Tíminn - 22.09.1993, Page 1

Tíminn - 22.09.1993, Page 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn.-68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-síminn.-68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-síminn.-.68-76«48 M Miðvikudagur 22. september 1993 178. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- Erfiðlega gengur að fá fólk til að greiða kostn- að við komu á slysadeild: Slysadeild varð að afskrifa 6.300.000 kr. „Erflðlega gengur að fá fólk til að greiða kostnaðarhluta sinn við komu á slysadeild, þrátt fyrír margítrekaðar innheimtuaðgerðir. Þannig varö að afskrífa 6,3 milljónir á árínu, sem er 75% af afskrif- uðum viðskiptakröfum," segir framkvæmdastjórí Borgarspítalans (ársskýrslu sfðasta árs. Varðandi aðrar sértekjur spítalans bendir framkvæmdastjóri á að TVyggingastofriun ríkisins hafí ákveðið einhliða á síðasta ári að skerða reikninga frá slysa- og röntg- endeild. Þar með hafi stofnunin ein- hliða breytt áralangri hefð hvað varðar uppgjör þessara reikninga. Tilkynningin um þessa skerðingu hafi heldur ekki komið fyrr en í október, en samt var ákveðið að hún tæki til alls ársins 1992. Fjárhæðin sem um ræðir nemi samtals um 19 milljónum króna. Þar séu meðtaldar 1,7 millj. kr. sem TVyggingastofnun, ennfremur einhliða, hafi ákveðið að neita að greiða kostnað sem spítal- inn hafði af komu fríkortasjúklinga sem leita til HNE-deiIdar. „Þessi vinnubrögð eru forkastanleg og gjörbreyta sértekjumöguleikum stofriunarinnar. Ljóst er að bæta verður þetta upp á annan hátt, þ.e. með beinum fjárframlögum," segir Jóhannes Pálmason framkvæmda- stjóri og bendir jafnframt á að þessi skerðing sé nokkru hærri fjárhæð heldur en nam hallarekstri sem varð á Borgarspítalanum í fyrra. Heildarrekstrargjöld Borgarspítal- ans námu 3.225 milljónum króna á árinu, sem var 2,5% hækkun milli ára. Þar af námu launagreiðslur rúmiega 66%, eða 2.134 milljónum króna og hækkuðu um 1,8% frá ár- inu áður. Útgjöld umfram tekjur (hallarekstur) námu 17,6 milljónum kr. Alls voru 12.300 sjúklingar lagðir inn á spítalann í fyrra, sem var nærri 14% fjölgun frá árinu áður. Þrátt fyrir það varð nokkur fækkun á legudögum vegna þess að meðallegutími styttist úr 15 dögum f 13,1 dag. Legudagar voru alls 161.250 á árinu. Kostnaður á legudag varð tæplega 20.100 kr. að meðaltali, hvar af launa- kostnaður nam um 13.300 kr. - HEI ÞEIR VORU ÁHUGASAMIR yngstu grunnskólanemendumlr sem þessa dagana fræöast um aö umgangast stræt- Isvagnlnn rétt, undlr kjöroröinu „Rétt með strætó". Það aö ganga rétt yflr götu ásamt þvf að nota gangbrautir og fara eft- Ir umféröarijósum er veigamiklll þáttur I kennslunni sem SVR, fræösluyflrvöld og lögreglan standa fyrir. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins segja að harðar deilur stjórnarflokkanna að undanförnu hafi neikvæð áhrif á stjórnarsamstarfið. Pálmi Jónsson: „Þessu verður að linna ef stjórnin á að lifa“ „Ég held að menn verði að setja niöur þessi vinnubrögð ef þessi stjóm á að halda áfram. Það er mitt mat að þetta geti ekki gengið með þessum hætti áfram," sagði Pálmi Jónsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, þegar hann var spurður hvort hann óttaðist ekki að harðar deilur stjómarfiokkanna síðustu vikumar heföu nei- kvæð áhríf á stjómarsamstarfið. Pálmi er ekki eini þingmaður Sjálf- stæðisflokksins sem er þeirrar skoð- unar að forystumenn stjómarflokk- anna verði að setja niður deilur sín á milli strax, nægur skaði sé þegar orð- inn. Tómas Ingi Olrich gagnrýndi Al- þýðuflokldnn nýlega á stjómmála- fundi fyrir norðan. Hann sagði að Al- þýðuflokkurinn væri að fara á taug- um og að missa kjarkinn. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra lét einnig hafa eftir sér í fjölmiðlum í gær að uppákomumar að undan- fömu veiktu stjómarsamstarfið. Al- þýðuflokkurinn yrði að breyta vinnu- brögðum og hætta að ögra Sjálfstæð- isflokknum. Pálmi Jónsson tekur undir með Þor- steini um þetta atriði og segir: „Það hafa verið mjög miklar ögranir í yfir- lýsingum Alþýðuflokksins og tiltekt- um formanns flokksins upp á síðkast- ið sem valda erfiðleikum í stjómar- samstarfi." „Svona deilur hafa ömgglega nei- kvæð áhrif á stjómarsamstarfið. Ég vona bara að menn hafi vit á því að slíðra sverðin og fari að tala saman. Mér sýnist ýmislegt benda til þess að það eigi að vera hægt,“ sagði Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins, um deilur flokkanna. „Ég held að allir hljóti að hafa vissar Ýmislegt bendir til að ástand efnahagsmála sé ekki eins dökkt og búist var við. Meira hefur y veiðst af loðnu og þorski, fleiri ferðamenn og hagstæður viðskiptajöfnuður. VMSÍ: Aform um auknar álögur á hilluna áhyggjur af þessum deilum,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, um deilur stjómarflokkanna. Hann sagðist vona að menn gerðu sér grein fyrir til hvers þær myndu leiða og yrðu því sáttfúsari í framtíðinni. Vilhjálmur og Einar sögðust vona að menn þjöppuðu sér saman og tækju sáttfúsir á erfiðu deilumáli eins og breytingum á búvörulögum þegar þing kemur saman. Einar viður- kenndi að það yrði mjög erfitt fyrir stjómarflokkana að ná saman um málið. Það sé hins vegar hægt ef vilji sé fyrir hendi. Einar sagði að eftir því sem hann vissii best, stæðu menn í sömu sporum og þegar þingmenn hættu að deila um búvömlagafrum- varpið síðastliðið vor. -EÓ Ríkisstjórnin stofnar starfshóp til að vinna að breytingum á innflutningslögum Ýmislegt bendir til að ástand efnahagsmála sé ekki eins dökkt og búist var við. Þar vegur einna þyngst að loðnu- og þorskveiði hef- ur veríö meirí í ár en gert var ráð fyrír og sömuleiðis hefur flöldi ferðamanna veríð meiri en áður og eins hefur viðskiptajöfnuður viö útlönd veríð mun hagstæðarí en áður. Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands íslands, segir að þessar breytingar til hins betra í efnahagslífi landsmanna eigi að minnsta kosti að vera ástæða til þess að það þurfi ekki að koma til frekarí kjaraskerðingar en orðið er. Hann seg- ir jafnframt að þetta ætti einnig að verða til þess að stjómvöld leggi á hill- una fyrirhuguð áform um að auka álögur á almenning Ld. með nýrri skattheimtu í heilbrigðiskerfinu í formi heilsukorta. „Ætli það sé nú ekki rétt að skoða fyrst þau kaflaskil í núverandi kjara- samningi sem miðast við 10. nóvem- ber n.k. áður en farið verður að huga að þeim næstu,“ segir Bjöm Grétar. En eins og kunnugt er þá er það ekki fyrr en í maí á næsta ári sem launa- nefnd aðila vinnumarkaðaríns á að taka ákvörðun um það hvort horfur um þróun þjóðartekna verði þess eðlis að hægt sé að hækka laun launafólks f samræmi við það. Þrátt fyrir ýmis teikn um batnandi árferði og minnkandi atvinnuleysi virðast atvinnurekendur áfram nota atvinnuleysisvofuna sem grýlu á launafólk m.a. með því að segja því upp og endurráða á lakarí kjörum en áður og áunnin réttindi er ýmis ve- fengd eða hreinlega afnumin. Þessi aðför að launafólki er einatt fram- kvæmd undir yfirskyni hagræðingar sem birtist launafólki í meiri vinnu fyrir minna kaup, eins og t.d. ræst- ingakonur hafa fengið að reyna. Misnotkun á ástandi „Framgangan í sumum málaflokkum hvað þetta varðar er með hreinum ólíkindum og nánast í líki farsóttar. Þetta er gert í því skjóli að það sé erfitt að fá atvinnu og það er notað til að hræða fólk. Ég bendi jafnframt á að þegar einhvers staðar kreppir að, þá byrjar hagræðingin á gólfinu, í þess orðs fyllstu merkingu," segir Bjöm Grétar Sveinsson. Hann segir að verkalýðshreyfingin líti á þessa misnotkun atvinnurekenda á ástandinu mjög alvarlegum augum og sé mikið rædd innan hreyfingar- innar. Bjöm Grétar segir einnig að það sé töluvert um það að fólk þori varla að segja frá yfirgangi atvinnurekenda í sinn garð af ótta við að missa vinnuna. „Samhliða þessu koma þessir sjálf- skipuðu frelsisunnendur og reyna að telja fólki trú um að lykillinn að þessu öllu saman sé að vera alls ekki í stétt- arfélagi og greiða ekki til þess. Þess í stað eigi launafólk að semja beint við atvinnurekandann. Við höfum séð dæmi um þetta eins og t.d. hiá Lyst hf., rekstraraðila McDonalds á Islandi. Þama er auðvitað ekki um annað að ræða en einhliða tilskipanir og á ekk- ert skylt við neina samninga." Formaður VMSÍ segir að munurinn á þrælahaldinu og þessu sé sá að á sín- um tíma hafði þrælahaldarinn ákveðna framfærsluskyldu sem ekki sé f þessu tilviki. -grfa Það er engin réttaróvissa Ríkisstjómin samþykkti í gær tillögu ut- anríkisráðherra um að mynda starfshóp fjögurra ráðuneyta til að vinna að breyt- ingum á innflutningslöggjöf vegna að- ildar íslands að EES og GATT. Deila stjómarflokkanna um landbúnaðarmál var rædd á ríkisstjómarfundinum. Eng- in niðurstaða varð á fundinum. Davíð Oddsson forsætisráðherra hafn- aði því í gær að einhver réttaróvissa sé um innflutning búvara eins og Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra hef- ur haldið fram. Davíð sagði að Jón Bald- vin hlyti að eiga við þá óvissu sem hann sjálfúr skapaði með yfirlýsingum sfnum um að innflutningur á unnum kjötvör- um værí heimill. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.