Tíminn - 24.08.1993, Qupperneq 10
lOTÍminn
Þriðjudagur 24. ágúst 1993
Knattspyma - 2. deild karla:
Spentan á toppnum eykst
Þegar Qórar umferðir eru eftir í 2.
deild kárla þá eiga fimm lið mögu-
leika á að lcomast upp f 1. deildina.
KA og Grindavík eru sjö stigum á eft-
ir toppliði UBK en þar á milli eru
Leiftur og Stjaman, tveimur stigum á
eftir UBK. Fjórar umferðir eru eftir
og nokkrar innbyrðisviðureignir lið-
anna eru þar á meðal.
Þróttur R.-Stjaman
3-1 (0-0)
Sprækir Þróttarar áttu ekki í neinum
vandræðum með Stjömumenn þegar
þeir komu í heimsókn í Sæviðarsund-
ið síðastliðið föstudagskvöld. Þróttar-
ar voru mun sterkari enda dyggilega
studdir af einlægum aðdáendum sem
létu vel í sér heyra allan leikinn.
Ingvar Ólason skoraði fyrst fyrir
Þrótt á 55. mínútu en Stjömumenn
jöfhuðu tveimur mínútum síðar og
var þar að verki Magnús Gylfason.
Ingvar skoraði aftur á 65. mínútu og
Zoran Stosic bætti við þriðja marki
Þróttar áður en yfir lauk.
Ekki var að sjá á Garðbæingum að
þeir væru spenntir fyrir fyrstu deildar-
sæti en Þróttarar vom helsprækir og
leikgleðin skein úr baráttuglöðum
andlitum þeirra f fallegri kvöldsólinni
niður við sundin blá.
Guðjón Svansson
UBK-BÍ 4-1 (2-1)
Blikar endurheimtu efsta sæti 2.
deildar á laugardaginn er þeir sigmðu
Staðan Úrvalsdeild:
Liverpool......3 3 0 010-19
Everton........330 0 7-29
Ipswich ........3 30 0 5-0 9
Man.UTD........3 210 6-17
Coventry..........3 210 6-2 7
Norwich.........3 2 01 7-46
Blackbum........32 01 546
Tottenham......3201 2-16
Aiscnal................ 3201 2-36
AstonViIla......3120 6-35
Wimbledon.......312 0 5-35
Leeds ..........3 111 2-54
Sheff.UTD.......3102 5-83
Oldham..........3 10 2 1-4 3
Q.P.R.............3102 4-83
Chelsea.........3012 2-41
Newcastle......3 01 2 2-41
Man.City.......3012 1-31
WestHam........3012 141
Sheff.Wed........3012 0-31
Southampt ......300 3 1-5 0
Swindon ........3 003 1-90
1. deild
Birmingham-Wolves........2-2
Bolton-Stoke.............1-1
Bristol City-C.Palace....2-0
Middlesboro-Derby........3-0
Millwall-Southend..........14
Forest-Grimsby 5-3
Peterboro-Notts C........1-1
Portsmouth-Luton.........1-0
Sunderland-Charlton......4-0
Tranmere-Leicester.......1-0
Watford-Barnsley.........0-2
WBA-Oxford ..............3-1
2. deild
Boumemouth-Bradford......1-1
Blackpool-Brentford......1-1
Brighton-Hartlepool......1-1
Exeter-York..............1-2
Fulham-Cardiff.............1-3
Hull-PIymouth............2-2
Leyton Orient-Bristol R..1-0
Port Vale-Bamet..........6-0
Reading-Bumley...........2-1
Rotherham-Huddersfield.... 2-3
Stockport-Cambridge .*«••.*** 3-1
Swansea-Wrexham........3-1
Skotland:
Celtic-Rangers...........0-0
Dundee-Aberdeen..........1-1
Hearts-Hibemian..........1-0
Kilmamock-Motherweli .....0-1
Raith-Parttck.2-2
StJohnstone-Dundee UTD..1-1
Boltafélagið frá Isaffrði um helgina.
Amar Grétarsson, fyrirliði UBK, skor-
aði fyrsta mark leiksins á 10. mfnútu
en ísfirðingar jöfnuðu stuttu síðar
með marki Jóhanns Ævarssonar. Am-
ar var aftur á ferðinni á 23. mínútu og
skoraði eftir mistök markvarðar BL
Tvö fyrri mörkin vora einnig þess eðl-
Willum Þór Þórsson lék vel meö
UBK gegn BÍ og skoraðl m.a. glæsi-
mark.
is að markmenn liðanna hefðu átt að
geta afstýrt þeim.
Willum Þór Þórsson skoraði falleg-
asta mark leiksins með þrumuskoti í
síðari hálfleik og varamaðurinn úr
Vesturbænum, Guðni Grétarsson,
innsiglaði öraggan sigur Blika rétt
fyrir leikslok.
Willum Þór sagði eftir leikinn að nú
ætluðu Blikar að halda efsta sætinu,
þeir væra búnir að missa það frá sér
nógu oft í sumar.
Heimamenn þurftu ekki að sýna
neinn stjömuleik til þess að sigra
gestina og þrátt fyrir að búa yfir mikl-
um baráttuvilja verða Boltastrákamir
seint settir á stall með Brasilíumönn-
um í sambandi við spil og knatttækni.
Guðjón Svansson
KA-IR 7-0 (4-0)
Akureyringamir í KA sýndu það og
sönnuðu um helgina að þeir hafa á að
skipa góðu liði. Þeir burstuðu ÍR- inga
7-0 og var þetta sjötti sigur KA í röð.
Þessi stórsigur KA var sá stærsti í 2.
deild í sumar og jafnframt var þetta
stærsta tap ÍR- inga síðan þeir hófu að
leika í 2. deildinni.
ÍR-ingar léku undan vindi í fyrri hálf-
leik en varla er hægt að segja að það
hafi komið þeim að notum. Strax á
upphafsmínútum leiksins fékk ívar
Bjarklind stungusendingu og skoraði
og aftur á 17. mínútu gerðist það sama
og staðan orðin 2- 0. Steingrímur
Birgisson skoraði þriðja mark KA á 36.
mínútu með skoti í stöng og inn og
Ormarr Örlygsson tryggði KA öragga
stöðu í hálfleik með að því skora fjórða
markið.
ÍR-ingar byrjuðu seinni hálfleik,
staðráðnir í að bæta sinn hlut. Það
tókst ágætlega í byrjun en eftir að ívar
Bjarklind fullkomnaði þrennu sfna og
skoraði fimmta markið þá gáfust ÍR-
ingar upp. Gauti Laxdal skoraði sjötta
markið beint úr aukaspymu og Gauti
var aftur á ferðinni stuttu síðar með
skoti beint úr aukaspymu og stórsigur
KA varð reyndin.
KA liðið lék mjög vel með ívar Bjark-
lind sem sinn besta mann og einnig
var Ormarr Örlygsson góður. Mikil
stakkaskipti hafa orðið á KA- liðinu
síðan í byrjun sumars en þá tapaði lið-
ið m.a. fyrir ÍR á útivelli 3-0 þannig að
þar hefur orðið 10 marka sveifla. Liðið
á þokkalega möguleika á sæti í 1. deild
en þeir eiga eftir m.a. að leika gegn
Leiftri. Erfitt er að gera sér grein fyrir
slökum árangri ÍR en þeir vora í topp-
baráttunni eftir átta umferðir.
UMFG-UMFT 4-0 (2-0)
Grindvíkingar eiga eins og KA þokka-
lega möguleika á að færast upp í deild
þeirra bestu eftir öraggan sigur á
Tindastóli, 4-0. Grindavík sem ekki
hefur tapað í fimm leikjum, byrjaði af
krafti og Ólafur Ingólfsson opnaði
markareikninginn með marki á 2.
mínútu leiksins. Þórarinn Ólafsson
gerði annað markið og þannig var
staðan í hálfleik. Þórarinn gerði annað
mark sitt og þriðja mark Grindvíkinga
á 60. mínútu. Það var síðan Guðlaug-
ur Jónsson sem innsiglaði stórsigur
Grindvíkinga á lokamínútum leiksins.
Leiftur-Stjarnan
3-2 (2-0)
Mikilvægur sigur hjá Ólafsfirðingum
og era þeir nú með jafnmörg stig og
Stjaman í öðra sæti. Markahæsti
maður deildarinnar, Pétur B. Jónsson,
gerði eitt mark fyrir Leiftur og vamar-
maðurinn Gunnlaugur Sigursveins-
son gerði tvö. Guðbjartur Magnússon
sá um markaskoranina fyrir Þróttara
sem ekki era enn sloppnir úr fall-
hættu.
Staðan í 2. deild
UBK........14 9 2 3 28-20 29
Stjaman....1483 3 24-15 27
Leiftur....148 3 3 26-20 27
KA.........14 71626-19 22
UMFG ......14 6 4 422-15 22
Þróttur R..14 5 3 623-2518
Þróttur N..14 52 721-2817
ÍR.........144 2 817-28 14
UMFT.......14 33 818-3012
BÍ.........1423 916-31 9
Markahæstin Pétur B. Jónsson
Leiftur 9, Willum Þór Þórsson
UBK 7, Jón Þórðarson Stjaman
7. Gunnar Már Másson Leiftur
6, Sverrir Sverrisson Tindastól
6, Leifur Hafsteinsson Stjaman
Næstu leikir. 28. ágúst Leiftur-
Þróttur R., ÍR-Grindavík,
TindastólI-UBK, BÍ-Stjaman,
Enska knattspyrnan:
Liðin frá Merseyside efst
— ásamt Ipswich með níu stig.
Merseyside-liðin, Liverpool og Ev-
erton, eru nú efst og jöfn í ensku
úrvalsdeildinni með níu stig að af-
loknum þremur umferðum. Li-
verpool burstaði nýliða Swindon 0-
5 og Everton sigraði 4-2 í sínum
leik. Ipswich er með jafn mörg stig
og Liverpool-liðin eftir sigur á
Chelsea 1-0 og er það eina liðið sem
ekki hefur fengið mark á sig til
þessa. Úrslit leikjanna um helgina
urðu annars þessi:
Swindon-Liverpool 0-5 (0-2)
Liverpool var með algera yfirburði í
þessum leik og komst á toppinn og
áttu nýliðamir aldrei neinn mögu-
Ieika en þeir leika nú í fyrsta skipti í
112 ára sögu félagsins í deild þeirra
bestu. Steve McManaman gerði tvö
mörk, Neil Ruddock, Ronnie Whel-
an og varamaðurinn Mike Marsh
gerðu hin mörkin.
Everton-Sheff.UTD 4-2 (2-1)
Besta byrjun Everton í mörg herr-
ans ár og stuðningsmenn liðsins era
ánægðir. Liðið hefur þó ekki leikið
gegn neinum stórliðum hingað til.
Tony Cottee var maður dagsins á
Goodison Park því hann skoraði
þrennu. Fjórða mark Everton gerði
John Ebrell. Whitehouse og Cork
gerðu mörk Sheff.UTD.
Ipswich-Chelsea 1-0 (1-0)
Ian Marshall gerði eina mark leiks-
ins fyrir framan tæplega átján þús-
und áhorfendur á Portman Road.
Vöm Ipswich virðist vera sterk því
liðið hefúr ekkert mark fengið á sig
hingað til.
Man. UTD-Newcastle 1-1 (1-0)
Ryan Giggs kom meisturanum á
bragðið á 40. mínútu þegar hann
skoraði úr aukaspyrnu framhjá
tékkneskum markverði Newcastle,
Pavel Smicek. Cole tókst síðan að
jafna fyrir Newcastle í síðari hálfleik
og kom því í veg fyrir að liðið væri
stigalaust eftir þrjár umferðir.
Coventry-West Ham 1-1 (0-1)
Roy Wegerley jafnaði leikinn fyrir
Coventry en áður hafði Dale Gordon
náð forystunni fyrir útiliðið sem
skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu.
Leeds-Norwich 0-4 (0-2)
Stærsta tap Leeds í áraraðir á
heimavelli staðreynd. Hins vegar
hafur Norwich náð í öll sex stigin á
útivelli til þessa. Fox gerði tvö mörk
og þeir Sutton og Goss hin tvö. 32
þúsund áhorfendur sáu leikinn.
Wimbledon-Aston Villa 2-2(l-l)
í tvígang tókst Wimbledon að jafna
Ieikinn. Kevin Richardson náði for-
ystunni fyrir Aston Villa en Dean
Holdsworíh jafhaði fyrir hlé. Paul
McGrath virtist hafa tryggt sigur As-
ton Villa þegar hann skoraði á 82.
mínútu en Justin Fashanu jafnaði
tveimur mínútum seinna. Fæstir
áhorfendur komu á þennan leik í
Úrvalsdeildinni eða 7.533 talsins.
Tottenham-Man.City 1-0 (1-0)
Allir leikir Tottenham hafa endað 1-
0 og hefur liðið sigrað í tveimur
þeirra. Steve Sedgley gerði eina
mark leiksins og sáu rúmlega 24
þúsund áhorfendur hann gera það.
Sheff.Wed.-Arsenal 0-1 (0-1)
Enn einu sinni leggur Arsenal lið
Sheff. Wed að velli en liðið sigraði í
tveimur úrslitaleikjum liðanna í
bikar- og deildarbikarkeppinni. Ian
Wright skoraði sigurmarkið á 9.
mínútu. Áhorfendur á leiknum vora
26.023.
Blackburn-Oldham 1-0 (1-0)
Kevin Moran skoraði sigurmarkið á
10. mínútu með skalla en þetta var
mikill baráttuleikur. Aðeins rúm-
lega þrettán þúsund áhorfendur sáu
leikinn.
QPR-Southampton 2-1 (1-0)
Hérna mættust liðin sem vora
stigalaus fyrir þessa umferð. Það var
síðan Southampton sem hélt áfram
að vera stigalaust á botninum ásamt
Swindon. Penrice og Wilson úr víta-
spymu gerðu mörk QPR en Dowie
mark botnliðsins.
Evrópuknattspyman:
Eyjólfur skoraói
fyrir Stuttgart
ÞÝSKALAND
Eyjólfúr Sverrisson opnaði
markareikning sinn um helgina
þegar hann skoraði seinna mark
Stuttgart í 2-2 jafntefli gegn Du-
isburg. Eyjólfur skoraði markið á
53. mínútu en Duisburg komst f
2- 0 með mörkum Weidemann og
Koezle en Stranz minnkaði
muninn fyrir hlé. Karl Heinz Ri-
edle og Matthias Sammer skor-
uðu tvö af mörkum Dortmund í
3- 2 sigri á Freiburg á heimavelli
en útiliðið komst í 0-2. Frankfurt
sigraði Kaiserslautem og skoraði
Ghana-búinn Anthony Yeboah
sigurmarkið. Mjög heitt var í
þessum leik og er talið að hitinn
hafi komist í 40 stig! Bayem
Munchen yfirspilaði Dynamo
Dresden á heimavelli 5-0. Meh-
met Scholl skoraði tvö mörk,
Christian Siege, Markus Schupp
og Christian Nerlinger gerðu hin
þrjú mörkin. Þá vann Gladbach
2-0 sigur á Numberg, Hamburg
lagði Schalke 4-1, Wattenscheid
tapaði fyrir B. Leverkusen 1-2 og
Köln vann Karlsrahe 2-1. Meist-
arar Werder Bremen unnu sigur
á Leipzig 3-1 og era efstir með
fimm stig en staðan er annars
þessi:
Werder Bremen ....3 210104 5
Frankfurt......3 2 10 7-2 5
B. Leverkusen..3 210 64 5
B. Munchen.....3 2 01 9-34
Hamburg........3 2 01 9-5 4
Kaiserslautem...3 2 01 6-3 4
B. Dortmund....3 2 01 54 4
Duisburg.......312 0 54 3
Freiburg.......3102 7-72
Karlsrahe......3102 44 2
Wattenscheid...310 2 5-6 2
Köln...........3102 24 2
B. Gladbach.....3 10 2 4-8 2
Nurberg........3 102 3-7 2
Schalke........3 10 2 2-7 2
Leipzig........2 011 4-61
Stuttgart......2011 3-71
D. Dresden.....3 0 12 3-9 1
HOLLAND
Feyenoord lék ekki um helgina
en úrslitin urðu eftirfarandi:
Ajax-Utrecht............4-1
Roda-Volendam...........2-0
Sparta Rotterd.-Willem..1-0
Waalwijk -Ttoente.......1-3
FC Utrecht-Amsterdam.....14
PSV Eindhoven-Go Ahead..3-0
Cambuur-Brede...........1-3
Ajax,1\vente, Eindhoven og Roda
era efst og jöfn eftir tvær um-
ferðir með fjögur stig. Feyenoord
hefur leikið einn leik og unnið
hann.
SVISS
Kriens-Neuchatel Xamas..1-1
Servette-Grasshopper.....1-3
Sion-Luceme..............3-0
Young Boys-Lugano........3-0
Yverdon-Lausanne.........0-1
FC Zurich-Aarau .........3-1
Staða efstu liðæ
Grasshopper .6402 13-6 8
Servette .632 1 7-3 8
FC Zurich ..632 1 6-2 8
Lausanne ..6 312 7-7 7
Aarau .6312 6-8 7
BELGÍA
Ghent-Waregem............2-2
Ekeren-Beveren...........0-0
Standard-Moienbeek.......0-1
Lierse-Genk..............3-1
Lommel-Seraing...........0-3
Anderlecht-FC Liege......6-0
Charleroi-Mechelen.......1-0
Cercle Bragge-Antwerpen ....2-4
Ostend-Club Bragge.......2-2
ÍTALÍA
AC-Mfian varð um helgina
meistari meistaranna eftir sigur
á Toríno 1- 0. Marco Simone
gerði markið á fjórðu mínútu.
Leikurinn fór fram í Washington
í Bandaríkjunum og er áætlað að
tæplega 26 þúsund manns hafi
séð leikinn. Japanir hafa sótt
um að fá að halda næsta leik
milli Ítalíumeistaranna og bik-
armeistara Ítalíu.