Tíminn - 13.01.1993, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.01.1993, Blaðsíða 8
8 Tíminn Miðvikudagur 13. janúar 1993 Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 1993 Dregið var f Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar 1993. Vinningsnúmer eru sem hér segir: 1. vinningur nr. 12274 2. vinningurnr. 31527 3. vinningur nr. 37245 4. vinningur nr. 13827 5. vinningur nr. 32296 6. vinningur nr. 34595 7. vinningur nr. 1444 8. vinningur nr. 29884 9. vinningur nr. 7932 10. vinningur nr. 22700 11. vinningur nr. 4607 12. vinningurnr. 5839 13. vinningur nr. 21649 14. vinningur nr. 703 15. vinningur nr. 17415 Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá út- drætti. Frekari upplýsingar eru veittar í sima 91-28408 og 91-624480. Framsóknarflokkurinn Keflavík — Keflavík Þonablót verður I Framsóknarhúsinu laugardaginn 16. janúar og hefst kl. 20.30. Fjölmennum. Framsóknarfélögln Þjóðmálanefnd SUF Fundur verður haldinn i þjóðmálanefnd SUF, þriðjudaginn 12. janúar n.k. kl. 17.00 að Hafnarstræti 20 (3. hæð). Fundarefni: Lánasjóður islenskra námsmanna. Almennur fundur um stjómmálaviðhorfið verður haldinn I Hótel Selfossi fimmtudag- inn 14. janúarkl. 21. Alþingismennimir HalldórÁsgrimsson, Guðni Ágústsson og Jón Helgason flytja framsögu og svara fyrirspumum. Halldór Selfoss — Guðni Jón Suðurland Létt spjall á laugardegi Laugardaginn 16. janúar n.k. kl. 10.30-12.00 að Hafnar- stræti 20, 3. hæð, mætir Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi og ræðir fjárhagsáætlun Reykjavlkurborgar 1993. Fulltrúaráólð Slgrún Sjúkrahús Siglufjarðar auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa strax eða eftir nánara samkomulagi. Á sjúkrahúsinu eru 43 rúm sem skiptast á sjúkradeild, fæðingardeild og ellideild. Að auki er starfrækt skurðstofa, rannsóknastofa og sjúkraþjálfun í nýrri aðstöðu. Hjúkrun- in er því afar fjölbreytt og gefandi. Þar að auki er gert ráð fyrir að hjúkrunarfræðingamir séu sjálfstæðir í starfi og taki mikinn þátt í ákvarðanatöku. Sjúkrahúsið er mjög bjart og rúmgott, góð vinnuaðstaða og gott og samhent starfsfólk sem þar starfar. Siglufjörður er í fallegu umhverfi, samgöngur góðar og daglegar ferðir til og frá staðnum. Tómstundir eru fjöl- breyttar og líflegt félagslíf, þar á meðal ýmis klúbbastarf- semi, nýtt íþróttahús og góð sundlaug. Skíðasvæðið er með því besta á landinu. Fjölbreyttar gönguleiðir. Gott barnaheimili, sem flyst í glænýtt hús á næstunni, er á staönum. Hafið samband ef þið hafið spumingar varðandi kaup og kjör eða komið í heimsókn og fáið upplýsingar um það sem við höfum að bjóða. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í s. 96-71166 og hs. 96-71417. Sauðfjárbændur Óska eftir að fá keypt greiðslumark til sauðljárframleiðslu. Upplýsingar í sima 97-11053 eða 97- 11054. HEIÐURSMENN A Fow Good Men **** Handrlt: Aaron Sorkin. Byggt á samnefndu leikrtti hans. Framlelðendur: David Brown, Rob Reln- er og Andrew Schelnman. Leikstjóri: Rob Reiner. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Jack Nichol- son, Demi Moore, Kevin Pollak, Kevln Bacon, Kiefer Sutherland, J.T. Walsh og James Marshall. Stjömubió. Öllum leyfð. Það er stór hópur valinkunnra manna úr bandaríska kvikmynda- iðnaðinum, sem stendur að baki þessarar myndar. Leikstjórinn, Rob Reiner, hefur ekki valdið vonbrigð- um hingað til, í annars fallvöltum bransa. FVrri myndir hans hafa verið úr sinni áttinni hver, allt frá ævin- týrinu Princess Bride, til ástarsög- unnar When Harry Met Sally til spennumyndarinnar Misery. Hann hefúr vaxið með hverri mynd og er nú kominn á toppinn með þessu áhrifamikla verki. Reiner fær Iíka mikla aðstoð frá góðum leikarahópi með meistara Nicholson í broddi fylkingar. Tom Cruise leikur Daniel Kaffee, kærulausan lögfræðing hjá banda- ríska sjóhernum, sem er skipaður verjandi í flóknu máli. Tveir land- gönguliðar, staðsettir á Kúbu, eru ákærðir fyrir morð á dreng úr sömu herdeild. Kaffee vill bara semja um málið í friði og spekt, en fyrir tilstilli Iögfræðingsins Jo Galloway (Demi Moore) fer hann að rannsaka málið af alvöru. Hann kemst að því að siðalögmálin meðal landgöngulið- anna á Kúbu eru önnur og strangari en gengur og gerist meðal almennra borgara. Heiður hermannsins er fyr- ir öllu og þessi lífsskoðun kristallast í yfirmanni herstöðvarinnar, Nathan Jessep (Jack Nicholson). Það vakna spumingar um hvort hermennimir tveir stóðu einir að morðinu eða hvort þeir hlýddu skipunum yfir- boðara. Málið fer fyrir rétt og Kaffee og Galloway reyna að komast að hinu sanna í málinu. Handrit Aarons Sorkin er byggt á samnefndu leikriti hans og er ein- staklega vel skrifað í alla staði. Hann veltir fyrir sér ýmsum áleitnum spumingum um hermennsku og kryddar söguþráðinn með spennu og smá gamni inn á milli. Það er allt annað en fögur mynd, sem dregin er upp af þjálfun, heilaþvotti og valda- misnotkun í hemum, en réttilega em sýndar aðrar hliðar á málunum, sem gerir söguna trúverðugri. Rob Reiner og Sorkin hefur tekist mjög vel að færa leikritið í kvik- myndabúning, en það er vandaverk og saga kvikmyndanna hefur að geyma fjölmörg tilvik, þar sem gott leikverk hefur misst marks á hvíta tjaldinu. Atriðin í réttarsalnum verða sérlega áhrifarík og aldrei langdregin, sem slíkum atriðum hættir oft til að verða. Þetta gengur náttúrlega ekki upp nema með góð- um hópi leikara, en þar emm við komin að sterkasta þætti myndar- innar. Tom Cruise, sem hefur í gegnum tíðina leikið alltof oft í miðlungs formúlumyndum, sýnir eftirminni- lega hvers hann er megnugur. Atrið- in með honum og Nicholson em stórskemmtileg og stundum er eins og þar fari leikarar, sem hafi leikið á móti hvor öðrum um árabil. Demi Moore stendur sig einnig vel, en hefúr þó ekki úr eins miklu að moða, því persóna hennar er stund- um dálítið þreytandi. Hins vegar er það enn einu sinni Jack Nicholson, sem er senuþjófurinn. í hvert ein- asta skipti, sem hann er í mynd, dregur hann alla athyglina að sér og sinni persónu. Persónan hans, sem er þrautreyndur og gallharður her- maður, er frábærlega túlkuð, hvert einasta orð og svipbrigði. í sannleika sagt er talsverður Óskarsverðlauna- þefur af Nicholson og reyndar myndinni í heild. Kiefer Sutherland og Kevin Pollak fara áberandi vel með mllumar sínar í annars góðum hópi aukaleikara. Heiðursmenn er gæðamynd, hvernig sem á hana er litið. Rob Reiner tryggir sig í sessi sem einn af bestu leikstjómm Bandaríkjanna, en þessi mynd á ömgglega eftir að fá fjölmargar tilnefningar til Óskars- verðlauna. Enn hefur engin mynd frá honum valdið vonbrigðum, sem er næstum einsdæmi. öm Markússon Hvers vegna? Hvers vegna á forseti íslands að skjóta EES-samningnum undir þjóðaratkvæðagreiðslu, ef Alþingi samþykkir hann? 1. Vegna þess, að í 26. gr. stjórnar- skrárinnar em hrein og klár ákvæði um að það megi gera og eigi að gera, ef viðhorf forsetans til samningsins er þannig. 2. Vegna þess, að 34.000 manns hafa sent Alþingi áskomn um það, að þjóðaratkvæði fari fram um málið. 3. Vegna þess, að hreinasta og göf- ugasta form lýðræðis er þjóðarat- kvæðagreiðsla og það væri mikil út- víkkun á lýðræði hér á landi að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu með þjóð vorri á t.d. 10-20 ára fresti. Aukum þessa grein lýðræðis, eflum hana og byrjum á þessu máli. Ég sætti mig fyllilega við að taka þeirri niður- stöðu, sem verður úr þjóðarat- kvæðagreiðslu, miklu fremur held- ur en bara ákvörðun Alþingis. Þessi atriði vega miklu þyngra heldur en álit Björns Bjarnasonar í Pressunni 30. des. s.l. Forseti vor væri ekki að blanda sér í stjórnmála- deilur, heldur að fara eftir sannfær- ingu sinni og 26. gr. stjórnarskrár- innar. Bjöm ætti að byrja á byrjun- inni og flytja breytingatillögu við of- angr. 26. gr. um að hún eigi að falla niður, fyrst alltaf koma fram vöflur Lesendur skrila og vomur um það, hvort megi eða eigi að beita greininni. Þegar Bjöm hefur fengið því ákvæði breytt, segir enginn neitt. Heimildin verður ekki fyrir hendi. En ég hygg þó, að fólk sætti sig ekki lengi við þá afskræmingu lýðræðis, sem nú viðgengst. Þá á ég við það, að ýmislegt af því, sem hefur verið af- greitt og ákveðið af núverandi ríkis- stjórn, er ekki í neinu samræmi við það, sem frambjóðendur hennar flokka töluðu um og boðuðu fyrir síðustu kosningar og kosið var um. Það er meirihluti og ríkisstjómar- myndun á fölskum forsendum að tala um eitt fyrir kosningar og fram- kvæma svo annað eftir þær. Ef það á að verða lýðræði framtíðarinnar, þá veitir okkur ekki af því að hafa ákvæði um þjóðaratkvæði í almenn- um lögum sem og í stjómarskránni, en hún er ígildi tvísamþykktra laga. Mat Bjöms er bamalegt, hvað varð- ar það að grafa undan samhug, sem ríkir um embætti forseta vors. Þvert á móti eflir það verulega samhug þeirra 34.000 manna, sem eitthvað er til skriflegt frá. Stuðningsmenn samningsins eru óþekktir að fjölda til, gætu í raun verið fáir. Nei. Förum varlega. Við erum fyrsta kynslóðin, sem lifir í algerlega fullvalda ríki, lýðveldinu okkar, Is- landi. Þetta fjöregg okkar er ungt, brothætt og vandmeðfarið. Þó ekki væri nema vegna foreldra okkar og foreldra þeirra, sem lifðu við dansk- an kóng og annað ófullveldi, ættum við að fara varlega. Flýtum okkur hægt við það að undirrita skjöl, sem takmarka fullveldi vort og sjálfstæði. Leyfum a.m.k. þjóðinni sjálfri að taka ákvörðun um slíkt. Jón Andrésson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.