Tíminn - 15.04.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 15. apríl 1993
Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur verið að vinna að til að liðka fyrir
gerð kjarasamninga munu m.a. verða fjármagnaðar með niðurskurði
og samdrætti í opinberum rekstri. BSRB:
Avísun á meira
atvinnuleysi
ögmundur Jónasson, formaöur BSRB, segist hafa orð forsætisráöherra,
utanríkisráðherra og Qármálaráðherra fyrir því að þær aðgerðir sem ríkis-
stjórnin hefur verið að vinna að til að liðka fyrir gerð nýs kjarasamnings
verði m.a. fjármagnaöar með samdnetti og niðurskurði í opinberum
rekstri.
„Þannig að sumir hverjir munu
koma til með að borga þetta með at-
vinnu sinni og aðrir með skertri
þjónustu sem þeir fá. Auðvitað vilj-
um við fá lækkun á matarverði og
ýmsu öðru sem verið er að tala um
og m.a. fjármagn til atvinnuskap-
andi aðgerða. Gn ekki að það sé fjár-
Þyrla sækir
landgöngu-
liða
Þyrla Varnarliðsins sótti í
gærmorgun landgönguiiða
sem var talinn illa haldinn af
vosbúð í nágrenni Skjald-
breiðar.
Snemma í gærmorgun greindu
starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar boð frá neyðarsendi sem
sendi út á tíðni Vamarliðsins.
Boðin bárust frá stað norðaust-
ur af Þingvallavatni í námunda
við Skjaldbreið en þar er æfing-
arsvæði fyrir björgunarsveitir
o.fl. Fjórir landgönguliðar Vam-
arliðsins fóm þangað í fyrradag
til æfinga. Vamarliðinu var þeg-
ar gert viðvart Það sendi þyrlu á
vettvang og í fyrstu var álitið að
einn landgönguliðinn væri illa
haldinn vegna vosbúðar.
Hópurinn sem telur fjóra til
fimm menn var að sögn tals-
manns Landhelgisgæslunnar
illa búinn til ferðarinnar og
mun sá er verst var ástatt um,
hafa verið lagður inn á sjúkra-
hús til aðhlynningar en var út-
skrifaður þaðan í gær.
-HÞ
magnað á kostnað samneyslunnar,
velferðarþjónustunnar og atvinnu-
öryggis okkar félagsmanna. En það
er það sem virðist vera í burðarliðn-
um á sama tíma sem áfram er haldið
að ívilna atvinnurekendum með
niðurfellingu á þeirra gjöldum og
engum kauphækkunum."
Ögmundur segir það einnig mjög
alvarlegt að markmið ríkisstjómar
með hugsanlegum aðgerðum í at-
vinnumálum beinist ekki að því að
atvinnuleysið fari niður fyrir 5%.
,Jdenn virðast vera búnir að sætta
sig við það að atvinnuleysi hér á
landi verði um 5%, sem þýðir stöð-
ugt atvinnuleysi hjá 6-7 þúsund
manns. Það sem verra er að það er
ástæða til óttast að þær ráðstafanir
sem stjómvöld hyggjast grípa til,
niðurskurður í opinberri þjónustu
og fækkun starfa þar, muni leiða til
enn meira atvinnuleysis."
Formaður BSRB segir það vera afar
slæman hlut ef nýr kjarasamningur
ASÍ og VSÍ verður fjármagnaður á
kostnað atvinnuöryggis opinberra
starfsmanna.
„Ég hef alltaf talið það mjög slæm-
an kost að hreyfing launafólks skyldi
ekki samræma sínar kröfur og knýja
á um þær. Ég held að það hefði orð-
ið miklu farsælla en sú leið sem Al-
þýðusambandið valdi að samræma
sín sjónarmið Vinnuveitendasam-
bandi íslands. Og ég held að þetta
far sem menn fóm ofan í fyrir all-
löngu síðan, leiði bara í vitlausa átt;
út í fen og móa.“
-grh
Tæpur helmingur af skuldum sjávarútvegarins eru hjá Landsbanka
og Fiskveiðasjóði:
Eignir 132 millj.
skuldir 93 millj.
Heildareignir í sjávarútvegi voru 132 milljarðar króna í lok september
1992. Fyrirtæki í sjávarútvegi skulduðu hins vegar 93 milljarða. Stærstu
einstaka lánveitendur sjávarútvegsins eru Landsbankinn og Fiskveiðasjóð-
ur, en samtals hafa þessar lánastofnanir lánað fyrirtækjum í sjávarútvegi
43,6 milljarða.
Skuldir fyrirtækja í sjávarútvegi
við banka voru í lok september í
fyrra 40 milljarðar. Þar af lánaði
Landsbanki 27 milljarða, íslands-
banki 8 milljarða, Búnaðarbanki 3
milljarða og sparisjóðirnir 2 millj-
arða. Sjávarútvegsfýrirtækin skuld-
uðu 31 milljarð í sjóðum, þar af 16,4
milljarða hjá Fiskveiðasjóði, 5,1
milljarð hjá Byggðasjóði, 2,7 millj-
arða hjá öðrum fjárfestingalánasjóð-
um og 7,2 milljarða hjá atvinnu-
tryggingardeild Byggðastofnunar.
Sjávarútvegurinn hefur tekið einn
milljarð að láni erlendis með bein-
um lántökum, þ.e. án milligöngu
innlendra banka. Einn milljarður
hefur verið tekinn að láni með
eignaleigu og 20 milljarða skuld
liggur utan lánakerfisins. Samtals
eru þetta 93 milljarðar.
Eignir sjávarútvegsins eru hins
vegar 132 milljarðar. Þessar eignir
skiptust þannig að fiskiskip eru met-
in á 71 milljarð (tryggingaverð-
mæti), byggingar, vélar og tæki og
birgðir fiskvinnslu á 40 milljarða,
aðrir veltufjármunir á 10 milljarða
og aðrir fastafjármunir á 11 millj-
arða. -EÓ
Suðuriand:
Kornsáning
aö hefjast
Kombændur á Suðurlandi byrja
væntanlega komsáningu strax eft-
ir helgi. Olafur Eggertsson á Þor-
valdseyri undir Austur- Eyjafjöll-
um sagði ekkert vera að vanbúnaði
að hefja sáningu því jörð sé frost-
laus og vor í lofti.
Ólafur og fyrirtækið Akrafóður í
Austur-Landeyjum standa í ár fyrir
milliliðalausum innflutningi á sáð-
komi, beint frá Noregi. Ágæt þátt-
taka var í þessum innflutningi
meðal sunnlenskra kombænda og
verða flutt 72 tonn sáðkoms til
landsins. Komið kemur til landsins
öðm hvom megin við helgina og
þegar búið er að innleysa það úr
tolli hefst sáning af fullum krafti.
Flestir kombændur á Suðurlandi
em undir Eyjafjöllum og í Landeyj-
um en komrækt hefur einnig verið
að ryðja sér til rúms í Ámessýslu á
síðustu ámm, ekki hvað síst í
uppsveitum sýslunnar.
-sbs, Selfossi
Almannavarnaæfing í Vík í Mýrdal:
Hvað ef Katla
dags. Á æfingunni eru
fbúaríVíkí
í þessum efnum.
„fbúar hér í Vfkinni verða ift-
ið varir við þetta fyrstu tvo dag-
ana. Hins vegar verður aðalstag-
kraftur æfíngarinnar á föstudag-
inn. Þá verða nokkrar björgunar-
sveitir hér á svæðinu, menn frá
Almannavömum, vamarliðinu
og þyrla Landhelgisgæslunnar
verður notuð við æfinguna,“
sagði Hafsteinn Jóhannesson,
sveitarstjóri í Vik í Mýrdal, f
samtali viö blaðið. Almanna-
vamanefndir Vestur- Skaftafells-
og Rangámllasýslna taka enn-
og stendur Öl föstu-
en
fremur þátt f æfíngunnL
Þetta er eldd einasti varnaglinn
sem JHýrdælingar hafa verið að
slá í víðbúnaði rið KÖtluhlaup.
Fyrir nokkrum vikum efndu
jarðvísindamenn sem sérstak-
iega hafa beint rannsóknum aín-
nm að Mýrdalsjökli og Kötlu-
svæðinu til svokallaðrar Kðtlu-
stefnu í félagsheimiUnu Leik-
skálum í Vík. Þar voru sýndar
myndir og kort af þessu svæði og
flutör fyririestrar um málefnið,
-sbs, Selfossi
Vafamál hvort þeir sem misnota áfengi ættu að fá ökuskírteini fyrr
en eftir tvítugt:
Ungir „alkar“ aka
4-falt oftar útaf
Komið hefur í Ijós að mikil hætta er á að áfengissjúklingur valdi umferð-
arslysi ekki bara á meðan hann er ölvaður heldur einnig þegar hann er
að jafna sig eftir drykkju. Sérstaklega á þetta við meðal þeirra sem eru
um tvítugt eða yngri. Víðtæk læknisrannsókn hefur leitt í ljós að ein-
kenni um áfengissýki eru fjórum sinnum algengari meðal ungs fólks
sem lent hefur í útafakstri, heldur en meðal jafnaldra þeirra almennt.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar er brýnt að fylgjast
með ungu fólki sem misnotar
áfengi. Sömuleiðis er það talið
vafamál hvort þetta unga fólk ætti
að fá ökuskírteini fyrr en eftir tví-
tugsaldur.
Blaðið Heilbrigðismál segir frá
þessari rannsókn sem Kristinn
Tómasson, læknir á geðdeild Land-
spítalans, hefur gert ásamt sam-
starfsmönnum sínum. Kannaður
var þáttur áfengis í 475 umferðar-
slysum sem urðu með þeim hætti
að bíl var ekið út af vegi. Til saman-
burðar var valinn 1.000 manna
hópur. Samkvæmt svörum hóp-
anna á sérstökum spumingalista
kom í ljós að í slysahópnum reynd-
ust meira en tvisvar sinnum fleiri
gmnaðir um áfengisskýki heldur
en í samanburðarhópnum. Meðal
þeirra sem vom 20 ára og yngri var
hlutfallið fjórfalt hærra í slysa-
hópnum en jafnaldra í samanburð-
arhópnum. - HEI
Þorlákshöfn:
Þorskafli svipaður og í fyrra
Alls eru komin 12.161 tonn af
óslægðum fiski á land í Þorlákshöfn
það sem af er vetrarvertíðar. Þetta er
talsvert meiri afli en á sama tíma í
fyrra, en þess ber að geta að þorsk-
afli er svipaður en loðnulöndun í
febrúar og mars var talsvert meiri
en í fyrra. Aflahæsti báturinn sem
stendur er Friðrik Sigurðsson ÁR
17, en þar stendur Sigurður Bjarna-
son í brúnni. Sá bátur er nú kominn
með 1.108,5 tonn á land. Engir bát-
ar eru á veiðum þessa dagana, aðrir
en togarar, vegna páskastoppsins
sem nú stendur yfir.
-sbs, Selfossi