Tíminn - 21.01.1993, Blaðsíða 9

Tíminn - 21.01.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 21. janúar 1993 Tíminn 9 DAGBÓK flytur ávarp við opnunina. Sýningin kemur frá Listiðnaðarsafninu í Helsinki og er þetta farandsýning, sem hefur farið víða. Síðast var hún í Röhsska safninu í Gautaborg. Ebba Bránnback frá Listiðn- aðarsafninu setur sýninguna upp f Nor- ræna húsinu. Kaj Franck fæddist í Finnlandi 1911 og lést 1989. Hann stundaði nám við Centr- alskolen för konstflid 1929 til 1932. Kaj Franck var þekktasti listamaður hinnar nýju fmnsku hönnunar. Sýningin bregð- ur upp ævistarfi hans og sýnir vel hve verk hans eru óháð tíma og tfsku. Kaj Franck hafði feikileg áhrif á Arabíu- og Nuutajárvi-verksmiðjumar sem list- rænn áhrifamaður þar. Hann vildi að all- ir ættu kost á sem bestum almennum nytjahlutum, endingargóðum og á hag- stæðu verði. Árið 1960 var Kaj Franck boðin staða listræns stjómanda Listiðnaðarskólans. Sem kennari í grunnnámi og í almennri myndbyggingu hafði hann gríðarleg áhrif á hugmyndir nýrrar kynslóðar finnskra hönnuða. Kaj Franck hlaut pró- fessorsnafnbót 1973. Kaj Franck fékk margar viðurkenning- ar og verðlaun, m.a. í Mílanó 1954 og 1957, Lunningverðlaunin 1955, Pro Fin- landia- verðlaunin 1957 og Prins Eugen- verðlaunin 1964. Á sýningunni í Norræna húsinu er mjög fjölbreytt úrval af hlutum, sem Kaj Franck hannaði: glervörur, borðbúnað- ur, skrautmunir og ýmsir nytjahlutir. Sýningin í Norræna húsinu verður opin daglega kl. 14-19 og henni lýkur sunnu- daginn 28. febrúar. Nemendaleikhúsiö sýnir Bensínstööina 23. janúar frumsýnir Nemendaleikhús- ið annað verkefni leikársins, Bensín- stöðína eftir Gildas Bourdet Leikritið gerist á ástheitum sumardög- um á afskekktri bensínstöð í Frakklandi. Móðir og þrjár dætur hennar berjast við að halda stöðinni gangandi, og þegar fað- irinn birtist eftir 18 ára fjarvem taka hlutimir nýja stefnu. Ærslafenginn franskur gamanleikur í rómantískum anda. Höfundurinn er franskur, og er virt leikritaskáld, leikstjóri cg leikmynda- hönnuður í sínu heimalandi. Bensínstöðin er fyrs'a frumsýning á verkum Bourdets á Norourlöndum, en hún var fyrst sett upp í Frakklandi árið 1985 af höfundi sjálfum og hlaut strax góðar viðtökur. Meðlimir Nemendaleikhúss eru: Björk Jakobsdóttir, Dofri Hermannsson, Gunn- ar Gunnsteinsson, Hinrik Ólafsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir, Kristina Sundar Hansen og Vigdís Gunnarsdóttir. Gesta- leikarar í sýningunni eru: Erling Jó- hannesson, Hilmar Jónsson og Þröstur Guðbjartsson. Þýðandi verksins er Friðrik Rafhsson. Höfundur leikmyndar Gretar Reynisson. Búningahönnuður Helga Stefánsdóttir og leikstjóri Þórhallur Sigurðsson. ÁR ALDRAÐRA [ EVRÓ PU 1993 ÖLDRUNARRÁÐ ÍSLANDS HAMINGJA — LENGIR HLÁTURINN LÍFIÐ? Opin ráðstefna í Borgartúni 6, föstudaginn 22. janúar 1993 kl. 13:15 Ráðstefnustjóri: Svavar Gests. Dagskrá: Kl. 13:15 Setning: Pétur Sigurðsson; formaður Öldrunarráðs Islands. Hamingjan í hjörtum okkar: Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík. Hamingja: Jón Björnsson, félagsmálastjóri á Akureyri. Ami Tiyggvason skemmtir. Kaflihlé Lengir hláturinn lífíð? Óttar Guðmundsson læknir. Leikfélagið Snúður og Snælda flytur kafla úr leikritinu Sólsetur. Hamingjan í hjörtum okkar: Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík. Ráðstefnugjald er kr. 1000,-. Ráðstejhan er öllum opin. Félag eldri borgara í Reykjavík Opið hús í Risinu í dag. Bridge kl. 12.30-17. Dansleikur með Tíglunum í Risinu föstudagskvöld 22. jan. kl. 20. Norræna húsið: Kynning á Eistiandi, menningu þess, sögu og náttúru í kvöld, fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.30, verður dagskrá í fundarsal Nor- ræna hússins, þar sem þrír fyrirlesarar frá Eistlandi ætla að segja frá landi og þjóð og sýna litskyggnur með fyrirlestr- unum. Eistamir þrír eru: Fred Jiissi, náttúrufræðingur og ljós- myndari. Hann hefur skrifað margar greinar um náttúrufar Eistlands og al- þýðumenningu. Hann flytur mál sitt á ensku, en hinir mæla á sænsku. Heino Eelsalu er sagnfræðingur og hef- ur lagt stund á stjömufræði. Ain Sarv er tóniistarmaður með þjóðlög sem sérgrein. Hann hefur haldið marga fyrirlestra í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi um eistnesk málefni og stefnu f menn- ingarmálum. Ain Sarv er ennfremur far- arstjóri hópsins. Þremenningamir hafa verið á fyrir- lestraferð um Færeyjar og koma hingað á vegum Norðurlandahússins og Nor- ræna hússins. Þeir hafa mikinn hug á að kynna íslendingum eistneska alþýðu- menningu og söguleg tengsl Eistíands við Norðurlönd. Allir eru hjartanlega velkomnir að hlýða á fyrirlestrana. Hólmfríöur Sigvaldadóttir sýnir í Galleri Sævars Karls Myndlistakonan Hólmfríður Sigvalda- dóttír sýnir f Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, 22. janúar tíl 12. febrúar 1993. Hólmfríður er fædd í Reykjavík 1956. Hún lauk námi úr Myndlista- og hand- íðaskóla fslands 1988 og hefur stundað nám við listaakademíuna í Flórens á ítal- íu ffá 1989 hjá prófessor D. Fumasi. Sýningin ber heitið Kyrr form. í til- kynningu frá galleríinu segir m.a.: „Hvað segja orð? Hvað segja verk? Get- ur eitt form talað um annað? Tilfinning og hönd búa verkin til undir eftirliti hug- ar. List er leit, leit að sjálfum sér, dýpra sjálfi, innri kyrrð: persónuleg birting, kyrr form.“ Helstu samsýningar Hólmfríðar em: Hafhargallerí, Reykjavík 1988 og Rex, Flórens 1992. Norræna húsið: Sýning á verkum eftir finnska hönnuöinn Kaj Franck Laugardaginn 23. janúar kl. 15.30 verð- ur opnuð sýning í sýningarsölum Nor- ræna hússins á listiðnaði eftir Kaj Franck. Sendiherra Finnlands, Hákan Branders, mmm Foreldrar brúðhjónanna stilla sér upp ásamt unga parinu. T.f. v.: móöir brúðgumans, Adnan Khashoggi, brúð- hjónin, Soraya móðir Nabilu, og faöir brúðgumans, fyrrum sendiherra Grikklands I Tékkóslóvakíu. Nabila Khashoggi giftist tölvuforritara Nabila Khashoggi, einkadóttir saúdf-arabiska milljarðamæringsins Adnans Khashoggi, gekk í það heil- aga rétt fyrir jól. Þar sem pabbi henn- ar er einn af ríkustu mönnum heims — þó að viðskipti hans þyki meira en lítið skuggaleg og hann hafi orðið að sanna sakleysi sitt fyrir rétti í New York ekki alls fyrir löngu — var mik- ið um dýrðir í tilefni brúðkaupsins, eins og vera ber. Og ekki dró það úr spenningi gestanna að ekki var gefið upp hvar veislan yrði haldin fyrr en eftir borgaralegu vígsluna, og var sagt að það væri vegna ótta Adnans Khashoggi við hryðjuverk. Nabila hefur lengi verið álitin ein- hver albesti kvenkostur f heimi og margir hafa stigið í vænginn við hana. Hún var þó allsendis ósnortin þangað til hún hitti ungan tölvufor- ritara, Danny Daggenhurst, í boði vinar eins bræðra hennar. Faðir hans var einu sinni sendiherra Grikklands í Tékkóslóvakíu. Fjölskylda Nabilu er ofurlítið flókin að samsetningu og ekki gátu allir verið viðstaddir. Hvorki núverandi stjúpmóðir hennar (vitað er að þeim tveim semur ekki), né eiginkona föð- ur hennar nr. 2 og hálfbróðir úr því hjónabandi vom viðstödd. Hins vegar tók móðir hennar, hin enska Soraya, og fjórir bræður úr því hjónabandi þátt í öllu tilstandinu, og það gerðu líka hálfsystumar fjórar sem Soraya eignaðist eftir skilnaðinn við Adnan. Þær vom brúðarmeyjar. Nabila er múslimi og lék blaða- mönnum forvitni á að vita hvort hún hefði farið fram á það við brúðgum- ann að hann tæki upp hennar trú. Hún gaf lítið út á það. Brúðkaupsgjafimar voru auðvitað ekki af verra taginu. Pabbi brúðar- innar rétti henni lítinn bláan silki- poka og sagði: „Ég keypti þetta fyrir 21 árs afmælisdaginn þinn og lofaði sjálfum mér að gefa þér það á brúð- kaupsdaginn." í pokanum var 40 kar- ata demantur. Sem nærri má geta vakti klæðnaður brúðarinnar almenna athygli, en hún hafði í flýti komið sér upp þrem al- klæðnuðum. Einn þeirra þótti þó sérkennilegastur, og þó einkum hár- greiðslan, en þar gaf að líta alls kyns eldhúsáhöld úr ryðfríu stáli til að minna á nýja stöðu milljarðaprins- essunnar, sem einu sinni ætlaði að komast áfram í kvikmyndum, þó að litlar líkur séu á að hún eigi eftir að eyða lífdögunum bundin yfir pottum og pönnum. ■ ■' ■: ■■ : Hárgreiðslan sem gerði lukku. Brúðhjónin hafa að baki sér einn rfkasta mann heims, Adnan Khashoggi fyrir miðju, og fjóra bræður brúðarinnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.