Tíminn - 29.12.1992, Síða 8
8 Tíminn
Þriöjudagur 29. desember 1992
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Sigrúnar Helgadóttur
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavtk
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deildar 14D á Landspitalanum,
fyrir frábæra hjúkrun og umönnun.
Björg Hjálmarsdóttir
Helgi Hjálmarsson.
Vilhjálmur Hjálmarsson
Lárus Hjálmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Reimar Charlesson
María Hreinsdóttir
Borghlldur Óskarsdóttir
r
Faðir okkar
J
Jóhannes Sveinbjörnsson,
Heiðarbæ, Þingvallasveit
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, miðvikudaginn 30. desember
kl. 13.30.
Sveinbjörn Jóhannesson,
Þórdís Jóhannesdóttir,
Sigrún Jóhannesdóttir,
Jóhanna Jóhannesdóttir.
Faðir okkar, tengdafaöir og afi
Anton Bjarnason
Málarameistari
lést I Landspítalanum 16. desember.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 29. desember
kl. 15.00.
Fyrir hönd annarra vandamanna
Guðmundur Antonsson
Þorsteinn Antonsson
Eygló Antonsdóttir
Grétar Antonsson
fvar Antonsson
J
Hjartans þakkir til allra er auösýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu og móður okkar, dóttur og systur
Önnu Hjálmarsdóttur
Varmalandi
Sérstakar þakkir til Svavars Stefánsssonar
Guömundur Finnsson
Hjálmar Sveinbjörnsson Elín María Sveinbjörnsdóttir
Friöberg H. Bergsson
María Hjálmarsdóttir
Konráð Hjálmarsson
Ragnhildur Hjálmarsdóttir
og fjölskyldur
Brynhildur Haraldsdóttir
Ingvi Rafn
Arndís Kristinsdóttir
Benedikt Sigurðsson
Astkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Óskar Matthíasson
Útgerðarmaöur,
Vestmannaseyjum
veröur jarðsunginn frá Landakirkju I Vestmannaeyjum laugardaginn
2. janúar kl. 11.00.
Þóra Sigurjónsdóttir
Matthías Óskarsson Ingibjörg Pétursdóttir
Sigurjón Óskarsson Siguríaug Alfreðsdóttir
Kristján Óskarsson Emma Pálsdóttir
Óskar Þór Óskarsson Sigurbjörg Heigadóttir
Leó Óskarsson Kristín Haraldsdóttir
Þórunn Óskarsdóttir Sigurður Hjartarsson
Ingibergur Óskarsson Margrét Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnaböm
Fyrsta barnabók
Einars Más
Út er komin hjá Almenna bókafélag-
inu bamabókin Fólkið í steinunum
eftir Einar Má Guðmundsson. Þetta
er fyrsta bamabókin sem Einar send-
ir frá sér — ævintýri sem gerist í um-
hverfi sem minnir á Reykjavík.
Ævintýrið gerist rétt utan við borg-
ina, í holtunum þar sem hellamir og
stóm steinamir vom. Þetta var leik-
svæði bamanna, þau reistu þar húsin
sín og undu sér þar. Og þau vissu að
það bjó fólk í steinunum, fólk sem oft
hjálpaði þeim við að byggja húsin og
smíða leikföngin.
„Fólkið í steinunum" er 30 bls. með
litmyndir eftir Erlu Sigurðardóttur á
hverri síðu. Hún er prentuð í Prent-
smiðju Áma Valdemarssonar.
Þýskar bernsku-
minningar
Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins
hefur sent frá sér bókina Þorpið ynd-
islega eftir þýska höfundinn Sieg-
fried Lenz. Þetta er fjórða bókin sem
klúbburinn gefur út eftir þennan höf-
und, en hann er einn af stórhöfund-
um Þýskalands nú, fæddur 1926.
Aðrar bækur Lenz á íslensku em Al-
mannarómur, Vitaskipið og Kafar-
inn.
Bókin er kynnt af útgáfunni á þessa
leið:
„Þorpið yndislega er bemskuþorp
Siegfrieds Lenz, þó að nöfnum sé
breytt. Auk afar eftirminnilegra per-
sóna er það sál þessa þorps, aðlað-
andi og brosleg í þessari kímilegu
frásögn, sem heillar okkur. Þó að per-
sónumar séu dýrlegar, em þetta ekki
neinir dýrlingar, en þær em umfram
ailt skemmtilegar, sumir spekingar á
sína vísu, aðrir ekki...."
„Þorpið yndislega er 174 bls. með
myndum eftir þýskan teiknara, Erich
Behrendt. Setningu og umbrot hefur
annast Útgáfuþjónustan Rita og
prentun Prentsmiðjan Oddi.
Annáll veiðiársins
1992
Út er komin hjá ísafold Stangaveiðin
1992, en þetta er fimmta árið sem
Stangaveiðin kemur út. Höfimdar
em sem fyrr þeir Guðmundur Guð-
jónsson, blaðamaður hjá Morgun-
blaðinu, og Gunnar Bender, blaða-
maður hjá DV.
I bókinni kemur fram allt það mark-
verðasta sem gerðist veiðisumarið
1992, en auk frétta er sagt frá stærstu
löxunum, fengsælustu veiðiánum og
ýmsu öðm merkilegu. Allt þetta er
síðan kryddað veiðisögum, sögðum
eins og veiðimönnum einum er lagið.
í „Stangaveiðinni 1992" em hátt á
annað hundrað mynda, sem gæða
bókina lífi og gefa henni varanlegt
gildi.
„Stangaveiðin 1992" er 185 síður og
kostar kr. 2.850. Prentvinnsla fór
fram í ísafoldarprentsmiðju hf.
Sígild barnabók
Leynigarðurinn, hin heimsfræga
saga eftir Francis Hodgson Bumett,
er nú komin út á íslensku hjá bókaút-
gáfunni Skjaldborg. Þessi hugljúfa
saga hefur verið kvikmynduð oftar
en einu sinni og íslenskum sjón-
varpsáhorfendum em í fersku minni
framhaldsþættir, byggðir á sögunni,
sem sjónvarpið sýndi fyrir fáeinum
árum. Rétt eins og „Lítil prinsessa",
eftir sama höfund, sem út kom í
fyrra, er þessi hjartnæma bók fyrir
alla fjölskylduna.
Verð kr. 1490.
Ástir og elda-
mennska
ísafold hefur gefið út skáldsöguna
Kryddlegin hjörtu eftir mexíkönsku
skáldkonuna Laum Esquivel. Bókin
er meistaralega skrifuð ástar- og ör-
Iagasaga sem gerist í Mexíkó á tíma-
bilinu 1910-1930. Sagan segir frá Titu
sem er yngst þriggja systra og hefur
fengið það hlutverk að hugsa um
fullorðna móður sina sem stjómar
heimilishaldinu með harðri hendi.
Þar með er Titu meinað að giftast eða
njóta ásta á annan hátt. Hún deyr þó
ekki ráðalaus, en fær útrás fyrir
ástríður sínar við matartilbúning.
Þessi óvenjulega blanda af ástum og
eldamennsku skapar mörg skondin
atvik og reyndar er sagan í heild
sinni afskaplega frumleg og um leið
meinfyndin.
Bókin er byggð upp sem mánaðar-
leg framhaldssaga og hefst hver kafli
á matamppskrift og leiðbeiningum
um hvemig viðkomandi réttur skuli
matreiddur.
„Kryddlegin hjörtu" er nýstárleg
saga og hefur höfundurinn hlotið
mikið lof, enda bókin metsölubók um
allan heim.
Bókin, sem er 233 síður og kostar
2.450 kr., er þýdd af Sigríði Elfu Sig-
urðardóttur, en prentvinnsla fór fram
í ísafoldarprentsmiðju hf.
Vísnabókin
gefin út á ný
Iðunn hefur endurútgefið gömlu
góðu Vísnabókina. Það em hinar sí-
gildu myndir listamannsins Halldórs
Péturssonar sem prýða bókina, en
Símon Jóh. Ágústsson valdi visumar.
Vísnabókin hefur verið eftirlæti ís-
lenskra bama allt frá því að hún kom
fyrst út. í henni em vísumar sem öll
böm Iæra fyrstar, margar sem lifað
hafa með þjóðinni kynslóðum saman,
aðrar eftir síðari tíma skáld.
Samtímis kemur út Vísnaplatan,
geisladiskur og snælda, með öllum
lögunum af plötunum „Einu sinni
var" og „Út um græna gmndu", sem
nutu fádæma vinsælda, en em löngu
uppseldar.
Selur og mörgæs
Hjá Skjaldborg er nú komin út bama-
bókin Maggi mörgæs og selurinn
eftir Otmar Gutmann og Tony Wolf.
Þetta er skemmtileg bók fyrir unga
lesendur með stórri litmynd á hverri
síðu. Maggi mörgæs fer á veiðar þar
sem hann kynnist selnum Kobba og
saman lenda þeir í skemmtilegum
ævintýmm.
Áður út komnar í sama bókaflokki:
„Maggi mörgæs og vinir hans" og
„Maggi mörgæs og fjölskylda hans".
Verð kr. 890.
Kvenkynsskáld og
næstum því nom
Út er komin hjá Máli og menningu
ljóðabókin Klakabömin eftir Lindu
Vilhjálmsdóttur.
Linda Vilhjálmsdóttir (f. 1958) vakti
athygli Ijóðaunnenda fyrir tveimur
árum með fyrstu bók sinni, „Bláþráð-
ur". Skáldskapur hennar er tilfinn-
ingaríkur, háðskur og tregafullur í
senn og formskyn hennar er einstakt.
Lokaljóð þessarar nýju bókar endar á
þessum línum:
Þó flð lífmitt sé hvorki fílabein eða hom
og helst að ég vildi það væri sem dropa
steinn
þá verð ég aldrei svofín og aldrei svo
strokin.
Ég er kvenkynsskáld og næstum því
orðin að nom
og nenni ekki að leita að vegi sem virðist
beinn,
fer mína leið eins og kötturinn - farvel
í lokin.
Bókin er 31 blaðsíða, prentuð í G.
Ben. prentstofu hf. Hún kostar 1690
kr.
Einmana skógar-
bjöm
Iðunn hefur gefið út bamasöguna
Litli skógarbjöminn eftir Illuga Jök-
ulsson. Myndskreytingar gerði
Gunnar Karlsson.
Þetta er gullfalleg myndabók fyrir
yngstu bömin og segir frá litlum
skógarbimi sem var skelfing ein-
mana — þangað til hann hóf að
smíða sér hús. Þá þyrptust öll dýrin
að til að hjálpa honum og brátt var
risið stórt og fallegt hús. Litli skógar-
bjöminn var alsæll, en fyrr en varði
rann upp fyrir honum að ekki er allt
fengið með fínu húsi og fjölda vina.
Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni
Odda hf.
Limmr Jóhanns S.
Hannessonar
Út er komin hjá Máli og menningu
ljóðabókin Hlymrek eftir Jóhann S.
Hannesson.
Jóharrn S. Hannesson (1919-1983) er
trúlega þekktastur fyrir störf sín sem
sem kennari. Eftir hann komu út
nokkrar ljóðabækur og var hann
frumkvöðull hér á landi í limmgerð.
Þessi bók geymir limrumar úr bók-
inni „Hlymrek á sextugu", sem verið
hefur ófáanleg um árabil, og áður
óbirtar limmr sem skáldið lét eftir
sig. Kristján Karlsson bjó til prenhm-
ar.
Bókin er 47 blaðsíður, prentuð í G.
Ben. prentstofu hf. Hún kostar 1690
kr.
Sjö ára kvennagull
Hjá Skjaldborg er komin út Sagan
um Svan eftir Anders Jacobsson og
Sören Olsson, höfunda hinna vin-
sælu bóka um Bert og dagbækumar
hans. Svanur er í fyrsta bekk í skólan-
um. Hann er nú þegar dálítið
kvennagull. En það er leyndarmál. Ef
strákamir, sem Svanur þekkir, kæm-
ust að því, mundi hann deyja af
smán.
„Sagan um Svan" er ætluð yngri les-
endum. Fjörið og kímnin er hvort
tveggja á sínum stað. Svanur er sjö
ára og ævintýri hans í skólanum em
engu Iík. Þetta er bók fyrir yngri
prakkara.
Verð kr. 990.
Þórhallur Jónsson5
Hauksstöðum Vopnafirði, Kveðja
F. 09. feb. 1914
D. 17. des. 1992
Að kvöldi dags 17. des. s.l., lauk
vinur minn Þórhallur Jónsson sín-
um jarðvistardögum. Við slík tíma-
mót rennur margt í gegnum huga
minn. Hver var hann í samfylgd
sinni til annarra? í stuttu máli má
segja að hann var vel gerður maður
til sálar og líkama. Hann gerði öll-
um gott og styggði engan. Lífsstarf
hans var búskapur og þar var sama
nákvæmnin og umgengnin við bú-
peninginn, reglusemi og fegurð í
öllu verki. Ég kynntist honum við
þau störf austur á Vopnafirði. Síðar
kynntist ég honum á heimili mínu á
Seltjarnarnesi er hann þurfti að leita
sér lækninga hingað 1962. Þá dvald-
ist hann hjá mér veturlangt og í
honum eignaðist ég þá vin og vel-
gjörðarmann, sem aldrei bar skugga
( N
á. Þann vetur fæddist yngri sonur
minn, en sá eldri var þá þriggja ára.
Hjálpin var komin á heimilið, ekkert
mál að skilja við það um tíma því að
betri umönnun varð ekki fengin,
fyrir drenginn og dagleg störf, en
Þórhallur veitti. Hann eldaði, þreif
og gætti barnsins og allt var jafn vel
af hendi leyst. Þeir voru þá fjórir í
heimili á meðan ég var í burtu og
ekki var síðri umhyggjan ffá hans
hendi þegar ég kom heim með þann
nýfædda. Síðan hefur hann dvalið
hjá okkur í nokkur skipti á vetrum
og myndað sín traustu bönd við eig-
inmann og syni mína. Því miður
voru þeir báðir erlendis, Friðbjörn
og Hlynur, þegar brottfarartími Þór-
halls var upprunninn, en þeir eiga í
huga sínum ljúfar minningar um
mætan vin sem gott er að hafa feng-
ið að kynnast.
Leiðir skiljast í bili. Ég kveð elsku-
legan vin og þakka allar fallegu
minningarnar sem standa eftir og
fel Þórhall Drottni á hönd á landi lif-
enda.