Tíminn - 21.01.1993, Blaðsíða 12
t
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTTOG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
!
jp: HOGG-
Z* DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
3
m .,
UJ varahlutir
HamarsböfÓa 1 - s. 67-6744
]
Tímiiin
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR1993
Einu ytri skakkaföll borgarsjóðs stafa af ríkisstjórn Davíðs Oddsonar:
Hlutfallslega hálfu meiri
halli er hjá borg en ríki
„Borgarsjóði er lokað með hlutfallslega helmingi meiri halla en
rðdssjóði," segir Sigrún Magnúsdóttir. Eins og kunnugt er var
fjárlögum ríkisins lokað með 6 milljarða króna halla en þau eru
u.þ.b. níu til tíu sinnum meirí að vöxtum en fjárlög borgarsjóðs.
„Til að loka borgarsjóði þarf að taka erlent lán upp á 1.300 millj-
ónir og myndi það samsvara halla upp á 12 til 13 milljarða kr.,“
segir Sigrún.
1 framhaldi af þessu veltir hún
fyrir sér hvað hafi eiginlega
gerst hjá borginni. „Við höfum
ekki orðið fyrir neinum ytri
skakkaföllum nema þá að fá
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
til valda í landinu. Þetta eru
heimatilbúin vandræði," segir
Sigrún. Hún telur að skýring-
una sé að finna í umframeyðslu
síðustu ára og bendir á að fjár-
hagsáætlanir borgarinnar hafi í
raun verið falskar þar sem allt-
af hafi verið gert ráð fyrir meiri
tekjum en raun varð á.
„Þegar tekjurnar fara minnk-
andi út af minni umsvifum fyr-
irtækja og almennings er ekki
hægt að látast og fela þessa
umframeyðslu,“ segir Sigrún.
Hún segist miða sínar tillögur
við raunhæft mat og vill að
borgarstjórn feli kjömum
skoðunarmönnum borgar-
reikninga og borgarendur-
skoðun að gera úttekt á reikn-
ingum borgarinnar fjögur síð-
ustu árin.
„Þeir eiga að gefa borgarstjórn
skýrslu um athuganir sínar og
finna viðhlítandi skýringar á
einstökum frávikum bæði hvað
varðar tekjur og gjöld,“ segir í
tillögum Sigrúnar. -HÞ
Sigrún Magnúsdóttir
Krítarkortin mesti hvalreki á fjörur atvinnurekenda. Vestmannaeyjar:
Búið að slæva verkfallsvopnið
„Ég held aö mesti hvalrekinn á fjörur atvinnurekenda hafi verið krítarkrot-
in. Af þeim sökum er nánast ekki hægt að fara í verkfall lengur og búið að
slæva það vopn með kortunum. Pólk er fyrirfram búið að éta upp það litla
kaup sem það hefur og er orðið ánauðugt þessum kortum,“ segir Jón Kjart-
ansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja.
Um n.k. helgi mun forusta ASÍ gær, kynnti forustan þær hugmyndir
sækja Eyjamenn heim til að kynnast
viðhorfum þeirra til komandi við-
ræðna um kaup og kjör og hvað
leggja beri mesta áherslu á í þeim
samningaviðræðum. Forustan hefur
þegar sótt heim stjórnir verkalýðsfé-
laga á Norðurlandi vestra og eystra
og einnig á Suðurlandi. Stefnt er að
því að ljúka yfirferðinni fyrir mán-
aðamót. Á fundi miðstjórnar ASÍ í
og þær áherslur sem fram hafa kom-
ið á þessum fundum. En aðalkrafa
verkalýðshreyfingarinnar er að end-
urheimta fyrri kaupmátt og gegn at-
vinnuleysi. Ennfremur hafa forystu-
menn annarra samtaka launafólks
fundað með forustu ASÍ til að bera
saman bækur sínar um samflot í
komandi viðræðum. Þótt engin
ákvörðun hafi verið tekin, virðist
margt benda til þess að vilji sé fyrir
samstarfi meðal helstu samtaka
launafólks.
í lok mánaðarins munu formenn
hinna einstöku verkalýðsfélaga og
lands- og svæðasambanda innan ASI
hittast og í byrjun næsta mánaðar
mun kröfúgerðin liggja fyrir. Sam-
kvæmt fyrri yfirlýsingum mun verka-
lýðsforustan ekki ætla í samningaþóf
við atvinnurekendur heldur fá úr því
skorið hvort vilji sé til samninga fyr-
ir miðjan næsta mánuð.
Á móti kemur að nýsamþykkt fjár-
lög gera ekki ráð fyrir neinum kaup-
hækkunum í ár og af hálfu atvinnu-
rekenda er öllum hugmyndum um
launahækkanir vísað á bug, eins og
endranær. -grh
Lánskjaravísitalan mælir
6,5% verðbólgu í febrúar:
Bygging-
arvísitala
hækkar
um 0,1%
Vísitala byggingarkostnaðar reynd-
ist aðeins 0,1% hærri (189,8 stig)
um miðjan janúar heldur en mán-
uði áður. Síðustu tólf mánuði hefur
byggingarkostnaður aðeins hækkað
um 1,3%.
Launavísitalan, sem Hagstofan
reiknar einnig, reyndist 0,2% hærri
en fyrir mánuði. Launavísitala janú-
armánaðar, miðað við meðallaun í
desember s.l., er 130,7 stig.
Áður var komin fram 1,2% hækk-
un á framfærsluvísitölu í janúar.
Lánskjaravísitalan breytist í sam-
ræmi við meðalbreytingu þessara
þriggja vísitalna. Lánskjaravísitalan
3263 gildir því fyrir febrúarmánuð
og er hún 0,5% hærri heldur en
janúarvísitala. Umreiknað til heils
árs svarar sú hækkun til 6,5% verð-
bólgu.
Eins og áður er komið fram hefði
sú lækkun á endurgreiðslu virðis-
aukaskatts vegna íbúðabygginga,
sem alþingi samþykkti í lok síðasta
árs, valdið um 3,2% hækkun bygg-
ingarvísitölu. Það hefði aftur valdið
rúmlega 1% hækkun lánskjaravís-
tölunnar, sem þar með hefði orðið
þrisvar sinnum meiri heldur en
raunin er.
- HEI
Beðið úrskurðar
Beðið er niðurstöðu félagsdóms í
máli ríkisins gegn Sjúkraliðafélagi
íslands og er úrskurðar að vænta í
þessari viku.
Eins og kunnugt er höfðaði fjár-
málaráðuneytið mál fyrir félags-
dómi gegn Sjúkraliðafélagi íslands
þar sem það telur vinnustöðvun
þess ólögmæta. Þá metur dómurinn
einnig réttmæti þess hvort sjúkra-
liðar tapi einhverju af launum sín-
um vegna aðgerðanna.
Áður hafði hæstiréttur úrskurðað
að félagsdómur hefði lögsögu í mál-
inu en sjúkraliðar vildu ekki fallast á
það í upphafi.
...ERLENDAR FRÉTTIR...
PALE, Bosníu
Bosníu-Serbar samþykkja
friöaráætlun
Uppreisnarmenn Bosníu-Serba sam-
þykktu í gær friöaráætlunina frá Genf og
veittu leiötoga sínum, Radovan Karadz-
ic, meiri stuöning en búist var við. At-
kvæði á heimatilbúnu þingi þeirra um
fyrsta stig friöaráætlunarinnar féllu 55
meöog 15ámóti.
SARAJEVO
Friöarráöstefnan heldur
áfram
Ákveöiö er aö ráðstefnan i Genf um
leiöir til aö koma á friöi I Bosniu- Herz-
egóvinu, taki aftur til starfa nk. laugar-
dag, aö þvl er talsmaður ráöstefnunnar
sagði f gær.
ZAGREB
Vance og Owen til
Sarajevo
Alþjóölegu friöarsáttasemjaramir Cyrus
Vance og Owen lávarður flugu til
Sarajevo I gær, eftir aö hafa tafist vegna
þoku, til aö reyna aö binda enda á bar-
daga bandamannanna aö nafninu til,
múslima og Króata. Leiðtogi Bosnlu-
Króata, Mate Boban, gaf á sama tlma
sinum mönnum skipun um aö hætta
bardögum viö múslima f deilu vegna
landaskiptingar I bráöabirgöa-Genfar-
sáttmálanum.
WASHINGTON
Bill Clinton 42. forsetinn
Demókratinn Bill Clinton sór I gær emb-
ættiseið sem 42. forseti Bandarikjanna.
Þar með veröa kynslóðaskipti I valda-
stólum sem áhyggjufull heimsbyggö
fylgist meö á sama tíma og Irakar bjóða
vopnahlé.
BAGDAD
írakar hlakka yfir forseta-
skiptum
Irakar, laskaöir en óbugaðir eftir algeran
ósigur I Flóastriöinu fyrir næstum tveim
ámm, hlökkuðu I gær yfir brottför Ge-
orge Bush úr forsetastóli og fögnuöu
eftirmanni hans meö .velvildar' vopna-
hléi. Vopnahléö viröist enn halda og
S.þ. tilkynntu að þær myndu taka Iraka
á oröinu og hefja aftur flug meö vopna-
eftiriitsmenn til Bagdad.
BRUSSEL
írakar vilja aftur eölileg
samskipti
Sendiherra Iraks i Belgiu sagöi I gær aö
land hans væri reiöubúið aö koma sam-
skiptum viö Bandaríkin aftur I eölilegt
horf.
TEHERAN
Khameinei fordæmir
Bandaríkin
Æösti leiötogi Irans, Ajatolla Ali Kha-
menei, réðist I gær á Bandarikin og
vestræna bandamenn þeirra fyrir aö
ráðast á Irak og sagöi að bandariskum
stjómvöldum yröi .refsaö fyrir syndir
sinar."
PARlS
Frakkar deila á
Bandaríkin
Frakkar sökuöu I gær Bandarikin um aö
hafa gengið lengra en ályktanir S.þ.
leyfa sl. sunnudag meö þvi aö skjóta
stýriflaugum á úthverfi Bagdad. Þetta er
enn sem komiö er alvariegasti brestur-
inn I samstarfi bandamanna frá Flóa-
strlöinu.
MARJ AZ-ZAHOUR, Libanon
Palestínumennirnir ákalla
Clinton
Palestínumennirnir aimlega 400 sem
fsraelar ráku úr landi, ákölluöu i gær
forsetaefniö Bill Clinton á embættis-
vlgsludegi hans um að leggja af ,tvl-
skinnungsstefnu” Bush- stjórnarinnar
og þrýsta á aö þeir fái strax aö halda
heim. I JERÚSALEM varaöi sendi-
maöur S.þ. Israela viö aö öryggisráöiö
væri búiö aö missa þolinmæöina
vegna þess aö þeir neita aö flytja aft-
ur heim Palestlnumennina sem þeir
ráku til Llbanon.
DENNI DÆMALAUSI
©NAS/Distr. BULIS
JEtH hann vilji ekki fá að sjá veiðileyfið okkar?“