Tíminn - 22.09.1993, Blaðsíða 12

Tíminn - 22.09.1993, Blaðsíða 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTT OG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELL113-SlMI 73655 ^TWabriel HÖGG- DEYFAR Versliö hjá fagmönnum Qjvarahlutir Hamarshöfða 1 Tíminn MIÐVIKUDAGUR 22. SEPT. 1993 Stærð stéttarfélaga skiptir mestu máli en ekki hvort þau eru kynskipt eða ekki. Verkakvennafélagið Snót í Eyjum: Sameining fé- laga styrkir þau í sókn og vörn Elsa Valgeirsdóttir, formaöur Verkakvennafélagsins Snótar í Vest- mannaeyjum, segir aö þaö sé stærö stéttarfélagsins sem skiptir mestu máli en ekki hvort þau séu kynskipt eða ekki. Hún segir aö sameining stóttarfélaga í Eyjum hafi svolítið verið rædd en málið sé viðkvæmt „En ég sé ekki að það sé eitthvað fengið með kynskiptum stéttarfé- lögum í sjálfu sér. Persónulega finnst mér að það eigi að sameina fé- lög meira en gert hefur verið.“ Formaður Snótar segir að smæð stéttarfélaga geti valdið vissum erf- iðleikum hjá þeim bæði hvað varðar rekstur og þjónustu við sína félags- menn. Hún segir að það sé engin launung á því að sameining félaga mæti frekar andstöðu hjá eldra fólki en þeim yngri sem einatt setja sam- einingu félaga ekki fyrir sig. Miklar breytingar virðast vera í vændum í skipulagsmálum verka- lýðshreyfingarinnar og þá sérstak- lega hvað viðkemur sameiningu fé- iaga. Fyrir dyrum standa viðræður Dagsbrúnar og Framsóknar um sameiningu og sömuleiðis var það samþykkt á aðalfundi Snótar að hefja viðræður við önnur stéttarfé- lög í Eyjum um sameiningarmál. Reiknað er með að þær viðræður hefjist í hausL Þá er mikill vilji fyrir sameiningu verkalýðsfélaga innan Alþýðusam- bands Norðurlands og á nýafstöðnu þingi Alþýðusambands Suðurlands var kjörin nefnd til að kanna mögu- leika á sameiningu verkalýðsfélaga á Suðurlandi. Nauðsyn á sameiningu verkalýðsfé- Iaga hefur löngum verið rædd innan hreyfingarinnar og það er kannski ekki tilviljun að hreyfing kemst á þessi mál samhliða róttækum tillög- um um sameiningu sveitarfélaga svo ekki sé minnst á þá umræðu sem beinst hefur að verkalýðsfélög- unum og aðild launafólks að þeim. Þá hefur samdráttur í launum verkafólks haft áhrif á tekjur félag- anna og ekki er ólíklegt að einhver þeirra hafi þurft að grípa til sjúkra- sjóðanna til að fjármagna rekstur- inn. En síðast en ekki síst er sameining stéttarfélaga gerð í þeim tilgangi að gera þau sterkari og samstilltari í sókn og vöm. -grh Frá opnun sjávarútvegssýnlngarinnar I Laugardalshöll. Tfmamynd Áml Bjama Islenska sjávarútvegssýningin: Mikil ánægja og góð aðsókn Alls sóttu um 12.200 manns íslensku sjávarútvegssýninguna í Laugardalshöll þá fimm daga sem hún stóö yfir en sýningunni lauk sl. sunnudag. Hátt í 500 fyrirtæki frá um 24 löndum tóku þátt í sýningunni og þar af vel á annað hundrað íslensk framleiðslu- og þjónustufyrirtæki. Margir þátttakendur lýstu yfir ánægju sinni með sýninguna og hversu aðsóknin að henni hefði verið góð. Á sýningunni var mikil áhersla lögð á aukna nýtingu hráeftiis og gæði í fiskiðnaði. Þar gaf t.d. að líta mörg tæki og tól sem sýndu hugvitsamlegar útfærslur við veið- ar og vinnslu. Þegar eru þátttakendur famir að skrá sig á næstu sýningu sem verð- ur haldin hérlendis í fimmta sinn árið 1996. -grh Landbúnaðarráðherra ætlar að breyta umdeildri reglugerð um takmörkun á innflutningi búvara: Tengist ekki gagnrýni Jóns Baldvins Halldór Blöndal landbúnaöarráöherra hefur ákveöiö að gera breyt- ingar á nýrri reglugerö sem hann gaf út um takmörkun á innflutn- ingi búvara. Jón Baldvln Hannibalsson utanríkisráöherra hefur gagnrýnt þessa reglugerö harðlega og sagt hana vera lögleysu. Halldór segir aö þær breytingar sem geröar veröi á reglugerðinni tengist á engan hátt gagnrýni Jóns Baldvins. „Þetta er fyrst og fremst embættis- um landbúnaðarmálin," sagði Hall- mannavinna. Það er verið að yfirfara tollnúmer og annað. í þessu er eng- in stórfrétt að einu eða neinu leyti. Þetta tengist ekki með neinum hætti þeirri umræðu sem er uppi dór. Reglugerð landbúnaðarráðherra um takmörkun á innflutningi bú- vara var sett 9. september síðastlið- inn í framhaldi af deilum um inn- flutning Hagkaups á skinku til landsins. Reglugerðin er sett með tilvísun til búvörulaga. Utanríkis- ráðherra telur reglugerðina ekki byggða á fullnægjandi lagastoð, þar sem búvörulög veiti ekki sjálfstæða lagaheimild til að takmarka inn- flutning. Jón Baldvin gagnrýnir landbúnaðarráðherra ennfremur harðlega fyrir að láta reglugerðina taka til vöruflokka sem skilgreindir eru sem iðnaðarvörur, þ.e. vörur sem unnar eru úr landbúnaðarhrá- efnum eins og t.d. smjörlíki. Halldór Blöndal sagði að þær breyt- ingar á reglugerðinni sem unnið væri að í landbúnaðarráðuneytinu tengist ekki gagnrýni Jóns Baldvins á reglugerðina. Embættismenn séu að yfirfara reglugerðina með tilliti til tollnúmera og fleiri atriða. Hann sagði að fréttatilkynning yrði gefin út þegar búið væri að breyta reglu- gerðinni. -EÓ ...ERLENDAR FRÉTTIR... Moskva - Borís Jeltsln, forseti Rúss- lands, tók ákvöröun um aö leysa upp þingiö og efna til þingkosninga 12. des- ember. Jeltsfn hefur átt I höröum deilum viö þingið undanfarin misseri, en deil- umar hafa komiö I veg fyrir aö nauösyn- legum umbótum I efhahags- og atvinnu- llfi landsins sé hrint I framkvæmd. RusF an Khasbulatov, forseti þingsins, kallaöi út hersveitir I gær tíl aö bijóta tílskipun Jeltsln á bak aftur og Alexander Rutskoi, varaforsetí Rússlands, sagöi aö hersveitír væru I viöbragösstööu og nokkrar værn á leiö tíl Moskvu. Heimildir herma aö slmallnur viö Hvlta húsiö, aö- setur forsetans, hafi veriö geröar óvirkar stuttu eftir aö Jeltsfn tílkynntí ákvöröun slna. JERÚSALEM — Jitzhak Rabin forsæt- isráöherra iagöi rikisstjóm slna aö veöi I gær I átakamiklum umraeðum þegar hann leitaöi eftír viöurkenningu þingsins á friöarsamningi Israels og Frelsishreyf- ingar Palestlnumanna. AMMAN — Foringi PLO, Jassir Arafat, fór tíl Klna eftir aö hafa mildaö særöar tílflnningar Jórdana, nánustu banda- manna sinna I Arabaheiminum, vegna leynilegs friöarsamkomulags viö Israel. KÚVEfT — Hópur frá Evrópubandalag- inu hittí furstann f Kúveit á ferö sem far- in er til aö hvetja Flóariki tíl aö styöja friöarsamkomulag Israela og PLO meö olíudollumm. RÓM — Einn aöalrabbina Israels sagöi aö Jóhann Páll páfi heföi sagt honum aö .sá tfmi nálgist* aö páfinn heimsæki Jerúsalem. GENF — Á næsta áratug vetöur þörf fyrir allt aö 12 milljöröum dollara til aö endurreisa Gaza-svæöiö og vestur- bakkann skv. skýrslu Sameinuöu þjóö- anna. SARAJEVO — Múslimar sögöu i gær aö náöst heföi samkomulag um þaö mikilvæga atriöi aö þeir heföu aögang aö sjó I viöræðum milli strlöandi fýlkinga um fyrirhugaöa skiptíngu Bosniu. Alþjóðlegi sáttasemjarinn Owen lá- varöur sagöi aö múslimar, Króatar og Serbar kunni aö vera nær þvl en nokkru sinni fyrr aö ná friöi eftír viöræöumar I fyrradag um borö I breska flugmóöur- skipinu Invincible. BRÚSSEL — Rikissflómir Evrópu- bandalagsrfkjanna náöu I gær harösóttri málamiölun um viöskiptí meö landbún- aöarvörur og sögöu þaö opna leiöina fyrir vlötækari GATT- samning en lam- andi barátta EB um viöskipti er langt I frá búin. VARSJÁ — Fynum kommúnistar I Póf- landi sem eru nýbúnir aö vinna stórsigur I þingkosningum, gáfust I gær upp viö tilraunir til aö fá aöalmiöflokkinn tíl liös viö sig I samsteypustjóm en héldu áfram tílraunum tíl að fá tvo vinstri sinn- aöa hópa á sitt band. TEL AVIV —■ Fjölskylda Johns Demjan- juk kom f gær tíl Israel tíl aö flytja hann heim tíl Bandarikjanna eftír aö hann var sýknaöur af ákærum um aö vera hinn alræmdi starfsmaöur viö gasklefa nas- ista .Ivan grimmi*. TBLISI, Georgfu — Uppreisnarher- menn Abkhaza lögöu aftur til árásar á hermenn Georglu I Sukhumi I gær og létu stórskotasprengjum rigna yfir illa leikinn baöstrandarstaöinn viö Svarta- haf. MOSKVA — Vamarmálaráöherra Lithá- ens, Audrius Butkevicius, bauöst tíl aö segja af sér eftir aö hópur vopnaöra sjálfboðaliöa hljópst úr hemum, aö sögn Baltfax fréttastofunnar. MOSKVA — Ásakanir á hendur aöstoö- arforsætísráöherranum Vladimir Shu- meiko um fjármálamisferíi eiga ekki við rök aö styöjast. Þaö hafa rannsóknir skrtfstofu aöalsaksóknara Rússlands leitt I Ijós aö þvl er Interfax fréttastofan sagöi f gær. MOGADISHU — Tveir pakistanskir friö- argæsluiiöar voru I gær sagöir drepnir I orrustu viö vopnaöa sómalska lögreglu- menn og bandarlskir skyndiárásarmenn á þyrium handsömuöu helsta fjárhags- lega stuöningsmann strföshenans Mo- hamed Farah Aideed I Mogadishu. Ai- deed fer enn huldu höföi. DENNI DÆMALAUSI „Égþori að veðja að hann giftirsig bara til að fá kök- una og gjafímar."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.