Tíminn - 13.01.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.01.1993, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 13. janúar 1993 7. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Utanrííkis- og forsætis- ráðuneyti fá EES samn- inginn í hendur og síð- an er hann sendur for- seta islands tii stað- festingar: Undirritar EES í dag? Óljóst er hvenær nákvæmlega forseti íslands fær lög um stað- festingu samníngs um Evr- ópskt efnahagssvæði til undir- ritunar, en hugsanlegt er að það verði í dag. Pjöldi félaga, sam- taka og einstaklinga, hefur skorað á forsetann að undirrita ekki samninginn, en vísa hon- um til atkvæðis þjóðarinnar. Eftir að lög hafa verið sam- þykkt á Alþlngi er gengið frá þeim með formlegum hætti og þau send viðkomandi ráðuneytL Þaðan fara þau til forsætisráðu- neytisins, en ráðuneytið sendir þau til endanlegrar staðfesting- ar forseta íslands. Nokkuð mis- munandi er hvað langur tími líður frá því lög eru samþykkt á Alþingi, þar til forseti undirritar þau. Stundum líða nokkrir dag- ar en í önnur skxpti er undirrit- un hraðað. Utanríkisráðherra hefur lagt mikla áherslu á að staðfestingu frumvarpsins verði lokið fyrir fund embættismanna EB og EFTA í Brussel sem hefst á morgun, en á fundinum verður fjallað um þær breytingar á samningnum sem ákvörðun Sviss að vera ekki aðili að EES kallar á. Hugsanlegt er að utan- ríkisráðherra Íeggi áherslu á að óvissunni um afstöðu forsetans tfl samnings, verðí einnig eytt fyrir þennan fund. Rifjað hefurverið upp að í síð- ustu forsetakosningum var Vlg- dís Finnbogadóttir, forseti fs- lands, spurð að því hvort hún teldi koma til greina áð forset- inn nýtti sér ákvæði stjómar- skrárinnar um að neita að und- irrita lög og skjóta þeim þar með undir þjóðaratkvæði. For- setinn sagðíst myndi fara ákaf- lega variega með þetta vald, en sagði að tiivik gætu komið upp þar sem beiting þess væri rétt- Íætanieg. Hún sagðist td. ekki myndi undirrita lög sem fælu í sér að hér yrðu teknar upp dauðarefsingar. -Eu 33 alþingismenn sögðu já en 23 nei við samningnum um Evrópska efnahagssvæðið í gær: EES samningurinn lögfestur á þingi Alþingi íslendinga lögfesti samn- samninginn, voru greidd at- afgreitt frá Alþingi en ekki er þó að samþykkja það og gera þarf á inginn um EES í gær með 33 at- kvæði um að vísa EES málinu til sopið kálið enn, þótt í ausuna sé samningnum breytingar sem all- kvæðum gegn 23. Sjö sátu hjá ríkisstjórnarinnar en það var komið: Forseti íslands á eftir að ir aðilar að honum þurfa að sam- við atkvæðagreiðsluna. Áður en naumlega fellt. staðfesta það með undirskrift þykkja. atkvæði voru greidd um sjálfan Þetta umdeilda mál er því loks sinni, Evrópubandalagið á eftir Sjá blaðsíðu 3. Sjö ungmenni voru handtekin á Alþingi þar sem þau mótmæltu frumvarpi til iaga um EES í gær: Með byssur og í hermanna- búningum á þingpöllum Til nokkurra ryskinga kom í gær á þingpöllum Alþingis á miUi sjö ungmenna á aldrinum 16-20 ára og þingvarða á meðan á atkvæða- greiðslu um frumvarp til laga um EES stóð. Þar voru á ferðinni ungmenni úr ÆskulýðsfyUdngu Alþýðubandalagsins, og voru þau á þingpöUum til að mótmæla frumvarpinu. Þau voru íklædd hermannabúning- um, auk þess sem þau höfðu undir höndum a.m.k. tvær leikfangabyssur og borða með slagorðum gegn EES. Þegar ungmenninn hugðust koma borðunum fyrir framan á þingpöllum, stukku þingverðir til og fjarlægðu þau af þingpöllum og kom þá til ry- skinganna sem áður eru nefndar og féllu þá nokkur ungmennanna í gólf- ið. Lögreglanvarkvöddtilogvorufé- lagamir færðir á lögreglustöðina við Hverfisgötu, þar sem þeir voru yfir- heyrðir. Að sögn lögreglunnar kom það fram í máli ungmennanna að þau samþykktu þegar litið væri til baka, að byssunum hefði verið ofaukið í að- gerðunum og ekki hefði staðið til að ógna einum eða neinum. En tilvera leikfangaskotvopnanna hefði verið óheppileg. Þá kom það fram í máli ungmennanna, að þeim fyndist þau ekki hafa verið að tmfla störf Alþingis, enda hafi þau ehvori kallað neitt fram í né viðhaft nein háreysti. Ungmenn- in sjö hafa ekki komið áður við sögu lögreglunnar og fengu þau að fara heim að lokinni yfirheyrslu og skýrslutöku. -PS Þingvörður fjarlægir eitt ungmennanna af sjö, af þingpöllum, en eins og sjá má á klæðnaðinum er um að ræða felubúning sem her- menn nota gjarnan. Ungmennin voru með a.m.k. tvær byssur sem við athugun reyndust vera leikfangabyssur. Á innfelldu myndinni sést einn þingvarða handleika aðra byssuna. Tímamynd Ami Bjama Gera má ráð fyrir allt að 6 milljóna kr. kostnaði við leitina á Bláfjallasvæðinu. Björn Hermannsson, framkv.stjóri Landsbjargar: Besta borgunin var að finna mennina „Besta borgunin er að fínna þessa menn á lífi. Ég held að menn hafí verið famir að missa vonina eftir nóttina," segir Björa Hermanns- son, framkvæmdastjóri Lands- bjargar. Gera má ráð fyrir að kostn- aður Landsbjargar vegna leitar á Bláfjallasvæði um helgina, sé ná- lægt 6 milljónum króna. Um 200 björgunarmenn voru í sólarhring við leit á leitarsvæðinu. Sé gert ráð fyrir að tími hvers um sig kosti um 1.000 kr. og viðhalds- og bensínkostnaði bætt við vegna 9 snjóbfla og 80 vélsleða, nálgast upp- hæðin 6 milljónir króna. „Það er mikill mannskapur frá vinnu. Við notum mikið af tækjum og vélum og það kostar sitt. Þá er alltaf um einhver afföll að ræða vegna bilunar," segir Bjöm. Hann bendir á að því sé mjög afstætt að tala um hvað þetta kosti. Hann telur að björgunarsveitir spari þjóðarbúinu ómældan kostnað með starfi sínu. „Sveitirnar greiða alltaf kostnaðinn sem af þessu hlýst og hafa sínar fjáröflunarleiðir til þess. Fólk styður vel við bakið á okk- ur og það fær það til baka eins og síðustu sólarhringar sanna," segir Björn. Bjöm segir að í flestum tilfellum horfi vinnuveitendur í gegnum fing- ur sér þegar starfsmenn þeirra þurfi að sinna björgunarútkalli. „Þeir taka þátt í aðgerðunum með því að gefa viðkomandi frí. Þá greiða þeir oftast nær vinnutapið meðan starfsmaður er fjarverandi," segir Björn. Hvernig skyldi björgunarsveitar- mönnum ganga að fá vinnu með þeim kvöðum að þurfa að sinna út- kalli hvenær sem er? „Oftast nær em þetta hörkuduglegt starfsfólk ,ósérhlífið og nýtist vinnuveitend- um vel. Hann græðir því miklu meira heldur en hann tapar á því að hafa viðkomandi í vinnu," segir Björn. Hann veit ekki dæmi þess að liðsmenn björgunarsveita hafi þurft að velja á milli starfs og áhugamáls. Björn er ekki þeirrar skoðunar að láta fjallamenn greiða einhvers kon- ar björgunartryggingar. Hann telur að það sé erfitt í framkvæmd og óréttlátt gagnvart öllum þeim fjölda sem sýnir fyrirhyggju og hyggindi í fjallaferðum. -HÞ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.