Tíminn - 23.12.1992, Side 3
Miðvikudagur 23. desember 1992
Tíminn 3
Kristín Einarsdóttir, formaður Samstöðu um óháð ísland:
Efast um að EB
sætti sig við
bókun við EES
Kristín Einarsdóttir, alþingismaður og formaður Samstöðu um óháð ís-
land, segir að óvissan um afdrif EES hafi aukist frá því sem áður var við
fundi ráðherraráðs EB í fyrradag. Hún sagðist hafa efasemdir um að EB,
ekki síst Spánverjar, sætti sig við að breytingar á EES- samningnum verði
afgreiddar með bókun eins og talað hefur verið um að gera.
Eftir að ráðherraráð EB ákvað að
gefa framkvæmdastjóm EB ekki um-
boð til að ganga til samninga við
EFTA- ríkin um breytingar á EES-
samningnum er líklegast að ekki
verði boðað til formlegrar ráðstefnu
ráðherra EB og EFTA um málið í
janúar. Aðalsamningamenn og emb-
ættismenn samningsaðila munu
vinna að bókun í janúar sem lögð
verður fyrir ráðherraráð EB í febrúar.
Ef fundurinn lýsir sig samþykkan
bókuninni, verður boðað til ráðherra-
fundar EB og EFTA í febrúar þar sem
formlega verður gengið frá málinu.
Kristín sagði að EFTA væri ekki í
sterkri stöðu til að sækja um að fram-
lag Sviss í þróunarsjóðinn falli niður
nú þegar fýrir liggur að Sviss verður
ekki aðili að EES. í samningum
EFTA-ríkja við EB sé aðeins getið um
eina tölu sem sé framlag EFTA-ríkj-
anna í þróunarsjóðinn. Það sé síðan
samkomulagsatriði milli EFTA- ríkj-
anna hvemig þau skipta þessari upp-
hæð á milli sín. Kristín sagði að ef
EFTA fari fram á að þessari tölu verði
breytt geti það leitt til þess að kröfur
komi fram um að samið verði upp á
nýtt um fleiri þætti samningsins.
Hún sagði að ef viðræðumar um
breytingar á EES dragist mjög á lang-
inn og ef þær fjalli um marga þætti
samningsins, þá aukist líkur á að EB
fari að leggja meiri þunga í viðræð-
urnar um beina aðild EFTA- ríkjanna
að EB, þ.e.a.s. þeirra sem sótt hafa
um aðild. Ekki sé hægt að útiloka
þann möguleika að EES- samningur-
inn verði hreinlega lagður til hliðar.
Það væri erfitt að meta stöðu málsins.
Staðan myndi tæplega skýrast fyrr en
í febrúar þegar ráðherraráð EB kem-
ur saman.
Snemma á næsta ári hefjast viðræð-
ur milli Svíþjóðar, Finnlands og Aust-
urríkis annars vegar og EB hins veg-
ar, um aðild þessara ríkja að EB.
„Þessar viðræður gætu truflað við-
ræðumar um breytingar á EES-
samningnum. Það er augljóst að þær
ríkisstjómir sem em komnar í aðild-
arviðræður munu verða fljótar að
gefa allt eftir í viðræðunum um EES.
Þetta þýðir að staða okkar versnar
enn og hefur hún verið nægilega
slæm fyrir“, sagði Kristín. -EÓ
Yerðlaun veitt úr Minningarsjóði
Þorvaldar Finnbogasonar
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir afhenti nýlega verðlaun úr
Minningarsjóði Þorvaldar Finn-
bogasonar. Verðlaunahafinn að
þessu sinni er Agni Ásgeirsson,
námsmaður á 4. ári í Verkfræðideild
Háskóla íslands. Viðstaddir verð-
launaafhendinguna vom m.a. Þor-
steinn Helgason, forseti Verkfræði-
deildar, og Sveinbjörn Bjömsson há-
skólarektor.
Hjónin Sigríður Eiríksdóttir og
Finnbogi Rútur Þorvaldsson, verk-
fræðingur og prófessor, stofnuðu
sjóðinn til minningar um son sinn
Þorvald, sem fórst ungur af slysför-
um. Árlega er nemanda úr Verk-
fræðideild Háskóla íslands veitt við-
urkenning úr sjóðnum fyrir frábær-
an námsárangur.
(Tímamynd Árn! Bjama)
Jóla-
kross-
gáta
Til öryggis þykir rétt að undir-
strika að aðeins ein peninga-
verðlaun verða veitt í Jóla-
krossgátu Tímans sem kom í
Jólablaðinu í gær. Orðalag með
gátunni virðist hafa verið
nokkuð óskýrt og valdið mis-
skilningi.
Verkfræðingar og iðnaðarmenn:
Hafa áhyggjur af
framtíð menntunar
„Stjóm Verkfræðingafélags íslands lýsir áhyggjum sínum vegna samdráttar í
fjárveitingum til Verkfræðingadeildar Háskólans og Iðnskólans í Reykjavík."
Þetta kemur fram í ályktun frá félag-
inu. Þar segir og að án vel menntaðra
verkfræðinga og iðnaðarmanna sé
verklegum framkvæmdum framtíðar-
innar teflt í tvísýnu.
Sagt er að stefna eigi að því að hlúa
svo að Verkfræðideild Háskólans að
hún verði í fremstu röð verkfræðihá-
skóla. Óttast stjómin um þetta mark-
mið þegar fjárveitingar eru skertar. Þá
segir að þar sem þrengt hafi verið að
Iðnskólanum í Reykjavík hafi endur-
nýjun tækjakosts verið lítil.
Bent er á að með þátttöku í EES sé
enn meiri ástæða en áður til að
menntun íslendinga sé jafhgild
menntun annarra þjóða.
-HÞ
MERKISMENN HF