Tíminn - 22.09.1993, Side 5

Tíminn - 22.09.1993, Side 5
Miðvikudagur 22. september 1993 Tíminn 5 Leynivopn rannsóbiarlögreglumanna: Flestir glæpamenn falla á eigin bragði Nýlega urðu tveir atburðir í sömu vikunni, annar í Norður-Karólínu og hinn í New York, til að beina athygli almennings að því hversu háskaleg- ir útlagar nútímans eru orðnir — og mikiir kjánar. f öðru tflvödnu var faðir körfuboltastjörnunnar Michaels Jordan skot- inn tfl bana. Hann varð fyrir valinu af tflvifjun, að sögn lögreglunnar, þegar tveir vopnaðir 18 ára strákar voru bara að leita að einhverjum til að raena og fundu hann sofandi í rándýra bflnum sínum við vegarbrún. f hinu tilfellinu endaði sagan vel, þegar rannsóknarlögreglumenn drógu Harvey Weinstein, áflogagjaraan 68 ára eiganda smókingverkstæðis í Queens, út úr leirholu sem mannraningjar höfðu kviksett hann í 12 dögum fyrr. En það, sem sameiginlegt var báðum þessum glæpum, var sljó- leiki hinna ákærðu. Það er erfitt að dæma í hvoru tilvikinu heimskan var meiri: hjá þeim, sem eru grunaðir um morðið á Jordan og höfðu hringt marg- sinnis úr bflasíma fómarlambs- ins svo að símareikningarnir mynduðu slóð beinustu leið til þeirra. Eða Fermin Rodriguez, starfsmaðurinn á verkstæði We- insteins, sem að sögn lögreglu sótti þriggja milljóna dollara lausnarféð og ók í burt á eigin bfl. „Þeir voru að reyna að vera sniðugir, en voru algerir bjánar“ Nákvæmnis- og þol- inmæðisvinna skilar árangri Stundum er það nákvæmnis- og þolinmæðisvinna rannsóknar- manna sem verður glæpamönnun- um að falli. Morðinginn í New York, sem kallaði sig „Son of Sam“, fannst með því að rekja mörg hundruð stöðusektarmiða sem settir voru á bfla nálægt þeim átta stöðum sem hann hafði skotið fómarlömb sín á. í ljós kom að hann hafði Iagt við brunahana á einum staðnum. En hver einasti rannsóknarlögreglumaður á eftir- lætissögu af máli, sem auðvelt var að leysa þegar sá grunaði gerði eitthvað kæruleysislegt eins og td. skildi eftir sig kærumiða fyrir að svíkjast um að borga í neðanjarð- arlestina þar sem hann hafði fram- ið árás og rán á lestarpallinum. ,Son of Sam' framdi átta morö f New York áöur en lögreglan gómaöi David Berkowitz. Honum varö aö falli aö hann haföi lagt bfl sfnum viö brunahana f grennd viö einn moröstaöinn og fengiö sektarmiöa fyrir. Larry Martin Demery (t.v.) og Daniel Andre Green hafa veriö kæröir fyrir moröiö á James Jordan, fööur körfuboltastjörnunnar Michael Jordan. Rann- sóknarlögreglumennirnir þurftu ekki annaö en aö rekja sfmtöl þeirra úr bfia- síma Jordans til aö hafa upþ á þeim. „Þeir vom að reyna að vera snið- ugir, en voru algerir bjánar," segir yfirmaður þeirrar deildar lögregl- unnar í New York sem fæst við stærri mál. Að glæpamenn skuli gera svona asnalegar grundvallarskyssur virð- ist einhvem veginn andstætt eðlis- ávfsun sömu dagana og ekki mun- ar nema hársbreidd að mest ógn- vekjandi þorparanum á hvíta tjald- inu í sumar — John Malkovich í „f skotlínu" — takist að ráða forseta af dögum. Hann stofnar falsaða bankareikninga, býr til plastbyssu til að renna gegnum málmleitar- tæki og smíðar síma sem fer létt með að plata bestu tæki leyniþjón- ustunnar til að rekja símtöl. Ef satt skal segja, er það löggæsl- an sem hefúr notið mest góðs af vísindalegum nýjungum upp á síð- kastið. Tölvur, sem breyta fingra- förum í stærðfræðiformúlur og fara gegnum mörg þúsund þeirra á klukkustund til að leita að sam- svarandi förum, hafa komið í stað gömlu aðferðarinnar — þeirrar að bera saman kámug spjöld eigin hendi. DNA-tækni getur borið saman ögn af blóði, hári eða sæði við grunaðan svo að óyggjandi sé allt að 100 prósentum. Nokkrir ríkustu og forfrömuð- ustu eiturlyfjakóngamir hafa kom- ið sér upp tækni eins og tölvupósti til að komast hjá því að upp um þá komist, en rannsóknarlögreglu- menn og saksóknarar segja að enn sé mikið af þeim glæpum, sem framdir eru í Bandaríkjunum, of- beldi á götum úti, sem brjótist út fyrirvaralaust og brotamennimir verði æ yngri og reynsluminni og leggi ekki mikið á sig til að hylja spor sín. „Flestir glæpamenn em ekkert sérlega klókir og þegar þeir nást er ástæðan sú að þeir hafa gert eitt- hvað reglulega heimskulegt," segir skólastjóri í Iögregluskóla og bendir á að í skáldsögum og sjón- varpi sé athyglin dregin meira að undantekningartilfellum, þeim sem em færír um að plata lögguna nógu lengi til að sagan verði spennandi. Morðum fjölgar, en lögreglan leysir enn um 70% þeirra Ofbeldisglæpir náðu metfjölda ár- ið 1991, 758 á hverja 100.000 Am- eríkana. Ofbeldisglæpum unglinga sérstaklega fjölgaði um yfir 25 pró- sent á einum áratug. Engu að síður tókst lögreglunni á þessum tíma að halda þvf hlutfalli að leysa 70% morðmála. Ástæða þess að tekst að leysa svona mörg morðmál, sem er miklu betri ár- angur en hvað varðar að leysa önn- ur mál s.s. rán, er sú að miklu meira fé er veitt til morðmála og líka sú að þeir myrtu hafa oft þekkt eða verið skyldir morðingjunum. Sumir sérfræðingar álíta að auk- in glæpatíðni hafi, þó að skrítið sé, sljóvgað glæpamennina og gert þá kærulausa. Stórkostleg glæpatíðni og van- geta dómskerfisins til að fást við hana hefúr valdið því að glæpa- mennimir eru óvarkárari. Þetta er skoðun fyrrum leynilögreglu- manns í Chicago, sem nú stýrir hópi óbreyttra borgara sem hefur eftirlit með því hvemig lögunum er framfylgt í New York City. Margir glæpir eru framdir í hita augnabliksins og engin hugsun höfð á að fjarlægja fingraför eða sjónarvotta. En það er einn hópur glæpamanna, sem búast mætti við að hefði Iært eitthvað af reynsl- unni. Það eru þeir sem stinga af á skilorði og fara huldu höfði og lög- reglan hefur gómað a.m.k. einu sinni. Þeir flinkustu skipta um síma- númer og nafn og segja algerlega skilið við fjölskyldu sína til að forð- ast eftirlit Flestir falla á því að hafa samband við fjölskylduna. Eða þeir rekast af tilviljun á fyrrverandi félaga, sem nú em komnir til liðs við yfirvöld, og segja þeim undir hvaða nafni þeir ganga núna. Auövelt aö gabba flóttafanga úr felum Margir flóttafanganna hafa verið gabbaðir úr felum með brögðum, sem eftir á að hyggja virðast hlægileg. 1984 náðu menn alrík- islögreglunnar í New York City um 65 glæpamönnum saman með því að senda bréf á síðasta þekkta heimilisfangið þeirra, þar sem stóð að þeir hefðu unnið stór sjónvarpstæld eða önnur verð- laun. Þegar flóttamennimir skriðu fram úr fylgsnum sínum til að taka við verðlaununum, var þeim sagt að bíða eftir sendibfln- um ffá „Brooklyn Brídge Delivery Service". Bfllinn kom — fullur af lögregluþjónum. í Washington gekk lögreglu- þjónum jafnvel enn betur, þegar þeir sendu flóttaföngunum bréf þar sem þeim var sagt að þeir hefðu unnið aðgöngumiða á fót- boltaleik Redskins, sem vom næstum því ófáanlegir, og hádeg- isverð fyrir leikinn sér að kostn- aðarlausu. Níutíu og sex gáfú sig fram, sýndu skilríki og vom handjámaðir. „Þegar ég var ungur, á sjötta ára- tugnum,“ segir fyrrverandi Chic- ago-löggan, „sváfii atvinnuglæpa- menn sem vom eftirlýstir fýrir eitthvað alvarlegt, ekki í rúmum sínum að næturlagi, og ef þeim vom send bréf þar sem sagði að þeir hefðu unnið ferð til Las Veg- as, sýndu þeir sig ekki.“ „En það er alltaf græðgin sem nær yfirhöndinni. Þeir vilja alltaf fá svolítið meira," segir einn sjó- aður lagavörður. Græðgin fær alltaf yfírhöndina Er til betri vitnisburður um það en heppni FBI þegar alríkislögregl- an var að reyna að finna hryðju- verkamennina sem bám ábyrgðina á sprengingunni í World TVade Center? FBI hafði í höndunum beyglað stykki úr sendibíl með ökutækisnúmeri og röktu það til útibús Ryders-bflaleigu. Hverjum hefði dottið í hug að Mohammed A. Salameh myndi koma aftur á bfla- Ieiguna til að krefjast þess að fá 400 dollara trygginguna sína endur- greidda? öðrum glæpamönnum verður á í messunni, þegar þeir trúa því sem þeir sjá í bíó. Þeir, sem rændu Stephen Small og fóm fram á einn- ar milljón dollara lausnargjald í 111- inois 1987, ,4Iitu að til að rekja símtal yrði lögreglan að fylgjast með símalínunni einhvem tíma," segir fyrmm saksóknari í málinu. En hann segir að því sé ekki þann- ig varið. „Þegar síðasta talan í númerinu er tekin, er símtalið rak- ið.“ Þó vom 350.000 handtökuskipan- ir flóttamanna vegna alvarlegra glæpa enn óafgreiddar í fyrra, og til em glæpamenn sem hafa komist hjá handtöku ámm saman, eins og t.d. hinn dularfulli „Unabom“ sprengjumaður. Á síðustu 15 ámm hefúr hann ráðist á vísindamenn, drepið einn og sært 22 aðra með sprengjubókum, pökkum f brún- um pappír eða gljáandi viðarköss- um með ágröfnum stöfunum „FC“, sem em einkennismerki hans. Og hver veit hversu margir glæpa- menn hafa hulið slóð sína svo vel að enginn veit að glæpur hafi verið framinn? „Það er erfitt að segja til um hversu mikið er um að glæpir séu framdir," segir einkaspæjari í New York. „Skilgreiningin er: Ef glæpamaðurinn er virkilega fær, kemst aldrei upp að glæpur hafi verið framinn."

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.