Tíminn - 13.01.1993, Page 12

Tíminn - 13.01.1993, Page 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTTOG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELL113-SÍMI73655 Bílasala Kópavogs Smiðjuvegi 1,200 Kópavogi Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segist ómögulega getað litið á ákvörðun ríkisstjórnar að hætta við niðurfell- ingu VSK á vinnu iðnaðarmanna sem hluta af komandi kjarasamningum og því síður sem sáttahönd: Þeir þyrftu að lagfæra ótalmörg önnur mistök „Ríkisstjómin gerði þama ákveðin mistök, eins og komið hefur fram hjá forsætisráðherra, sem áttu í raun og veru ekkert skylt við efnahagsaðgerðir eða eitthvað slíkt. Þarna eru stjórnvöld einfald- lega að Iagfæra eigin gerðir, að vísu eftir ábendingar, en hafa þó bæði vit og manndóm til að lagfæra eigin misgjörðir. Þannig get ég ómögulega talið þetta sem hluta af komandi kjara- samningum og því ferli sem fram- undan er, heldur sem sjálfstætt mál. Það á þá eftir að laga ótalmörg mistök. Ef það gengur hins vegar jafn vel eftir og þetta, þá mundi maður álíta að þarna væri á ferð- inni einhver sáttahönd," segir Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands íslands. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur ákveðið að hætt verði við lækkun endurgreiðslu á virðis- aukaskatti af vinnu iðnaðarmanna við íbúðarhúsnæði úr 100% í 60%, eftir að í ljós kom að lækkunin mundi leiða til 3,2% hækkunar byggingarvísitölu og 1,07% hækk- unar á lánskjaravísitölu, sam- kvæmt mati aðila vinnumarkaðar- ins. Sjálfur vonast forsætisráð- herra að litið verði á þessa ákvörð- un stjómvalda sem sáttahönd gagnvart aðilum vinnumarkaðar- ins. Formaður Verkamannasam- bandsins segir að í kjölfarið á þess- um mistökum ríkisstjórnarinnar hafí allt gangverkið farið af stað, nema launin, og þar á meðal séu nýlegar vaxtahækkanir banka og sparisjóða. Hann segist gera ráð fyrir að við næstu vaxtaákvörðun verði vextir lækkaðir. Björn Grétar segir að það fari ekki á milli mála að ríkis- stjórnin sé búin að gera mörg önn- ur mistök í sinni efnahagsstjórn og þá sérstaklega hvað varðar lág- tekjufólkið. „Eg held að það viðurkenni allir í þjóðfélaginu að það sé glórulaust að leggja auknar byrðar á fólk sem er með 80-90 þúsund krónur í mánaðarlaun með yfirvinnu þar sem hún er til staðar, svo ekki sé talað um þá sem minna bera úr býtum.“ -grh Björn Grétar Sveinsson formaður VMSÍ. Skattframtölin í seinni hluta mánaðarins: 196 ÞUSUND FRAMTELJENDUR Skúli Eggert Þórðarson vararíkis- skattstjóri segir að framteljendur megi búast við því að fá skattfram- tölin í hendumar seinni hluta mán- aðarins. Hann segir að framteljend- ur í ár séu um 196 þúsund og hef- ur þeim fjölgað um tvö þúsund frá fyrra ári. Eins og svo oft áður hefur hinn al- menni launamaður frest til 10. febrúar n.k. til að ganga frá sínu skattframtali, en einstaklingur með rekstur, annan en venjulegan heim- iisrekstur, hefur frest fram í miðjan mars. Hinsvegar þurfa fyrirtæki ekki að skila sinni skattskýrslu fyrr en í maí. Þeir sem einhverra hluta vegna treysta sér ekki til að skila á réttum tíma, geta sótt um frest á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á skattstofum landsins. Skúli Eggert segir að framtalseyðu- blöðin séu tiltölulega óbreytt frá fyrra ári og eigi því ekki að koma neinum á óvart. Með þeim fylgja svo ítarlegar leiðbeiningar sem eiga að auðvelda almenningi að telja fram „það sem keisarans er.“ -grh mm Skíða- braut í borg- inni Nú er gott skíðafæri víðast hvar um landið, bara ef veðrið róast aðeins. Þannig er ágætis skíðafæri í Selja- hverfi í Reykjavík, en þar er góð byrj- endabrekka og meira að segja tog- lyfta og íbúar Breiðholts nota sér aðstöðuna óspart. Tímamynd Sigursteinn ...ERLENDAR FRÉTTIR... GENF Serbar höfnuðu friðaráætlun Uppreisnarmenn Serba I Bosníu höfnuöu í gær alþjóölegri friðaráætl- un. Þar með ollu þeir aö fjögurra mánaöa friöarviöræöur fóru út um þúfur og líkurnar á utanaðkomandi hemaðarlhlutun I Bosnlu, jukust að mun. ( SARAJEVO héldu sveitir stjórnarhersins og uppreisnarmanna áfram bardögum. BRUSSEL EB-ríki hvött til að styðja aðgerðir S.þ. í Bosníu Framkvæmdastjóri utanrlkisnefndar Evrópubandalagsins hvatti ríkisstjóm- ir allra 12 EB-rikja I gær til aö styöja aögeröir Sameinuðu þjóöanna ef friö- arviðræöur skila ekki árangri I Bo- snlu. ( DAKAR var tilkynnt aö forseti Bosnlu, Alija Izetbegovic, heföi farið frá Senegal eftir aö leiötogar Is- lamskra rlkja sýndu stuöning viö áskomn hans um vopnaða íhlutun ef Serbar halda áfram aö láta skothríö- ina dynja á múslimum Bosnfu. KÚVEIT írakar halda áfram að ögra S.þ. frakar halda áfram aö óhlýðnast Sameinuöu þjóðunum og hætta á hefndaraögerðir meö því aö senda menn inn I Kúveit þriöja daginn I röö, þrátt fyrir aðvaranir stofnunarinnar og vísbendingar um aö hemaöarlhlutun gæti veriö á döfinni. JERÚSALEM ísraelar staðfastir (sraelar héldu I gær fast viö ákvörðun sína um að visa 415 Palestfnumönn- um úr landi þrátt fyrir kröfu Araba- landa um aö S.þ. beiti fordæmalaus- um refsiaögeröum gagnvart Gyöinga- ríkinu ef þaö leyfir þeim ekki aö snúa aftur. ADDIS ABABA Stríðsherrar deila enn Drög að samningi um aö lýsa yfir vopnahléi I Sómaliu, virtust I gær I húfi vegna deilu stríösherra um hveij- ir ættu aö sitja sáttaráöstefnu. [ MOGADISHU hertu bandarískir land- gönguliöar vopnaleit til aö reyna aö reka byssumenn af götum sómölsku höfuöborgarinnar. BOMBAY Indverski herinn herðir tökin Indverskar hersveitir hertu tökin I Bombay til aö stöðva það sem dag- þlaö lýsti sem útrýmingu á múslim- um, en lögreglan sagöi aö a.m.k. 14 manns til viöbótar heföu látiö lífiö I nýjum bardögum vlðs vegar um borg- ina. LONDON CARE-maður skotinn í Huambo Angólamaöur sem starfaði fyrir al- þjóölegu hjálparstofnunina CARE, var skotinn til bana I miöbæ Huambo sl. föstudag aö sögn Lundúnaskrif- stofu stofnunarinnar. JÓHANNESARBORG Gagnárásir UNITA Uppreisnarmenn Jonas Savimbi, UNITA, söfnuöu saman liði I grennd viö Ijórar borgir I Angóla til að gera gagnárásir gegn framsókn stjórnar- hersins, aö þvl er stjórnar- erindrekar sögöu I gær. Savimþi, sem segist reiðubúinn aö koma til fundar viö Jose Eduardo dos Sant- os, forseta Angóla, til aö koma I veg fyrir aö bardagar breiðist út um allt landiö, bar til baka fréttir um aö stjórnarherinn heföi hrakið hann úr vígi hans I Huambo. SUMBURGH, Skotlandi Braer í spón Olluskipið Braer sem Noröursjáva- róveöur hefur bariö á I eina viku, brotnaöi I spón í gær og dældi leifunum af geisimiklum ollufarmi út á landgrunn Hjaltlands- eyja. DENNI DÆMALAUSI „Hestar svitna ... strákar lykta ... stúlkur skína.“ „Þá það, Margrét. Þú ert skinandi eins og hross.“

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.