Tíminn - 10.08.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.08.1993, Blaðsíða 6
6 Tfminn Þriðjudagur 10. ágúst 1993 Með nýja flugvellinum á Egilstöðum eykst flugöryggi á ísiandi: Egilstaðavöllur í alþjóðaf lug umferð Flugöryggi mun aukast hér á landi þegar flugvöllurinn á Egilstöð- um verður opnaður sem varavöllur fýrir millilandaumferö í október n.k. Nú er unniö að þvi að að koma fyrir aðflugs- og Ijósabúnaði við flugbrautina að sögn Ingólfs Amarssonar, umdæmistjóra Egilst- aðaflugvallar. Búist er við að heildarkostnaður verði milli 30 og 40 millj. kr. í fyrrasumar var lokið við að mal- bika um 2 km langa flugbraut á Eg- ilstöðum sem ma. getur þjónað millilandaflugi. Brautin kemur í stað malarbrautar sem hætt verður að nota í hausL Nú í sumar hefur verið unnið að uppsetningu aðflugsljósa og flugleiðsögutækja og segir Ingólf- ur að verkið hafi gengið eins og til var ætlast Ingólfur segir að flugbrautin komi Skagafjöröur: lOdrauga- net gerð upptæk Lögreglan á Sauðárkróki gerði upp- tæk á fimmtudagskvöld tíu gii- sleppunet sem lagt hafði verið í sjónum út af Skaga. Netin voru fúll af dauðum og lifandi fiski, fugli og selum. Eldd er Ijóst hversu lengi þau höfðu legið niðri, en samkvæmt lögum mátti ekki leggja grásleppu- net í sjó eftir miðjan síðasta mánuð. Teir menn frá lögreglunni fóru á báti frá Sauðárkróki ásamt veiði- verði til þess að gera netin upptæk. Grásleppunetin voru merkt en eftir því sem næst verður komist, er ekki búið að hafa upp á eiganda þeirra ennþá. Hjá lögreglunni á Sauðár- króki fengust þær upplýsingar að málið væri í vinnslu. -ÁG til með að auka flugöryggi íslenska millilandaflugsins til muna og sé fyrst og fremst hugsuð sem slík. Þar vísar hann til þess að á landsbyggð- inni hafi Akureyrarflugvöllur verið sá eini sem hafi getað nýst í millilanda- flugi. „Sá flugvöllur liggur á milli hárra fjalla og er alltaf erfiður," segir Ingólfur. Hann á ekki von á að tilkoma braut- arinnar eigi eftir að breyta miklu hvað varðar flugumferð til Austur- lands en bendir samt á að nú þegar hafi ein ferðaskrifstofa auglýst versl- unarferð frá Egilstöðum til Edin- borgar í haust Um 50.000 farþegar leggja leið sína um Egilstaðaflugvöll árlega í innan- landsflugi og telur Ingólfur að þeir farþegar verði eftir sem áður Qöl- mennastir. „Þó að það komi einhverj- ar þotur með nokkur hundruð far- þega er ekki um neina stökkbreyt- ingu að ræða en sjálfsagt verða ein- hveijar leiguferðir," segir Ingólfur. Hann telur að ráða verði í allt að fimm stöður í haust og vísar til þess að þá þurfi flugþjónusta að vera til staðar allan sólarhringinn. -HÞ Fangavarðafélag íslands: „öryggismál á U tla-Hrauni hafa verið í lamasessi lengi og það hafa starfsmenn margbcnt á með skýrslum til yfirmanna og á annan hátt," segir í frétt frá Ennfremur segir að löngu sé tímabært að taka á fangelsismál- um hérlendis og bent á að yfir- menn á Utla-Hrauni hafi I gegn- um tfðina gert ýmislegt gott í ör- yggismálum þrátt fyrir lélegan húsakosf peningaskort og hugs- anlega Iftinn skilning stjóm- valda. Á fimdi stjómar félagsins 3. ág- úst sl. að Litla-Hrauni, var sam- þykkt að biðja öryggistrúnaðar- menn og trúnaðaimenn í fang- elsum landsins að rita skýrslur um öryggismál hver á sínum vinnustað. Skýrslur þessar verði sföan sendar forstöðumönnum fangelsanna og forstjóra Fangels- ismálastofnunar. ís er stutt frá landi í gær kannaði TF SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, hafísinn undan Vestfjörðum. Vélin kom að ísbrúninni 60 sjómflur norð- austur af Horni og fylgdi henni tfl suðvesturs allt á Dohmbanka. Hafísinn er næstur landi, 30 sjó- mflur norður af Homi, 22 sjómfl- ur norð-norðvestur af Horni, 22 sjómílur norðvestur af Straum- nesi, 50 sjómílur norðvestur af Barða og 60 sjómílur vest- norð- vestur af Bjargtöngum. Þéttleiki hafisjaðarins var víðast hvar 1-3/10 til 4-6/10 og lágu víða gisnar ísdreifar út frá megin- ísjaðrinum. Veður var gott til ís- könnunar í gær, hægviðri, heið- skírt og gott skyggni. Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði: Fjármálaráðherra fundar með bæjarráði Akureyrarbæjar um slæmt Mikill út' flutningur verkefna atvinnuástand: Akvarðanalaus fundur á Akurevri Stjóm Málms — samtaka fyrir- tækja f málm- og skipasmíðaiðnaði — lýsir þungum áhyggjum vegna alvarlegrar stöðu margra fyrir- tækja í skipaiðnaði. í ályktun stjómarfundar samtak- anna segir m.a. að í þessum efnum sé ekki um einstök afrnörkuð tilvik að ræða heldur sé raunin sú að greinin sé mjög bágstödd þrátt fyr- ir að nýleg úttekt hafi staðfest að hún sé ágætlega samkeppnisfær við erlend fyrirtæki, ef litið er framhjá víðtækum styrkjakerfúm sem er- lendir samkeppnisaðilar njóti. Síð- an segir í ályktuninni: „Samtök fyrirtækja í skipaiðnaði hafa undanfarin ár varað mjög ein- dregið við gríðarlegum útflutningi verkefna í greininni. Jafnframt hef- ur verið fúllyrt að svo stórfellt und- anskot verkefna til erlendra aðila leiði til þess að staða íslenskra skipaiðnaðarfyrirtækja veikist og að lokum sé hætta á að greinin lognist út af. Því miður vom þessi aðvömnarorð ekki tekin alvarlega og afleiðingin blasir nú við: Staða samkeppnishæfra skipaiðnaðarfyr- irtækja er orðin það veik að til auðnar horfir og miklum verðmæt- um í mannvirkjum, tækjum og verkþekkingu er kastað á glæ með sama áframhaldi." Engar ákvarðanir voru teknar um opinberan stuðning vegna slæms atvinnuástands á fundi Friðriks Shopussonar fjármálaráðherra með bæjarráði Akurcyrar í gær. Til fundarins var boðað af hálfu fjár- málaráðherra, en hann fundaði að auki með bæjarstjóra og forráða- mönnum Slippstöðvarinnar. Fjármálaráðherra leggur til að skuldir Slippstöðvarinnar-Odda hf. verði lækkaðar til þess að skapa fyrirtækinu rekstrargrundvöll, sem talinn er vera fyrir hendi náist fjármagnskostnaður niður. Ríkið mun hins vegar ekki Ieggja nýtt hlutafé inn í fyrirtækið, en stefna stjómvalda er að selja sinn hlut í Slippstöðinni. Hjá Slippnum vinna um 180 manns. Stjóm Slippstöðv- arinnar telur nauðsynlegt að lækka skuldir fyrirtækisins um 200 millj- ónir króna og auka jafnframt hlutafé um 40 milljónir. Ríkið er ■ einn þriggja aðaleigenda fyrirtæk- isins. Auk málefna Slippstöðvarinnar ræddu bæjarráð og fjármálaráð- herra slæmt atvinnuástand á Akur- eyri, aðgerðir stjómvalda í at- vinnumálum og opinberar fram- kvæmdir. Þá vom einnig tekin fyr- ir sérstaklega; framtfð skinna- og prjónaiðnaðar, málefni hitaveit- unnar og hugsanleg sameining RARIK og Rafveitu Akureyrar. -ÁG Utvegsmannafélag Suðurnesja: Uppeldisstöðvar þorsks verði lokaðar fyrir öllum veiðum Stjóm Útvegsmannafélags Suð- umesja styður eindregið þá ákvörðun Sjávarútvegsráðuneyt- isins að loka til lengri tíma svæð- um sem smáfiskur heldur sig á og hefur veiðst í miklum mæli. „Stjóm Ú.F.S. hefur í langan tíma beitt sér fyrir því að uppeldisstöðv- ar þorsks verði lokaðar fyrir öllum veiðum," segir í orðsendingu frá félaginu. „Jafnframt hefúr Ú.F.S. beitt sér fyrir því og ályktað að all- ar veiðar verði stöðvaðar á aðal- hrygningartíma þorsksins í 12-15 daga.“ GS.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.