Tíminn - 15.04.1993, Síða 6

Tíminn - 15.04.1993, Síða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 15. apríl 1993 Menntamálaráðherra kannast ekki við að Hrafn Gunnlaugs- son hafi leitað aðstoðar sinnar: Aðstoðar ráð- herra var leitað f DV í gær er haft eftir Ólafi G. Einarssyni menntamálaráöherra að Hrafn Gunnlaugsson hafi ekki leitað eftir aðstoð sinni til að reyna að þrýsta á um styrkveitingu Norræna kvikmyndasjóðsins. „Tíminn þyrfti helst að birta þetta bráf með undirskriftinni og þá ófalsað,“ sagði ráðherrann við DV í gær. Hér á eftir fer bréf það sem Hrafn Gunnlaugsson sendi Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra þar sem hann óskar liðsinnis ráðherrans við að afla styrks úr Norræna kvikmyndasjóðnum. Hrafn Gunnlaugsson óskaði góðfúslega eftir því í gær að það bréf yrði birt í heild sinni í Tímanum þar sem það skýrði málstað hans gagnvart ummælum Bengt Forslund, forsfjóra Norræna kvikmyndasjóðsins, í frétt Tímans í gær varðandi aðdraganda styrks vegna gerðar myndar Hrafns, Hin helgu vé. •• F.I.L.M iiíinniamslaráðherra Ólaiur G. Einarsson c/o nenniamálaráðuneytið Sölvhólsgötu 4, Rvk. VTA tfð P.O. BOX 7103 RoykjavOc - lcoland Ot&cm address: Brávalisgsts 20 Teiephone 28810 - Telex 2018 Hekle is Reykjavík, I6.09.92 v/Nordisk Film- ovh TV fonð við úthlutun úr Kvlkmyndasjóöi ísiends í jan. '92 voru veittar 21 milljón ísl. kr. t1l upptöku é "Hln helgu vé". Kostnaðaráœtlun myndarinnar hljóðaðl upp á sem nœst 84 mllljónir. Úthlutun Kvlkmyridesjóðs pýddi pví að f jérmagn var pví fenglð fyrlr 1/4 af éœtluðum kostnaði. Pann 7. fePrúar, '92 sendl Hráín Gunnlaugsson oréf til Bengt Forslund frarnkvœmdastjóra Nordlsk Film- och TV-fond og tjáðl honum að harrn vlldi kanna viðörögð sjóðslns viö hjélögðu hendriti að "Hiri helgu vé'.- Bengt svaraðl með faxl pann 17. feörúar, '92 Semkveemt ríkjandi vinnureglu gat fremkvœmdastjóri sjóðsins dundið sjóðinn upp é alll eð 3 mllljónir sænskar pætti honum verkefni sérsteklega áhugavert. Jákvætt svar frá Bengt var pví jaínan túlkað ef framleiöendum sem fyrirhéit um hver endanleg niðurstaða yrði peger umsókn yrði íormlega afgreidd. í sverfaxi Bengt segir m.a: 'Beráttelsen ár i mitt lycke en mycket fm berndomsskildrtng med total vikt pe 'det íörpjudna', öarnets upptáckt av sexualíteten. Jag tycker ocksá ett den ðr föredörnligt koncentrerad - som en woody Allen-film uten jðmíörelse i övrigt" Og nokkru síðar segir 'Konstnðrligt sett tror jag bátje pá Oig och berattelsen och vill gðrna vara med p8 ett hörn." Hin mjög .svo jákvæðu viðbrögð við handritlnu og pað vilyrði um pálttöku í framleiðslu sem kernur frem í tflvitnuöum orðum, varð tll pess að Hrafn var í góðri trú um að hann hefði nú rninnst helrning fjárrnagns til mynderinnar borðliggjandi. Hann taldi stöðu sína nógú sterka til að leita eft.tr frekara liðsinni um íjármögnun erlendis og hafði sarnband við Bo- Jonsson hjé Vikíng Film í Stokkhólmi. Bo tók erindi Hrafns vel, ekki síst i ijósl faxsins^frá Bengt og gerðu Viking Filrn og fyrirtæki Hrafris (FILM) fjármögnunaraætlun par sem miðað var við pátttöku Norræna sjóðsins að 1/4 hlute. Bo Jonsson ræddi við Bengt í síma og tjáðl honurn fré áætltiriinni og væritanlegri umsókn í sjóðinn. Berigt gerði enga athugesernd við pessar hugmyndir. í hðfuðdráttum var hugmynd Bo sú að Sviar greiddu 1/4 af kostnaði, Norræní sjóðurlnn 1/4 -‘Kvikmyndesjóöur íslands hði'ði pegar veiti sern næst l/4 til myndarinnar og að pau 25% sem pá vantaði upp á íengjust að hluta til við næstu úthlutun Kvikmyndasjóðs islánds og rneð væntanlegn sölu aðgangseyris. í mars hittl síðan Hrafn Bengt í Stokkhólmi og ræddu peir urn upptöku rnyridarinnar urn surnarið og var ekki á Bengt enneð að heyre en allt stæði Upphaf bréfsins. Menntamálaráðherra ólafur G. Einarsson c/o menntamálaráðu- neytið, Sölvhólsgötu 4, Rvk. v/Nordisk Film- och TV-fond Reykjavík, 16.09.92 Við úthlutun úr Kvikmyndasjóði íslands í jan. ‘92 voru veittar 21 milljón ísl. kr. til upptöku á „Hin helgu vé“. Kostnaðaráætlun mynd- arinnar hljóðaði upp á sem næst 84 milljónir. Úthlutun Kvikmynda- sjóðs þýddi því að fjármagn var því fengið fyrir 1/4 af áætluðum kostn- aði. Þann 7. febrúar ‘92 sendi Hrafn Gunnlaugsson bréf til Bengts Fors- lund, framkvæmdastjóra Nordisk Film- och TV-fond, og tjáði honum að hann vildi kanna viðbrögð sjóðs- ins við hjálögðu handriti að „Hin helgu vé“. Bengt svaraði með faxi þann 17. febrúar ‘92. Samkvæmt ríkjandi vinnureglu gat framkvæmdastjóri sjóðsins bundið sjóðinn upp á allt að 3 millj- ónir sænskar, þætti honum verkefhi sérstaklega áhugavert. Jákvætt svar frá Bengt var því jafnan túlkað af framleiðendum sem (yrirheit um hver endanleg niðurstaða yrði, þeg- ar umsókn yrði formlega afgreidd. í svarfaxi Bengts segir m.a.: „Beráttelsen ár i mitt tycke en myc- ket fin barndomsskildring með tot- al vikt pá „det förbjudna“, barnets upptáckt av sexualiteten. Jag tycker ocksá att den ár föredömligt kon- centrerad — som en Woody Allen- film utan jámförelse i övrigt.“ Og nokkru síðar segir: „Konstnárligt sett tror jag báde pá dig och beráttelsen och vill gáma vara med pá ett höm.“ Hin mjög svo jákvæðu viðbrögð við handritinu og það vilyrði um þátttöku í framleiðslu, sem kemur fram í tilvitnuðum orðum, varð til þess að Hrafh var í góðri trú um að hann hefði nú minnst helming fjár- magns til myndarinnar borðliggj- andi. Hann taldi stöðu sína nógu sterka til að leita eftir frekara lið- sinni um fjármögnun erlendis og hafði samband við Bo Jonsson hjá Viking Film í Stokkhólmi. Bo tók erindi Hrafns vel, ekki síst í ljósi faxins frá Bengt, og gerðu Viking Film og fyrirtæki Hrafns (FILM) fjármögnunaráætlun þar sem mið- að var við þátttöku Norræna sjóðs- ins að 1/4 hluta. Bo Jonsson ræddi við Bengt í sfma og tjáði honum frá áætluninni og væntanlegri umsókn til sjóðsins. Bengt gerði enga at- hugasemd við þessar hugmyndir. í höfúðdráttum var hugmynd Bo sú að Svíar greiddu 1/4 af kostnaði, Norræni sjóðurinn 1/4 - - Kvik- myndasjóður íslands hafði þegar veitt sem næst 1/4 til myndarinnar — og að þau 25%, sem þá vantaði upp á, fengjust að hluta til við næstu úthlutun Kvikmyndasjóðs ís- lands og með væntanlegri sölu að- gangseyris. í mars hitti síðan Hrafn Bengt í Stokkhólmi; ræddu þeir um upp- töku myndarinnar um sumarið og var ekki á Bengt annað að heyra en allt stæði hvað varðaði Norræna sjóðinn. Sú staðreynd að sjóðurinn féll síðan frá fyrirheiti fram- kvæmdastjórans á síðustu stundu kom því aðstandendum „Hin helgu vé“ algerlega í opna skjöldu. Til að varpa ljósi á stöðu mála hvað afstöðu framkvæmdastjóra sjóðsins snertir, er fróðlegt að líta á fax, sem hann sendi Friðriki Þór og Ara Kristinssyni þann 6. apríl (nokkrum dögum eftir fúndinn með Hrafni). Friðrik hafði sent Bengt handrit, sem byggir á æskuminningum Friðriks og er því sömu ættar og „Hin helgu vé“. í svari Bengts frá 6. apríl segir orðrétt: „Besides I must admit that I personally find Hrafn’s script better and more of universal application than Fridrik’s, which I read during the weekend." Bengt notar sem rök fyrir því að hafna Friðriki, að handrit Hrafns — þ.e. „Hin helgu vé“ — sé betra og að því er virðist inni hjá sjóðnum, og því vart ástæða til að styrkja tvö handrit um sama efni. Bengt minn- ist hins vegar ekki á „Karlakórinn Heklu“, sem fékk síðan styrk, eitt verka frá íslandi. Um þetta leyti mun hafa komið t ljós, að fjárhagsstaða sjóðsins var ekki sem skyldi. Þetta vissum við hins vegar ekki fyrr en síðar. Þar sem ffamleiðendur þóttust fullvissir um fjárframlag úr Norræna sjóðn- um, sóttu þeir ekki um framlag frá Eurimage, þ.e. Evrópusjóðnum. Verk eins og „Hin helgu vé“ hefði trúlega átt þar greiðan aðgang, því í úthlutunarreglum Eurimage er lögð sérstök áhersla á bama- og unglingamyndir. Þann 25. maí (daginn fyrir úthlut- unarfund Nordisk Film- och TV- fond) barst óvænt bréf með faxi frá Bengt, framkvæmdastjóra Norræna sjóðsins, þar sem hann gerir ýmsar athugasemdir við handritið að „Hin helgu vé“, og ber því við að hann hafi nú loks fengið lokahandrit og lítist síður á það en frumhandritið, sem hann hafði miðað fyrirheit sín við. Þessi athugasemd hljómar nán- ast sem fyrirsláttur, því söguþráður handritsins hafði ekki breyst, held- ur höfðu samtöl verið gerð ítarlegri og verklýsingar á upptökum skráðar inn. Bo Jonsson getur staðfest að handritið hafði hvorki tekið list- rænum né efnislegum breytingum. Forsendur höfðu því á engan hátt breyst frá því Bengt skrifaði faxbréf sitt 17. febr. ‘92. Auk þess er bréfið faxað svo seint (daginn fyrir úthlut- unarfund) að útilokað var að gera athugasemdir við efni þess fyrir fundinn. Bo Jonsson reyndi sam- dægurs að ná í Bengt til að leiðrétta hugsanlegan misskilning vegna handritsins. Það handrit, sem Bengt vitnar til í bréfinu, var ensk þýðing á eldri útgáfu af handritinu, sem hafði verið gerð í fljótheitum til kynningar fyrir kvikmyndahátíðina í Cannes. ítarlegri útgáfa lá þá fyrir, bæði á íslensku og sænsku. Bo tókst ekki að hafa upp á Bengt. Auk þess segir Bengt orðrétt í bréfinu: ,Jag kommer dock inte att relatera mina invandningar inför styrelsen för att pá sá satt páverka dem i negativ riktning, aven om jag máste tillstá att jag inte ár entusiastisk." Bengt segir með tilvitnuðum orð- um að hann muni ekki tjá stjórn- inni frá nýtilkomnum „efasemdum" sínum. Ólafur Ragnarsson tjáði mér hins vegar að Bengt hefði ekki stað- ið við þessi orð. Bengt hefði lagst gegn umsókninni á fundinum og vitnað í bréfið. Bengt hefði hins vegar stutt umsókn um „Karlakór- inn Heklu“ frá Guðnýju Halldórs- dóttur. Bengt hafði áður mælt gegn þeirri umsókn, bæði í faxi og í sam- tali við hlutaðeigendur. Ólafúr Ragnarsson segir að þessi snögga breyting á afstöðu Bengts hafí kom- ið sér á óvart, og virðast þeir Bengt því ekki hafa náð að bera saman bækur sínar fyrir fundinn (Sjá nán- ari frásögn af túlkun Ólafs á þessum fundi í hjálagðri fundargerð Sam- bands íslenskra kvikmyndafram- leiðendafrá 17.08.92). En höldum áfram þar sem frá var horfíð. Þann 26. maí, þegar um- sókninni er hafnað, er orðið of seint að sækja um til Eurimage, vegna þess að umsókn þarf að berast löngu áður en upptökur hefjast og næsti fundur Eurimage var áætlað- ur í lok júní, þegar við værum komnir vel af stað í tökum. Við vorum því brunnir inni hvað Eurimage snerti. Þetta gerði það að verkum að fjárhagsgrundvöllur myndarinnar var væntanlega hrun- inn. Það hefði verið hrein ævintýra- mennska að leggja út í tökur með aðeins hluta af lágmarksfjármagni tryggðan. í framhaldi þessa kom Bo Jonsson í skyndiferð til íslands. Okkur datt fyrst í hug að fresta upp- tökunni um ár eða leggja hana nið- ur. Að athuguðu máli kom í ljós að útlagður kostnaður var þegar orð- inn það mikill, að það væri nánast jafn dýrt að hætta við og að ljúka sjálfri upptökunni. Ástæða þessarar niðurstöðu var að öll leikmynda- smíðin hafði verið unnin í eyjunni Gróttu. Náttúruverndarráð setti sem skilyrði að ljúka yrði allri smíði í eyjunni fyrir 1. maí vegna friðlýs- Hrafn Gunnlaugsson ingar svæðisins um varptímann. Auk þess voru allir samningar við leikara og upptökufólk þegar undir- ritaðir og hefði þurft að greiða þeim bróðurpart launanna hvort sem var. Bo tókst með því að nota sambönd sín í Svíþjóð til að fá fleiri sænska aðilja í lið með okkur, svo ljúka mætti sjálfri upptöku myndarinnar, þ.á m. Sænsku kvikmyndastofnun- ina, Svensk Filmindustri, Sænska sjónvarpið o.fl., og framlag Svía hækkaði þannig í 32% af fram- leiðslukostnaði (Vísast í þessu sam- bandi til hjálagðs ljósrits af kaflan- um úr Samproduktionsavtal sem heitir Insatser, Andelar). f ljósi þeirra fjármuna, sem þegar hafði verið eytt, og vegna þess að Bo tókst að auka hlut Svía um 6%, töldum við rétt að fara í töku til að eyði- leggja ekki þá fjárfestingu sem þeg- ar hafði verið gerð. Var reynt að spara fé eftir ýtrustu getu við upp- tökuna (sjá hjálagt bréf Bo Jonsson til Bengts Forslund frá 15/9 ‘92 þar sem hann gerir grein fyrir þessari ákvörðun). Núna þegar tökunni er lokið, er allt fé uppurið og meira til. Úti- standandi skuldir og lán vegna myndarinnar eru um 10 milljónir og er þá allur eftirvinnslukostnaður eftir, sem er um 2,7 milljón sænskra króna. Það er því ljóst að ógerlegt er að ljúka myndinni nema Norræni sjóðurinn komi til og standi við fyrri heit. Við höfum því stöðvað alla frekari vinnslu við myndina þar til niðurstaða fæst um hvað Norræni sjóðurinn hyggst gera. Sú regla hef- ur ríkt að ekki skuli veitt til verka sem upptökur eru hafnar á. En við lítum svo á að okkar tilfelli sé und- antekningartilfelli, því okkur var nauðugur sá kostur einn að hefja upptökur. Við teljum að í ljósi þeirr- ar sögu, sem rakin hefur verið hér á undan, beri sjóðnum siðferðileg skylda til að standa við gefín heit. í ljósi þess að framangreind loforð Bengts voru gefin í samræmi við það verklag, sem notað hafði verið hjá sjóðnum við hliðstæðar aðstæð- ur og þess að forsendur fyrir loforð- inu höfðu ekki breyst með þeim hætti að ógilt gæti efni Ioforðsins, teljum við stöðu okkar siðferðilega og lögffæðilega mjög sterka. En við viljum forðast málaferli í Iengstu lög, þar sem málaferli yrðu til að skaða álit sjóðsins út á við og veikja samstöðuna, sem um hann hefur ríkt. Það er mikilvægt að leysa þetta mál innan sjóðsins og viljum við því óska eftir því við þig, háttvirtur menntamálaráðherra, að fúlltrúi fs- lands geri þá kröfu innan stjórnar að veittar verði 2,1 milljón sænskar til að ljúka við „Hin helgu vé“ og ekki verði úthlutað til nýrra verka fyrr en staðið hefur verið við gefín loforð. Þetta gæti gerst með þeim hætti að fyrri umsókn yrði látin gilda og tekin aftur upp til endan- legrar afgreiðslu í ljósi þeirra að- stæðna sem hér hefur verið lýst. Virðingarfyllst, f.h. framlei&enda „Hinna helgu véa“, Hrafn Cunnlaugsson Bréf þetta er samið í samráði við Tómas Þorvaldsson, lögfræðing Sambands íslenskra kvikmynda- framleiðenda.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.