Tíminn - 07.04.1993, Side 1
Miðvikudagur
7. apríl 1993
67. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
„Hin helgu vé“ verða sýnd í Sjónvarpinu flórum mánuðum eftir frumsýningu
í kvikmyndahúsi:
Nýskipaður framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins í fast-
eignaviðskiptum:
Á fundi borgarráðs í gær
var lagt fram bréf frá Hjör-
leifí B. Kvaran, fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og
stjórnsýsludeildar borgar-
innar, þar sem mælt var
með því af skipulagsástæð-
um að kaupa húsið Lindar-
götu 24 tií að koma þar á
fót leikskóla.
Svo vill til að eigandi þessa
húss er Hrafn Gunnlaugsson.
Þess má og geta í þessu sam-
hengi að mágkona Hrafns er
Anna K. Jónsdóttir, formaður
stjórnar Dagvistunar barna.
—sá
Raunvextir verðtryggðra lána hátt í tvöfalt
hærri heldur en um miðjan níunda áratuginn:
Raunvextir nú
eru með allra
hæsta mótinu
Þrátt fyrir ótal ræður ráöamanna
um nauðsyn þess aö Iækka vexti
eru raunvextir verðtryggðra lána nú
meö allra hæsta móti. í nýjasta
hefti Frjálsrar verslunar er þróun
raunvaxta í nærri áratug (1984—
1993) rifjuð upp í máli og mynd-
málL Þar kemur m.a. í ljós að eftir
að bankar lækkuðu vexti verð-
tryggðra lána um 0,25 prósentustig
í bytjun mars s.l. voru þeir samt
sem áður hærri heldur en raunvext-
ir hafa nokkru sinni verið að meðal-
tali á heilu ári og jafnframt nærri
tvöfalt hærri heldur en þeir voru á
árunum 1984—1986. Og þeir sem
bundu vonir við umtalsverða lækk-
un vaxta núna í aprílbyijun urðu
fyrir verulegum vonbrigðum, sem
kunnugt er.
Raunvextir verðtryggðra lána voru
5,5% að meðaltali árið 1984 og
héldu áfram á svipuðu róli til
þensluársins 1987 þegar þeir hækk-
uðu í 7,7%. Árið eftir hækkuðu þeir
upp í 9,2%, sem þá þótti firnahátt
Bankamir lækkuðu þessa vexti aftur
niður í kringum 8% að meðaltali
næstu tvö árin. Raunvextir verð-
tryggðra lána ruku svo aftur upp fyr-
ir 9% að meðaltali árið 1991 og þok-
uðust enn aðeins upp á við árið
1992. Þessi síðustu tvö ár komust
vextimir á einstaka tímabilum yfir
10%. Síðustu mánuði hafa þessir
vextir verið í kringum 9,5% sem fyrr
segir.
Sú vaxtahækkun sem hér um ræð-
ir þýðir t.d. um 4-5 þúsund króna
viðbótarútgjöld á mánuði (50—60
þús.kr.á ári) fyrir þann sem þarf að
borga af rúmlega milljón króna líf-
eyrissjóðsláni eða álíka skuldabréfi í
banka/sparisjóði. Hefði slíkur mað-
ur t.d. um 120 þús.kr. mánaðarlaun
þá myndi til dæmis lækkun raun-
vaxta niður í 5% færa honum eins
miklar kjarabætur eins og 6-8%
kauphækkun.
- HEI
Smábátaeigendur og aðrir sem velða með þorskanetum eru komnir í páskafrí vegna veiðibanns
til verndar hrygningarþorski. Þeir Óskar Ámason t.v. og Kjartan Kjartansson á Smára RE14 voru
niðri á Granda í gær að fara yfir þorskanetin svo allt yrði klárt eftir páska. Veiðistoppið fer þó mis-
jafnlega vel í sjómennina sem sumum finnst það fjandi hart að þurfa að taka upp netin á háver-
tíðínni. Timamynd Ámi Bjarna
Landssamband smábátaeigenda:
Hafnar niðurstöðum
Tvíhöfðanefndar
Landssamband smábátaeigenda
hafnar alfarið niðurstöðum svokall-
aðrar Tvíhöfðanefndar um mótun
sjávarútvegsstefnu og telur að með
vinnubrögðum sínum hafi nefndin
sýnt sig vanhæfa til að fjalla um
þau mál er henni var ætlað, sam-
kvæmt lögum um stjómun fisk-
veiða.
í bókun Landssambandsins kemur
fram að á grundvelli laga um stjórn-
un fiskveiða var nefndinni uppálagt
að meta hagkvæmustu samsetningu
fiskiskipaflotans. Að mati LS af-
greiðir nefndin það hins vegar með
hreinum orðhengilshætti og þannig
brotið og hunsað í veigamiklum at-
riðum þau ákvæði laganna er kveða
áum störfhennar.
Landsambandið vill sérstaklega
benda á að ýmsar upplýsingar sem
frá nefndinni hafa komið varðandi
smábátaútgerðina eru beinlínis
rangar eða þannig settar fram að að-
alatriðum er sleppt Að sama skapi
hefur nefndin alfarið sniðgengið
lögbundið samráð sem henni var
ætlað að hafa við sjávarútvegsnefnd
Alþingis og samtök helstu hags-
munaaðila. -grh
Tillaga um rannsókn
á fjármálum Hrafns
„Við leggjum til með vísan til 39. gr. stjómarskrárinnar að sett verði
á stofn níu manna rannsóknamefnd á vegum Alþingis sem rannsaki
hvernig ráðningu Hrafns Gunnlaugssonar í stöðu framkvæmda-
stjóra Sjónvarps bar að höndum.
Einnig verði athugað hvort um
óeðlileg hagsmunatengsl sé að ræða
milli Hrafns Gunnlaugssonar annars
vegar og menntamálaráðuneytisins
tir verötryggöra lana
meðalvextir i %
og Sjónvarpsins hins vegar og hvort
hann sé af þeim sökum heppilegur
til að veita Sjónvarpinu forstöðu og
að gera samninga við sjálfan sig,“
segir Páll Pétursson, alþingismaður.
Meðflutningsmenn Páls eru þing-
mennimir Steingrímur J. Sigfússon,
Kristín Ástgeirsdóttir, Steingrímur
Hermannsson, Ólafur Ragnar
Grímsson og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir.
Samningur sá sem Pétur Guðfinns-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sjónvarpsins, gerði við Hrafn Gunn-
laugsson, núverandi framkvæmda-
stjóra Sjónvarpsins, og gagnrýndur
var harðlega á Alþingi í fyrradag, var
gerður 18. september í fyrra. Hrafn
fékk fyrir samninginn 1,5 milljónir
5. febrúar í ár og 2,4 milljónir 5. apr-
fl, þ.e. í fyrradag. Sveinn Einarsson,
fyrrverandi dagskrárstjóri innlendr-
ar dagskrárdeildar Sjónvarpsins,
neitaði Hrafni að gera þennan samn-
ing vegna þess að hann taldi að með
honum væri verið að brjóta þær
reglur sem fram að þessu hafði verið
framfylgt á Sjónvarpinu í sambandi
við kaup á íslenskum myndum.
Sveinn vísaði m.a. til þess að Pétur
Guðfmnsson hafði tekið ákvörðun
um að hafna því að gera slíkan samn-
ing við Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndaleikstjóra. Eftir að Hrafn hafði
fengið neitun hjá Sveini snéri Hrafn
sér til Péturs og gerði við hann
samning.
Samningur Hrafns og Péturs gerir
ráð fyrir tveimur endursýningum í
Sjónvarpinu, eigi síðar en þremur
árum frá ffumsýningu myndarinnar.
-EÓ
Hrafn
selur
borginni
hús