Tíminn - 23.12.1992, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR
# i«
• I • I •
& 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
Sjómannafélagið Jötunn i
Eyjum segir upp kjara-
samningi og samþykkir
heimild tii verkfalls:
Fordæmir
fiskveiði-
samninginn
Á félagsfundi Sjómannafélagsins
Jötuns í Vest mannaeyjum, var
samjjykkt að segja upp gildandi
kjarasamningi þannig aö samn-
Ingar verði lausír þann 1. febrúar
n.k. Jafnframt samþykkti fundur-
inn verkfallsheimild til handa
stjóm og trúnaðannannaráði.
í ályktun fundaríns er harðlega
mótmælt árásum ríkisstjómar 6
kjör sjómanna og annarra launa-
manna með hækkunum beinna
sem óbeinna skatta.
Jafnframt krefst fundurinn þess
að öUum samningum viö útlend-
inga um veiðiheimiidir í íslenskri
fískveiðilögsögu verði sagt upp.
Þá fordæmir fundurinn samning
þann sem gerður var við Evrópu-
bandalagið í nóvember sl. um
vciðiheimildir EB- ríkja í íslcnskri
fiskveiðilögsögu. Að mati fundar-
ins er þaö með öllu óskiljardegt að
íslendingar sknli gera slíka samn-
inga á sama tíma og veríð sé að
stórskerða veiðiheimQdir íslend-
inga í eigin fiskveiöiiögsögu.
-grh
NÝTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
Bílasala Kópavogs
Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi
SÍMI 642190
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
Iíminn
MIÐVIKUDAGUR 23. DES. 1992
FFSI skorar á ríkisstjórnina að draga aðgerðir sínar til baka ella séu þær ávísun á
víðtækar kjaradeilur:
Forseti FFSÍ mótmæl-
ir eigin ákvöröunum
Sameiginlegur fundur, stjórnar og formanna aðildarfélaga Far-
manna- og fiskimannasambands íslands, lýsir vanþóknun sinni á
aðgerðum ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum sem fela í sér stór-
skert kjör launafólks í landinu og kaílar á víðtækar kjaradeiiur með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum á næsta ári.
Fundurinn skorar á ríkisstjórnina
að draga þessar aðgerðir til baka og
taka upp almennt samráð við öll
landssamtök launafólks um raun-
hæfar aðgerðir sem stuðla að auk-
inni atvinnu sem jafnframt tryggir
afkomu heimilanna.
Þessi ályktun fundar FFSÍ er at-
hyglisverð m.a. fyrir þær sakir að
forseti FFSÍ, Guðjón A. Kristjáns-
son, situr á þingi sem varamaður
Matthíasar Bjarnasonar og hefur, að
því best er vitað, greitt atkvæði með
öllum tillögum ríkisstjómarinnar
sem fundur FFSÍ vill að dregnar
verði til baka.
Jafnframt ítrekaði fundurinn fyrri
samþykktir samtakanna að allur
fiskur sem seldur er innanlands
verði boðinn upp á fiskmörkuðum,
eða tengdur raunhæfu gangverði
fiskmarkaða. Þá fagnar Farmanna-
og fiskimannasambandið að um
næstu áramót taka gildi lög sem
kveða á um að fiskverð verði al-
mennt frjálst. Hins vegar Iýsa sam-
tökin yfir áhyggjum sínum yfir að
fyrirtæki í sjávarútvegi, sem stunda
bæði útgerð og vinnslu, komi til
með að ákveða fiskverð einhliða.
Þannig sé sjómönnum stórlega mis-
munað í tekjum, sem ákvarðast ann-
ars vegar af geðþótta fiskverkenda
við beina sölu á fiski til íiskvinnslu-
stöðva og hins vegar af verði sem
myndast í frjálsri samkeppni á fisk-
mörkuðum. -grh
Blómleg hljómplötusala í ár. Steinar hf.:
100 ÞÚSUND
EINTÖK SELD
Útgáfufynrtækið Steinar hf. náði þeim áfanga fyrír skömmu að selja 100
þúsundasta eintakið af íslenskri útgáfu sinni og er þetta annað árið í röð
sem fyrirtækið nær þessum árangrí.
Þessi árangur fyrirtæksins er at-
hyglisverður m.a. fyrir það að í ár
eru nýjar útgáfur þess aðeins níu en
voru helmingi fleiri á sama tíma í
fyrra.
Að mati fyrirtækisins er markaðs-
hlutdeild þess um tveir þriðju af
heildarsölunni sem áætluð er að
muni nema alls 150 þúsund eintök-
um, en fyrirtækið stefnir að selja
110 þúsund hljómplötur áður en ár-
ið er allt. -grh
Kuldaskil með tilheyrandi hvassviðri og rígningu gengu yfir landið í gærmorgun. Víða mynduðust
hálfgerð stöðuvötn á götum borgarinnar við stífluð niðurföll, eins og sjá má á myndinni. Mjög hvasst
var á Hellisheiöi og mikil hálka. Tveir stórir bílar runnu þar út af, annar í Þrengslum en hinn í Hvera-
dalabrekku. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var vindasamast í svokallaðri Draugahlíð sem er á móts
við Litlu kaffistofuna. Þar var bifreið með aðra í togi á ferð og slitnaði sú frá og rann niður brekkuna
en mun ekki hafa skemmst. Að sögn veðurfræðings komst vindur þar upp í allt að 12 vindstig í verstu
hviðunum. Innanlandsflug lá víðast niðri fram yfir hádegi í gær.
...ERLENDAR FRÉTTIR...
MOSKVA
Ráöherrar hætta
Utanrikisviðskiptaráöherra Rússlands,
Pyotr Aven, sagði af sér í gær og fréttir
Interfax fréttastofunnar hermdu að að-
stoöarforsætisráðherramir Alexander
Shokhin og Georgy Khizha ætluðu ekki
aö þjóna i rikisstjóm undir forsæti hins
afturhaldssama nýja forsætisráöherra
Viktors Tsémomyrdin.
MOSKVA
Leiötogafundi frestað
Fundi leiötoga Samveldis sjálfstæöra
rikja veröur frestaö vegna veikinda for-
seta Rússlands og Kazahkhstan, til-
kynnti rússneskur talsmaöur á blaöa-
mannafundi i gær.
MARJ AZ-ZOHOUR, Libanon
Skothríð og kuidi hrekja
Palestínumenn í tjaldbúð-
ir
Iskuldi og sprengiregn neyddu 400 PaF
estínumenn sem Israelar hafa visaö úr
landi, til aö leita aftur skjóls i tjaldbúöum
i einskismannslandi Suöur-Líbanon.
IAMMAN
Hamas krefst alþjóðlegr-
ar verndar
Islamska andspymuhreyfingin Hamas
kraföist þess I gær aö Palestinumenrv
imir sem fá ekki aö fara leiöar sinnar I
Suður-Líbanon, fái alþjóölega vemd.
Hamas sakar íslömsk ríki og riki Araba
um aö sýna veik viöbrögö viö brott-
rekstri mannanna frá Israel.
BELGRAD
Milosevics virðist sigur-
vegari
Harölinumanninum Slobodan Miiosevic
Serbiuforseta virtist i gær sigurinn vis i
kosningum sem ráöa úrslitum um ,striö
eöa friö' en hófsami áskorandinn Milan
Panic sakaöi hann um kosningasvik og
heimtaöi aö nýjar kosningar færu fram.
SPLIT, í Króatiu
Major heilsar upp á her-
menn
Breski forsætisráöherrann John Major
om I gær i óvænta jólaheimsókn til
nokkuma af 2.400 breskum hermönnum
sem verja neyöarhjálparflutninga Sam-
einuöu þjóöanna í Bosniu.
MOGADISHU
Jólasókn
Um 1.000 bandariskir landgönguliöar
og franskir hennenn stefndu i gær til af-
skekktari byggöa Sómaliu I mikilli jóla-
sókn sem á aö færa .Vonarendurreisn'
til Bardere og þriggja annana hungur-
bæja þar sem allt er I ringulreiö.
BRUSSEL
Útdeila embættum öllum
til hæfis
Hin nýja framkvæmdastjóm EB kom sér
í gær saman um flókna útdeilingu emb-
ætta sem ætlað er aö gera til hæfis fjöl-
mörgum pólitiskum þungaviktaraöilum
sem ganga til liös viö framkvæmdageira
EB frá og með 1. janúar.
FARO, Portúgal
Eftirlifendur snúa heim
Þeir sem liföu af slysiö, þegar hollensk
flugvél brotlenti i Suöur- Portúgal, sneru
heimleiöis i gær meöan rannsóknar-
menn halda áfram aö bera kennsl á
brunnar likamsleifar þeina 54 jólaleyfis-
fara sem létu lifiö.
NÝJA DELHI
Vilja kosningar fljótt
Hindúiski þjóöemisflokkurinn, Bharatiya
Janata, ætlar aö reka Indland sem er
hrjáö erflöleikum til kosninga hiö fyrsta,
aö því er forystumenn flokksins sögðu i
gær.
JÓHANNESARBORG
Reiöir suóuríafrískir
bændur
Reiöir suöur-afriskir bændur geröu hróp
að ráöhenum ríkisstjómarinnar og pú-
uöu á þá á neyöarfundi vegna árása á
hvita i fririkinu Orange.
DENNI DÆMALAUSI
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmamm^ammamm
ip-NAS/D.sn BUUS
„Hérna geymi ég safnið aföllu því sem ég finn und-
ir steinum. “