Tíminn - 17.07.1993, Síða 6

Tíminn - 17.07.1993, Síða 6
6 Tíminn Laugardagur 17. júlí 1993 í júní var haldið f Vín heimsþing Sameinuðu þjóð- anna um mann- réttindi. Undir- búningur undir þingið hafði stað- ið yfir í nokkur ár án þess að miklar fréttir færu af því í íslenskum fjöl- miðlum sem til stóð. Það fór líklega framhjá flestum að fyrsti undirbún- ingsfundurinn fyrir þingið var hald- inn hér á landi á Laugarvatni sum- arið 1991. Þar komu saman fulltrú- ar frá mannréttindastofnunum, há- skólum, félagasamtökum og ráðuneytum allra Norðurlandanna. Skýrslan frá Laugarvatnsfundinum var gefin út sem opinbert Samein- uðuþjóðaskjal með undirskrift Kjartans Jóhannssonar sendiherra. Frumkvæðið að þessum fundi áttu þeir Guðmundur Alfreðsson þjóð- réttarfræðingur og Jakob Möller lögfræðingur, sem báðir starfa hjá mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf. Guðmundur tók síðan virkan þátt f undirbúnings- starfinu fyrir þingið. Eftir að því lauk var Guðmundur beðinn um að halda erindi í Noregi á vegum nefndar, sem kennd er við Perez de Cuellar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, en hann stýrir einnig störfum nefndar- innar. Sú nefnd leysti Brundtland- nefndina af hólmi. Nefndinni er ætl- að að fjalla um menningu með svip- uðum hætti og Brundtlandnefndin fjallaði um umhverfismál. Guð- mundur er staddur hér á landi og féllst góðfúslega á að ræða við blaða- mann um aðdraganda heimsþings- ins og niðurstöður þess. — Norðuriönd héldu annan undir- búningsfund sinn í Lundi í febrúar síðastliðnum með þátttöku sömu stofnana og á Laugarvatnsfundin- um. Varstu bjartsýnn eftir þann fund um að einhver árangur yrði af heimsþinginu? „Þegar Lundarfundurinn var hald- inn höfðu verið haldnir þrír fundir í undirbúningsnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir heimsþingið og þá þegar var orðið ljóst að verulegt ósamkomulag var um veigamikil at- riði, sem átti að álykta um á þing- inu. Meira að segja dagskrá þingsins olli miklum deilum. Það þótti því sýnt að erfiðlega mundi ganga að komast að samkomulagi um öll at- riði einhvers lokaskjals. Það kom líka á daginn. Á Lundarfundinum var sett saman skýrsla, einskonar óskalisti Norðurlandanna, ekki bara ríkisstjóma heldur líka félagasam- taka og háskólafólks. Það gerðu sér allir grein fyrir því á þeim fundi að slíkur óskalisti, þótt hann yrði hafð- ur til viðmiðunar eins og raun varð á, mundi aldrei fá allur inni í loka- skjalinu. Sú varð líka raunin á. Síð- asti undirbúningsfundurinn í Genf í apríl og maí og fyrsta vikan eða tíu dagamir á ráðstefnunni sjálfri í Vín vom til marks um að það var sam- komulag um fæsta hluti. En það gerist svo í lokin að það næst sam- komulag um þetta lokaskjal, sem hefur að geyma marga góða hluti í löngu máli, en það er ekki fullkom- ið. Þarna næst samkomulag um málamiðlunarorðalag í flestum þáttum. Stundum er það ekki annað en endurtekning á þvf sem segir í öðrum samningum og samþykkt- um, sem komið hafa frá samtökun- um í gegnum árin. í öðrum tilfell- um er það efling og styrking á viss- um þáttum, til dæmis um efnahags- og félagsleg réttindi, mannréttindi í þróunarstarfi og kvenréttindi. í enn öðrum atriðum hefur hreinlega ver- ið tekið skref aftur á bak. Það er samt rétt að geta þess að lokaniður- staðan fékkst náttúrlega ekki í Vín. Það á eftir að koma í ljós hvort það er pólitískur vilji fyrir því á næstu árum að þeim ákvörðunum, sem voru teknar á ráðstefnunni, verði fylgt eftir. Það ræðst af ýmsum þátt- um. Þetta á eftir að koma til með- ferðar á allsherjarþinginu í New York og þá ræðst hvort það fást fjár- munir til þess að hrinda þessum verkefnum, sem þó voru samþykkt, í Dr. Guðmundur Alfreðsson þjóðréttarfræðingur. Tlmamynd Ami Bjarna Hurðin opnuð í hálfa gátt framkvæmd. Hvort það megi ráða starfsfólk til að vinna verkin. Þetta byrjar að koma í ljós á allsherjar- þinginu í haust og síðan á næstu ár- um hvort og að hve miklu leyti loka- skjalið frá Vín kemur til með að hafa áhrif á framgang mála á mannrétt- indasviðinu innan Sameinuðu þjóð- anna og á alþjóðavettvangi." — Nú varst þú í leyfi frá mannrétt- indaskrifstofunni í vetur og sinntir kennslu við Raoul Wallenberg- stofnunina í Lundi. Svo varstu kall- aður til baka til Genf. Hvað kom til? „Já, ég hef verið í leyfi frá Samein- uðu þjóðunum frá því síðastliðið haust, en síðan í mars hef ég starfað aftur við undirbúning ráðstefnunn- ar, til þess aðallega að vinna að upp- kasti að lokaskjalinu sem mannrétt- indaskrifstofa samtakanna lagði fram á síðasta undirbúningsfundin- um í Genf.“ — Var uppkastið sæmilega raun- hæft? „Þar var tekið tillit til þess sem hafði komið fram á undirbúnings- fundunum og svæðafundunum. Það var leitast við að finna málamiðlun- arfleti á þeim málum sem upp höfðu komið. Þó á þann hátt að alls staðar væri tryggilega frá því gengið að hvergi miðaði afturábak og þá frekar fram á við. Segja má að í sumum at- riðum hafi þetta uppkast skrifstof- unnar verið ákveðnara en var í loka- skjalinu, en í öðrum atriðum svipar þeim mjög saman." — í ljósi þess að 25 ár eru liðin síðan síðasta heimsþing Samein- uðu þjóðanna um mannréttindi var haldið (í Teheran), hefði þá ekki borgað sig að bíða í nokkur ár í við- bót með að halda það næsta? „Það er ekki bara að það séu 25 ár frá því að síðasta heimsþing var haldið, heldur var þetta bara í annað skiptið sem ráðstefna af þessu tagi er haldin. Það var ákveðið að halda þessa ráðstefnu um svipað leyti og kalda stríðinu lauk. Andstæðurnar austur-vestur hurfu smám saman eftir að Berlínarmúrinn var rifinn og menn héldu að þetta væri góður tími til að gera jákvæða hluti. Það var að sjálfsögðu erfitt að spá fyrir um hvemig ástandið yrði nokkur ár þar á eftir, en ákvörðunin um að halda ráðstefnuna var tekin vetur- inn 1989/90. Það þótti svo við hæfi að hún yrði haldin þegar 25 ár væm liðin frá því að heimsþingið í Teher- an var haldið. Menn voru líklega of bjartsýnir og vongóðir um ham- ingjusaman feril. En þetta var ákveðið og þegar á heildina er litið, má segja að útkoman sé góð. Ég held að á þessu stigi megi segja að þó enn sé óljóst um framhaldið, þá hafi verið betur af stað farið en heima setið. Það er rétt að benda á að einn þáttur kalda stríðsins var að austur- og vesturblokkin deildu um mannréttindamál og framgang þeirra eins og eftirlit með því að samningar væru haldnir. Þannig að það var mjög eðlilegt að menn byggjust við að þama yrði breyting á. En þó að ríkin í Mið- og Austur- Evrópu hefðu tekið upp nýja stefnu í mannréttindamálum, þá kom í ljós í Vín að á milli 20 og 30 ríki, sem á ár- um áður höfðu notið þess að geta falið sig á bak við Sovétríkin, urðu nú að koma fram í eigin nafni." — Voru þetta ríki utan áhrifasvæð- is Sovétríkjanna? Já, að hluta. í Vín þurftu þessi ríki að standa upp og í eigin nafni að hamla gegn því að framfarimar yrðu of hraðar og of miklar. Það má vera að það sé hauðsynlegur áfangi í al- þjóðasamstarfinu að línumar skýr- ist um afstöðuna til mikilvægra mála eins og mannréttinda. Menn vita þá frekar hvar þeir standa, þegar fjallað er um vandasöm mál af þessu tagi í framtíðinni." — Kom eitthvað þér á óvart í nið- urstöðu ráðstefnunnar í Vín? „Nei, í sjálfu sér ekki. Flest af því, sem kom upp á heimsþinginu, hafði verið rætt á undirbúningsfundun- um, þannig að það kom ekki á óvart,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.