Tíminn - 17.07.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.07.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. júlí 1993 Tíminn 3 Byggðastofnun leggur fram byggðaáætlun til fjögurra ára: Stærstu þéttbýlis- staðirnir á lands- byggóinni verði efldir Byggöastofnun leggurtii í byggöaáætlun sem lögð hefur verið fyrir rikis- stjómina að nýni opinberri þjónustu veröi í framtíöinni fyrst og fremst fiindinn staöur i stærstu þéttbýiisstöðunum. Ekki er þó gert ráö fýrir aö sú þjónusta sem nú er á hinum minni stööum veröi skert Lagt er til að bændum sem búi (allra afskekktustu byggðum landsins veröi boðin að- stoötil aö hætta búskap. Byggðastofnun leggst gegn því aö hafln verði mjög umfangsmBdil flutningur á rikisstofnu nu m frá höfuöbotgarsvæðinu útáland. Sú byggðaáætlun sem nú er komin fram er afrakstur breyting- ar sem gerð var á lögum um Byggðastofnun vorið 1991. Með lagabreytingunni var verið að gera stofnunina að meiri þróun- ar- og áætlunarstofnun en dregið úr hlutverki hennar sem lána- stofnunar. Byggðastofnun var gert að gera byggðaáætlanir til fjögurra ára og endurskoða þær á tveggja ára fresti. Sú áætlun sem nú er komin fram Qallar meira um vinnubrögð og markmið en beinar markvissar tillögur. í áætl- uninni er td. ekki að finna beinar tillögur um hvar og hvenær byggðar skuli haíhir, skólar og sjúkrahús. Forráðamenn Byggða- stofnunar telja að í næstu byggðaáætlun sé hugsanlega komin forsenda tii að leggja slíka áætlun fram. Eitt af því sem Byggðastofnun leggur til er að gerð verði áætlun um uppbyggingu þjónustumann- virkja á vegum hins opinbera. Slfk áætlun hefur verið gerð varð- andi uppbyggingu vega, flugvalla og hafha, en Byggðastofhun legg- ur til að slíkar áætlanir verði lagðar fram fyrir fleiri þjónustu- flokka s.s. heilsugæslu, skóla og þjónustu við aldraða og fatlaða. Markmiðið með þessari áætlana- gerð er að nýta það fjármagn sem varið er til opinberra mannvirkja sem best, bæði þannig að þjón- ustunni sé valinn staður þar sem hennar er mest þörf og að koma í veg fyrir að dýr mannvirki eins og hafnir séu reist á tveimur sam- liggjandi stöðum þar sem vega- samgöngur gera það að verkum að ein höfn nægir. í byggðaáætlun Byggðastofnun- ar er bent á þrjár leiðir til að dreifa stjómsýslu hins opinbera meira um landið. í fyrsta lagi að flytja heilar stofnanir frá Reykja- vík út á land. Byggðastofnun leggst heldur gegn þessari leið og bendir á að reynsla td. Svía af henni sé ekki góð. Erfiðleikarnir og kostnaðurinn sem þessu fylgi sé meiri en menn geri sé almennt grein fyrir. Jafnframt sé viss hætta á að stjómkerfið virki verr en eita. önnur leið sé að koma upp útibúum frá helstu þjónustu- stofnunum ríkisins f landshlut- unum. Þetta er sú leið sem stofh- anir eins og Byggðastofnun, Vegagerðin og Ralmagnsveitur ríkisins hafa farið. Byggðastofnun bendir á að f sumum tilfellum sé hægt að fara þá leið að semja við banka eða sparisjóði á lands- byggðinni um að annast tiltekna þjónustu fyrir ríkið. Þriðja leiðin sem Byggðastofnun bendir á og mælir eindregið með að farin verði er að sameina sveitarfélög og færa til þeirra aukin verkefni sem ríkisvaldið sinnir núna. í byggðaáætluninni segir að reynsla Norðurlandanna bendi til þess að færsla verkefna til sveitar- félaga sé áhrifamesta aðferðin til að færa störf og áhrif f þjóðfélag- inu. Þessi tilfærsla muni tví- mælalaust styrkja landsbyggðinæ Byggðastofnun gerir áfram ráð fyrir að stutt verði við atvinnulíf á landsbyggðinni og í byggðaáætl- uninni er bent á ýmsar leiðir til þess. Stofnunin vill að lögð verði meiri áhersla á að veita beina styrki til verkefna sem talin séu vænleg, frekar en lán. -EÓ Göngugarpur á góðu róli Stefáni Jasonarsyni sækist vel gönguför sín umhverfis ísland. Viðkomustaðir hans í dag verða Vík í Mýrdal og Kirkjubæjar- klaustur. Stefán var við Land- vegamót f Rangárvallasýslu sl. fimmtudag. Mynd SBS enrt Tilboðið gildir til eftirfarandi fjögurra borga Verðdæmi: Kaupmannahöfn 41.420 kr/ Amsterdam 35.355 kr.1 « Lúxemborg 34.910 kr/ « Baltimore 57.080 kr.1 « « (W) QATLASi^ EUROCARD. « Þú færð sjálfkrafa bíl í næsta stærðar- flokki fyrir ofan þann sem þú borgar fyrir bfll) þegar þú kaupir Flug og bíl ferða- pakka til Evrópu eða Bandaríkjanna. Sjáðu heiminn með þínum eigin augum í enn betri bíl. Hafðu samband við söluskrif- stofur Flugleiða, umboðsmenn félagsins um allt land, ferðaskrif- stofurnar eða í síma 690300 (svarað alla daga frá 8-18). *Verð miðast við staðgreiðslu og er per mann. Bókunaríyrirvari er 7 dagar. Tilboðið gildir í brottfarir í júlí og ágúst, heimflug má vera í september. Lágmarksdvöl er ein vika. Hámarksdvöl er einn mánuður. Flugvallarskattar, forfallagjald og ótakmarkaður akstur er innifalinn. Leitið upplýsinga hjá sölumönnum um tryggingar á bílnum. FLUGLEIÐIR Traustur t'slenskur ferðafélagi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.