Tíminn - 24.08.1993, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.08.1993, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 24 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Mótvægi hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Krisflánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Óiafsson Fréttastjóran Birgir Guömundsson Stefán Ásgrlmsson Skrtfstofun Lynghálsi 9,110 Reykjavlk Sfmi: 686300. Auglýslngasfml: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1368,-, verð f lausasölu kr. 125,- Grunnverð auglýsinga kr. 765,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Heimboðið var mistök Það voru mistök að bjóða Simon Peres, utanríkisráð- herra ísraels til íslands og þau verður að skrifa á reikning forsætisráðherra. Tíminn til þessa heimboðs var einkar óheppilega valinn, því ekkert bendir til að breyting hafi orðið á hinni hörðu og miskunnarlausu stefnu ráðamanna í ísrael gagnvart nágrönnum sínum og breytir þá engu um þótt Simon Peres sé talinn hóf- samastur stjórnmálamanna þar í landi. Staða mála í Austurlöndum nær er flókin og hættu- leg og hefur skapast á þeim áratugum sem liðnir eru frá stofnun Ísraelsríkis á landssvæði þar sem Palest- ínumenn voru fyrir. Þau vandamál sem fylgdu stofnun ríkis þeirra hafa alið af sér hatur og átök allar götur síðan. ísraelsmenn hafa framið mörg óhæfuverk í þessari baráttu, en hugsjónagrundvöllurinn er hræði- íeg fortíð þeirra í síðari heimsstyrjöldinni og ásetn- ingurinn um að berjast og láta ekki vaða yfir sig. Hins vegar er ástandið orðið þannig nú að ísraelsmenn eru árásaraðili í mörgum tilfellum og ekki er mögulegt að leggja blessun sína yfir það hátterni. Auk þessa ástands er Mikson málið fleinn í samskipt- um ísraels og íslands, en því erindi var eins og kunn- ugt er komið á framfæri á óvenjulegan hátt við forsæt- isráðherra íslands á sínum tíma. Mistök þessarar heimsóknar felast í því að það er ekki um það samstaða hérlendis að taka bærilega á móti fulltrúa ísraels. Fyrst slík samstaða er ekki fyrir hendi átti að láta heimsóknina eiga sig þangað til aðstæður væru aðrar. Tilefnið var auk þess einkennilegt frá diplómatískum sjónarhóli. Heimsóknin var væntan- lega til þess að endurgjalda heimsókn Davíðs Odds- sonar til ísraels, sem fræg varð, en athygli vekur að það er utanríkisráðherra Israels, en ekki forsætisráð- herra sem endurgeldur hana. Utanríkisráðherra ís- lands er ekki viðstaddur og borið við fundarhöldum á Grænlandi, en tilgangur heimsóknarinnar hlýtur að vera að skiptast á skoðunum um alþjóðamál og þau ill- vígu vandamál sem uppi eru fyrir botni Miðjarðarhafs. Það er í meira lagi sérkennilegt að utanríkisráðherra skuli vera fjarstaddur þær viðræður sem fram fóru. Ástæðan hlýtur að vera sú að ekki var samkomulag í ríkisstjórninnni um þessa heimsókn og vegna þess er þessi sérkennilegi vandræðaskapur. Ágreiningurinn er bersýnilega á milli forsætis- og utanríkisráðherra um málið, annað er óhugsandi, og ástæður til fjarvistar utanríkisráðherra eru ekki mjög sannfærandi svo vægt sé til orða tekið. Ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar birtist nú æ oftar í erfiðum málum og er það ekki traustvekjandi. Það stoðar því ekki fyrir forsætisráðherra að fjarg- viðrast út í stjórnarandstöðuna fyrir að leiða heim- ókns Simonar Peres hjá sér. Hann hefur látið hjá líða að undirbúa þessa heimsókn á þann hátt sem sóma- samlegast má teljast og fyrsta verkefnið var að ná sam- komulagi um hana í sinni eigin ríkisstjórn. Hann ætti því að beina skeytum að utanríkisráðherra sínum í stað stjórnarandstöðunnar. Illa undirbúnar heimsóknir ráðamanna sem fara fram í ósamkomulagi hjá gestgjöfunum gera ekki ann- að en að skaða samskipti þjóðanna sem í hlut eiga. í ljósi þess var þessi heimsókn mistök. segir í samtali við Tímann um heJgina að íslenskir útvegsmenn séu engir ,rányrkjumenn á míðunum og ætii sér eHri að drepa smáfísk." Þama var útvegsmannaleiðtoginn aó vísa til þess vera að reyna að byggja upp og vemda með kvótakerfi á indamenn norsku strandgæslunnar sem mælt hafa um borð í íslensku skipunum, hafa haldið því ftam að ís- lensku skipin séu í stórum sbl að veiða smáfisk, ungviði sem enn á eftir að vaxa upp. Yfir slfkum veiðum hefur til ■ Norömenn segjÉ^öTsienSngar veiðTsmSHsk i Smugunni. Viðræður H á þriöjudag við Norðmenn i Stokkhólmi. LÍÚ: (Stundum ekki rán- I yrkju ámiðunum .. parak- ástandi sem jþama ríkir af hálfu lensku sjómennimír með fulltingi út- Norðmarma." I iaugardagsblaði Mogg- gerðasinnagerstsínireiginfislrifræð- ans var viðtal við slripstjóra á miðun- ingar enda kemur í ljós að þeir telja um f Smugunni og hann talaði þar á ekki nokkra þörf á að loka þar svæð- svipuðum nótum og formaður útvegs- um! mannanna hér í landi. Skipstjórinn Því miður hafe þessir íslensku sjó- taldi ekki ástæðu tii aðveraað hlaupa mertn sem nú hafa tekið að sér hlut* eftir norskum vísinda- og veiðieftirlits- verksmiðjuhlæ. Garra þótti þvívæntum að heyrayf- væru ekki rányrkju- menn sem dræpu smáfisk. Skána væri samlegrar nýtingar auðlinda hafsins almennt og aíveg sérlega höfúm við látið ljós okkar skiha þegar kemur að því að stjðma veiðum úr sameiginleg- mætti fastlega gera ráð fyrir að miklu minna væri um undimálsfisk á fsland- smiðum og þvf minni ástæða til svæðalokana ef hinir fískifróðu sjó- hér, í stað Haftannsóknarstofnunar. Ef ekki vxri búið að veita Hafró jafh víð- þó að þessar mótmætarullur séu óspart látnar dynja á islensku Haf- rannsóknarstofnuninni vegna svæða- Barentshafi, Þar vita íslenskir fiski- mega menn líka veiöa, jafnvel þótl nær ekkert sé að hafe og það litla sem fáest sé að stórum hluta smáfiskur. Hins vegar dró nokkuð úr gjeðinni þegar f fjós kom að Kristján Ragnars- son, eins og raunar flestlr þeir sjó- menn og skipstjórar sem talað heíur við í fiöimiðlren um helgina, sagði að það þyrftí nú að taka með varúð því sem norska strandgæslan væri að segja því þar á bæ væru menn ekki í fullkomnu jafnvægi. Orðrétt sagði Kristján í Tfmaviðtalinu um mælingar „og við tökum ekki svona yfirlýsingar gildar sem eru settar fram í þessu Idtana á hólfum þar sem smáfiskur hefur verið áberandi. Sjóraenn hafe böKað þessum lokunum og sagst vera á mörkum þess að sigla einfeldlega í land og hætta veiðum. Þeir sigldu þess í stað f Barenbhafið, burt úr lögsögu fslensku Hafrannsóknarstofnunarinn- þeim hvott sem smáfiskur er mikill f inga ekki lengur byggt á niðurstöðum hvað skuli teljast skynsamieg nýting sjávarafurða. í Barentshafi hafe fs- lenskir sjómenn og útgerðarmenn með samþykki stjómvalda lýst yfir þeirri skoðun sinni bæði í orði og verki aö ekkert sé að marka vísindamenn, því þeir séu Iftið annað en áróðutv meistarar. Garri Frjáls verslun og hagfræðin Batra: A heretic among economists Is Bad for You Hagfræðin er til þess að gera ung vísindagrein og það eru ekki mjög margir áratugir síðan þessi fræðigrein fór að fást við efnahagslegar magn- tölur og á grunni þess að reikna út með tölulegum stærðum hitt og þetta í hag- kerfinu. Ekki skal lítið gert úr þeirri list hagfræðinnar að geta með tilstilli stærðfræðinnar búið til flókin módel af þeim efna- hagsveruleika sem umvefur ein- hvem tiltekinn hóp manna og jaftt- vel útbúið efnahagsspár, þjóðhags- spár, og þjóðhagsáætlanir og hvað eina. Hins vegar hefur sú tilhneig- ing ágerst nokkuð á undanfómum árum - og trúlega í réttu hlutfalli við öra fjölgun hagfræðinga á meðal þjóðarinnar - að líta á ýmsar grund- vallarsetningar hagfræðinnar sem lögmál eða endanleg sannindi. Ef- laust á hin stærðfræðilega framsetn- ing og sérhæft tungutak þessarar fræðigreinar, þar hlut að máli, með þvf að gefe umræðunni allri allt að því raunvísindalegt yfirbragð. Staðreyndin er hins vegar sú að hagfræðin er auðvitað engin raun- vísindi og í hagfræði finnst enginn endanlegur sannleikur eða lögmál frekar en í öðrum greinum félagsvís- inda og ofurtrú á hagfræði er til þess eins fallin að þrengja óþarflega um- ræðu um þjóðfélagsmál og pólitíska efnahagsstefnu. Það kom því þægilega á óvart að sjá það í nýjasta tölublaði Newsweek að vestur í Bandaríkjunum halda há- skólamenn enn uppi umræðum um grundvallaratriði hagfræðinnar, þó svo að hér heima virðist enginn lengur láta sér detta í hug að efast um slík atriði. í Newsweek er lítil grein um bandarískan hagfræðipró- fessor frá Texas sem hefúr hrist upp í kollegum sínum þar vestra með boðun hagfræðilegrar villutrúar. Hagfræðiprófessorinn heitir Ravi Batra og er þekktur vestra fyrir hag- fræðilegar metsölubækur en það er í nýjustu bók hans sem hann heggur að rótum hefðbundinna hagfræði- kenninga, með því að halda því fram að frjáls verslun auki ekkert endi- lega á hagsæld. í samræmi við þetta kemur prófessor Batra fram með nokkuð óhefðbundna kenningu - miðað við hagfræðing - og segir að ráðlegast væri fyrir Bandaríkin að loka landamærum sínum frekar en að opna þau enn frekar en orðið er. Þetta er vitaskuld líka forvitnileg kenning fyrir okkur hér á íslandi sem í nokkur misseri höfum hlustað á þau „hagfræðilegu rök“ fyrir EES, þar sem nánast undantekningar- laust er litið á opnunina gagnvart Evrópumarkaði sem ávinning í sjálfu sér. Samkvæmt Newsweek leiðir Batra rök að því í nýjusu bók sinni: „Goð- sögnin um frjálsa verslun", að versl- unin sem slík sé ekki aðalatriði þeg- ar spumingin snýst um að auka hag- sæld fólks. Það sem skipti máli sé framleiðsla raunverulegra verðmæta, en ekki það að versla með þau. f því Ijósi bendir hann á að þar sem verslunin hafi vaxið frjálst og aukið hlut sinn í þjóðarfram- leiðslu hafi lífskjör fólks ekki vaxið hratt. Vöxtur verslunar- innar verður því hlutfallslega meiri en framleiðsugreinanna og það hafi einfaldlega sýnt sig að til lengdar komi slíkt niður á Iífskjör- um. í framhaldi af þessu talar hann um að þjóðir eins og Bandaríkja- menn, Bretar og jafnvel Japanar hafi „þjáðst fyrir frjáls verslun". Rétt er að taka fram að prófessor Batra virðist aðeins telja að ffjáls verslun geti reynst þjóðum erfið og hann virðist t.d. hlynntur frelsi í fjárfestingu milli landa. Engu að síður er ffamlag Batra áhugavert, ekki síst fyrir þær sakir að hann minnir okkur á að „lögmál- in“ eru dálítið varasöm þegar alhæfa á um mannlegt samfélag. Þetta á ekki hvað síst við um hagfræðilög- málin, sem menn gleyma allt of oft að eru ekki merkilegri en þær for- sendur sem þau byggja á. í því sam- hengi er e.t.v. ekki úr vegi að rifja upp gamla hagfræðibrandarann, þegar hagfræðingurinn og vélaverk- fræðingurinn voru einir og alveg allslausir á eyðieyju og höfðu ekkert nema eina niðursuðudós af sax- bauta. Vegna sérþekkingar sinnar var verkfræðingnum falið að reyna að opna dósina á þess að nokkur verkfæri væru fyrir hendi. Hann gafst upp og rétti hagfræðingnum hana. Hagffæðingurinn taldi það Iétt verk að opna dósina og sagði: Gefum okkur sem forsendu að ég sé með dósaupptakara....." - BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.