Tíminn - 29.12.1992, Qupperneq 4

Tíminn - 29.12.1992, Qupperneq 4
4 Tíminn Þriðjudagur 29. desember 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Jákvæð teikn í desemberhefti fréttabréfs Félags íslenskra iðnrek- enda kemur fram að störfum hefur fækkað í almenn- um iðnaði um 5.5% milli ára. Þetta eru uggvænleg tíðindi, því ef þessari prósentutölu er breytt í störf þá er hér um atvinnu 1200 manna að ræða. Þetta segir sína sögu um þá varnarbaráttu sem atvinnuvegir landsmanna heyja um þessar mundir. í þessari slæmu frétt leynist þó von. Hún felst í því að þrátt fyrir almennan samdrátt í iðnaði hafa um- svif neysluvöruiðnaðar hérlendis vaxið á síðustu mánuðum ársins. Hér er einkum um að ræða mat- vælaiðnað og efnavöruiðnað, þótt umskiptin séu ekki eins greinileg í hinum síðarnefnda. í fréttabréfinu er sú skoðun látin í ljós að Hér sé um að ræða greinileg áhrif frá auglýsingaherferð sam- taka iðnaðarins og launþegahreyfinganna í landinu að kaupa innlenda vöru fremur en erlenda. Þessi umskipti sýna það að hver og einn getur lagt lóð sitt á vogarskálina til þess að halda uppi atvinnu- starfsemi og veltu í landinu. Hvert starf í iðnaði hef- ur áhrif í öðrum greinum. Sívakandi hugsun og gagnger hugarfarsbreyting er nauðsynleg í þessum efnum. Það er alveg ljóst að nú um sinn hefur al- menningur verið of tómlátur við að standa vörð um íslenska framleiðslu með kaupum á henni. Það getur skipt mjög miklu máli fyrir atvinnu fjölda manna hvort sú þróun sem sér merki um í iðnaðinum á síðustu mánuðum ársins, verður var- anleg. Það er auðvelt að halda henni við, en spurn- ingin er hvort landsmönnum endist úthald til þess án stöðugra auglýsingaherferða. Hvað þurfa þær herferðir að vera öflugar til þess að hafa varanleg áhrif? Hvað þarf að kreppa mikið að til þess að varan- leg hugarfarsbreyting verði, og fólk hafi það framar öðru í huga að hlúa að innlendri framleiðslu á þann einfalda hátt að kaupa hana. Þetta eru brennandi spumingar sem skipta miklu máli, en þeim verður ekki svarað á þessari stundu. Það skiptir hins vegar afar miklu máli að þjóðin standi saman um sína framleiðslu ekki aðeins þegar sverfur að og auglýsingaherferðir fara fram, heldur alltaf. Innlend framleiðsla er í flestum greinum sam- keppnisfær um verð og gæði, og stundum rúmlega það. Samdrátturinn í trjávöruiðnaði er ískyggilegur eins og kemur fram í áðurnefndu fréttabréfi. Þessi iðn- grein sem var tiltölulega öflug og veitti fjölmörgum atvinnu heldur áfram að dragast saman. Þeir sem þurfa að kaupa þessar vörur verða að gæta sérstak- lega að því hvort innlend framleiðsla geti ekki allt eins fullnægt þörfum þeirra eins og erlend og hvort viðskipti við innlenda aðila borga sig ekki þegar allt er talið. Það er afar þýðingarmikið fýrir atvinnulíf lands- manna að almennur iðnaður geti þrifist. Vonandi verður niðurfelling aðstöðugjalds til þess að iðnfyr- irtæki geti fremur sótt fram en ella. Til þess að svo megi verða, verður sá litli heimamarkaður sem hér er fyrir hendi að nýtast mjög vel. í því efni er það hugarfarið sem skiptir mestu máli. Héraösfréttablööin hafa aö und- anfömu komið út í jólabúningi og í morg þeirra hefur augijóslega verið miláð lagt I Tímanum birt- ast reglulega glefsur úr þessum blöðum sem eru til vitnis um að stjómendur blaðsins eru á þeirri skoðun að héraðsfréttablöð séu mikil menningarblöð og margt í þeim eigi erindi út fyrir það hérað þar sem þau eru gefin út Garri er sammála stjómendum Tímans um gildi þessara hlaða en hefði gjaman viljað að Tíminn ein- skorðaði sig ekki við aó birta frétt- ir úr þessum blööum heldur léti fljóta meö eitthvað af pólitískum skrifum blaðanna sem oft eru stórkostleg, engu að síður sínar meiningar, Það fer ekki hjá því að ríkisstjóm- in og þó sérstaklega Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, fái nokkuð beitta jólakveðju í jóla- útgáfu Vestfirska. Vestfirska fréttablaðið prentar sögu um Jón Baldvin, sem blaðamaðurinn (og kratinn?) Gísli Hjartarson, segir að margir ísfirðingar þefcki enda hafi húo gengið manna á meðal í Svo bar við......... Sagan er svona: „Hinn 21. dag febrúarmánaðar, á því herrans ári 1939, þegar Her- mann Jónasson ríkti á íslandi og Gnðmundur Hagalín á ísafirði, fæddist mikiU leiðtogi í Alþýðnhús- inu á ísafirði. Var hann vafinn reif- um og Jagður í vöggu. í þeirrí byggð var Hagalín ab lesa upp úr verkum sínum fyrir flofcks- menn. Og engill Flokksins stóð hjá þeim og dýrð Flokksins ijómaði t kringum þá. Þeir urðu mjög hraedd- ir en engillinn sagði við þá: „Yður er í dag leiðtogi fæddur, sem er Jón Baldvin, íbyggð Hagalíns. Og hafið þetta tll marks: Þér munið finna Og Ofriðarhöfðingi fæðist dag febr Hermann Jónassoj firði, fæddist niij vafinn reifum og í þeirri býggð ý flokksmenn. Og erij ljómaði í kringum við þá: „Yðtir er í byggð Hagalí barn reit'y Sólveiggj sáu það, þetta þeim Peá í herrans ári 1939, þegar "uðmundur Hagalín á Isa- úsinu á l.safirði. Var hann úr verkum sínum fyrir ija þeim og dýrð Flokksins Ihræddir en engillinn sagði er Jón Baldvin, í finna ung- og fundU gar þeir þm barn SÖgðll mörgum gerðum, en þetta sé í fyrsta slnn sem sagan er prentuð. Garrl getur ektó stillt sig um að HHH birfa þessa sögu sem birtíst undir Eitt þessara blaða erVestfirska yfirstórftinni „Nýjar vestfirskar ungbamreifaðog lagtívöggu. „ fréttablaðið, en þó blaðið sé óháð þjóðsögur - ÓFRIÐARHÖFÐ- þeir foru með skyndi og fundu Sól- stjórnmálaflokkum hefur það INGI FÆÐIST“. veigu og Hannibal og ungbamið sem lá í vöggu. Þegar þeir sá það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um bam þefia. Og állir, sem heyrðu, undruðust það, er flokksmenn sögðu þeim. Þcgar baraið var fætt komu þrír vitleysingar utan af Austurveginum og fylgdu sljörau leiðtogans er þeh sáu renna upp og voru koranir til að veita honum lotningu. Stjaman fór fyrir þeim, uns hana bar yfir Al- þýðuhúsið, þar sem baraíð var. Þeir gengu inn í húsið og sáu baraxð og móður þess, féllu fram og veittu því iotningu. Síðan luku þeir upp hirsl- um sínum og færðu því gjafir, bull, ergeisi og firru. Áður en árið 1939 var úti var skollin á heimssfytjöld og hefur jafnan verið ófriðvænlegt í veröld- innl síðan.“ Þanníg hljóðaði jólasagan hjá Vest- firska fréttablaðinu sem er orðin að mitóh’ægum hluta af safninu „vest- firskar þjóðsögur". Garri Ríkisrekinn kolkrabbi Rétt fyrir jólin felldi Alþingi með jöfnum atkvæðum tillögu um að ríkið greiddi fyrir örfá eintök af dagblöðum sem send yrðu í nokkr- ar ríkisreknar stofnanir. Það er mjög eðlilegt að slík tillaga sé felld. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins voru t.d. allir á móti, en stofnan- irnar borga hvort sem er fyrir Morgunblaðið og ættu upplýsingar úr því að duga. Þá er þess að gæta að Ólafur G. menntamálaráðherra er æðsti yfir- maður langöflugustu auglýsingar- dreifingar landsins og eins og sæmir í þjóðfélagi miðstýringar og einokunar, er auglýsingadreifingin ríkisrekin og heyrir undir mennta- málaráðuneytið. Fjármálaráðuneytið kemur einn- ig við sögu með því að leggja bless- un guðs og sína yfir að Ríkisút- varpinu sé leyfð sérstök skatt- heimta sem löggjafarsamkundan helgar með því að ríkisstofnunin fær að leggja sérstakan nefskatt á alla landsmenn. Fjármálastjóri Ríkisútvarpsins þarf engar áhyggjur aö hafa af inn- heimtu skattsins, fremur en opin- berar gjaldheimtur, því lögfræðif- irma sem er í sérstakri náð yfir- valdanna, er afhent einkaleyfi til að innheimta skattinn og refsa þeim sem múðra. Dónalegasta auglýsing sem Ríkis- sjónvarpið sýnir fyrr og síðar er leikrit með stórskemmtilegum skemmtikrafti, sem er að snuðra með einhvers konar leitartæki inni á heimilum þegna ríkisvaldsins. Friðhelgi heimilanna er einskis metin þegar auglýsingadreifing ríkisins er annars vegar og hefur í hótunum að ryðjast inn í hús manna til að innsigla viðtæki sem skattur er ekki greiddur af. Ekki er upplýst hvort ríkiseinok- unin eða náðugir innheimtulög- fræðingar borga fyrir hrollvekj- una. Aðrir Ijósvakamiðlar kvarta held- ur aldrei yfir því að auglýsinga- dreifing ríkisins hafi heimild til að loka fyrir móttöku á þeirra efni vegna þess að nefskatturinn sé ekki greiddur. ÍVilt ogbfeittj Engu eirt Skattheimta Ríkisútvarpsins og yfirburðaaðstaða til að afla auglýs- ingatekna, gerir alla samkeppni nánast að fífldirfsku. En samt er verið að reyna. En af því að miðstjórnarvald rík- isins þolir ekki samkeppni, vernd- ar það kolkrabbann sinn í líf og blóð og heimilar 10% hækkun á nefskattinum eftir áramótin. Kolkrabbinn í fjölmiðlaheimin- um þolir enga starfsemi nærri sér og Ieggur sig í líma við að útrýma öllum keppinautum. Þegar Stöð 2 tók upp skjáauglýsingar, hermdi kolkrabbinn eftir. Þegar stöðin fór að lesa skjáauglýsingar upp, fór kolkrabbinn líka að lesa sínar. Stöð 2 hafði allt frumkvæði um barna- efni á morgnum um helgar og seldi áskrift grimmt út á það. Hug- myndasnauður og gráðugur kol- krabbinn er farinn að senda út barnaefni á sama tíma. Kolkrabbinn í fjölmiðlaheimin- um gín yfir öllu og fjölgar rásum og útsendingum, svo ekki sé talað um auglýsingatíma, í þeirri háleitu viðleitni sinni að þagga niður í allri annarri fjölmiðlun, og er ekk- ert til sparað í þeirri viðleitni. Ég er gull og gersemi Starfslið kolkrabbans hefur ein- staka aðstöðu til að auglýsa eigið ágæti og er ekki hógværðinni fyrir að fara þegar þegar sá gállinn er á bögubósunum. Skattgreiðendurn- ir eru heilaþvegnir sí og æ um hvað Stóri bróðir í Háaleitinu sé góður, gáfaður, snjall og útausandi fróðleik og menningu. Stóri bróðir gætir öryggis allra landsins barna, með því að geta einn dreift veður- fregnum og sagt fyrir um styrk jarðskjálfta eftir að þeir hafa riðið yfir. Kolkrabbi fjölmiðlunarinnar þarf alltaf meiri og meiri peninga vegna óendanlegrar útþenslustefnu sinn- ar, sem hvergi sér fyrir endann á. Því eru skattaálögunrnar á al- menning hækkaðar eftir óskum og ruðst er inn á æ fleiri svið auglýs- ingadreifingar. Stóri kolkrabbabróðir segist breiða svona ótæpilega úr sér af auðmjúkri þjónustulund og um- hyggju fyrir þeim sem borga brús- ann. Það eitt vakir fyrir honum að mennta, fræða og skemmta lýðn- um sem skaffar honum viðurvær- ið. Það er mjög mikilvægt fyrir ríkis- valdið að ráða yfir öflugum skemmtimiðli og túlka fréttir og innræta fólki kórréttar skoöanir á fortíð, nútíð og framtíð. Sam- keppni, á þessu sviði sem öðrum, er slæm fyrir kolkrabba og því verður að útrýma henni og gera alla aðra fjölmiðla óþarfa. Með góðum vilja ráðandi afla ætti það að takast og ríkisrekinn sann- leikurinn ríkja einn. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.