Tíminn - 15.04.1993, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.04.1993, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 15. apríl 1993 Tímiim MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guömundsson Stefán Ásgrfmsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Slml: 686300. Auglýslngasfmi: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- Gmnnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Vond skólastefna í nýlegu svari menntamálaráðuneytis við fyrirspurn nokkurra þingmanna stjórnarandstöðunnar um áhrif niðurskurðar fjárframlaga til grunnskólans á skólastarf koma fram upplýsingar sem valda verulegum áhyggjum. Greinilegt er af svari menntamálaráðuneytis að skerð- ing hefur orðið, einkum í Reykjavík, í því sem kalla má grundvallarnámsgreinar, s.s. íslenska og stærðfræði. Áhrifin hafa hins vegar ekki verið eins mikil úti á landi, m.a. vegna þess að skerðingin kemur fram í því að skólaárið lengist ekki eins mikið og annars hefði orðið og að sums staðar voru kennslustundir í fyrra færri en áætlað hafði verið og fækkunin kemur þar af leiðandi ekki fram. Minni íslenskukennsla, minni stærðfræðikennsla og raunar skerðing skólatíma almennt er sú skólastefna sem mörkuð hefur verið af núverandi ríkisstjórn undir formerkjum sparnaðar. Tvö ár í röð hefur þessari skóla- stefnu verið þröngvað upp á þjóðina og það jafnan látið fljóta með að um tímabundna, einstaka aðgerð sé að ræða „vegna erfiðrar stöðu ríkisfjármála". Engum dylst lengur að þessi skólastefna mun ráða för meðan núver- andi ríkisstjórn er við völd, því henni mun alltaf fylgja „erfið staða ríkisfjármála". Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa nefnilega reynst gjörsamlega getulausir gagnvart þeim vandamálum sem þeir hafa þurft að glíma við, hvort heldur er á sviði atvinnumála, efnahagsmála, rík- isfjármála eða í öðru. Skólaæska landsins og íslenskir foreldrar þurfa því ekki að búast við nýrri skólastefnu frá núverandi valdhöfum — niðurskurður og sparnaður, sparnaður og niðurskurður verður áfram framlag þeirra til íslenskra mennta. Ekki verður hjá því komist í þessu samhengi að benda á mál dagsins, en gagnvart yfirvöldum menntamála virðist ekki sama í hvað fjármagn skattborgaranna er notað. Á sama tíma og við fáum fréttir um niðurskurð á íslenskukennslu umgmenna, telur menntamálaráð- herra við hæfi að kaupa hálaunamann hjá Sjónvarpinu úr embætti með því að borga honum full laun í heilt ár, til að geta ráðið annan mann í stöðuna. Á sama tíma og íslenskukennslan er skorin niður eru keyptar bíómynd- ir í grunnskólana fyrir milljónir, myndir sem ekkert fræðilegt gildi hafa til kennslu. Þó hér séu á ferðinni „smáaurar" miðað við þær tölur, sem annars er verið að skera niður, er það alveg ljóst að þessir „smáaurar" hefðu víða verið vel þegnir í fjársveltu en uppbyggilegu skólastarfi. Heillaóskir til Morgunblaðsins Morgunblaðið hefur nú flutt höfuðstöðvar sínar úr gamla miðbænum í nýtt og glæsilegt hús í Nýja mið- bænum í Reykjavík. I hinum nýju húsakynnum mun Morgunblaðið prófa sig áfram með ýmsar nýjungar í vinnslu blaðsins, sem starfsmenn annarra prentmiðla munu fylgjast grannt með. Þetta eru mikil tímamót hjá hinu stóra og rótgróna dagblaði og vill Tíminn af þessu tilefni óska Morgunblaðinu og starfsmönnum þess alls hins besta í nýjum heimkynnum. Menn eru femír að kalla mennte- umboðsskrifstofu Hrafns Gunn- laugssonar. Hermt er^aðþessi um- ustu sem íslenskur fistamaður hef- ur nokkru sinni haft Eg hef ekki skrifað þettabróf f vetur sent bréf frá umboðsskrif- stofunni. fslenska menntamáia- Bréf hér og bréf þar bjóðanda skrifstofunnar, Hrafni rétt Norraena ekki svo Einarsson í DV í En auðvitað er skrifa bréfog var þar að vísa til Nor- ræna kvikmyndasjóðsins. Petta ieiðir menntamála hefur útskýrt í fjöb miðlum. faetta bréf var bara eitt að Sjóðsstjómin virðist taka það sem skrifstofunnar, ekki að vasast í daglegum störfum eins og bréfa- skriftum. Ráðherrann hefur nú um að N’omeni kvíkmyndasjóður- sjálfúr teiáð af skaríð og uppiýst að inn hafi aldrei fyrr verið beiltur hann hafi ekki skrifað bréfið. Sví- þrýstingi af þessu taglfrá svo valda- amir hjá Norræna kvifmyndasjóðn- mfidum aðilum. um eru þess vegna efcki annað en Hrafn í staðinn. voru hverannar starfsmaður hafi svo skrif- inn búið, því það etu jú svo margir sem skrtfa bréf í menntamáferáðu- að segja svo fengt f samtafi við Tím- neytinu, og spyrja hvort ráðherrann ábyrga ráðherra og yfirmanns frá því í hvers hmna Noiðuríandanna aetti í um, sem aeðstu yfirmenn þess táðu- hhit hefði þetta þótt í hæsta máta neytis sem ráðherrann ber ábyrgö á, Við langborðm Aldrei hafa eins margir talað eins Þú spyrð, er að ganga saman? Ég borga brúsann með einum hætti oft við fjölmiðla um að þeir hafi ekkert að segja eins og aðilar vinnumarkaðar og ráðherrar und- anfamar vikur. Myndmiðlarnir sýna hvar Benedikt gengur inní Garðastrætið og heilsar Þórarni með breiðu brosi. Fjöldi manns situr við ferhymt borð, lítur í plögg og borðar kökur. Jakinn er brúnaþungur og Bimi Grétari bregst ekki bogalistin að raka kringum skeggið. Við Grensásveg er lfka setið við langborð og þar em bakningar á borðum. Þar eru miklar nefndir að störfum eða bíða þess að hefja störf. í Karphúsinu er gengið mik- ið og stundum hratt eftir göngum, og stundum er gamla Rúgbrauðs- gerðin vettvangur hins önnum kafna aðgerðaleysis. Mestu fréttirnar em samt þegar Benedikt fer í Stjómarráðið við Lækjartorg. Þangað hleypur líka Magnús Gunnarsson við fót og inn hleypur Jóhanna og inn hlaupa Jón og Jón Baldvin og Friðrik gengur hnakkakerrtur á móti hljóðnemum og myndavélum. Davíð stendur innan við glugga og fylgist áhugasamur með hvað fram fer á hlaðinu hjá honum. Enginn, sem inn fer, hefur neitt að segja um hvaða erindi hann á í Stjómarráðið, en manni er sagt að verið sé að funda um kjaramál. Ég svara Næst fara aðilar vinnumarkaðar- ins og ráðherrar að tínast út og Benedikt hristir höfuðið og segir að ekkert hafi gerst. Þórarinn V. segir að nú verði eitthvað að fara að gerast og Magnús er vongóður um að málin muni leysast, en hann veit bara ekki hvenær. Jó- hanna hristir höfuðið og segist ekki segja orð. Jón Baldvin segir: svara: Samningar munu nást. Þegar ró kemst á, talar forsætis- ráðherrann við fréttamenn og seg- ir fundinn hafa verið góðan og að það sé að draga saman, en málin séu erfið. Um helgar eru svona fundir haldnir í Ráðherrabústaðnum og þá mæta ráðherrar bindislausir í sumarbústaðablússunum sínum. Orðaskipti fjölmiðlanna og ráð- lfáíiA ^ ^ í vnt og preui herra og aðila vinnumarkaðarins og hagfræðinga þeirra em með hefðbundnum hætti og á svipaða lund og áður er lýst. Benedikt segir svaka mikla vinnu vera lagða í samningsdrög og þol- inmæðin sé á þrotum. Þórarinn segir að þetta verði að fara að ganga. Jón Baldvin segir: Þú spyrð, ég svara og svo spyr hann og svar- ar og fer spurningin inn um annað eyrað og svarið út um hitt. Síðan gefur Davíð kost á viðtali og tilkynnir að miklir erfiðleikar séu í þjóðfélaginu, en samningar séu á næsta ieiti. Alltaf er verið að semja Tilbrigði við stefið er þegar Ög- mundur og Páll fá að vera með. Þeir eru löngu búnir að missa þol- inmæðina og staðhæfa að við þá sé barasta ekkert talað og láta að því liggja að samtök þeirra verði látin eða öðrum, ef samið verður við að- ila vinnumarkaðarins um kaup á steinsteypu til að uppmælingaað- allinn fái eitthvað að bardúsa. Svo er deilan í Straumsvík komin með sérstæðum hætti þversum inn í alla samningagerð og getur allt eins farið svo að einhverjir karlar og kerlingar í Zurich hafi úrslitaáhrif á hvort þjóðarsátt get- ur tekist á íslandi eða hvort samfé- lagið riðlast í einhvers konar stjómleysi. Ekki er tekist á um kaupið í þeim viðræðum, sem fram fara bak við luktar dyr til að láta líta svo út fyr- ir að eitthvað sé verið að gera. Það er talað um vexti og skattamál og ríkisframkvæmdir. Atvinnuástand- ið er höfuðverkur sem enginn veit hvemig á að lækna, nema helst með atvinnubótavinnu, en hana verður að kalla öðmm nöfnum, því hvergi er hreinskilninni fyrir að fara. Ríkisstjórnin þverskallast við að leggja neitt af mörkum til að leysa málin og áfram er haldið að funda hér og funda þar um samningana og gefnar em út yfirlýsingar um að þolinmæðin sé að bresta eða að sýna verði dálitla þolinmæði, því allt sé þetta að leysast, en enginn veit hvernig. Myndmiðlar halda áfram að sýna aðila vinnumarkaðar ganga inn um dyr og út um dyr og ráðherra ganga inn í Stjórnarráðið og út úr því aftur. Blöðin segja fréttir af því að ekkert sé að frétta og fréttaskýr- endur vita upp á hár hvers vegna ekkert skeður í kjaraviðræðunum og ef einhver er enn að lesa þenn- an pistil getur hann velt fyrir sér um hvað hann er og hvers vegna hann er skrifaður. Það er af því að alltaf er verið að semja. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.