Tíminn - 20.07.1993, Page 9
Þriðjudagur 20. júlí 1993
Tíminn 13
1PAGBÓK
Námskeið RKÍ í skyndihjálp
Eins og mörg undanfarin ár gengst
Reykjavíkurdeild RKÍ fyrir námskeiöi í
skyndihjálp fyrir verslunarmannahelg-
ina. Námskeiðið hefst miðvikudaginn
21. júlí. Kennsludagar verða 21., 22., 26.
og 27. júlf. Kennt verður frá kl. 20 til 23.
Námskeiðið telst vera 16 kennslustundir.
Það verður haldið f Fákafeni 11,2. hæð.
Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri.
Þeir, sem hafa áhuga á að komast á þetta
námskeið, geta skráð sig í síma 688188
frákl. 8-16.
Námskeiðsgjald er kr. 4000. Skuldlaus-
ir félagar í RKÍ fá 50% afslátt Hægt verð-
ur að ganga f félagið á staðnum. Einnig
fá nemendur í framhaldsskólum 50% af-
slátt Þetta gildir einnig um háskóla-
nema, gegn framvísun á skólaskírteini.
Meðal þess, sem kennt verður á nám-
skeiðinu, er blástursaðferðin, endurlífg-
un með hjartahnoði, hjálp við bruna,
blæðingum úr sárum og mörgu öðru.
Einnig verður fjallað um það hvemig
koma megi í veg fyrir helstu slys.
Að námskeiðinu loknu fá nemendur
skírteini sem hægt er að fá metið í ýms-
um skólum.
Tekið skal ffam að Reykjavfkurdeild RKÍ
útvegar leiðbeinendur til að halda nám-
skeið í fyrirtækjum og hjá öðrum sem
þessóska.
SkálhoHshátíð 1993
Skálholtshátíð verður haldin næstkom-
andi sunnudag 25. júlf. í ár eru liðin 30
ár frá vígslu Skálholtskirkju og því er
sérstaklega vandað til dagskrár hátíðar-
innar. Þess er einnig minnst á hátfðinni
að í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Páls
ísólfssonar. Auk hefðbundinnar dagskrár
á sunnudeginum eru sérstakir tónleikar
á laugardag þar sem flutt verður Skál-
holtshátíðarkantata Páls ísólfssonar,
haldið verður málþing um helgisiði
fostudag og laugardag og opin verður
sýning á fomum munum úr Skálholts-
kirkju.
Segja má að dagskráin hefjist þegar á
föstudag með því að biskup Islands,
herra Olafur Skúlason, og Kirkjuráð
Þjóðkirkjunnar funda f Skálholti. M. 18
föstudaginn 23. júlf, að afloknum aftan-
söng, verður opnuð sýning á munum úr
Skálholtskirkju sem varðveittir eru í
Þjóðminjasafninu, en einnig eru á sýn-
ingunni munir sem Skálholtskirkja á og
varðveitir sjálf. Sýningin verður opin til
sunnudagskvölds, en í október verður
haldin stærri og viðameiri sýning f til-
efni afmælisins.
Föstudagskvöldið 23. júlí opnar biskup
íslands málþing undir heitinu „Samræð-
ur um helgisiði", þar sem fagmenn á því
sviði bera saman bækur sínar. Málþingið
er öllum opið, en gistirými er talönark-
að. Því lýkur um kl. 1430 á laugardag.
Eftir morgunmessu á laugardegi 24.
júlí verður málþinginu framhaldið, en
kl. 15 eru tónleikar f Skálholtskirkju. Þar
flytja Skálholtshátfðarkórinn, einsöngv-
arar og hljóðfæraleikarar undir stjóm
Hilmars Amar Agnarssonar Skálholtshá-
tfðarkantötu Páls ísólfssonar, sem hann
samdi við ljóð sr. Sigurðar Einarssonar í
Holti fyrir Skálholtshátfðina 1956. Karl
Guðmundsson leikari flytur þann hluta
Ijóðaflokksins sem lesa skal á milli hinna
sungnu þátta. Þessi kantata hefur aðeins
einu sinni verið flutt áður, auk frum-
flutningsins. Hlutar úr verkinu verða
síðan fluttir á hátíðardagskrá sunnu-
dagsins.
Sunnudaginn 25. júlí kl. 10 er kaþólsk
biskupsmessa f Skálholti, en 23. desem-
ber em liðin 800 ár frá dauða Þorláks
biskups Þórhallssonar hins helga í Skál-
holti. Kl. 14 er hátíðarmessa í Skálholti,
en 20 mín fyrir messu leikur Haukur
Guðlaugsson söngmálastjóri verk eftir
Pál ísólfsson á orgel kirkjunnar. í mess-
unni predikar sr. Jónas Gíslason vfgslu-
biskup, en fyrir altari þjóna sr. Tómas
Guðmundsson prófastur, sr. Guðmundur
Óli Ólafsson og biskup íslands, herra Ól-
afur Skúlason.
Eftir messukaffi í skólanum verður há-
tíðarsamkoma í kirkjunni kl. 16.30. Þar
flytja ávörp kirkjumálaráðherra, Þor-
steinn Pálsson, og biskup fslands, herra
Ólafur Skúlason. Sr. Guðmundur ÓIi Ól-
afsson minnist Skálholtskirkju 30 ára
með erindi sem hann nefnir: „Hús mitt
skal vera bænahús". Helga Ingólfsdóttir
leikur einleik á sembal og fluttir verða
þrír þættir úr Skálholtshátfðarkantötu
Páls ísólfssonar, undir stjóm Hilmars
Amar Agnarssonar.
Allir eru velkomnir á Skálholtshátíð.
Vinningshafar í
fjölskyMuleik Ölgeröannnar
Egils Skallagrímssonar
Nú er fjölskylduleik ölgerðarinnar,
Jíáðu þér í strik“, lokið og úrslit komin í
ljós. Mjög góð þátttaka var í leiknum,
enda glæsilegir vinningar f boði.
Jíáðu þér í strik“ gekk út á að þátttak-
endur söfnuðu 10 strikamerkjum af
Pepsi og/eða 7-Up plastflöskum og svör-
uðu þremur léttum spumingum á sér-
stökum þátttökuseðli, sem þeir síðan
sendu ásamt strikamerkjunum til öl-
gerðarinnar.
Vinningar í leiknum voru:
1. Conway tjaldvagn frá Titan hf. að
verðmæti 330.000 kr. með fullkomnum
viðlegubúnaði, samtals verðmæti
405.000 kr. Vinningshafi: Málmfríður
Sigurðardóttir, Búhamri 29, Vestmanna-
eyjum.
2.10 7-Up fjallahjól og seglbrettanám-
skeið í Seglbrettaskólanum Hafravatni.
Vinningshafar Agúst Hlynur Hólmgeirs-
son, Hvassaleiti 157, Reykjavík. Kristín
Gunnþórsdóttir, Austurvegi 6, Grinda-
vík. Fjóla Bláfeld Stefánsdóttir, Hlíðar-
vegi 27, Ólafsfirði. Guðmundur Oddgeir
Þorgeirsson, Smárabraut 2, Höfh í
Homafirði. Hákon Rúnarsson, Rimasíðu
23G, Akureyri. Sig. Fjóla Jóhannsdóttir,
Skólabraut 2, Heilissandi. Fjóla Ævars-
dóttir, Túnbraut 5, Skagaströnd. Guðrún
L. Níelsdóttir, Garðarsvegi 22, Seyðis-
firði. Soffía G. Magnúsdóttir, Laugarás-
vegi 31, Reykjavík. Sigríður Svavarsdótt-
ir, Barmahlíð 11, Sauðárkróki.
3. 100 heppnir vinningshafar hlutu
geisladiska með stórsveitunum SSSól og
GCD.
Hf. ölgerðin Egill Skallagrímsson þakk-
ar öllum þeim, sem tóku þátt, fyrir að
vera með og hvetur íslendinga til að
halda sínu striki.
Sjötti Norræni
textílþríæringurinn
Laugardaginn 24. júlf n.k. kl. 16 opnar
að Kjarvalsstöðum sjötti Norræni textíl-
þríæringurmn.
Að þessu sinni eru sýnd 52 verk eftir 36
listamenn frá fimm Norðurlöndum.
Fulltrúi íslands á sýningunni er Guðrún
Gunnarsdóttir og á hún 3 verk. Guðrún
er fyrir löngu orðin viðurkennd textíl-
listakona og hefur haldið einkasýningar
á íslandi og tekið þátt f fjölda samsýn-
inga erlendis, m.a. þremur norrænum
textílþríæringum, Scandinavia Today í
Japan o.fl. Hún á verk í opinberri eigu
m.a. hjá Listasafni íslands, Reykjavfkur-
borg (Ráðhús Reykjavíkurborgar) og Sa-
varia-listasafninu í Ungverjalandi.
Norræni textílþríæringurinn á rætur
sínar að rekja til ársins 1974, þegar nor-
rænir textíllistamenn rufu einangrun
landa sinna og settu saman sýningu sem
átti eftir að verða fyrirmynd annarra
textflsýninga á Norðurlöndunum. Fyrstu
fjórar sýningamar voru skipulagðar og
reknar af listamönnunum sjálfum, sem
eins og gefur að skilja kostaði mikið erí-
iði. Það var því töíuverður sigur fyrir
textíllistamenn þegar Norðurlandaráð
mælti með því að Norræna ráðherra-
nefndin úthlutaði styrkjum til að styðja
við bakið á samnorrænum sýningum á
borð við Norræna textílþríæringinn.
Þetta komst í gagnið fyrir fimmta Nor-
ræna textílþríæringinn, sem var einnig
sá fyrsti sem skipulagður var af Norrænu
listamiðstöðinni og hefur hann nú unnið
sér fastan sess meðal þeirra sýninga sem
Norræna listamiðstöðin skipuleggur.
Fyrir löngu hefur hinn hefðbundni
„vefnaður" vikið fyrir hugtakinu „texill",
sem spannar yfir miklu fjölbreyttara svið
og er sýningin að Kjarvalsstöðum gott
dæmi um það. Textíllistamenn hafa
markvisst unnið að því að skilja sig frá
bæði vef-hönnun og nytjalist og færast
þannig nær „fagurlist". Textílþríæring-
urinn hefur ekki heldur farið varhluta af
þeim breytingum sem átt hafa sér stað f
landafræði og stjómmálum í Evrópu á
síðustu árum, en til marks um það þá
kemur sýningin til Reykjavíkur frá Vilni-
us, Riga og Tallin, en hin nýfrjálsu
Eystrasaltsríki eiga ef til vill jafnmikla
kröfu á því að vera kölluð „norræn" og
Ld. Finnland.
Sýningin að Kjarvalsstöðum stendur til
sunnudagsins 15. ágúst og verður opin
daglega frá kl. 10 til 18.
Augtýslngarímar Tímans
680001 & 686300
Veiöimenn, athugið!
Stórír og sprækir laxa- og silungamaðkar til sölu.
Upplýsingar í síma 91-673212 og 91-672822.
Litla stúlkan ætlaöi bara aö færa prinsessunni sinni bióm. Tilviljun réöi öllum þessu hvítu og svörtu lóöréttu rðnd-
um, meö giröinguna í baksýn.
Röndótt í tísku!
Díana, prinsessa af Wales, þarf
víða að vera og oft að koma fram.
Það er hennar starf og skylda og
alltaf er sauðsvartur almúginn
jaftihrifinn af prinsessunni sinni.
Vafalaust gilda einhverjar reglur
um klaeðaburð hverju sinni og
enginn efi leikur á að flestir vilja
fylgja þeim. Hvort litlu stúlkunni
á myndinni varð eitthvað á, vitum
við ekki, en auðséð er að hún hef-
ur klæðst sínu fi'nasta þegar hún
rétti Díönu prinsessu blóm,
hneigði sig og brosti sínu blíð-
asta.
Díana var að koma úr móttöku í
Spencer House, sem haldin var til
ágóða fyrir Þjóðarráðið fyrir
heilsu barna, en hún er verndari
ráðsins. í hópi gesta voru fleiri
stórmenni, en að venju féllu flest-
ir í skugga prinsessunnar, jafnvei
sjálf barónessan Margaret Thatc-
her, sem þó hefur látið að sér
kveða að undanförnu eins og
endranær.
Laföi Margaret Thatcher var vissulega klædd viö hæfi.
En hún passaöi sig á hvltu og svörtu röndunum.
Mark Thatcher, sonur Margaret og Denis, var á staön-
um meö bandarfsku konunni sinni, Diane. Þar viröast
rendur ekki hafa komiö til álita.