til 3
sm þykka sneið neðan af stofni trésins. Þá á að stinga honum strax ofan í vatnsfötu eða baöker. Þar
er tréð látið standa í 2 til 24 klst. og drekkur mikið í fyrstu til að bæta sér upp vökvatap frá því það var
höggvið. Þegar tréð er komið á jólatrésfót þarf að gæta þess að bæta vatni á kvölds og morgna. Verði
tréð vatnslaust missir það fljótlega hæfileikann til drekka. Þá á að gæta þess að tréð standi ekki upp
Við miðstöðvaro. Mynd Ámi Bjama
Stærsti frystitogari landsins kom til heimahafnar á Skagaströnd í
Dýrasta jólagjöfin í ár
Stærsti frystitogari landsins, Amar HU, kom til heimahafnar á Skagaströnd
í gær og ráðgert er að skipið fari í sína fyrstu veiðiferð að kveldi þriðja í jól-
um og inn aftur á gamlársdag. Skipið kostaði um einn milljarð króna
hækkanir á næsta ári.
Formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva segir að það sem einkum fari
illa í fólk sé hækkaður húshitunar-
kostnaður og hversu ójafnt hann
kemur við fólk eftir landshlutum.
Þá sé ólga í fólki vegna hækkunar á
bensínverði en síðast en ekki síst
hefur almenningur ekki enn sann-
færst um að afnám aðstöðugjalds-
ins muni skila því einhverri kjara-
bót í lækkuðu vöruverði.
Samkvæmt áætlun Þjóðhags-
stofnunar frá því í haust, var gert
ráð fyrir því að halli á rekstri sjávar-
útvegsins á næsta ári yrði um 5-6
milljarðar króna. En vegna aðgerða
ríkisstjórnarinnar, en þó sérstak-
lega vegna 6% gengislækkunar
krónunnar, er viðbúið að hallinn
verði helmingi minni en ráð var
fyrir gert, eða 2-3 milljarðar króna
sem skiptist að nokkru til helminga
á vinnslu og veiðar.
Arnar Sigmundsson segir aö fisk-
vinnslan hafi enga möguleika til að
mæta kostnaðarhækkunum á
næsta ári, hvorki í hráefnisverði,
orkukostnaði eða í vinnulaunum.
Hann segir að miðað við óbreytta
stöðu fiskvinnslunnar sé það sama
upp á teningnum hvað varðar fyrir-
hugaða gjaldtöku vegna Þróunar-
sjóðs sjávarútvegsins sem verður
væntanlega fjármagnaður með
gjaldi á fiskiskip og fiskvinnslufyr-
irtæki frá og með kvótaárinu 1996-
1997. En gert er ráð fyrir að gjald
fiskvinnslunnar til sjóðsins verði
um 70 milljónir króna og annað
eins frá útgerðinni.
„Eins og staðan er um þessar
mundir þá getur fiskvinnslan ekki
tekið á sig eitt eða neitt. Hins vegar
höfum við ekki flautað af sjálfa hug-
myndina sem liggur að baki stofn-
un sjóðsins og munum fylgjast
grannt með þróun þessa máls á
næstu vikum“, segir Arnar Sig-
mundsson formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva. -grh
Hinn nýji frystitogari er rúmar
2300 tonn að stærð, 66 metrar á
lengdina og 14 á breidd. Arnar HU
getur unnið allt að 47 tonn af fryst-
um flökum á sólarhring sem er mun
meira en stærstu frystihús landsins
geta. í áhöfn skipsins verða 24 menn
en skipstjóri er Guðjón Sigtryggs-
son. Skipið var afhent í Mjellem &
Karlsen skipasmíðastöðinni í Berg-
en í Noregi sl. föstudag og kostar
rétt um einn milljarð króna. Búið er
að leggja ísfisktogaranum Amari
HU 1 og er hann kominn á söluskrá
en fyrir er frystitogarinn Örvar sem
var smíðaður á Akureyri og var fyrsti
frystitogari Iandsins. Skipverjar á
Arnari fara flestir yfir á nýja skipið
og þeir sem voru á Arnari yfir á Örv-
ar.
Eins og kunnugt er þá var öllu
starfsfólki frystihússins Hólaness hf.
sagt upp störfum og koma þær upp-
sagnir til framkvæmda um áramót-
in. Því til viðbótar var starfsfólki
rækjuvinnslunnar sagt upp þann 12.
desember sl. þangað til rækju-
vinnsla hefst á ný eftir áramótin.
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmda-
stjóri Skagstrendings hf. segir að
ekki sé vitað fyrir víst hvað muni
taki við í frystihúsinu eftir áramót
en unnið sé að útvegun hráefnis til
vinnslu í landi. Hann segir að rekst-
ur nýja skipsins muni alfarið ráðast
Stjórn Sérfræðingafélags lækna:
Varað við til-
vísunarkerfi
Stjóm Sérfræðingafélags lækna var-
ar stjómvöld við að endurvekja tilvís-
unarkerfið og telur að það verði dýrara
en núverandi kerfi.
Þetta kemur fram í frétt frá félaginu.
Sagt er að núverandi kerfi sé af mörg-
um talið það besta sem völ er á, með
góðu aðgengi að læknum. Þessu til
viðbótar er bent á að það séu mann-
réttindi að fólki sé frjálst að velja sér
þann lækni sem það treystir best.
Þá kemur fram það álit að tilvísunar-
kerfið leiði til tvíverknaðar þ.e. að
bæði sé leitað til heimilislæknis og
sérfræðings. Þetta er talið leiða til
aukins kostnaðar þar sem koma til
heimilislæknis sé ekki ódýrari en
koma til sérfræðinga. -HÞ
af aflabrögðum en hinu sé ekki að
leyna að reksturinn geti orðið erfið-
ur ef þau glæðast ekki frá því sem
verið hefur. -grh
Ketkrókur
í dag er Þorláksmessa og þá
kemur Ketkrókur til byggða.
Ketkrókur notar krókinn sinn
til að ná sér í hangikjöt upp úr
strompunum. Ketkrókur mun
koma við á Þjóðminjasafni ís-
lands í Reykjavík í dag kl.
Bæjarstjórn Kópavogs mótmælir harðlega
álögum ríkisstjórnarinnar:
Ríkisvaldió að brjóta
nýgert samkomulag
Bæjarstjóm Kópavogs hefur samþykkt ályktun þar sern harðlcga er
mótmælt sfendurteknum álögum sem ríkísvaldið veltír yfir á svcitarfé-
lögln í landinu. Bæjarstjómin telur að samkomulag sem gert var í
október milli ríkis og sveitarfélaga um að ekkl verði gerðar tneiri hátt-
ar breytingar á fjárniálalegum samskiptum aðila nema að höfðu sam-
ráði þéirra á miUi, hafi verið grófiega brotið.
„Þær aðgerðir sem stjórnvöld það að sveitarfélögunum sé stlað
hafa boðað að undanfðrnu munu að taka á sig auldn verkefní án þess
hafa mildl áhrif á fjárhag sveitarfé- að tckjustofnar fylgi með.“
Iaganna. í því sambandi nægir að Bæjarstjórnln minnír jafnframt á
nefna upptöku vhðisaukaskatts af að ríkissjóður skuldi Kópavogsbæ
orku og samgöngum, skerðíngu á á Qórða hundrað milljónir króna
Lánasjóði sveitarfélaga, afnáms að- vegna sameiginlegra verkefna.
stöðugjalds án sambærilegra bóta „Það er skýlaus krafa Bæjarstjóm-
og fyrirsjáanlega skerðingu á Jöfn- ar Kópavogs að þessar skutdir
unarsjóði, sem þó snertir Kópavog verðí að fullu gcrðar upp áður en
Utið en kemur Ula við minni sveít- fleiri reikningar verða sendir úr
arfélögin f landinu. stjómarráðinu tíl Kópavogskaup-
Bæjarstjóm Kópavog* átelur staðar,“ segir í ályktuninni.
þessi vinnubrögð og sérstaldega -EÓ