Tíminn - 29.12.1992, Side 9
Tíminn 9
Þriöjudagur 29. desember 1992
DAGBÓK
Lokabindið um
Pella sigursæla
Dögun nefnist fjórða bindi hins
mikla bókmenntaverks Martins And-
ersen Nexö um Pella sigursæla. Pelli
losnar úr fangelsinu og hér er lýst
þeim hartnær óyfirstíganlegu hindr-
unum sem verða á vegi þess, sem
dæmdur hefur verið frá eignum og
æru. En Pelli rís upp tvíefldur og hef-
ur nýja sókn. Fangavistin hefur mild-
að hugarfar hans og gefið honum
tóm til að íhuga líf sitt og baráttu.
Pelli þarf að klífa þrítugan hamarinn
til að komast að nýju í samfélag
„heiðarlegs fólks". En ekkert aftrar
honum og hann fylkir liði til nýrrar
sóknar.
„Pelli sigursæli" hefur gjaman verið
talið höfuðverk þessa merka danska
rithöfundar og því ber tvímælalaust
að skipa á bekk með meistaraverkum
heimsbókmenntanna. Með þessu
bindi hefur Skjaldborg lokið útgáfu
þessa meistaraverks á íslensku.
Verð kr. 2890.
Heildarútgáfan fæst nú í glæsilegri
öskju á sérstöku verði, kr. 7990.
Stúlka með sjö
pabba
Elsa María og litlu pabbamir heitir
gullfalleg bamabók sem Skjaldborg
hefur gefið út. Höfundur er Pija
Lindenbaum. Elsa María á ekki bara
einn pabba, eins og flest böm, heldur
sjö. Þeir em svo litlir að ef hundur
eltir þá, eiga þeir ekki annarra kosta
völ en að flýja upp í næsta tré.
Bókin er prýdd fjölda bráðskemmti-
legra litmynda, sem höfundurinn,
Pija Lindenbaum, hefur sjálf gert.
Verð kr. 990.
Náttúrleg heilbrigði
Skjaldborg hefiu gefið út Náttúm-
lækni heimilanna. Þessi gagnlegi
leiðarvísir um úrræði til náttúrlegrar
heilbrigði gefur auðskildar leiðbein-
ingar um öll svið heilbrigðra lifnað-
arhátta og bendir á fjölbreytt úrval
óskaðlegra meðala við algengum
kvillum og til bráðahjálpar. Með sínu
aðgengilega sjúkdómayfirliti, sem
auðveldar umsvifalaust val á milli
þeirra aðferða sem til greina koma, er
þetta ómetanleg bók handa fólki á
öllum aldri, sem vill stuðla að góðri
heilsu sjálfs sín og sinna nánustu.
Aðalritstjóri bókarinnar er dr.
Andrew Stanway, en auk hans fjalla
30 sérfræðingar um afmörkuð sér-
svið.
Verð kr. 3990.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Dulræn reynsla
nokkurra Islend-
inga
Skjaldborg hefur sent frá sér bókina
Dulrænn veraleiki eftir Einar Ingva
Magnússon.
Áhugi íslendinga á dulrænum mál-
um er vel kunnur. Óvíða í heiminum
em slíkir hæfileikar jafn almennt við-
urkenndir sem hér á landi.
Kannanir hafa sýnt að vemlegur
hluti þjóðarinnar telur sig hafa haft
reynslu eða einhver kynni af slíku,
einhvemtíma á lifsleiðinni.
Einn af þeim, sem þannig háttar til
um, er Einar Ingvi Magnússon. í
þessari bók segir hann frá reynslu
sinni og annarra af dulrænum upplif-
unum, skynjunum sem oft tengjast
amstri hins daglega lífs. Þó ekki séu
þær allar tengdar stómm atburðum,
þá em þær órjúfanlegur hluti þess
lifs þess næma, dulrænn vemleiki.
Meðal þeirra, sem rætt er við í bók-
inni, má nefna Eirík Kristófersson
fyrrverandi skipherra, séra Sigurð
Hauk Guðjónsson og Úlf Ragnarsson
lækni.
Verð kr. 2490.
Óður til ástar og
listar
Iðunn hefur gefið út skáldsöguna
Svarti prinsinn eftir breska rithöf-
undinn Iris Murdoch í þýðingu Stein-
unnar Sigurðardóttir.
„Svarti prinsinn" er ein þekktasta
bók skáldkonunnar góðkunnu, Iris
Murdoch; margslungin og áleitin
verðlaunasaga, saga um sterkar til-
finningar og mannleg örlög.
Vinimir, Amold Baffins og Bradley
Pearson, lenda í hringiðu þeirrar at-
burðarásar sem hrífur bæði þá og
konumar í kringum þá með sér og
kaffærir þau öll í djúpi tilfinning-
anna.
„Svarti prinsinn" er óður til ástar-
innar og listarinnar, því eins og segir
í formálsorðum sögunnar: Allir lista-
menn em óhamingjusamir elskend-
ur, og óhamingjusama elskendur
langar að segja sögu sína.
Bókin er prentuð í Prentbæ hf.
Öldin okkar
Komið er út nýtt bindi í bókaflokkn-
um Öldin okkar, sem Bókaútgáfan
Iðunn gefur út. Nanna Rögnvaldar-
dóttir tekur hér saman minnisverð
tíðindi áranna 1986-1990.
Allir íslendingar þekkja Aldimar og
þangað hafa ungir sem aldnir sótt sér
ómældan fróðleik um liðna atburði,
mannlíf og tíðaranda. Þær em lifandi
saga þjóðarinnar í máli og myndum
og hafa löngum þótt sjálfsögð eign á
hverju heimili.
í þessari nýju bók em raktir inn-
lendir atburðir áranna 1986-90, stórir
sem smáir, frá fundi leiðtoga stór-
veldanna í Reykjavík til krókódílafárs
í Norðfirði, frá slysförum og sorgar-
atburðum til kátlegra smámynda af
íslensku mannlífi.
Bókin er prentuð í Odda hf.
Handbók um
prjónaskap
Iðunn hefur gefið út bókina Lærið að
prjóna eftir Erlu Eggertsdóttur. Þetta
er fyrsta handbók sinnar tegundar á
íslensku og er afar handhæg og að-
gengileg.
í bókinni er fjallað um öll undir-
stöðuatriði í prjónaskap, aðferðir
kenndar og ráð gefin. Einnig em í
henni hugmyndir, fróðleikur og ýms-
ar útfærslur á prjóni og munstmm,
meðal annars kaðlaprjóni og klukku-
prjóni, fyrir þá sem Iengra em komn-
ir. Einnig er sýnt hvemig reikna skal
út stærðir, ganga frá flíkum og margt
fleira.
Fjöldi skýringarmynda og munstur-
teikninga í bókinni auðveldar notkvrn
hennar.
Bókin er prentuð í Prentbæ hf.
Gælur
Klappa saman lófunum, er safn af
bamagælum sem Ragnheiður Gests-
dóttir hefur tekið saman og mynd-
skreytt. Lítil böm hafa gaman af vís-
um sem gjaman fylgja einfaldir
hreyfileikir, og rímað mál örvar mál-
þroska bama og hefur róandi áhrif á
þau. Því er þetta gagnleg bók fyrir þá
sem vilja raula við bömin.
Mál og menning gefur út bókina,
sem er 22 bls. og litprentuð í Hong
Kong. Verð: 890 kr.
Ella Fitzgerald sem mætti í hjólastól. Hún lét sig samt ekki muna um aö heilla viöstadda upp úr skón-
um þegar hún söng „ The Lady Is A Tramp". Daginn eftir var hún flutt á sjúkrahús.
Flórida eignast glæsi-
lega menningarmiðstöð
Burt Reynolds er innfæddur Flóridabúi og naut þess aö vera kynnir
á opnunarhátíöinni í Kravis Center. Kona hans Loni Anderson
kynnti vinkonu sfna...
Nýlega var opnuð á West Palm
Beach í Flórida menningarmið-
stöðin Kravis Center með mikl-
um glæsibrag. Kynnir á opnun-
arhátíðinni var sjálfur Burt
Reynolds sem var þarna á
heimavelli, gekk í gagnfræða-
skóla í næsta húsi, og meðal
þeirra frægu listamanna sem
vígðu svið og salarkynni má
nefna óperusöngkonuna Le-
ontyne Price, fiðlusnillinginn
Isaac Stern, gamanleikkonuna
Lily Tomlin, Broadway stjörn-
una Faith Prince, sjálfa Ellu
Fitzgerald þrátt fyrir dapra sjón,
The Alvin Ailey American Dance
Theater, Robert Peters og Flor-
ida Philharmonic hlljómsveit-
ina.
Það tók 14 ár að hanna og reisa
Fiölusnillingurinn Isaac Stern
segir þá vera eftirlætistónleika-
gesti sína sem koma til aö
hlusta en ekki til aö sýna sig.
Kravis Center og kostnaðurinn
við bygginguna var 55 milljón
dollarar. Það sem vekur þó einna
mest athygli við þetta stórkost-
lega framtak var að þegar er bú-
ið að standa skil á öllum kostn-
aðinum og aðeins 3 milljónir
dollara komu úr opinberum
sjóðum, hitt var gjafafé. Hver sá
sem gaf meira en 5.000 dollara
fékk nafnið sitt ritað á „heiðurs-
vegg" í byggingunni.
Það var því auðsótt mál að fá
ríkasta og frægasta fólkið á West
Palm Beach til að reiða fram
1000 dollara fyrir aðgöngumiða
að vígsluathöfninni og geta séð
nafnið sitt skráð eilífu letri á
vegginn góða í leiðinni. Þarna
gafst líka kærkomið tækifæri til
að sýna sig og sjá aðra sína líka,
enda er þarna eitt ríkasta samfé-
lag á Vesturlöndum. Gestirnir
nutu þess að neyta 20 kílóa af
kavíar og 135 kílóa af reyktum
laxi. Og þess að taka upp Cartier
gjafirnar. En þeir nutu þess líka
að sjá og heyra það sem lista-
mennirnir færðu þeim og þess
að dansa fram undir morgun.
Auðvitað kostaði vígsluathöfn-
in sitt og það var víst ekki mikið
eftir af milljón dollurunum sem
veittar voru til hennar. En við-
staddir voru á sama máli og
Burt Reynolds sem sagði: „Ríkið
okkar getur státað af mestum
vexti ríkja í Bandaríkjunum en
við erum bara í 44. sæti þegar
kemur að framlögum til lista.
Það er kominn tími til að lag-
færa það.“